Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Miðvikudagur 19. janúar 2011
Völlurinn það hættu-
legasta við Birnina
n Green Bay Packers heimsækir
Chicago Bears næsta sunnudag í
úrslitaleik Þjóðardeildarinnar í NFL.
Bears verður þar
á heimavelli á
hinum ógn-
vænlega Soldier
Field-velli.
Út herji Packers,
Greg Jennings,
segir það
hættulegasta við
heimavallarrétt
Bjarnanna vera völlinn sjálfan.
„Þarna myndast gífurlegur hávaði og
stuðningsmenn þeirra hætta aldrei
að öskra. Þeir eru ótrúlega sterkir
á heimavelli og hann mun hjálpa
þeim mjög mikið. Við verðum að
reyna að láta þetta hafa sem minnst
áhrif á okkur en ég veit ekki hvort
það sé hægt,“ segir Jenning.
Ekki hægt að skipta á
milli markvarða
n Írski markvörðurinn Shay Given
hjá Manchester City hefur verið í
ókunnu hlutverki á þessu tímabili.
Hann hefur leikið hlutverk vara-
markvarðar en síðustu tíu árin hefur
hann verið einn af betri markvörð-
um ensku úrvalsdeildarinnar. „Það
er ekki gaman fyrir mig að láta Shay
alltaf vera á bekknum. Það er samt
ekki hægt að vera alltaf að skipta á
markvörðum þó það sé hægt með
útileikmenn,“ segir Roberto Mancini,
stjóri City, sem gerði Joe Hart að
aðalmarkverði liðsins fyrir tímabilið.
Talið er næsta víst að Given fari frá
félaginu í janúar, í það minnsta á
láni.
Vill Fabregas áfram
hjá Arsenal
n Franski framherjinn Thierry Henry
vill að Cesc Fabregas verði áfram hjá
Arsenal. Barcelona er búið að taka
frá treyju númer fjögur og ætlar að
landa miðju-
manninum í eitt
skipti fyrir öll í
sumar. „Cesc er
frábær leikmaður
og fyrirliði liðs-
ins. Ef Arsenal
vinnur titilinn
verður sagt að
hann hafi átt
frábæra leiktíð. Ég vil að hann verði
áfram hjá Arsenal og hætti að spá í
annað. Hjá Arsenal er hann elskaður
og þar spilar hann lykilhlutverk,“
segir Henry.
Molar
Alfreð á skotskónum Besti leikmaður
Pepsi-deildar karla, Alfreð Finnbogason, sem samdi við
belgíska félagið Anderlecht í fyrra skoraði fyrir varalið
félagsins í 2–1 tapleik gegn Standard Liege. Alfreð er
orðinn löglegur með Anderlecht en má þó ekki spila
næsta leik þar sem hann átti að spilast áður en Alfreð
fékk leikheimild. Hann gæti þó verið kominn
í leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Racing
Gent sem fram fer á sunnudaginn.
Van der Vaart ánægður í Tottenham
Rafael van der Vaart hefur verið einn albesti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar á yfirstandandi leiktíð. Honum líkar lífið vel á
White Hart Lane og er hæstánægður með að spila fótbolta aftur
eftir erfiða tíma hjá Real Madrid. „Ég er búinn að finna ástina á
fótboltanum aftur. Hjarta mitt er hjá Tottenham í dag. Þetta er
ekki risastórt félag heldur bara rótgrótið og gott félag. Þannig
umhverfi hef ég vanist bæði hjá Ajax og hjá Hamburg og mér
líkar þetta vel,“ segir Hollendingurinn knái.
David Beckham hefur reynt að færa
sannanir fyrir því að hann hafi aldrei
sofið hjá gleðikonunni Irmu Nici
árið 2007. Hann segist hafa verið við
sjúkrabeð föður síns í einu af þeim
skiptum sem Nici segist hafa verið að
gera vel við hann. Allt varð vitlaust á
síðasta ári þegar Nici kom fram í tíma-
ritinu In Touch og sagðist hafa sofið
tvívegis hjá Beckham gegn greiðslu.
Beckham var ekki lengi að neita því og
kærði blaðið og heimtar 25 milljónir
Bandaríkjadala vegna rógsins.
Beckham segist hafa ætlað sér að
fá nudd þegar hann hitti Nici fyrst
árið 2007. Segir Nici að þau hafi sof-
ið saman á Claridge-hótelinu í Lond-
on mánuði seinna en Beckham segist
þá hafa verið að heimsækja föður sinn
á sjúkrahús þar sem hann lá eftir að
hafa fengið hjartaáfall.
tomas@dv.is
Beckham reynir að sanna mál sitt:
Var hjá pabba
Berst við gleðikonu Þetta er ekki í fyrsta
skiptið sem Beckham er sakaður um að hafa
sofið hjá vændiskonu. Mynd ReuTeRS
Fimmtán manna hópur keppir í undankeppni EM um helgina:
Fyrsta íslenska futsal-landsliðið
Lokaleikur Íslands í B-riðli heims-
meistaramótsins í handbolta fer fram
á fimmtudagskvöldið en þá mæta
strákarnir okkar liði Norðmanna. Nor-
egur hefur lengi verið með mjög gott
lið en aldrei tekist að taka skrefið til
fulls og spila til verðlauna. Best eiga
þeir sjötta sæti, bæði á HM og EM.
Guðjón Guðmundsson, íþróttafrétta-
maður á Stöð 2 Sport og handbolta-
spekingur, býst við erfiðum leik. „Per-
sónulega hef ég verið hrifinn af norska
liðinu í mörg ár og undrast það hrein-
lega að það hafi ekki náð betri árangri.
Þarna er valinn maður í hverri stöðu
og liðið hefur sett sér það markmið að
komast í undanúrslit,“ segir Guðjón.
Þrír frábærir línumenn
Noregur hefur á að skipa góðu liði
en það er best mannað inni á lín-
unni. Þar eru Bjarte Myrhol, leik-
maður Rhein-Neckar Löwen, og
Frank Löke, tveir af betri sóknar-
línumönnum heims. „Þá er ekki öll
sagan sögð. Það broslega við þetta er
að þarna er einn strákur til viðbótar,
Einar Sand Koren. Hann er liðsfélagi
Snorra og Arnórs hjá AGK og er ekk-
ert síðri en hinir tveir,“ segir Guðjón
sem varar sérstaklega við markvörð-
um Noregs. „Bæði Steinar Ege og
Ole Erevik eru í heimsklassa. Það er
bara þannig.“
Óvinur Íslands númer eitt, nítj-
án marka maðurinn Kjetil Strand,
er tæpur en útilína Norðmanna er
þó vel skipuð. „Fyrst og fremst ber
að nefna Kristian Kjelling sem er ein
besta skytta Evrópu. Hann er gríð-
arlega fjöhæfur leikmaður og getur
bæði skotið af gólfi og brotist í gegn.
Leikstjórnandinn Borge Lund er frá-
bær varnarmaður og sér línuna vel.
Hann vinnur vel saman með Myr-
hol og Löke. Ég hef samt aldrei ver-
ið hrifinn af honum í þessari stöðu,“
segir Guðjón.
Ísland á betri möguleika
„Á góðum degi vinnur Ísland Noreg.
Ég myndi segja að fyrirfram væru
möguleikarnir svona 60 á móti 40.
Þá eru samt allir óvissuþættirnir
eftir,“ segir Guðjón um möguleika
Íslands gegn Noregi. En hvernig
handbolta spilar liðið? „Það spilar
týpískan sænskan handbolta. Vörn-
in er útfærð alveg eins og 6:0-vörn
Svía allar götu frá því 1984. Þeir spila
ekki kerfisbundinn handbolta, það
er að segja þeir spila litla taktík. Ég
hef aldrei verið hrifinn af því. Ég tel
að ef þeir væru með þjálfara á borð
við Guðmund eða Alfreð Gísla væru
þeir löngu búnir að vinna til verð-
launa,“ segir Guðjón Guðmunds-
son.
n Strákarnir okkar mæta noregi í lokaleik B-riðils
n Valinn maður í hverri stöðu, segir Guðjón Guð-
mundsson n Þrír frábærir línumenn í norska liðinu
Vinnum Noreg
á góðum degi
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
einn sá besti Steinar Ege,
markvörður Norðmanna, er með
þeim betri í heiminum. Mynd ReuTeRS
Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is
Við s
ýnum
alla
leik
ina
frá H
M í h
andb
olta
Um helgina leikur
Hljómsveitin sín
Snyrtilegur klæðnaður áskilin
n
AllAr veitingAr í boði s.s:
n BBQ svínarif, hamborgarar,
steikarsamlokur
n Hádegismatur m/súpu og kaffi
n Hópamatseðlar fyrir veislur,
smáréttaborð og fleira
Verður haldið þann 5.febrúar
næstkomandi og hljómveitin
Feðgarnir spila fyrir dansi.
Borðapantanir í síma 554-2166
Sjá nánar www.catalina.is
ÞorrAblót
vestfirðingA
Hefndin er sæt!
laminn í andlitið og kom lítið á óvart
þegar Bernd Friede, sá er sá um að
valda Alexander, fékk rautt spjald fyr-
ir þrjár brottvísanir.
Ein hetjan enn er þó Þórir Ólafs-
son sem ber ávallt lítið á. Hornamað-
urinn hávaxni brennir varla af færi og
má alltaf treysta á hann. Þórir skoraði
fimm mörk í gær, þar af tvö úr vítum
eftir að Ólafur Stefánsson og Snorri
Steinn höfðu brennt af úr sínum víta-
skotum. Þórir hefur verið frábær á
mótinu og er algjör ás í ermi fyrir ís-
lenska liðið.
Íslenska liðið fær nú eins dags
hvíld áður en lokaleikur riðilsins
verður spilaður gegn Noregi. Þar
verður barist um tvö stig til viðbót-
ar inn í milliriðilinn. Til að fræðast
meira um Norðmenn má lesa grein-
ina hér til hægri þar sem Guðjón
Guðmundsson fer yfir leik þeirra. Ís-
land efst í B-riðli með átta stig. Fullt
hús stiga.
Óli mættur aftur
Ólafur Stefánsson spilaði
aftur eftir meiðslin.