Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 19
Á rið 1853 var mótmælt víðs vegar um Evrópu. Í London og í París var farið í kröfu- göngur, fólk krafðist þess að Evrópuveldin færu í stríð til stuðn- ings Tyrkjum. Skömmu áður höfðu Rússar ráðist á tyrkneska flotann að tilefnislausu og sökkt honum, en fjöl- miðlar í Bretlandi og Frakklandi lýstu þeim atburð í myrkum tón. Það varð úr að Bretar og Frakkar sendu herlið á svæðið, en stríðið sem fylgdi í kjölfarið, Krímstríðið svokall- aða, kostaði um milljón manns lífið. Það sem gerði að verkum að þetta stríð var öðruvísi en önnur var þó ekki mannfallið, blóðugri stríð hafa verið háð bæði fyrr og síðar, held- ur að þetta var fyrsta eiginlega fjöl- miðlastríðið. Umfjöllun fjölmiðla átti sinn þátt í að koma því af stað, og ný uppfinning, ritsíminn, gerði að verk- um að almenningur gat nú í fyrsta sinn fylgst með því sem fram fór á vígstöðvunum nánast jafnóðum og það gerðist. Bretaprins og hermenn með pípur Yfirmenn breska hersins höfðu tals- verðar áhyggjur af þessari þróun, þar sem blaðið The Times birti greinar er fjölluðu um hrylling stríðsins á afar gagnrýninn hátt. Til þess að bregð- ast við þessu sendi Albert Bretaprins ljósmyndara af stað sem átti að sýna jákvæðari myndir af stríðinu. Ljós- myndarinn Robert Fenton varð með þessum hætti fyrsti stríðsljósmynd- ari sögunnar. Hann forðaðist að taka myndir af sundurskotnum líkum, en myndaði þess í stað hermenn reykjandi pípur í hrikalegu landslagi Krímskaga. Þessar ljósmyndir, þær fyrstu sem voru teknar á átakasvæði, eru í dag ómetanleg heimild ásamt greinaskrifum Times. Þetta stríð á milli fjölmiðla og hernaðaryfirvalda um birtingar- myndir átaka hefur haldið áfram æ síðan. Stundum hafa fjölmiðl- ar hvatt til stríða, eins og þegar fjöl- miðlakóngurinn William Randolph Hearst hrósaði sjálfum sér fyrir að hafa orðið valdur að innrás Banda- ríkjamanna í Kúbu árið 1898. Oftar er því þó þannig farið að hernaðar- yfirvöld reyna að hafa áhrif á þá með einhverjum hætti. Nasistaútvarp á íslensku Ef Krímsstríðið var fyrsta ritsíma- og ljósmyndastríðið, þá var fyrri heims- styrjöldin fyrsta kvikmyndastríðið. Heimildar- og áróðursmyndin Batt- le of the Somme var ein vinsælasta myndin árið 1916, en skoraðist ekki undan að sýna hrylling stríðsins sem átti að undirbúa hermenn undir þá erfiðleika sem þeir myndu mæta. Þeir sem andæfðu stríðinu, til dæm- is skáldin Wilfred Owen og Siegfried Sassoon, gerðu það með hefðbundn- ari aðferðum ritlistarinnar. Í seinni heimsstyrjöldinni var ný tækni komin til sögunnar, útvarpið, og var það notað til áróðurs af öll- um stríðsaðilum. Jafnvel útvörpuðu Þjóðverjar 15 mínútum af fréttum á íslensku á dag, enginn átti að vera undanskilinn hinni nýju tækni. Kvik- myndatækninni var sem fyrr beitt, og nú með enn áhrifaríkari hætti. Fyrsta sjónvarpsstríðið og fyrsta tölvuleikjastríðið Víetnam var fyrsta sjónvarpsstríðið, og í þetta sinn misstu hernaðaryfir- völd tökin á því sem fyrir augu áhorf- enda bar. Enda má segja að Víetnam sé eitt af fáum stríðum sögunnar sem var stöðvað sökum þverrandi fylgis á heimavelli. Þegar Bandarík- in tóku næst þátt í meiriháttar átök- um, í Persaflóastríðinu árið 1991, höfðu yfirvöld lært sína lexíu. Að- eins blaðamenn sem voru hliðholl- ir stríðsrekstrinum fengu aðgang að vígstöðvunum, og það tölvuleikja- stríð sem birtist í sjónvarpinu naut hylli almennings en átti lítið skylt við raunveruleikann. Í næstu innrás árið 2003 átti leik- urinn að endurtaka sig, og í fyrstu virtist slíkt verða raunin. En nú hafði ný tækni komið til skjalanna, inter- netið, sem erfiðara var að ná utan um en sjónvarpið. Wikileaks þjónar því sama tilgangi nú og ritsíminn og The Times gerðu í Krímstríðinu, það birtir aðra og raunsannari mynd af vígstöðvunum heldur en hernaðar- yfirvöld myndu kjósa. Lygarnar hefjast á nýjan leik Því eru Wikileaks-skjölin ekki aðeins mikilvæg sagnfræðileg heimild fyrir framtíðina, heldur gætu einnig haft áhrif á gang mála í samtímanum. Bæði túlkun okkar á fortíðinni sem og á nútíðinni hlýtur að byggja á því sem við vitum, og því meiri upplýs- ingar sem við höfum, því upplýstari ákvarðanir getum við tekið. Hvaða áhrif Wikileaks kemur til með að hafa á stríðsrekstur í nán- ustu framtíð á eftir að koma í ljós. En hitt er þó víst, að hernaðaryfir- völd eiga ekki eftir að samþykkja þessa nýju tækni þegjandi, heldur eiga eftir að reyna að bregðast við henni með öllum tiltækum ráðum. Líklega mun ekki takast að þagga niður í Wikileaks með öllu, en það verður áhugavert að sjá hvaða áhrif það mun hafa á áróðurstæknina. Eða, eins og einn bandarískur hers- höfðingi á að hafa sagt þegar fyrra Persaflóastríðið hófst: „Let the lies begin!“ Umræða | 19Miðvikudagur 19. janúar 2011 „Leggst fáránlega vel í mig“ 1 Sigurjón Brink bráðkvaddur: „Þetta er ægilegur harmur“ Tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink lést á heimili sínu 17. janúar. 2 Sigurjón Árnason með pappírs-tætara í stofunni Bankastjórinn fyrrverandi þykir afar duglegur og vinnusamur maður – stundum jafnvel um of. 3 Pöddusvartur snjór á Siglufirði Snjórinn fullur af litlum svörtum pöddum sem kallast mordýr eða stökkmor. 4 Halla trompaðist Halla Gunnars-dóttir reiddist þegar DV rifjaði upp skrif hennar um staðgöngumæðrun sem hún líkti við vændi og barnasölu. 5 Til minningar um Sigurjón Brink: „Hann var virkilega góður vinur“ Rætt við Jóhannes Ásbjörnsson, vin Sigurjóns sem varð bráðkvaddur á heimili sínu 36 ára gamall. 6 Vafasamri bloggsíðu lokað Slúðurbloggsíðu, þar sem finna mátti upplýsingar um kynlíf nafngreindra barna undir lögaldri, var lokað á föstudag. 7 Peter Fonda fann lík Leikarinn fann lík í bíl í Los Angeles. Sólmundur Hólm Sólmundar- son mun stjórna Ha?, nýjum þætti á Skjá Einum ásamt Jóhanni G. Jóhanns- syni og Eddu Björgu Eyjólfsdóttur. Þáttunum, sem hefjast í næstu viku, mun svipa til þátta Stephens Frys Q.I. sem sýndir eru á BBC. Hver er maðurinn? „Það er Sólmundur Hólm Sólmundarson, Sóli Hólm, það er ég.“ Hvaðan ertu? „Ég er fæddur sem Hvergerðingur, en breyttist í Reykvíking við fjögurra ára aldur og hef verið það síðan.“ Hvernig leggst nýi þátturinn í þig? „Bara frábærlega, það hefur aldrei annað eins komið í íslenskt sjónvarp og þetta leggst bara fáranlega vel í mig.“ Þekkir þú Eddu Björgu og Jóhann G. vel? „Ég þekkti þau ekki fyrir, en Edda er svona stóra systirin sem ég eignaðist aldrei og Jóhann er litli bróðirinn sem ég að vísu á en það var fínt að eignast annan.“ Út á hvað gengur þátturinn? „Þetta er svona skemmtiþáttur með spurningaívafi. Það er yfirskriftin á honum, en aðalatriðið er að hafa gaman.“ Hver verður fyrsti gesturinn þinn? „Guðmundur baggalútur verður fyrsti gesturinn minn og gestur Eddu verður Karl baggalútur svo að þetta er ekkert slor.“ Stefnir þú á feril í sjónvarpinu? „Já, þetta er bara byrjunin, blessuð vertu.“ „Já, það væri fínt að hafa hann.“ Arnór Guðmundsson 26 ára, veitingamaður „Nei, ekkert sérstaklega.“ Elfa Eðvaldsdóttir 23 ára, nemi „Hver er það?“ Sólbjört Vera Ómarsdóttir 17 ára, nemi „Nei, get ekki sagt það.“ Alexandra Jónsdóttir 17 ára, vinnur á Súfistanum „Ég sakna hans klárlega.“ Ragnar Mete 23 ára, sölumaður Mest lesið á dv.is Maður dagsins Saknar þú handboltalýsinga Adolfs Inga Erlingssonar? Vitnaleiðslur í máli níumenninganna Stuðningsfólk níumenninganna bauð upp á mat fyrir utan héraðsdóm á meðan vitnaleiðslur yfir níumenningunum stóðu yfir. MyNd RÓBERt REyNiSSoN Myndin Fjölmiðlar fara í stríð Dómstóll götunnar „Hvaða áhrif Wikileaks kemur til með að hafa á stríðsrekstur í nánustu framtíð á eftir að koma í ljós. Kjallari Valur Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.