Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 19. janúar 2011 Miðvikudagur Fyrrverandi Landsbankamaður vann fyrir ráðherra: 1,4 milljónir í ráðgjafalaunBRIDS SKÓLINN - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Byrjendur ... 24. janúar ... átta mánudagar frá 20-23 Framhald ... 26. janúar ... átta miðvikudagar frá 20-23 - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - • Fyrir hvern? Flestir kunna á spilin, en meiri þekkingu þarf ekki til að vera gjaldgengur á byrjendanámskeiði. Framhaldið hentar breiðum hópi, bæði þeim sem hafa nýlokið byrjenda- námskeiði og eins reyndari spilurum sem vilja læra Standard- kerfið vel. • Þú getur mætt stök/stakur og æskilegur aldur er 18-90 ára. • Námskeið skólans fara fram í Síðumúla 37 í Reykjavík. • Nánari upplýsingar á Netinu undir bridge.is/fræðsla. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans, fékk alls 1,4 milljónir króna í laun frá félags- og trygginga- málaráðuneytinu vegna ráðgjafa- vinnu sinnar vegna skuldavanda heimilanna. Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar um að- keypta þjónustu hjá ráðuneytinu. Yngvi Örn var meðal annars yf- irheyrður af sérstökum saksókn- ara vegna rassíunnar sem gerð var í síðustu viku. Hann hefur þó ekki réttarstöðu grunaðs manns. Eftir að Landsbankinn fór í þrot fékk hann vinnu hjá Árna Páli Árnasyni sem sérfræðingur í skuldamálum heimil- anna. Á sama tíma og hann vann að lausnum fyrir skuldug heimili stefndi hann þrotabúi Landsbankans vegna 230 milljóna króna krafna sem aðal- lega voru til komnar vegna kauprétta sem voru í vanskilum af hálfu bank- ans frá árinu 2007. Eftir að kröfurnar komust í hámæli sendi Yngvi frá sér yfirlýsingu þar sem hann lýsti því yfir að ástæða þess að hann sækti þess- ar kröfur væri sú að hann vildi ekki styrkja Breta og Hollendinga frek- ar. „Sjálfur hef ég ákveðið að komi til þess að kröfur mínar verði sam- þykktar af þrotabúinu renni þær, að frádregnum sköttum, til velferðar- mála,“ sagði Yngvi Örn í yfirlýsing- unni. Yngvi Örn sótti bæði um sem seðlabankastjóri árið 2009 og sem forstjóri Íbúðalánasjóðs, en fékk hvorugt starfið. valgeir@dv.is Yngvi Örn Kristinsson Var ráðinn í félagsmálaráðuneytið eftir fall Landsbankans. Skora á ríkisstjórnina Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi hélt aðalfund sinn í Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi laugardaginn 15. janúar. Á fundi kjördæmisráðsins var lögð fram ályktun um að nátt- úruauðlindir skyldu vera í þjóðar- eign. „Kjördæmisráð Samfylking- arinnar í Suðurkjördæmi skorar á ríkistjórnina að tryggja þjóðareign á auðlindum landsins. Ráðið fagn- ar boðuðum breytingum á stjórn fiskveiða sem fela í sér varanlegt eignarhald og fullt forræði þjóðar- innar yfir auðlindum hafsins, sjálf- bæra nýtingu, jafnræði við úthlutun veiðiheimilda, trygg rekstrarskilyrði sjávarútvegs og það að arðurinn af auðlindinni renni með sanngjörn- um hætti til þjóðarinnar.“ Eyraroddi gjaldþrota „Mér líst ekkert á blikuna. Það er engin framtíð án þeirra, alls ekki,“ segir Sigurður H. Garðars- son, útgerðarmaður á Flateyri, um gjaldþrot Eyrarodda. Héraðsdóm- ur Vestfjarða úrskurðaði útgerðar- fyrirtækið gjaldþrota á mánudag. Sigurður, sem sjálfur gerir út tíu tonna bát og er með harðfiskverk- un á Flateyri, segir að gjaldþrotið sé mikið áfall fyrir þorpsbúa. Starfs- menn fyrirtækisins voru 42 talsins en þeim var öllum sagt upp í októb- er. Íbúar Flateyrar voru 250 í upphafi síðasta árs samkvæmt Hagstofunni og því ljóst að áfallið er mikið fyrir atvinnustarfsemi í þorpinu. Stjórn Eyrarodda hafði unnið að fjárhags- legri endurskipulagninu fyrirtækis- ins í samvinnu við kröfuhafa þess að undanförnu. Nauðasamningur var samþykktur en ekki tókst að útvega nægt fjármagn til að halda rekstr- inum áfram. „Það verður erfitt fyrir aðra að lifa í þessari grein án þess að hafa þá,“ segir Sigurður sem hefur nýtt sér þjónustu Eyrarodda. Hann bætir við að svartsýnin sé mikil en bendir þó á að sögur séu á kreiki í bænum þess efnis að mikill áhugi sé á 300 tonna byggðakvóta Flateyrar. Eru bundnar vonir við að einhverjir byrji þar atvinnurekstur frá grunni. Kvikmyndaskólinn í deilu við leigusala Kvikmyndaskóli Íslands, sem að hluta til er fjármagnaður með op- inberum fjárframlögum, flutti fyrr í þessum mánuði í nýtt húsnæði við Ofanleiti í Reykjavík úr Víkurhvarfi í Kópavogi í kjölfar langvinnra deilna við fyrri leigusala sinn, eignarhalds- félagið Votaberg. Deilurnar standa enn og munu líklega enda fyrir dóm- stólum Lögmaður Votabergs, Guðbjarni Eggertsson, segir að Kvikmyndaskól- inn hafi ekki greitt leigu af húsnæð- inu síðan í apríl árið 2009 og að skól- inn skuldi leigusalanum gríðarlega fjármuni. Heimildir DV herma að þessar skuldir nemi á annað hundr- að milljónum króna að mati Vota- bergs. Böðvar Bjarki Pétursson, stjórn- arformaður Kvikmyndaskólans og stofnandi, segir að málið sé í sátta- ferli og að lögmenn skólans og Vota- bergs muni hittast í dag, miðvikudag, og ræða málin. Hann segir ekki úti- lokað að skólinn og Votaberg komist að samkomulagi. Reynt að semja Guðbjarni segir að þar til nýlega hafi samningaviðræður á milli Votabergs og Kvikmyndaskólans um uppgjör á skuldunum staðið yfir en þá hafi eigendur eignarhaldsfélagsins séð greint frá því í fjölmiðlum að skólinn væri fluttur í Ofanleiti. „Við höfum reynt að semja um leigugreiðslur en við höfum ekki náð saman. Svo lás- um við um það í fréttunum að skól- inn væri fluttur í Ofanleiti. Við vorum eiginlega teknir í bakaríið.“ Kvikmyndaskóli Íslands hefur rök- stutt mál sitt gegn Votabergi á þann hátt að leigusalinn hafi ekki staðið við þá samninga um eðli húsnæðisins sem skrifað var undir á sínum tíma. Votaberg byggði húsið fyrir Kvik- myndaskólann og leigði skólanum það svo. Forsvarsmenn skólans vilja því meina að vanefndir hafi verið á leigusamningnum af hálfu Votabergs og að slíkt réttlæti riftun á samningn- um. Skólinn mun jafnframt íhuga að fara í skaðabótamál við Votaberg vegna meintra samningsbrota. Ágreiningurinn mun að öllum líkindum enda fyrir dómstólum því ekki virðist vera mikill sátta- grundvöllur í málinu og hvorug- ur aðilinn virðist reiðubúinn að gefa tommu eftir. Deilan virðist því vera hin erfiðasta ef marka má málflutning Kvikmyndaskólans og Votabergs. Tekist á um kyrrsetningarbeiðni Guðbjarni segir að í lok desember hafi verið reynt að kyrrsetja eign- ir Kvikmyndaskólans með hjálp sýslumanns en að kyrrsetning- in hafi verið árangurslaus þar sem eigendur skólans hafi borið því við að hann væri eignalaus. „Það var gerð árangurslaus kyrrsetning, sem er undanfari gjaldþrotaskipta. Það eru engar eignir þarna,“ seg- ir hann. Kvikmyndaskólinn hefur mótmælt kyrrsetningargerðinni fyr- ir dómstólum og hræðist ekki með- ferð málsins fyrir dómi samkvæmt heimildum DV. Guðbjarni segir að stjórn Votabergs hafi ekki tekið ákvörðun um hvort farið verði fram á að Kvikmyndaskólinn verði tekinn til gjaldþrotaskipta eða hvort skól- anum verður stefnt. Eina eign Votabergs er fasteignin að Víkurhvarfi 1. Fasteignin er tæp- lega 7.000 fermetrar að stærð. Eig- ið fé félagsins er neikvætt um nærri 1,5 milljarða, rúmlega 400 milljóna króna tap var af rekstrinum árið 2009 og heildarskuldirnar nema 2,8 milljörðum króna – þar af eru gjald- fallin lán nærri 2,6 milljarðar. Skuld- irnar eru við Landsbanka Íslands. Félaginu veitir því ekkert af því að fá leigutekjurnar af fasteigninni. Guðbjarni segir að fasteign Vota- bergs standi auð um þessar mund- ir eftir brotthvarf Kvikmyndaskól- ans og að engar leigutekjur fáist því á meðan. Samkvæmt þessari stað- reynd og ársreikningnum fyrir 2009 stendur Votaberg því tæpt um þess- ar mundir. Um 40 milljónir frá ríkinu Samkvæmt ársreikningi Kvik- myndaskólans fyrir árið 2009 nam hagnaður hans rúmum sjö hundr- uð þúsund krónum á árinu. Eigið fé skólans er neikvætt um rúmar 35 milljónir króna. Eignir skólans eru skráðar nærri 22 milljónir króna í ársreikningnum. Skólinn er fjármagnaður með skólagjöldum – skólaárið kostar 1,2 milljónir króna á hvern nemanda – og styrkjum frá hinu opinbera sam- kvæmt samningi við menntamála- ráðuneytið. Um það bil einn fimmti af rekstrartekjum skólans kemur frá hinu opinbera í formi styrkja – skól- inn fékk 43 milljónir á fjárlögum ársins 2009 og 42 milljónir króna í fyrra. Áætlað er að skólinn fái 39 milljónir króna á ári næstu fjögur árin. Skólinn er því einkaskóli sem fær opinberan styrk. Um 150 nem- endur eru í skólanum um þess- ar mundir en frá stofnun hans árið 1995 hefur skólinn útskrifað um 700 nemendur. Votaberg hefur haft samband við menntamálaráðuneytið vegna deil- unnar við Kvikmyndaskólann og hefur ráðuneytið rætt við stjórnend- ur skólans. Ráðuneytið fylgist því vel með stöðunni í deilunni og er alls ekki útséð um hvernig hún endar. n Kvikmyndaskólinn og fyrrverandi leigusali eiga í erfiðri deilu n Deilan mun líklega enda fyrir dómstólum n Leigusalinn vill fá 200 milljónir frá skólanum vegna meintrar vangoldinnar leigu n Kvikmyndaskólinn hafnar málflutningi leigusalans og íhugar að höfða skaðabótamál Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Við höfum reynt að semja um leigugreiðslur en við höf- um ekki náð saman. Hörð deila Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi og stjórnarformaður Kvikmyndaskólans, segir að málið sé í samningaferli. Fyrrverandi leigusali skólans vill sækja allt að tvö hundruð milljónir króna til skólans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.