Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 32
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80 MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 19.–20. JANÚAR 2011 8. TBL. 101. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 395 KR. Svavar svaðalegi! Svavar Halldórsson braut gegn Vottum Jehóva: Siðanefnd skammar Svavar Lofthræddur Henry Birgir n Íþróttafréttamaðurinn skeleggi hjá Fréttablaðinu Henry Birgir Gunn- arsson dvelur þessa dagana í Sví- þjóð og fjallar um heimsmeist- aramótið í handbolta. Strákarnir okkar léku leikinn gegn Japan og Austurríki í Linköping en fyrstu tveir leikirnir fóru fram í Norrköp- ing. Úr blaðamannaaðstöðunni í Linköping er stutt að fara að stiga í svonefnt „mixed zone“, svæð- ið þar sem hægt er að ræða við leikmenn eftir leik. Stiginn er þó samansettur úr grindum og sést alla leið niður í kjallarann þar sem viðtölin eru tekin úr rjáfrinu þar sem blaðamenn stunda vinnu sína. Er Henry það lofthræddur að hann fer frekar lengri leið að viðtalssvæðinu en að taka stig- ann stutta. Hafa aðrir íslenskir blaðamenn haft gaman af þessum göngutúrum Henrys. Fullt hús stiga fyrir herramennsku n Ofurpiparsveinninn Sveinn Andri Sveinsson fékk góð meðmæli frá fyrirsætunni Bryndísi Gyðu Michel sen eftir stefnumót þeirra á veitingastaðnum Nítjánda sem vefurinn bleikt.is fékk að fylgj- ast með. Bryndís var spurð eftir stefnumótið hvernig henni hefði líkað. „Hann var bæði kurteis og skemmtilegur, alveg með herra- mennskuna á hreinu. Hann gæti eflaust kennt íslenskum strákum margt í sambandi við það. Hann fær fullt hús stiga fyrir kurteisi og herramennsku. Hann sótti mig, ég þurfti ekki að minn- ast á það að fyrra bragði og færði mér blómvönd og fínerí. Hann opnaði dyr, dró fram stólinn og allan pakkann,“ sagði Bryndís Gyða. Ekki ama- leg með- mæli það! Sérverslun veiðimannsins - Laugaveg 178 - sími 551 6770 - www.vesturrost.is - ALLAR VEIÐIVÖRUR - - haglabyssur - rifflar - kaststengur - - flugustengur - hjól - línur o.fl. - ÚTSALA 10 -70% Vesturröst Siðanefnd Blaðamannafélags Ís- lands hefur komist að þeirri nið- urstöðu að Svavar Halldórsson, fréttamaður RÚV, hafi gerst sekur um ámælisvert brot á siðareglum blaðamanna með umfjöllun sinni um meint kynferðisofbeldi hjá Vott- um Jehóva. Fram kemur í umfjöllun nefndarinnar að upplýsingaöflun RÚV hafi verið í lagi og að umfjöll- unin hafi átt rétt á sér, en úrvinnsl- an ekki verið sem skyldi. Svavar telst hafa brotið gegn þriðju grein siða- reglnanna og segir í úrskurði nefnd- arinnar að brotið hafi verið ámælis- vert. Málið snýst um frétt Svavars frá 7. nóvember í fyrra þar sem fjallað var um þöggun innan safnaðarins gagnvart kynferðisbrotum. Fréttin var byggð á frásögn tveggja kvenna sem sögðu að kynferðisleg misnotk- un hefði viðgengist í söfnuðinum. Málin hefðu aldrei farið til lögreglu heldur verið þögguð niður innan safnaðarins. Vottar kvörtuðu til Blaðamannafélagsins sem tók mál- ið til meðferðar. Það er mat siðanefndarinnar að staðhæfing í fréttayfirliti um að stjórnendur komi í veg fyrir að kynferðisbrotamál rati til lögreglu eigi sér ekki stoð í orðum viðmæl- enda. Siðanefndin mat það einnig að Svavar hefði gengið of langt þeg- ar hann fullyrti í inngangi að aldrei væri leitað til lögreglu enda byggð- ist hluti fréttarinnar á máli sem kært hafði verið til lögreglu. Í þessu fælist mótsögn. Óhætt er að segja að öll spjót standi á Svavari nú um stundir. Þannig hefur Jón Ásgeir Jóhannes- son krafist þriggja milljóna króna í miskabætur frá Svavari vegna fréttar hans um fjármagnsflutninga til Pan- ama. Þá hafði Pálmi Haraldsson stefnt honum vegna sambærilegra frétta. ristinn Ö 0-3 1/-3 3-5 3/1 5-8 5/2 10-12 7/4 5-8 4/1 5-8 7/4 10-12 6/4 0-3 0/-3 0-3 3/-1 0-3 5/2 5-8 8/6 3-5 4/1 8-10 7/4 8-10 6/3 -1/-3 -9/-12 -5/-7 -8/-11 4/1 2/-1 -1/-4 20/18 11/9 -1/-4 -9/-12 -5/-8 -8/-11 4/1 2/-1 -5/-7 18/16 10/7 -1/-4 -4/-7 -2/-5 -2/-4 4/2 4/0 1/-2 19/17 13/10 2/-2 -4/-7 -2/-5 -1/-3 2/-1 3/0 2/-1 11/8 13/10 Fim Fös Lau Sun vindur í m/s hiti á bilinu Stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Fim Fös Lau Sun vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Höfn Reykjavík Egilsstaðir Ísafjörður Vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. Akureyri Selfoss Sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík 3-5 7/4 8-10 2/-1 10-12 2/-2 3-5 1/-3 8-10 -1/-2 3-5 2/-1 5-8 2/-2 5-8 1/-2 3-5 2/-2 5-8 3/1 10-12 5/2 8-10 3/0 3-5 3/0 10-12 3/0 3-5 4/2 8-10 3/0 10-12 1/-3 0-3 0/-3 3-5 -2/-5 0-3 1/-2 3-5 0/-3 3-5 6/4 3-5 3/0 5-8 4/1 0-3 5/1 3-5 -1/-2 0-3 4/1 3-5 1/-2 0-3 1/-2 0-3 3/-1 0-3 6/4 5-8 8/5 3-5 3/-1 3-5 7/3 8-10 7/3 3-5 7/3 3-5 4/0 5-8 5/2 0-3 5/1 8-10 0/-3 0-3 5/2 3-5 3/0 Mið Fim Fös Lau hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu Stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu London hiti á bilinu París hiti á bilinu Berlín hiti á bilinu Tenerife hiti á bilinu Alicante VEÐRIÐ ÚTI Í HEIMI Í DAG OG NÆSTU DAGA 5 6 78 6 5 4 2 8 8 15 8 10 10 8 13 15 18 20 20 15 13 10 8 6 Hitakort Litirnir í kortinu tákna hitafarið á landinu (sjá kvarða) Asahláka á landinu öllu Höfuðborgarsvæðið Asahláka er í veðurkort- unum og er þetta að segja má fyrsta almennilega hlákan síðan 3. janúar. Það verður rigning eða skúrir lengst af í dag og hitinn að 8 stigum. Hins vegar verður strekkingur eða jafnvel allhvasst. Landsveðurspá Sunnan 5 -10 m/s, en 10-18 m/s á austanverðu landinu. Mikil rigning suðaustanlands annars rigning eða skúrir en úrkomulítið á Norðausturlandi lengst af í dag. Hiti 5-10 stig. Á morgun Suðvestan 10-15 m/s, stífastur vestanlands og við austurströndina. Rigning eða skúrir en slydda eða él til fjalla, en úrkomu- lítið austanlands. Hiti 3-6 stig en vægt frost til landsins fyrir norðan og austan. Varað er við miklu vatnsveðri á Suðausturlandi með tilheyrandi vatnavöxtum í jökul- og dragám. <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.Veðrið með Sigga stormi siggistormur@dv.is Veðrið í dag kl. 15... ...og næstu daga Svavar Halldórsson Umfjöllun Svavars um málefni Votta Jehóva þótti ámælisverð að mati siðanefndar Blaðamannafélags Íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.