Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Síða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 19. janúar 2011 Miðvikudagur
Arsenal horfir
til Mexes
n Það er meira en nóg af félaga-
skiptaslúðri í gangi á Englandi
enda aðeins tólf dagar eftir af
janúarglugg-
anum. Arsenal
vantar miðvörð
til að leysa af
Belgann Thomas
Vermaelen sem
verður frá alla
vega fram í
mars. Arsene
Wenger vill helst
ekki kaupa leikmenn í janúar en
gæti séð sig tilneyddan ætli liðið að
vera í toppbaráttunni allt til enda.
Hefur franski miðvörðurinn Philipe
Mexes verið orðaður við Arsenal
en hann hefur leikið með Roma
síðustu ár.
Suarez til Liverpool
n Kenny Dalglish ætlar, og verður,
að styrkja Liverpool-liðið í janúar.
Liðið hefur sýnt baráttuanda undir
hans stjórn en
það hefur ekki
dugað til og er
liðið enn án
sigurs undir
hans stjórn.
Vill Dalglish
bólstra fram-
línuna og vill fá
Úrúgvæjann Luis
Suarez til að hjálpa Fernando Torres
í framlínunni. Suarez hefur spilað
með Ajax í Hollandi undanfarin
ár og skorað þar að vild. Hann fór
einnig á kostum á heimsmeistara-
mótinu í Suður-Afríku í fyrrasumar
en hann skoraði meðal annars
sigurmark liðsins í 16 liða úrslitum
gegn Suður-Kóreu.
Enginn virðist á förum
n Roy Hodgson keypti nokkra menn
til Liverpool sem hafa verið langt
frá því að slá í gegn. Paul Konchesky,
Joe Cole og Christian Poulsen hafa
verið skelfilegir
og var talið
líklegt að Kenny
Dalglish vildi
losa þá frá
félaginu strax í
janúar. Svo er þó
ekki. „Það eru
nokkrir leik-
menn hjá okkur
sem stuðningsmennirnir eru ekki
alveg sáttir við. Við þurfum núna
að reyna koma þeim almennilega
í gang,“ segir Dalglish. Sjálfur veit
hann ekki hversu mikinn pening
hann fær til leikmannakaupa en
hann hitti eigendur félagsins í gær.
O‘Neill tekur ekki
við West Ham
n Síðastliðinn laugardag var
talið alveg öruggt að Avram Grant
væri að stýra West Ham í síðasta
skiptið. Átti Írinn eldklári Martin
O‘Neil að taka við liðinu um leið
og Grant yrði
rekinn. Grant
er þó enn við
störf og er það
líklega áhuga-
leysi O‘Neill að
þakka. Hann
hætti við að
taka við West
Ham, er talið,
á síðustu stundu. O‘Neill hætti
sem þjálfari Aston Villa í byrjun
leiktíðar en þar var hann orðinn
þreyttur á að allar helstu stjörnur
félagsins væru seldar frá honum.
Nú er talið að hollensk félög horfi
til reynslu og kunnáttu Írans.
Molar
Hjörtur Logi samdi við Gautaborg Vinstri
bakvörðurinn Hjörtur Logi Valgarðsson úr FH er genginn í raðir
sænska stórliðsins IFK Gautaborg. Hann skrifaði undir fjögurra ára
samning en IFK kaupir hann frá bikarmeisturum FH. Hjörtur er 22 ára
og hefur leikið alla sína tíð með FH. Hann á að baki 78 deildarleiki fyrir
FH en í þeim hefur hann skorað fjögur mörk. Hjörtur Logi er einnig
hluti af U21 árs liði Íslands sem tryggði sér sæti á lokakeppni EM í
Danmörku. Hjörtur er nú þegar kominn til Svíþjóðar og hóf æfingar
með liðinu í dag.
Alexander til Löwen 2012 Landsliðsmaðurinn
í handbolta og íþróttamaður ársins, Alexander Petersson, mun
ganga í raðir þýska stórliðsins Rhein-Neckar Löwen fyrir keppnis-
tímabilið 2012. Löwen er þjálfað af Guðmundi Guðmundssyni en
með liðinu leika þeir Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson
og Róbert Gunnarsson. Alexander leikur í dag með Füchse Berlín
sem hefur komið gríðarlega á óvart í þýsku deildinni og er í 2.
sæti. Hann mun klára samning sinn við Berlínarliðið og ganga
svo í raðir Löwen sumarið 2012.
Fimmtán manna hópur keppir í undankeppni EM um helgina:
Fyrsta íslenska futsal-landsliðið
Fyrsti landsliðshópur Íslands í futsal
var tilkynntur í gær en Willum Þór
Þórsson, landsliðsþjálfari í futsal,
valdi þá fimmtán leikmenn sem taka
þátt í undankeppni EM um næstu
helgi. Á sama tíma tilkynnti hann að
Ejub Puricevic, þjálfari Víkings frá
Ólafsvík, og Zoran Daníel Ljubicic
verði aðstoðarmenn hans.
Undanriðillinn sem Ísland tek-
ur þátt í fer fram hér heima en hann
verður spilaður að Ásvöllum í Hafn-
arfirði. Ísland mætir Lettlandi á
föstudagskvöldið klukkan 19.00, Ar-
menum á laugardag klukkan 17.00
og lokaleikurinn er gegn Grikklandi
á mánudagskvöldið klukkan 19.00.
Átta lið tóku þátt í Íslandsmótinu
í futsal í ár en þar urðu Fjölnismenn
meistarar. Léku þeir gegn Víkingi frá
Ólafsvík í úrslitaleik. Fjórir Fjölnis-
menn eru í lokahópnum og þrír Óls-
arar. Leikmenn úr tveimur öðrum
liðum eru í hópnum, Keflavík og ÍBV.
Má geta þess að Tryggvi Guðmunds-
son, leikmaður ÍBV, er í hópnum en
hann á að baki fjörutíu og tvo lands-
leiki í hefðbundinni knattspyrnu.
Frítt er inn á alla leikina að Ásvöll-
um um helgina.
Fyrsti landsliðshópurinn í futsal:
Markverðir:
n Steinar Örn Gunnarsson, Fjölnir
n Albert Sævarsson, ÍBV
n Einar Hjörleifsson, Víkingur Ó.
Aðrir leikmenn:
n Guðmundur Steinarsson, Keflavík
n Magnús Þorsteinsson, Keflavík
n Haraldur Freyr Guðmundsson, Keflavík
n Illugi Þór Gunnarsson, Fjölnir
n Aron Sigurðarson, Fjölnir
n Guðmundur Karl Guðmundsson, Fjölnir
n Þorsteinn Már Ragnarsson, Víkingur Ó.
n Heimir Þór Ásgeirsson, Víkingur Ó.
n Brynjar Gauti Guðjónsson, ÍBV
n Tryggvi Guðmundsson, ÍBV
n Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV
n Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV
Landsliðshópurinn
Landsliðsmaður Tryggvi Guðmundsson er í landsliði Íslands í futsal. MyND TOMASz KOLODzieJSKi
Ísland er komið í milliriðilinn á HM
í handbolta eftir frábæran sigur á
Austurríki, 26-23. Því er ljóst að Ís-
land tekur að minnsta kosti með sér
tvö stig í milliriðilinn en hin tvö verða
í boði þegar liðið leikur lokaleikinn í
riðlinum gegn Noregi á fimmtudags-
kvöldið. Eftir fyrri hálfleikinn gegn
Austurríki voru engin teikn á lofti
um íslenskan sigur en gjörsamlega
frábær seinni hálfleikur þar sem Ís-
land skoraði meðal annars sex fyrstu
mörkin lagði grunninn að sigrinum.
Þessi litla austurríska grýla sem varð
til á síðasta ári með tveimur slæmum
úrslitum var svo sannarlega jörðuð í
Linköping í Svíþjóð í gær. Sagt er að
hefndin svo sæt og það var hún svo
sannarlega í gærkvöldi. Ekki nóg
með að Austurríki var lagt að velli var
það sent heim enda liðið úr leik.
Íslenskt gatasigti
Aðalsmerki íslenska liðsins til þessa
hefur verið hin frábæra vörn sem
ekkert lið til þessa hefur getað spól-
að sig í gegnum. Austurríkismenn
virtust þó hafa svör við varnarleik
Íslands til að byrja með og fór þá að
reyna á Björgvin í markinu. Mark-
varsla íslenska liðsins hefur ekkert
verið neitt stórkostleg fram til þessa
á mótinu. Hefur það þó ekki kom-
ið að sök vegna varnarinnar. Eins og
í leiknum í október í undankeppni
EM var Björgvin þó engan veginn að
finna sig og lá nánast hvert einasta
skot Austurríkis í netinu. Hreiðar
Levy kom inn en fann sig heldur ekki.
Í sókninni hélt Alexander Pet-
ersson íslenska liðinu á floti. Frétt-
ir bárust í gær að hann hefði samið
við Rhein-Neckar Löwen og sendi
þjálfari hans, fyrrverandi landsliðs-
maðurinn Dagur Sigurðsson, hon-
um kaldar kveðjur í sjónvarpsviðtali.
Ekki besta veganestið inn í mikilvæg-
an leik. Járnmaðurinn Alexander lét
þetta þó ekkert á sig fá. Hann bar
uppi sóknarleikinn þrátt fyrir að vera
barinn eins og harðfiskur af varnar-
mönnum Austurríkis. Staðan þó 16-
11 í hálfleik og útlitið ekki gott.
Sex núll og allt í lás
Þrátt fyrir að klúðra víti og tveim-
ur dauðafærum skoraði Ísland sex
fyrstu mörk seinni hálfleiks og komst
yfir, 17-16. Var heldur betur kveiknað
á vörninni og Björgvin fór að finna sig
í markinu. Var hreinn unaður að sjá
íslenska liðið í seinni
hálfleik. Þar var kom-
ið aftur allt sem vant-
aði í fyrri hálfleik:
Kraft, áræðni, dug,
þor og fyrst og fremst
leikgleði. Hálfleik-
arnir voru einfaldlega
eins og svart og hvítt.
Austurríki skoraði
ekki nema sjö mörk
í seinni hálfleik sem
eru hreint ótrúleg-
ar tölur. Má fastlega
reikna með að hálf-
leiksræða Guðmund-
ar Guðmundssonar
hafi verið bönnuð inn-
an átján.
Ef einhver maður fékk uppreisn
æru í leiknum var það Björgvin Páll
Gústavsson. Hann varði ekki skot í
Austurríki fyrir þremur mánuðum
síðan og fann sig hvergi í fyrri hálf-
leik. En í seinni hálfleiknum fór hann
gjörsamlega á kostum og fagnað
hverri markvörslu eins og hún væri
hans síðasta. Björgvin varði fimmt-
án bolta, bara í seinni hálfleik. Fékk
hann þó mikla hjálp frá vörninni sem
var upp á sitt allra besta í seinni hálf-
leiknum.
Þögla hetjan Þórir
Auk Björgvins Páls sem var valinn
maður leiksins í gær verður að hrósa
Alexander Petersson. Íþróttamað-
ur ársins lét truflun fyrir leikinn ekk-
ert á sig finna og dró vagninn lengi
vel í sókninni til að byrja með og var
svo aftur allt í öllu undir lokin. Skila-
boðin frá Magnus Anderson þjálfara
Austurríkis var greinilega að berja
Alexander í spað. Í þrígang var hann
Hefndin er sæt!
n Lok, lok og læs hjá vörninni og
Björgvini í seinni hálfleik n Austur-
ríska grýlan jörðuð n Ísland í millirið-
ilinn með að minnsta kosti tvö stig
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Þögla hetjan Þórir Ólafsson skoraði
fimm mörk og var alveg frábær.
Kátt í höllinni Íslensku stuðningsmennirnir lé
tu í sér heyra.