Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Síða 8
8 | Fréttir 31. janúar 2011 Mánudagur Þitt er valið www.lydheilsustod.is Stöldrum við og kynnum okkur innihaldið áður en við svölum þorstanum. Verndum tennurnar! Kynnið ykkur veggspjald Lýðheilsustöðvar Steingrímur og Jóhanna: Ekki krukka í innyflunum Steingrímur J. Sigfússon gaf ekki mikið fyrir harðorða ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á þingflokksfundi Samfylkingarinn- ar á laugardaginn. Þar gagnrýndi hún meðal annars „pólitískan ein- leik“ sumra aðila innan VG. Þá hefði ósamstaða innan hins áðurnefnda flokks tekið sinn toll af ríkisstjórnar- samstarfinu. Jóhanna bætti um betur og sagði: „Þeir stjórnarliðar sem líta á samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokk- anna sem plagg sem ekki þarf að taka mark á eru að leika sér að eldinum.“ Steingrímur kvaðst í samtali við Smuguna á laugardaginn ekki vilja blanda sér í innri málefni Sam- fylkingarinnar. „Við eigum ekki að hræra í innyflum hvert annars,“ sagði formaðurinn. „Ég held að forysta Samfylkingarinnar ætti að taka unga jafnaðarmenn sér til fyrirmynd- ar sem eru að borða með ungum Vinstri græn- um í kvöld. Það er mun vænlegra að fólk reyni að tala og vinna saman en að hræra í innyfl- um hvert ann- ars. Við getum öll lært af unga fólkinu.“ Sama verð á bensíni Athyglisverða niðurstöðu var að sjá á vefnum gsmbensin.is á sunnudag. Vefurinn heldur utan um bensínverð hjá helstu bensínstöðvum landsins. Í ljós kom að á sunnudag var nánast sama verð á bensíni og dísilolíu um allt land. Þannig kostaði bæði lítri af 95 oktana bensíni og dísilolíu alls staðar á bilinu 214,10 krónur til 214,50 krónur. Aðeins eina undantekningu var að finna, en það var hjá Shell þar sem algengt verð var 215,20 krónur á lítrann. Langalgengasta verðið var 214,10 krónur á lítrann. Sama verð var hjá Atlantsolíu og ÓB, en verðið var 40 aurum hærra hjá N1 og Olís. Embætti ríkislögreglustjóra, sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlitið hafa öll fengið málefni fjárfestingarfélags- ins Giftar til rannsóknar. Þá hafa fyr- irsvarsmenn félagsins einnig verið kallaðir fyrir slitastjórn Kaupþings. Samkvæmt heimildum DV kannar slitastjórnin hvort efni séu til riftunar- mála. Grunur leikur á að 20 milljarða króna lánveiting Kaupþings til Giftar áður en bankinn féll hafi í raun verið dulbúin lánveiting bankans til sjálfs sín og því hafi verið um markaðs- misnotkun að ræða til að halda uppi hlutabréfaverði. Samkvæmt heimild- um DV voru auk þess um 4 milljarðar af láninu stóra án nokkurra veða eða trygginga af nokkru tagi. Gift hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota þrátt fyrir óyfirstíganlegar skuldir að því er virðist. Samkvæmt ársskýrslu félagsins fyrir árið 2009, sem dagsett er í september í fyrra, voru skuldir félagsins umfram eignir liðlega 50 milljarðar króna. Sama ár, 2009, tapaði félagið liðlega 11 millj- örðum króna þrátt fyrir enga starfsemi á árinu. „Félagið hefur á undanförn- um mánuðum verið í viðræðum við kröfuhafa sína um fjárhagslega fram- tíð félagsins og eftir atvikum möguleg- an nauðasamning. Viðræður standa enn yfir og hefur engin endanleg ákvörðun verið tekin,“ segir í ársskýrsl- unni. Haldið uppi hlutabréfaverði Málefni Giftar tengjast S-hópnum og Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga en Gift er að öllu leyti í eigu sjóðsins. Staða Giftar nú tengist falli Fjárfesting- arfélagsins Gnúps snemma árs 2008. Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er hægt að skilja svo að lánardrottn- ar Gnúps hafi tekið saman höndum um að forða félaginu frá gjaldþroti, en það átti drjúgan hlut í Glitni, FL Group og Kaupþingi. Hluti af lausninni var að Kaupþing lánaði Gift fjárfesting- arfélagi um 20 milljarða króna til að kaupa hlutabréf Gnúps í Kaupþingi. Fléttunni svipar til ákvarðana ráða- manna Kaupþings á síðustu stigum fyrir bankahrunið um að fá Al-Thani til þess að kaupa milljarðahluti í bank- anum. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar er meðal annars vitnað í Hreiðar Má Sigurðsson, þáverandi forstjóra Kaup- þingis, um fall Gnúps og málefni Gift- ar. „Við sáum hvað gerðist með Gnúp, þetta litla félag sem var þarna, sem við töldum að yrði ekki mikil frétt, hvaða áhrif það hefði, það lokaði á fjármögn- unar-, það var að minnsta kosti eitt af því sem lokaði á fjármögnunarmögu- leika Glitnis í Ameríku á þeim tíma,“ sagði Hreiðar. Um lán Kaupþings til Giftar til kaupa á Gnúpsbréfunum í sjálfum bankanum segir í skýrslu rannsókn- arnefndarinnar: „Í lok árs 2007 var Gnúpur kominn í greiðsluerfiðleika. Í desember 2007 voru seld út úr félag- inu öll hlutabréf þess í Kaupþingi til að bæta lausafjárstöðuna.“ Mörg spjót standa á Gift Gift ehf. var stofnað í júní 2007 með yfirfærslu eigna og skulda frá Eignar- haldsfélagi Samvinnutrygginga inn í hlutafélagið. Eignarhaldsfélagið var á sínum tíma stofnað þegar Bruna- bótafélagið og Samvinnutryggingar runnu saman í Vátryggingafélag Ís- lands, VÍS, í lok níunda áratugarins. Í árslok 2007 var eigið fé Gift- ar um 20 milljarðar króna en eignir þess voru metnar á allt að 60 millj- arða króna. Þetta saman ár nam tap Giftar liðlega 12 milljörðum króna. Stærstu eignir Giftar voru í Exista, Kaupþingi, Landsbankanum og Straumi. Félagið tapaði þar af leið- andi nánast öllum eigum sínum í bankahruninu. Tryggjendur, sem að áliti Lagastofnunar Háskóla Íslands áttu rétt á að fá hluti sína greidda út við slit félagsins, sitja því eftir með sárt ennið. Talið er að þeir hafi ver- ið nálægt 50 þúsund. Listinn yfir eigendahópinn, fyrrverandi tryggj- endur, er ekki í vörslu VÍS en ætti að vera til í fórum Giftar. Tvö sveitar- félög, Vopnafjarðar- og Djúpavogs- hreppur, hafa höfðað mál gegn Gift og freista þess að ná hlutum sínum í tryggingarfélaginu. Í stjórn Giftar nú sitja Jafet Ólafs- son, Jóhann Ásgeir Baldurs og Guð- steinn Einarsson, kaupfélagsstjóri í Borgarnesi. Benedikt Sigurðsson er titlaður framkvæmdastjóri. Margrét Guðjónsdóttir áritar árs- skýrslu Giftar fyrir hönd endurskoð- unarfyrirtækisins KPMG, en hún hefur jafnframt áritað ársskýrslur Milestone og Sjóvár og fleiri félaga á undanförnum árum sem tengjast efnahagshruninu. Eins og fram kemur í efnahags- reikningi er eigið fé félagsins í árs- lok neikvætt sem nemur 50,1 millj- arði króna. Í ljósi þess að starfsemi félagsins hefur falist í eignarhaldi verðbréfa, sem nú eru að mestu töp- uð, leikur verulegur vafi á áfram- haldandi rekstrarhæfi félagsins, en félagið á nú í viðræðum við kröfu- hafa sína um fjárhagslega framtíð félagsins. Ekki er víst að mat eigna og skulda félagsins væri með sama hætti ef rekstur félagsins færi í þrot. Framsetning eigna og skulda í efna- hagsreikningi miðast þó við áfram- haldandi rekstur,“ segir Margrét í at- hugasemd með áritun sinni. n Kaupþing lánaði Gift milljarða án veða n Skuldir umfram eignir meira en 50 milljarðar n Mál eignarhaldsfélagsins er til rannsóknar n Slitastjórn Kaupþings íhugar riftunarmál KAUPÞING LÁNAÐI GIFT ÁN VEÐA „ Í ljósi þess að starfsemi fé-lagsins hefur falist í eignarhaldi verðbréfa, sem nú eru að mestu töpuð, leikur verulegur vafi á áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins. Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is Forstjórinn Hreiðar Már Sig- urðsson var forstjóri Kaupþings þegar bankinn lánaði Gift 20 milljarða til kaupa á hlutabréfum í bankanum sjálfum. Allt tapaðist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.