Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 31. janúar 2011 Mánudagur ÚtibÚsstjóri flÚði land í kjölfar líflátshótana Starfsmenn Securitas hafa vaktað heimili sjö starfsmanna Landsbank- ans að undanförnu vegna alvar- legra hótana tveggja bræðra á miðj- um aldri. Þeir sem hafa þurft á gæslu að halda eru nær allir yfirmenn hjá bankanum auk lögfræðings en heimildir innan Securitas herma að gæslan hafi staðið yfir í tvo mán- uði en nú um helgina mun hún hafa verið aukin. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað varð til þess að ákveðið var að herða öryggisgæsluna, en ljóst má vera að eitthvað hefur gerst sem hefur orðið þess valdandi að hótan- irnar voru teknar alvarlega og þessi ákvörðun var tekin. Samkvæmt gögnum sem DV hefur undir hönd- um þóttu hótanirnar komnar langt yfir öll mörk í síðustu viku. Hótuðu starfsmönnum lífláti Mennirnir tveir sem höfðu hótan- irnar í frammi eru bræður og fyrr- verandi viðskiptamenn bankans. Ráku þeir saman fyrirtæki sem varð gjaldþrota og svo virðist sem ábyrgð vegna þess sé nú að falla á fjölskyld- urmeðlimi þeirra. Bræðurnir hafa verið í samskiptum við bankann sem gengur nú að sjálfsábyrgðum ættingja og mun það vera ástæða þess að bræðurnir byrjuðu að hóta starfsmönnum lífláti og eignaspjöll- um. Var þá tekin ákvörðun um að öryggisfyrirtækið Securitas myndi vakta heimili starfsmannanna. Engin kurteisisheimsókn DV hefur heimildir fyrir því að úti- bússtjóra hjá Landsbankanum hafi borist hótunarbréf þar sem hann er meðal annars spurður hvort hann muni beita sér fyrir því að ábyrgð- ir verði felldar niður. Ef ekki eigi hann von á undirrituðum ásamt litháískum vinum hans í útibúið og tekið er fram að slík heimsókn yrði ekki kurteisisheimsókn. Eins viti undirritaður hvar hann á heima og segir að útibússtjórinn gæti átt von á honum þangað og tilgreinir heim- ilisfangið. Þar að auki gæti hann setið fyrir honum á heimleið eða hann lent í slysi. Í lokin lýsir bréfrit- ari því yfir að undirritaður sé hvorki hræddur við kærur né lögreglu- heimsóknir. Eldflaug á bankann Annar bræðranna hafði orð á því að réttast væri að skjóta eldflaug inn í Landsbankann. „Hvernig væri nú að fá sér BASÚKKU og senda eins og eina eldflaug í Landsbankann,“ sagði hann á Facebook-síðu sinni. Samkvæmt heimildum blaðsins bárust bankanum tvö bréf þar sem starfsmönnum bankans var hótað lífláti. Þá voru hótanirnar nægilega alvarlegar til þess að öryggisgæsla við heimili nokkurra starfsmanna var stórefld. Þá var hætt við starfs- mannasamkomu á föstudaginn vegna hótananna. Flúði undan hótunum Útibússtjórinn ákvað á laugardag- inn að fara úr landi ásamt fjölskyldu sinni og mun það hafa verið til að komast undan mönnunum tveim- ur og hótunum þeirra. Samkvæmt heimildum var konu útibússtjór- ans einnig hótað og fengu þau hjón bréf þar sem bréfritararnir segjast vita hver hún sé, hvar hún vinni og hvar þau hjónin búi. Munu öryggis- verðir á vegum Securitas hafa verið við heimili þeirra þar til þau fóru af landi brott um helgina. Bræðurnir hafa enn ekki gert meira en að hafa í hótunum en ástæða hefur þótt til þess að vakta heimili umræddra starfsmanna bankans og eins og fyrr segir þóttu hótanirnar komnar langt yfir öll mörk. n Bræður í útistöðum við Landsbankann vegna ábyrgða sem falla á fjölskyldumeðlimi n Hafa hótað starfsmönnum bankans eignaspjöllum og lífláti n Starfsmennirnir þurfa stöðuga öryggisgæslu Bræðurnir segjast ekki ætla að standa við hótanirnar: Vona að hann hafi verið hræddur Bræðurnir tveir gangast við því að hafa haft í hótunum við starfsfólk Landsbankans. „Ég sagði nú við hann í Landsbankanum að ég myndi koma með litháíska vini míni og að það yrði ekki kurteisisheimsókn,“ segir annar bræðranna í samtali við DV. „En það er bara rugl – það stenst vart fyrir rétti sem ég hef sagt í þessum tölvupóstum.“ Bræðurnir hafa ekki í hyggju að fylgja hótunum sínum eftir, enda segjast þeir ekki vera ofbeldismenn: „En ef þeir eru svona rosalega hræddir, búnir að ráða Securitas út af rúmlega fertugum fjölskyldumanni og öryrkja, þá er það bara fínt,“ segir annar þeirra. Bræðurnir höfðu tekið lán vegna fyrirtækis á þeirra vegum. Allt gekk vel að þeirra sögn, þar til kom að efnahagshruninu, en þá fór að syrta í álinn. „Fyrirtækið fór á hausinn og lánið margfaldaðist,“ segir annar bróðirinn. Núna stendur lán annars þeirra í um tveimur milljónum króna, en lán hins, sem er öryrki, stendur í tæpum 500.000 krónum. „Það er allt á sömu bókina lagt í þessu – ég vil ekki láta Landsbankann vaða yfir mig á skítugum skónum. Ég vil réttlæti.“ Hann segir bankann ekki hafa viljað semja, heldur einfaldlega farið í hart. „Ég er í greiðsluaðlögun og þeir ætla að sækja á móður mína vegna lánsins. Hún er öryrki, hún getur ekki borgað þetta. Það verður þá bara að taka af henni húsið. Af hverju á að taka þetta af þeim á meðan menn eins og Magnús Kristinsson í Toyota fá allt niðurfellt?“ Hann bætir einnig við að vinir og kunningjar bankamannanna fái sérmeðferð, það sitji ekki allir við sama borð þar. Aðspurður um hótanirnar segir yngri bróðirinn að þær hafi verið skrifaðar í mikilli reiði og í ljósi vanmáttar gagnvart bankanum. „Þessi maður sem ég talaði við er orðinn holdgervingur bankans fyrir mér. Ég var að tala við bankann, ekki manninn. En ég vona bara svo sannarlega að hann hafi verið hræddur. Og ef ég þarf að sitja í fangelsi fyrir þessa tölvupósta, þá verður bara að hafa það.“ Eldri bróðirinn kinkar kolli: „Ég er öryrki. Ég get alveg setið í fangelsi eins og heima hjá mér.“ Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is Seðlabankastjóri með lífverði Ekki mun þetta vera í fyrsta skipti sem menn í áberandi stöðum hafa þurft á öryggisgæslu að halda. Stuttu eftir hrun árið 2008 greindi DV frá því að Davíð Oddsson, þá seðlabankastjóri, færi allra sinna ferða í fylgd lífvarða frá ríkislögreglustjóra. Höfðu ráðamenn orðið fyrir aðkasti og því var sú ákvörðun tekin að efla öryggisgæsluna til muna en lögreglan fylgdist náið með heimili Davíðs á þeim tíma. Heimili hans var einnig vaktað með fjölda myndavéla utan á húsinu. Sérþjálfaðir lífverðir fylgdu Geir Á svipuðum tíma var talið að líf Geirs H. Haarde væri í hættu en öryggisgæslan í kringum þáverandi forsætisráðherra var gífurleg. Sérþjálfaðir lífverðir frá sérsveit ríkislögreglustjóra fylgdu Geir hvert sem hann fór og keyrðu um á ómerktum bifreiðum til að vekja ekki athygli. Fylgst var með öllum mannaferðum í kringum Stjórnarráð Ís- lands og sérsveitin kölluð út ef einhverjir þóttu grunsamlegir. Vegna ástandsins í fjármálaheiminum þótti nauðsynlegt að vernda Geir en samkvæmt heimildum DV á þeim tíma var Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra líka með lífverði en afþakkaði þá eftir tvo daga. Ríkislögreglustjóri skipaði vernd yfir Jóhönnu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur einnig þurft á örygg- isgæslu að halda en í október síðastliðnum fylgdi sérsveitarmaður á vegum ríkislögreglustjóra Jóhönnu eftir. Var það embætti ríkis- lögreglustjóra sem fyrirskipaði verndina eftir að hundruðum kílóa af fiskúrgangi hafði verið dreift við heimili Jóhönnu og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Ætla má að í kjölfar þeirrar árásar, sem og harðra mótmæla nokkrum dögum áður, hafi ríkislögreglu- stjóri metið það sem svo að öryggi Jóhönnu væri ógnað og því fylgdi henni óeinkennisklæddur sérsveitarmaður hvert fótmál. Stöðug gæsla við sjö heimili Öryggisgæslan mun hafa byrjað fyrir um það bil tveimur mánuð- um en DV hefur traustar heimild- ir fyrir því að Securitas vakti nú sjö heimili bankamanna. Um er að ræða annars vegar staðbundna ör- yggisvörslu þar sem öryggisvörð- ur er staðsettur á heimilinu eða með vöktun þannig að bíll Securit- as komi þar við eins oft á klukku- tíma og mögulegt er. Fyrir helgina mun svo gæslan hafa verið auk- in. Af því má ætla að vægi hótan- anna eða alvarleiki þeirra hafi auk- ist fyrst ákvörðun um aukna gæslu, á heimilum starfmanna bankans, var tekin. Litið alvarlegum augum Kristján Kristjánsson, upplýsinga- fulltrúi Landsbankans, staðfestir að umræddar hótanir hafi borist starfs- mönnum bankans. Hann segir málið litið alvarlegum augum og að þetta séu grafalvarlegar hótanir. „Þetta hefur gengið allt of langt og mál- ið hefur gengið mjög nærri starfs- mönnunum,“ segir hann en aðspurð- ur segir hann bankann hafa verið í sambandi við lögregluna. „Að sjálf- sögðu er haft samband við lögregl- una þegar svona alvarlegar hótan- ir berast starfsmönnum,“ segir hann og bætir við að Landsbankinn geti ekki lagt fram kæru fyrir hönd starfs- manna, það þurfi þeir að gera sjálfir. Securitas Fyrirtækið sinnir gæslu við heimili útibússtjóra vegna hótana sem hann hefur fengið. Mynd RóBERt REyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.