Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Síða 14
Apótekarinn
stendur vaktina
n Íbúi í Grafarholti vildi benda á
og lofa nýtt apótek sem var opnað í
Grafarholti í október síðastliðnum.
„Apótekið er í einkaeigu Guðrúnar
Pálsdóttur lyfjafræðings, kærkomin
viðbót í hverfið. Þar er með ein-
dæmum góð og persónuleg
þjónusta enda Guðrún sjálf
sem stendur vaktina. Og auð-
vitað skiptir máli að
verði er stillt í hóf og
keypti ég til dæmis
nokkrar vörur með lág-
marki 15 prósenta mun
miðað við heilsurisana
Lyfju og Lyf og heilsu.“
Skyndihjálp
Það getur verið spurning um líf eða
dauða að kunna skyndihjálp og allir
ættu að fara á námskeið í helstu
atriðum skyndihjálpar. Hún kemur
ekki í stað viðeigandi læknishjálpar
en er fyrsta aðstoð sem veitt er
slösuðum eða bráðveikum ein-
staklingum. Hæfni til að greina
alvarlegan sjúkleika og vitneskjan
um hvort og hvernig kalla eigi eftir
hjálp er bókstaflega lífsnauðsynleg
en greining tefst oft vegna þess að
hvorki sá sem er veikur eða slasaður
né nærstaddir þekkja alvarleg
einkenni sjúkdóma eða slysaáverka.
Á heimasíðum Rauða krossins og
doktor.is má finna leiðbeiningar um
skyndihjálp en allir eru hvattir til að
sækja námskeið þar sem kennd er
viðurkennd skyndihjálp.
Símalaus í
tvær vikur
n Símaeigandi vil koma eftirfar-
andi lasti á framfæri en hann fór
með síma sinn í viðgerð í Nova.
Hann er ekki alls kostar sáttur við
þá þjónustu sem hann fékk. „Í fyrsta
lagi gátu þeir ekki lánað mér síma
á meðan hinn væri í viðgerð. Eftir
að hafa verið með símann í tvær
vikur voru þeir ekki búnir að hafa
samband við mig, eitthvað sem af-
greiðslumaðurinn í verslun þeirra
talaði um að yrði gert eftir viku,“ seg-
ir hann og bætir við að að lokum hafi
hann hringt og beðið um upplýsing-
ar. Þá fékk hann loks að vita
að beðið væri eftir að fá
nýjan minniskortales-
ara í símann og að það
tæki einhvern tíma í
viðbót. Viðskiptavin-
urinn er ósáttur við að
hafa ekki verið látinn vita af
þessu í upphafi.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
LOF&LAST
Fölsuð vara Hver kannast ekki við það að vera staddur í erlendri borg og vera boðin
merkjavara til sölu á ótrúlega lágu verði, hvort sem það eru skartgripir, leðurvörur eða
snyrtivörur. Á heimasíðu Evrópsku neytendaaðstoðarinnar, sem hægt er að finna á síðu
Neytendasamtakanna, eru ferðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir því að ekki er allt sem
sýnist. Eins eru þeir hvattir til að kynna sér hvaða reglur gilda í því landi sem ætlunin er að
heimsækja því kaup á slíkum vörum geta verið refsiverð. Gott er að biðja um kvittun fyrir
kaupunum og geyma hana. Slíkt getur auðveldað kaupanda að leita réttar síns ef þörf kref-
ur. Sérstaklega þarf að hafa varann á þegar verslað er á mörkuðum eða af götusölum. Eins
og segir á heimasíðunni, ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt er það yfirleitt raunin!
14 | Neytendur Umsjón: Baldur Guðmundsson baldur@dv.is 31. janúar 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 214.5 kr. Verð á lítra 214,5 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 214,1 kr. Verð á lítra 214,1 kr.
Verð á lítra 216,2 kr. Verð á lítra 215,2 kr.
Verð á lítra 214,0 kr. Verð á lítra 214,0 kr.
Verð á lítra 214,1 kr. Verð á lítra 214,1 kr.
Verð á lítra 214,5 kr. Verð á lítra 214,5 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Höfuðborgarsv.
Melabraut
Algengt verð
Díoxíðsmengaðar vörur frá Þýskalandi virðast ekki hafa borist til Íslands:
Engar mengaðar vörur til Íslands
Þótt við lifum á krepputímum og dýr-
ara sé að ferðast til útlanda en áður
er það ekki ómögulegt. Það fær-
ist í aukana að fólk nýti sér svoköll-
uð íbúðaskipti en þá skiptir maður á
húsnæði og jafnvel bíl við bláókunn-
uga útlendinga. Þetta fyrirkomulag
hefur reynst mörgum vel og eflaust
margir sem munu skoða þennan
möguleika af alvöru nú þegar krepp-
ir að buddunni. DV skoðaði hvernig
þessi skipti fara fram og hvaða kostir
eru í stöðunni.
Sjálfbær ferðamennska
„Fólk hefur alveg fundið sig í þessu
því þetta er leið til að eiga farsæl sam-
skipti við útlönd sem gefur manni
kost á að ferðast með fjölskylduna og
um leið að bjóða fram sitt eigið hús-
næði. Það má því segja að þetta sé
sjálfbærasta ferðamennskan sem við
getum hugsað okkur,“ segir Sesselja
Traustadóttir, umboðsmaður interv-
ac.com á Íslandi en vefsíðan er vett-
vangur fyrir fólk sem vill ferðast á
ódýran máta.
Lykilforsendan er traust
Aðspurð hvernig svona íbúða-
skipti virki og hvort það sé ekki
óþægilegt að vita af ókunnugu
fólki heima hjá sér segir Sesselja
að lykilforsendan í íbúðaskiptum
sé traust. Þú byggir upp traust til
þess sem þú hyggst skipta við og
hann verður að treysta þér. „Við
erum að opna heimili okkar fyr-
ir bláókunnugu fólki og þú verð-
ur að spyrja sjálfan þig hvern-
ig þú ætlar að fara með heimili
þeirra.“ Hún bendir á að ekki
sé um ferðaskrifstofu að ræða
heldur eins konar vettvang fyrir
fólk til að skipuleggja slík ferða-
lög. Fólk geri samkomulag sín á
milli en síðan bjóði upp á ýmis
tól svo sem samninga en beri í raun
ekki ábyrgð á neinu. „Við reynum að
gefa góð ráð og styðja ferðamennina
en ábyrgðin er þín og ánægjan líka,“
bætir hún við.
Heiðursmannasamkomulag
Hún segir að skiptin fari fram með
þeim hætti að fólk fer á vefinn og
skráir sig. Sumir eru með ákveðnar
hugmyndir um hvert þeir vilja fara
en aðrir eru opnir fyrir öllu og bíða
eftir að fá tilboð. „Maður byrjar á því
að kynnast á netinu áður en skiptin
fara fram en oft er líka um að ræða
símtöl þar sem samkomulag er gert
og eins samningur um hvernig allir
vilja hafa hlutina,“ segir hún og bæt-
ir við að oft skiptist fólk líka á bílum
og þá er gerður sérstakur samningur
um það. Það sem þurfi að hafa í huga
er að skipuleggja þarf ferðalagið fram
Evrópusambandið hefur birt stöðu-
mat á díoxíðsmenguninni hjá fóð-
ur- og matvælakeðju í Þýskalandi í
kjölfar frétta af slíkri mengun þar í
landi. Gefa niðurstöðurnar til kynna
að engar mengaðar dýra- eða fóður-
afurðir hafi verið fluttar til Íslands.
Staðfest hefur verið að hráefni í fóð-
ur og fóðurblöndur hér á landi eigi
ekki uppruna að rekja til umræddr-
ar matvæla- og fóðurkeðju og sam-
kvæmt fyrirliggjandi gögnum hafa
mengaðar búfjárafurðir ekki borist
hingað til lands. Frá þessu segir á vef
Matvælastofnunar.
Áður hafði verið sagt frá því að
mengunina mætti rekja til iðnað-
arolíu sem notuð var til fóðurgerð-
ar frá nóvember síðastliðnum og
fannst síðar í svínakjöti, eggjum
og alifuglum auk fóðurs. Díoxíð og
fleiri þrávirk lífræn mengunarefni
geta fundist í feitum matvælum eins
og fiski, kjöti og mjólk. Díoxíð safn-
ast fyrir í fituvef í líkamanum og
langvarandi neysla getur haft áhrif á
ónæmiskerfi, æxlunarfærin, horm-
ónastarfsemi og taugakerfið. Díox-
íðsmengunin í Þýskalandi var rak-
in til eins fyrirtækis sem framleiðir
fitu til notkunar í fóðurblöndur. Fyr-
irtækið fékk sendingar af fitusýrum
frá lífdísilsframleiðanda sem voru
að hluta mengaðar af díoxíði. Um-
ræddar sendingar voru afhentar
síðari helming nóvembermánaðar
og var gengið út frá því að öll fóður-
fita frá fyrirtækinu frá 12. nóvember
væri mögulega menguð.
gunnhildur@dv.is
Díoxíðsmengun Íslenskur búfénaður
hefur ekki fengið mengað fóður.
Sparaðu með íbúðaskiptum
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Það má því segja að þetta sé sjálfbærasta
ferðamennskan sem við getum hugsað okkur.
Íbúðaskipti Ferðamátinn býður upp á nýja
upplifun af landinu sem heimsótt er. MYND SIGTRYGGUR ARI
Sesselja Traustadóttir ásamt eiginmanni sínum Fjölskyld-
an hefur ferðast víða með því að nýta sér íbúðaskipti.
Kaíró Sesselja og Inga Rún Tryggvadóttir á ferðalagi um Egyptaland.