Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Side 15
Matarsódi í stað hreinsiefna Eflaust fallast mörgum hendur þegar kominn er tími til að affrysta ísskápa og frysta. Það þarf hins vegar ekki að vera mikið mál ef gengið er rösklega til verks. Á heimasíðu Leiðbeiningastöðvar heimilanna eru leiðbeiningar um slík þrif en þar segir að best sé að byrja á því að henda öllum gömlum afgöngum. Ekki skal nota sterk hreinsiefni en matarsódi út í volgt vatn er ágætis kostur til að þrífa með. Gott er að setja gamalt handklæði í botninn eða annað sem dregur í sig mikinn raka og setja skal skál með heitu vatni í botninn til að flýta fyrir affrystingu. Eins er hægt að nota hárblásara. Ef þrálát lykt er úr kæliskáp getur sítrónuvatn í skál leyst vandann. Sé sápuvatn notað skal muna að skola vel og þurrka af því sápan getur skilið eftir sig lykt sem sest í matvælin. Útbúum innkaupalista fyrir búðarferðir Flestir lenda í því að fara út í búð án þess að vita hvað þá í rauninni vantar. Þegar heim er komið kemur svo í ljós að helmingur þess sem var keypt til fyrir á heimilinu. Þegar kemur að sparnaði er gott ráð að vera búinn að útbúa innkaupalista þegar farið er að matarinnkaup. Á heimasíðu Leiðbeiningastöðvar heimilanna er hægt að prenta út innkaupalista til að hafa við höndina og merkja við eftir þörfum. Þar segir að skipulag auki hagkvæmni í innkaupum en með því móti taki maður síður skyndiákvarðanir og spari þannig pening. Gott sé að merkja á blaðið með blýanti svo hægt sé að nota það aftur og aftur. Neytendur | 15Mánudagur 31. janúar 2011 Matvælaöryggisstofnun Evrópu hefur áhyggjur: Varasöm litarefni í umferð Orkusparnaður Þegar harðnar á dalnum reyna allir að spara hverja krónu og mikilvægt er að vita hvar hægt sé að lækka þá reikninga sem greiða þarf. Á Orku- setrinu má finna góð ráð til þess að draga úr orkukostnaði heimilsins en þar segir að bæta megi orkunýtni án aukakostnaðar. Tíu ráð Orkusetursins sem kosta ekkert en geta dregið verulega úr orkukostnaði heimila: 1. Lækka innihita niður í 20°C 2. Slökkva alveg á raftækjum, ekki skilja þau eftir í biðstöðu 3. Hafa glugga lokaða nema við gagngera loftun 4. Ganga eða hjóla styttri vegalengdir 5. Fylla ávallt þvottavél og uppþvottavél 6. Hafa lok á pottum og pönnum og þekja alla helluna 7. Setja gluggatjöld fyrir glugga að næturlagi 8. Vistakstur með mjúkum akstri og réttum loftþrýstingi í dekkjum 9. Ekki byrgja ofna með húsgögnum eða gluggatjöldum 10. Fara í sturtu frekar en bað Niðurstöður rannsóknar á skað- semi litarefna sem kennd er við Southampton var birt árið 2007 og sýndi að algeng litarefni geta haft óæskileg áhrif á hegðun barna auk þess sem efnin geta valdið of- næmisviðbrögðum. „Matvælaör- yggisstofnun Evrópu taldi þó að það væri ekki hægt að túlka niður- stöðurnar á þann veg. Evrópusam- bandið setti samt í kjölfarið inn í aukefnareglur að matvæli með þessum litarefnum með E-númer- in 110, 104, 122, 129, 102, 124 ættu að vera merkt sérstaklega með setningunni „Getur haft óæski- leg áhrif á hegðun og einbeitingu barna“,“ segir Jónína Þ. Stefáns- dóttir, matvælafræðingur hjá Mat- vælastofnun. Þetta er ekki komið inn í íslenska reglugerð ennþá. Hún segir að framleiðendur megi merkja litarefni á tvo vegu, annars vegar með E-merkingu og hins vegar með nafni efnis- ins. Seinni kosturinn sé ekki eins augljós fyrir neytendur. Jónína bendir á að nöfn efnanna eru mis- jöfn eftir tungumálum og því geti verið erfitt fyrir fólk að vara sig á þeim efnum sem það vill forðast. Besta ráðið sé þá að borða minna af matvælum með litarefnum en hún segir að það fylgi oft óhollum vörum að innihalda litarefni, svo sem sælgæti og frostpinnum. Þó sé það orðið algengara að fram- leiðendur reyni að nota hráefni sem gefi lit í stað litarefna. Á heimasíðu Neytenda- samtakanna segir að samtök- in hvetji íslenska framleiðend- ur til að hætta notkun á þessum umdeildu litarefnum hið fyrsta og verslanir eru einnig hvattar til að selja ekki matvæli sem innihalda efnin. Neytendur geta kynnt sér nöfn yfir litarefni svo og E-merk- ingar á heimasíðu Matvælastofn- unar, mast.is. Varasamt Litarefni geta verið skaðsöm og best er að forðast þau í mat. í tímann og þegar fólk hefur komist að samkomulagi um skipti er ekki hægt að hætta við. Það er ekki gerður samningur sem er undirritaður held- ur gert samkomulag eða „heiðurs- mannasamkomulag“ eins og Sess- elja kemst að orði. Pínulítil ferðaskrifstofa Undirbúningurinn fyrir að lána öðr- um húsnæði sitt þarf ekki að vera mikill. Sesselja segir að best sé að nota eitt af herbergjum heimilis- ins til þess að geyma sitt dót á með- an. Það herbergi geti verið lokað og ekki fyrir gestina að nota. „Þegar ég hef skilið við húsið mitt hef ég keypt brauð og ost og ávaxtasafa sem fólk- ið getur fengið sér þegar það kemur. Jafnvel eina rauðvínsflösku og mikil- vægt er að fólki finnst það velkomið.“ Hún segist einnig hafa útbúið lista yfir það sem sé að gerast í hverfinu eða borginni, númer hjá nágranna eða fjölskyldumeðlimi sem hægt er að hafa samband við og almennar upplýsingar. „Maður leikur í raun- inni pínulitla ferðaskrifstofu.“ Besta nágrannavarslan „Núna í kreppunni er þetta algjör snilld. Þetta er mun ódýrari ferða- kostur og þetta er hvatning fyrir er- lenda ferðamenn að koma til Íslands. Auk þess er þetta besta nágranna- varslan sem til er en á meðan þú ert úti er einhver sem passar húsið þitt, ljós eru kveikt, pósturinn er tekinn, blómin eru vökvuð og þú færð jafn- vel einhvern sem vill passa hundinn þinn eða kött. Fyrir utan þetta þarf maður að vanda sig og sýna að mað- ur sé almennileg manneskja svo að þetta eru mannbætandi, persónuleg samskipti við umheiminn og sjálf- bær ferðamennska.“ Sesselja segir einnig að það sé ótrúleg upplifun að koma inn á heimili annarra í ókunn- ugri borg, fá sér kaffi og brauð og ein- hvern veginn finnast strax að maður sé heima hjá sér. Byrjaði hjá austurevrópsk um kennurum Sesselja útskýrir að forsaga intervac. com sé sú að vefurinn byggist á hug- myndum sem fram komu árið 1953, þegar kennarar í Evrópu voru á leið í sumarleyfi og vildu ferðast. Hún segir að þetta hafi byrjað með bréfaskrift- um í Mið-Evrópu en síðan hafi þetta hlaðið utan á sig. Þegar heimurinn fór svo að tölvuvæðast hafi orðið til þessi vefur sem sé í stöðugri þróun. Í dag séu um 7.000 virkar fjölskyld- ur skráðar á vefinn og boðið sé upp á eins árs áskrift sem kostar 9.500 krónur eða tveggja ára áskrift á tæp- ar 16.000 krónur. „Eftir hrun náðum við að semja um örlítið lægra verð en gengur og gerist. Þetta eru ekki ódýr- ustu samtökin en ég veit þó ekki til þess að það séu fleiri umboðsmenn hér á Íslandi.“ Þann 6. febrúar fer fram kaffi- húsafundur um íbúðaskiptaferðalög í Farfuglaheimilinu í Laugardal. Þar mun Hildur Kjartansdóttir segja frá sinni upplifun af þess konar ferða- lögum og Sesselja mun kynna vefinn. „Það eru allir velkomnir að koma og kynna sér þetta og athuga hvort þeir þori,“ segir Sesselja. Erum við tryggð? Þær upplýsingar fengust hjá trygg- ingarfélögum að best væri að kanna hvort maður væri með fjölskyldu- tryggingu sem inniheldur ferða- tryggingar en ef svo er getur mað- ur ferðast í allt að 92 daga og verið tryggður. Ef um innbústryggingu er að ræða, á meðan gestirnir dvelja í húsinu, þá er það tryggt eins og vanalega og brunatrygging er lög- boðin svo allir ættu að vera með þær. Bótaréttur breytist ekkert nema ef um til dæmis íkveikju er að ræða. Varðandi bílinn, þá þarf ekki að gera neitt nema að treysta ferðalöngun- um sem munu nota hann. Gott er að vera með kaskótryggingu ef til dæmis ef keyrt er á staur eða ef ann- að óhapp verður. Fólk er hvatt til að hafa samband við tryggingarfélag sitt áður en farið er af stað til að fara yfir stöðu mála. Sparaðu með íbúðaskiptum Ferðalangur Margrét Gunnarsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur sem starfar einnig sem fararstjóri af og til og er forfallinn ferðalangur, að eigin sögn, heldur úti síðunni ferda- langur.net. Þar hefur hún sett inn upplýsingar um íbúðaskipti þar sem hún vill vekja athygli á þessum ferðamöguleika. Margrét segir þetta hafa gífurlegan sparnað í för með sér þar sem ekki þurfi að kaupa hótelgistingu erlendis. „Þetta er líka svo skemmtileg nálægð við þann stað sem maður er á. Það er góð tilfinning að vera inni á heimili, í miðju íbúðahverfi, og þetta verður til þess að maður skoðar betur nærumhverfið. Fólk setur sig meira inn í einn stað í stað þess að flakka út um allt. Ég mæli hiklaust með þessum ferðamáta,“ segir hún. Hún hvetur fólk til að kynna sér vel þær síður sem bjóða upp á íbúðaskipti en á ferdalangur.net má finna ýmsar upplýsingar um heimasíður sem og rafrænan bækling sem Margrét tók saman. „Núna í kreppunni er þetta algjör snilld. Þetta er mun ódýrari ferða- kostur og þetta er hvatning fyrir erlenda ferðamenn að koma til Íslands. Kaupmannahöfn Fjölskylda gæti dvalið til dæmis í Kaupmannahöfn án þess að greiða fyrir gistingu. Flug og gisting erlendis getur kostað fjölskyldu heila formúu. Íbúðaskipti gætu verið lausnin fyrir þá sem vilja svala ferðaþorstanum en hafa ekki efni á dýru ferðalagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.