Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Page 23
ÚTTEKT | 23Mánudagur 31. janúar 2011
ríkjanna situr Phoenix/Scottsdale. Við
fyrstu sýn virðist sem borgin hafi ekki
upp á mikið að bjóða því hverfiskrár og
kaffihús sitja í 31. sæti auk þess sem lítið
er um áhugaverð hverfi í borginni sam-
kvæmt könnun AFC; 30. sæti.
En hinkrum við því borgin er í 6.
sæti hvað varðar vel þekkt lúxushótel
og í sama sæti með tilliti til heimilis-
hönnunar og hönnunarverslana fyrir
þá sem áhuga hafa á því sviði. Menn-
ingarlega er borgin ekki hátt skrifuð og
er í 28. sæti yfir menningarleg afdrep.
Í könnuninni kemur fram afgerandi
munur á kurteisi almennra borgara
og þeirra sem vinna í þjónustugeiran-
um. Borgin er í 2. sæti yfir „all-in-one
resorts“, gististaði þar sem allt er innan
seilingar, og nokkuð víst að starfsfólk
leggi sig fram við að veita viðskiptavin-
um bestu mögulegu þjónustu.
Þó að jólin séu nýliðin er vert að
geta þess fyrir jólafólk að Phoenix er í
5. sæti í flokknum vetur/jól og í 6. sæti
í nýárskvöldi.
Grunnt á Suðurríkjasjarmanum
Suðurríkjasjarminn virðist hafa snið-
gengið Atlanta sem er í 11. sæti yfir
ókurteisustu borgirnar og í 29. sæti
hvað varðar rómantík. Einnig virð-
ist sem borgaryfirvöldum sé eitthvað
í nöp við börn því hún er ekki talin
barnvænni en svo að hún siur í 27. sæti
í þeim flokki.
Hvað öryggi snertir fær Atlanta ekki
háa einkunn og er í 29. sæti. At lanta
státar þó af ágætum hótelum fyrir
kaupsýslumenn og lenti í 8. sæti í þeim
flokki í könnuninni og kom hún ekki
betur út í nokkrum öðrum flokki.
Sem menningarlegt afdrep fær
borgin líka frekar dapra einkunn og
situr í 29. sæti af 35, sama sæti og í
rómantík og öryggi. Hvað kræsingar
varðar er barbikjúið í Atlanta í 10. sæti,
pítsan í 23. sæti og hamborgarinn í 19.
sæti.
Ekki mikið augnakonfekt
Stóra D-ið, Dallas, virðist ekki hljóta
náð fyrir augum þátttakenda í könnun
AFC og benda einkunnirnar til þess að
Dallasbúar séu allt annað en gleðifólk.
Dallas er í 10. sæti hvað varðar ókurt-
eisi. Almennt fær næturlífið dapra
einkunn – tónlistarlífið er í 34. sæti og
barirnir eru í 29. sæti.
Besta einkunn Dallas var fyrir
barbi kjúið sem er í 9. sæti yfir barbi-
OG ÓKURTEISI
kjú, en hamborgararnir standa Hous-
ton-hamborgurum greinilega langt að
baki og lentu í 14. sæti.
Til að bíta höfuðið af skömminni
eru Dallasbúar ekki taldir vera smart
og eru í 28. sæti í þeim flokki og eins
og það væri ekki nógu slæmt þá settu
þátttakendur Dallasbúa í botnsætið
hvað varðar augnakonfekt – varla þess
virði að gjóa á þá augum.
Snautleiki í tísku
Orlando er í 9. sæti hvað varðar vin-
semd og kurteisi sem kann að vekja
furðu í ljósi þess hve vinsæll ferða-
mannastaður borgin er. Annað sem
stingur í augun í niðurstöðum könn-
unarinnar er að borgin situr í 30. sæti
sem ákjósanlegur staður að ferðast til
að sumri til.
Íbúar Orlando eru greinilega ekki
mikið í tískunni því borgin vermir 30.
sætið í tísku. En hvað sem öllu öðru
líður þá er borgin í efsta sæti sem
áfangastaður fyrir fjölskyldur þar sem
hægt er að finna gististaði þar sem allt
er innan seilingar; „all-in-one resorts“.
Hægt ætti að vera um vik að finna gist-
ingu á viðráðanlegu verði því borgin
er í 8. sæti með tilliti til þess. Þeir sem
kjósa íburðarmeiri híbýli ættu ekki að
verða fyrir vonbrigðum heldur því Or-
lando er í 11. sæti hvað vel þekkt lúxus-
hótel áhrærir.
Menningarvitar kynnu hugsanlega
að verða fyrir einhverjum vonbrigðum
því í flokkunum söfn/gallerí og sögu-
frægir staðir/minnismerki virðist ekki
vera um auðugan garða að gresja; 35.
sæti í þeim fyrrnefnda og 24. sæti í þeim
síðarnefnda.
Einnig vermir Orlando næstneðsta
sætið hvað varðar þjóðlega rétti og
hverfiskrár og kaffibari auk þess sem
næturlífið almennt er ekki hátt skrifað.
Frábær en lítt friðsæl
Las Vegas hefur löngum verið talin frá-
bær borg, en eitthvað virðist skorta á
kurteisi og vingjarnlegheit íbúa hennar
því hún vermir 8. sætið yfir þær borgir
sem státa af ókurteisum íbúum.
En borgin kemur vel í út í fjölda
þeirra flokka sem um ræddi í könnun
AFC. Villtar helgar gerast víst ekki betri
annars staðar í Bandaríkjunum og sit-
ur Las Vegas í efsta sæti þar. Lítill skort-
ur virðist einnig vera á lúxushótelum,
og skyldi engan undra að borgin er í 1.
sæti í þeim flokki og 2. sæti hvað varð-
ar verslanir sem bjóða upp á hágæða-
vörur.
Að sama skapi skyldi engan undra
að borgin fær ekki háa einkunn fyrir
friðsæld og rólegheit, bændamarkaði
eða ból og bita en hún er í neðsta sæti
í öllum þremur flokkunum og sömu
sögu er að segja um hverfiskrár og kaffi-
bari.
Fátt um fína drætti
Það er óumflýjanlegt að syrti í álinn
þegar nær dregur botni listans yfir
ókurteisustu borgir Bandaríkjanna og
sú er raunin hjá Baltimore sem er í 7.
sæti. Svo virðist sem afar fátt sem borg-
in hefur upp á að bjóða hljóti náð fyrir
augum þátttakenda í könnun AFC.
Baltimore er í einhverju af tíu botn-
sætunum í öllum flokkum sem taka til
„fólks“ nema einum. Undirflokkarnir í
„fólk“ eru fjölbreytileiki, útlit, vingjarn-
legheit, gáfur, stíll og „active/athletic“.
Það er eingöngu í fjölbreytileika sem
Baltimore skríður upp fyrir tíu neðstu
sætin.
Íbúar Baltimore eru í 33. sæti hvað
varðar stíl og 34. sæti hvað varðar út-
lit. Því er kannski ekki að undra að lif-
andi tónlist í borginni og það sem snýr
að stöðum fyrir einhleypa sitji hvort
tveggja á svipuðum slóðum; 32. sæti.
Klassísk tónlist og söfn
Hlýja virðist ekki einkenna Bostonbúa,
samkvæmt könnun AFC, en borgin er
í 6. sæti yfir ókurteisustu borgir Banda-
ríkjanna. En það segir ekki nema hálfa
söguna því andstætt Baltimore kemur
borgin vel út að mörgu öðru leyti, þrátt
fyrir að veðrið fái ekki góða einkunn; 30.
sæti, og ferðamenn hnjóti ekki um ódýr
hótel; 33. sæti.
Boston hefur greinilega upp á
að bjóða fjölda sögufrægra staða og
áhugaverðra minnisvarða og situr að
því leyti í 4. sæti. Einnig ætti áhugafólk
um söfn og gallerí ekki að verða fyr-
ir vonbrigðum því Boston er í 6. sæti í
þeim efnum.
Ef allt annað þrýtur má alltaf leita
huggunar í framleiðslu örbrugghúsa; 7.
sæti, og hlýða á klassíska tónlist sem er
hvorki meira né minna en í 2. sæti.
Fáðu þér hund
Ef þú vilt upplifa faðmlag í Wash-
ington geturðu víst allt eins faðmað
minnisvarða Abrahams Lincolns, því
samkvæmt könnun AFC hafa íbúar
borgarinnar, sem er í 5. sæti yfir ókurt-
eisustu borgir Bandaríkjanna, um ým-
islegt annað að hugsa en að dreifa vina-
legum brosum á báða bóga.
En það sem borgarbúa skortir í kurt-
eisi bæta þeir upp í gáfum; 4. sæti, auk
þess sem borgin er í 1. sæti hvað varð-
ar sögufræga staði og minnisvarða og
einnig söfn og gallerí, þannig að þeim
sem er þannig sinnaður ætti ekki að
leiðast.
Sagan segir að Truman Bandaríkja-
forseti hafi einhvern tímann látið þau
orð falla að ef maður vildi eignast vin í
Washington ætti viðkomandi að fá sér
hund.
Enginn misskilningur
Sólarparadísin Miami er í 4. sæti yfir
ókurteisustu borgir Bandaríkjanna.
Margir kynnu að ætla að öfund ætti
einhvern þátt í dapurlegri einkunn
Miami-búa fyrir vinsemd, en sú er ekki
raunin því þeir sjálfir settu sig í neðsta
sæti yfir óvinsamlegasta fólk Bandaríkj-
anna.
Íbúar Miami eru í 3. sæti hvað tísku-
vitund snertir og í 4. sæti hvað varð-
ar útlit almennt en næturlífið fær ekki
góða einkunn nema með tilliti til kráa
og valkosta fyrir einhleypa; 6. sæti.
Ef niðurstöður könnunarinnar eru
marktækar þá missir fólk ekki af neinu
þó að það sleppi því að fá sér hamborg-
ara og eitthvað virðist sem menning-
arlífið sé snautlegt, hvort sem um er
að ræða klassíska tónlist; 32. sæti, leik-
húslífið; 32. sæti, eða söfn og gallerí; 33.
sæti.
Ódýr hótel virðast ekki vera á hverju
strái; 29. sæti, og sömu sögu er að segja
um ból og bita; 31. sæti.
Söfn og sögufrægir staðir
Philadelphiu virðist ekki alls varnað þó
að íbúar borgarinnar hafi ekki riðið feit-
um hesti frá könnuninni hvað vingjarn-
legheit varðar, þar sem borgin er sú
þriðja ókurteisasta að mati þeirra sem
þátt tóku.
Henni er hins vegar talið til tekna að
hún státar af sagnfræðilegum stöðum;
6. sæti, söfnum og galleríum; 8. sæti, og
er í tíunda sæti hvað varðar klassíska
tónlist. En þess utan virðist fátt um fína
drætti.
Snyrtimennsku í borginni virðist
vera áfátt því þar er hún í næstneðsta
sæti; 34., og barbikjúið er ekki hátt skrif-
að og lenti einnig í 34. sæti. Íbúar borg-
arinnar geta þó leitað huggunar í því að
pítsan á þeim bæ virðist vera yfir með-
allagi góð því hún lendir í 4. sæti.
Sé skoðað hvar borgin stendur með
tilliti til gistingar lendir hún í 26. sæti
hvað hótelgistingu á viðráðanlegu verði
áhrærir, en gerir aðeins betur í ból og
bita-flokknum og er þar í 25. sæti.
Áhugafólk um þjóðlega rétti kynni
að verða fyrir vonbrigðum en þar situr
borgin í 17. sæti – gæti verið verra þó.
Íbúar Philadelphiu virðast hvorki
vera gáfaðir né aðlaðandi því í þeim
flokkum lenda þeir í 30. sæti og 33. sæti
af 35.
Fleira jákvætt en neikvætt
Sem fyrr segir situr New York-borg ekki
á botninum yfir ókurteisustu borgir
Bandaríkjanna, en gæti ekki verið nær
honum. En þó að borgin sé ekki hátt
skrifuð, samkvæmt könnun AFC, fyrir
kurteisi og vingjarnlegheit hefur hún
svo margt annað.
New York-borg situr í fimm efstu
sætunum í sex flokkum og geri aðrar
borgir betur; lúxusverslanir, leikhús og
leiklist, klassísk tónlist, þjóðleg mats-
eld, þekkt veitingahús og fjölbreytileiki
íbúa.
En borgin virðist vera dýr heim að
sækja með tilliti til gistingar því hún
situr í neðsta sæti, því 35., með tilliti til
hagkvæmrar gistingar og því 34. í ból
og bita-flokknum. Sé fólk hins vegar á
höttunum eftir vel þekktum lúxushót-
elum þarf það ekki að kvarta því þar er
New York-borg í 2. sæti og sömu sögu er
að segja um hótel fyrir kaupsýslumenn.
Barbikjúið í New York er í 31. sæti,
hamborgarinn í 9. og pítsan í 2. sæti,
ekki alslæmt í Stóra eplinu.
Sýndur fingurinn
Los Angeles var í könnun AFC kjör-
in ókurteisasta borg Bandaríkjanna og
í umsögn á vefsíðu Travel and Leis-
ure eru leiddar að því líkur að ástæðan
kunni að vera sú að of margir gestkom-
andi hafi verið boðnir velkomnir með
því að vera sýndur „fingurinn“ og borg-
in ekki talin væn fyrir gangandi vegfar-
endur og situr einnig í neðsta sæti hvað
það varðar.
Los Angeles er í 4. sæti neð tilliti til
lúxusverslana, sem ætti ekki að koma
á óvart og í 6. sæti hvað áhrærir þekkt
veitingahús og í því 8. í vel þekktum
lúxushótelum. Hún er hvergi fyrir ofan
miðbik í menningarflokknum – 20. sæti
í klassískri tónlist, 32. sæti í sögufræg-
um stöðum og minnisvörðum, 23. sæti
í söfnum og galleríum og 21. sæti í leik-
húsum og tengdri list.
Ódýr gisting virðist ekki vera á
hverju strái – hagkvæm hótel; 32. sæti,
ból og biti; 33. sæti, en borgin er í 8. sæti
hvað varðar vel þekkt lúxushótel.
Byggt á könnun AFC
Það skal tekið fram, og ítrekað, að um
er að ræða samantekt á niðurstöðum
könnunar Travel and Leisure Magazine
– America's Favorite Cities. Eflaust sýn-
ist sitt hverjum og er það vel.
HEIMILD: TRAVELANDLEISURE.COM
Tónninn sendur í L.A. Íbúar borgarinnar mega temja sér hlýlegra viðmót í garð annars fólks, samkvæmt könnun AFC.„En hinkrum við því
borgin er í 6. sæti
hvað varðar vel þekkt
lúxushótel og í sama
sæti með tilliti til heimil-
ishönnunar og hönnun-
arverslana fyrir þá sem
áhuga hafa á því sviði.
Menningarlega er borg-
in ekki hátt skrifuð og er í
28. sæti yfir menningar-
leg afdrep.
1. Nashville
2. Salt Lake City
3. Houston
4. San Antonio
5. Savannah
6. Denver
7. Kansas City
8. Orlando
9. Minneapolis/
St. Paul
10. New Orleans
11. Phoenix/
Scottsdale
12. Portland
13. Austin
14. Las Vegas
15. Providence
16. San Juan
17. Charleston
18. Portland
19. Dallas/Fort
Worth
20. Atlanta
21. San Diego
22. Memphis
23. Chicago
24. Honolulu
25. Seattle
26. Philadelphia
27. Anchorage
28. Baltimore
29. Miami
30. San Francisco
31. Santa Fe
32. Los Angeles
33. Boston
34. Washington,
D.C.
35. New York City
Hagkvæm gisting
1. Charleston
2. San Diego
3. Savannah
4. Miami
5. Salt Lake City
6. Honolulu
7. San Juan
8. Austin
9. Denver
10. Nashville
11. San Francisco
12. Phoenix/
Scottsdale
13. New York City
14. Los Angeles
15. Providence
16. Minneapolis/
St. Paul
17. Portland
18. Chicago
19. Las Vegas
20. Seattle
21. Dallas/Fort
Worth
22. Atlanta
23. New Orleans
24. San Antonio
25. Boston
26. Santa Fe
27. Kansas City
28. Houston
29. Portland
30. Washington,
D.C.
31. Orlando
32. Anchorage
33. Philadelphia
34. Baltimore
35. Memphis
Fallegasta fólkið
1. Seattle
2. Portland
3. San Francisco
4. Providence
5. New York City
6. Denver
7. Savannah
8. New Orleans
9. Austin
10. Minneapolis/
St. Paul
11. Portland
12. San Diego
13. Charleston
14. San Juan
15. Chicago
16. Nashville
17. Boston
18. Anchorage
19. Washington,
D.C.
20. Los Angeles
21. Phoenix/
Scottsdale
22. Santa Fe
23. Houston
24. Atlanta
25. Philadelphia
26. Honolulu
27. Miami
28. Kansas City
29. San Antonio
30. Salt Lake City
31. Baltimore
32. Las Vegas
33. Orlando
34. Dallas/Fort
Worth
35. Memphis
Kaffibarir
1. Charleston
2. Savannah
3. Nashville
4. Honolulu
5. Salt Lake City
6. New Orleans
7. Minneapolis/
St. Paul
8. Austin
9. Portland
10. San Juan
11. San Antonio
12. Portland
13. Denver
14. Kansas City
15. San Diego
niður að
Anchorage – sjá
grein
Vinalegasta fólkið
1. Nashville
2. Austin
3. New Orleans
4. Las Vegas
5. New York City
6. Chicago
7. Providence
8. Memphis
9. Portland
10. San Francisco
11. Denver
12. Savannah
13. Charleston
14. San Juan
15. Los Angeles
16. Seattle
17. Minneapolis/
St. Paul
18. Kansas City
19. San Diego
20. Miami
21. Boston
22. Honolulu
23. Philadelphia
24. Houston
25. San Antonio
26. Atlanta
27. Washington,
D.C.
28. Orlando
29. Salt Lake City
30. Phoenix/
Scottsdale
31. Portland
32. Baltimore
33. Santa Fe
34. Dallas/Fort
Worth
35. Anchorage
Lifandi tónlist