Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Side 26
26 | Fólk 31. janúar 2011 Mánudagur É g fékk einhvern tölvupóst frá Noregi, í honum stóð einfald- lega: „Fuck you!“,“ segir Árni Johnsen sem hefur látið mál hinnar rússnesku Maria Amelie sem var vísað frá Noregi sig varða og fékk heldur óvinsamlega kveðju frá ónafn- greindum Norðmanni. Kveðjuna fékk hann eftir umfjöllun norskra fjölmiðla um frumvarp sem dreift var á Alþingi á föstudag þar sem þeir Árni Johnsen og Sigmundur Ernir Rúnarsson lögðu það til að Maria Amelie, sem heitir í raun Madina Salamova, fái íslenskan ríkisborgararétt. Henni var nýlega vís- að frá Noregi þar sem hún hefur verið ólöglegur innflytjandi í níu ár og send aftur til Rússlands. Lítilmannlegt Árni segir framkomu Norðmanna í máli Mariu Amelie lítilmannlega. „Mér finnst þetta sérstakt mál, þetta er þekktur, norskur einstaklingur og eftir að hafa fest rætur í norsku samfé- lagi er henni hent úr húsi. Mér finnst þetta ekki í samnorrænum anda og þess vegna vildum við láta í okkur heyra.“ En hefur Árni heyrt um mál Jussanam Da Silva, sem fékk ekki dvalarleyfi á Íslandi en hefur gefið íslensku menn- ingarlífi innspýtingu með fallegum söng? „Máli Jussanam er ekki lokið skilst mér og þótt ég þekki ekki nægilega vel til hennar máls þá skilst mér að vand- kvæðin hafi eitthvað með meðferð málsins að gera,“ segir hann. Eitt lítið skref í einu En mega landsmenn vænta fleiri baráttumála hvað varðar mannrétt- indi frá Árna? „Það er aldrei að vita, maður ruglar aldrei saman málum. Ég tek eitt lítið skref í einu. Það eru mörg fordæmi fyrir því að listamenn og íþróttamenn hafi fengið dvalarleyfi hér með skemmri skírn, eins og mað- ur segir. Mér finnst bara að maður eigi að horfa aðeins út fyrir pakkann og láta fólk njóta vafans. Tala ekki um ef fólk hefur lifað í takti við land og þjóð. Það þarf að auka flóruna.“ En þú hefur verið sakaður um lýð- skrum? Það er vandi að fjalla um svona mál því það eru þúsundir sem eiga undir högg að sækja. Ég hef ekkert lesið af þessari gagnrýni, les ekkert svona síð- ur. En vonandi hugsa Norðmenn sinn gang. Mér finnst þetta mjög ómann- eskjulegt og þetta er subbulegt mál.“ kristjana@dv.is í tölvupósti Fékk „fingurinn“ n Fékk heldur óvinsamlega kveðju frá ónafngreindum Norðmanni n Er umhugað um að bæta í flóru samfélagsins n Fjöldi lista- og íþróttafólks hefur fengið dvalarleyfi með skemmri skírn Árni Johnsen: Mannréttindafrömuðurinn Árni Árni gat ekki á sér setið vegna lítilmannlegrar framkomu Norðmanna. Um mál hans hefur verið fjallað í erlendum miðlum og fékk hann í framhaldinu heldur óvinsamlega kveðju frá Norðmanni. MYND SIGTRYGGUR ARI Sögupersónur bókar Tobbu Marinós, Makalaus, lifna við á netinu en Tobba Marinós hefur sett aðalleikarana í aukavinnu við að tjá sig á Facebook í gervi aðalsöguhetjanna. Þar talar Tobba við sköpunarverk sín um uppskriftir og djamm. „Ég veit að þetta er svolítið steikt,“ viðurkennir Tobba. „En Facebook er stór hluti af uppákomum í bókinni og þáttunum sjálfum. Áhorfendur sjá færslur á Facebook sem þeir sjá svo settar í samhengi í þáttunum en það er auðvitað alltaf eitthvert drama tengt stöðufærslum sem kemur aðalsöguhetj- unni í mikið uppnám.“ á Facebook Sögupersónurnar GEFUR ÚT LÍFSSTÍLSBÓK Hildur Knútsdóttir, tískubloggari með meiru, er heldur betur stórtæk því tvær bækur koma út eftir hana á þessu ári. Önnur er fyrsta skáldsaga Hildar sem gefin verður út af Forlaginu. Hin er lífsstílsbók alter-egós Hildar, tískubloggarans á tiskublogg.blog- spot.com sem hefur valdið usla og deilum við aðra lífsstílsbloggara að undanförnu. Sú bók verður gefin út af Ókei-bæ-kur. „Bókin verður byggð á blogginu,“ segir Hildur og ætlar ekki að fara í harðan slag við lífsstílsbókarhöfunda eins og Tobbu og Gillz og hefur reyndar ekki lesið bækur þeirra. É g er ekki á Facebook þannig að ég hef ekkert orðið var við umræðuna þar,“ segir Hörður Magnússon íþróttafrétta- maður aðspurður hvort hann hafi orð- ið var við viðbrögð landsmanna á lýsingum sínum á leikjum Íslands á HM í handbolta sem lauk í Svíþjóð um helgina. Hörður hefur oft og tíðum farið hamförum í lýsingu sinni á leikjum Íslands og þótt standa sig með prýði. „Ég hef þó fengið mikið af SMS-skilaboðum og tölvupóstum frá fólki sem er ekki vant því að senda og það var bara ánægjulegt. Ann- ars er ég ekki mikið fyrir það að leita eftir ein- hverju áliti, hvorki jákvæðu né neikvæðu.“ Hörður segist að sjálfsögðu klár í slaginn fyrir næsta stórmót landsliðsins. „Já, ekki spurning. Ég er í klár í slaginn.“ Umfjöllun Stöðvar 2 Sport hefur þótt með besta móti og hefur Hörður orðið var við jákvæð viðbrögð frá fjölmörgum aðilum. „Það hafa menn frá HSÍ komið að máli við mig og sagt að það hafi ný viðmið verið sett.“ Hörður segir það óneitanlega hafa ver- ið sérstaka upplifun að lýsa leikjum á stór- móti þar sem Ísland sé á meðal þáttakenda. „Ég hef aldrei lýst svona móti sem snertir alla þjóðina og allir eru að fylgjast með. Ég hef lýst af vettvangi úrslitaleik Meistaradeildar- innar í fótbolta, Manchester United–Chel- sea, í Moskvu og ég hef lýst beint frá Heims- meistaramótinu í fótbolta en þetta var alveg sérstakt.“ Hörður var farinn að sjá það í hillingum að lýsa undanúrslitunum á mótinu og jafnvel úrlslitaleiknum sjálfum eftir frábæra byrjun íslenska liðsins. „Árangur liðsins á mótinu er auðvitað góður á heildina litið en eftir þessa byrjun þá var niðurstaðan óneitanlega nokk- ur vonbrigði.“ Hörður segist hafa tekið þann pól í hæð- ina fyrir mót að reyna fyrst og fremst að halda uppi stemningunni í lýsingum sínum. „Maður vildi fyrst og fremst reyna að fanga stemninguna fyrir fólkið heima á Íslandi í stað þess að fara í einhverja leikgreiningu eins og maður er kannski vanari að gera. Það var verk sérfræðing- anna að gera það. Það er svo bara hvers og eins að dæma hvort að það hafi tekist.“ asgeir@dv.is Klár í næsta stórmót Hörður Magnússon ánægður með viðbrögðin: Hörður Magn- ússon Vildi fyrst og fremst koma stemningunni til skila.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.