Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Page 6
6 | Fréttir 9. febrúar 2011 Miðvikudagur
Vanhæfur landsdómari skilar málflutningsréttindum:
Dögg hættir lögmennsku
Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmað-
ur ætlar sér að hætta í lögmennsku
og skila málflutningsréttindum sín-
um. Þetta hefur DV eftir áreiðanleg-
um heimildum. Dögg hóf störf hjá
Læknafélagi Íslands um áramótin
en þar hefur hún veitt félaginu lög-
fræðiráðgjöf. Hún mun nú einbeita
sér að störfum sínum sem lögfræði-
ráðgjafi Læknafélagsins.
Fjármál Daggar hafa verið í svið-
sljósinu að undanförnu. Frétta-
tíminn greindi frá því síðastliðinn
föstudag að Saga verktakar hefðu
ekki haft erindi sem erfiði við að inn-
heimta skuld sem nemur 31 milljón
króna vegna framkvæmda við tvær
íbúðir í eigu Daggar og sonar henn-
ar. Héraðsdómur dæmdi í málinu í
desember 2009 og Hæstiréttur stað-
festi þann dóm í fyrrasumar. Dögg
er hins vegar komin í skuldaaðlög-
un hjá umboðsmanni skuldara, sem
þýðir að Saga grípur í tómt – en þeir
geta ekki innheimt skuldina á með-
an mál Daggar er til umfjöllunar hjá
umboðsmanni skuldara.
Verði lögmaður úrskurðaður
gjaldþrota þýðir það að hann miss-
ir málflutningsréttindi sín sjálfkrafa.
DV hafði samband við Dögg en hún
vildi ekki tjá sig um fjármál sín né
nokkuð annað.
Á sunnudag greindi Dögg frá því
í viðtali við Vísi að hún hefði ritað
Ingibjörgu Benediktsdóttur, forseta
Hæstaréttar, bréf þar sem hún vakti
máls á mögulegu vanhæfi sínu til að
sitja í landsdómi, en Dögg var skip-
uð í landsdóm árið 2005. Lands-
dómur kemur nú saman í fyrsta sinn
síðan hann var stofnaður árið 1905
og var Dögg einn átta landsdómara.
Vanhæfi hennar kemur þó fjármál-
um hennar ekkert við. Dögg sat sem
varaþingmaður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á árunum 2007 til 2009, þar
sem hún leysti meðal annars Geir
H. Haarde tvisvar af hólmi. Hún tel-
ur sig því vanhæfa vegna tengsla við
hinn ákærða.
bjorn@dv.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð? Dögg Pálsdóttir Lýsti yfir vanhæfi
vegna tengsla við Geir H. Haarde og er
nú hætt lögmennsku.
Ísland er ekki
lengur karlaland
Kreppan hefur gert þjóðina yngri og
fjölgar kvenmönnum í hlutfalli við
karla. Konur voru aðeins 49 prósent af
íbúum Íslands í árslok 2008 en nú hef-
ur hlutur þeirra í íbúafjöldanum hækk-
að töluvert, eða í 49,8 prósent.
Forsagan er sú að erlendir verka-
menn streymdu til landsins í góðær-
inu. Þeir voru flestir karlkyns og á miðj-
um aldri. Nú hafa margir þeirra flutt
burt, sem jafnar aftur kynjahlutfall á
landinu og lækkar meðalaldur. Á sama
tíma og erlendir karlar streyma úr landi
flytja fleiri erlendar konur til landsins
en frá því. Kynjahlutfallið er því óðum
að jafnast út. Þetta kemur fram í frétta-
bréfi Greiningar Íslandsbanka.
Árið 2009 var Ísland vel yfir með-
allagi í fjölda karlmanna í hlutfalli við
fjölda kvenna. Það árið voru 105 karl-
ar á hverjar hundrað konur á Íslandi.
Meðaltalið í heiminum var 102 karlar á
hverjar 100 konur. Mestur var munur-
inn í Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum og í Katar. Í fyrrnefnda landinu
eru 205 karlar á hverjar 100 konur, en
því síðarnefnda eru 307 karlar fyrir
hvert hundrað kvenna.
Ofbeldisfullur
skokkari
Tólf ára drengur varð fyrir barð-
inu á ofbeldisfullum skokkara
fyrir utan útibú Arion banka við
Breiðumörk í Hveragerði á mánu-
dagskvöld. Drengurinn var ásamt
tveimur félögum sínum á ferðinni
þegar þeir sáu til manns á skokki.
Drengirnir tóku upp á því að
grínast og elta manninn. Skokkar-
inn var ekki sáttur við þetta og brást
við með því að stoppa snarlega og
veitast að umræddum dreng. Í til-
kynningu frá lögreglu segir að hann
hafi meðal annars slegið drenginn
í andlitið, tekið hann kverkataki
áður en hann keyrði hann niður í
gangstéttina. Maðurinn hélt síðan
áfram að skokka. Drengurinn hlaut
minniháttar áverka en var nokkuð
skelkaður.
Lögreglan lýsti eftir manninum
á þriðjudag og gaf hann sig fram í
kjölfarið. Í tilkynningu sem barst
frá lögreglu á þriðjudagskvöld
kom fram að hann hafi útskýrt
mál sitt fyrir lögreglu. Kom þar
ennfremur fram að hann sé bú-
settur á höfuðborgarsvæðinu en
hafi gert sér ferð til Hveragerðis til
að skokka.
Samkvæmt heimildum DV verð-
ur lögmaðurinn Sveinn Andri
Sveinsson kallaður til skýrslutöku
hjá skiptastjóra þrotabús félags-
ins SAM 10 ehf. í næstu viku. SAM
10 var í eigu Sveins Andra. Skipta-
stjóri SAM 10 er hæstaréttarlög-
maðurinn Einar Sigurjónsson. „Ég
mæti bara hjá skiptastjóra eins og
aðrir fyrrum fyrirsvarsmenn gera,“
sagði Sveinn Andri í samtali við
DV. Hann svaraði því neitandi þeg-
ar blaðamaður spurði hvort hann
teldi sig hafa eitthvað fela fyr-
ir skiptastjóranum. Verður Sveini
Andra gert að gera grein fyrir bók-
haldi SAM 10 hjá skiptastjóranum.
Ógreidd gjöld
Talið er að tollstjórinn í Reykja-
vík hafi farið fram á gjaldþrotaúr-
skurð yfir SAM 10 vegna ógreiddra
opinberra gjalda. Sveinn Andri gat
í samtali við DV ekki svarað því
hvort ógreidd opinber gjöld væru
ástæða þess að tollstjórinn hefði
farið fram á gjaldþrotaúrskurð yfir
félaginu. „Ég man ekki, eða veit
ekki, út á hvað gjaldþrotaúrskurð-
urinn gengur,“ sagði Sveinn Andri.
DV sagði frá því á mánudaginn
að félagið Reykvískir lögmenn, sem
nú heitir SAM 10, hefði skuldað um
20 milljónir króna í opinber gjöld
árið 2009. Sveinn Andri tók sér
hins vegar nærri 50 milljóna króna
arð út úr félaginu á árunum 2008
og 2009.
17 milljóna fasteign
Í ársreikningi Reykvískra lögmanna
árið 2009 kemur fram að helsta
eign félagsins sé 17 milljóna króna
fasteign. Ekki liggur ljóst fyrir hvort
Sveinn Andri hafi fært fasteignina
yfir í nýja félagið sitt eða skilið
hana eftir í hinu gjaldþrota félagi.
Líklega er þetta eitt þeirra atriða
sem Sveinn Andri þarf að gera Ein-
ari Sigurjónssyni, þrotabússtjóra
SAM 10, grein fyrir í næstu viku.
„Fasteign félagsins var ekkert inni
í þessu félagi, hún var löngu farin,“
sagði Sveinn Andri í samtali við DV
á sunnudaginn spurður um afdrif
fasteignarinnar.
Árið 2010 seldi Sveinn Andri
Sigtryggi A. Magnússyni félagið.
Sigtryggur er titlaður stjórnarfor-
maður SAM 10. Sveinn Andri og
Sigtryggur hafa áður stundað við-
skipti saman. Árið 2006 var greint
frá því að Sigtryggur hefði náð
samningi við St. Calos Group á
Taílandi um samrekstur hótels og
heilsulindar á Lálandi í Danmörku.
Er Sveinn Andri titlaður talsmaður
hópsins í grein um málið í Morg-
unblaðinu árið 2006. Ekki er vit-
að hvernig þessi fjárfesting þeirra
gekk.
„Mannleg mistök“
Sigtryggur var einnig eigandi
að félaginu Í skilum ehf. sem
fór á hausinn í apríl 2008. Fyrir-
tækið átti raðhúsin Hólavað 1 til
11 í Norðlingaholti sem Heilsu-
verndarstöðin ætlaði að nota
sem meðferðarheimili. „Þetta
voru bara mannleg mistök sem
varð til þess að þetta fór á þessa
leið,“ sagði Sigtryggur um gjald-
þrotið í samtali við Fréttablað-
ið árið 2008. Bætti hann því við
að gjaldþrotið hefði komið flatt
upp á hann. Sigtryggur virðist
nota sama orðalag um gjaldþrot
sitt og Sveinn Andri gerði. „Þetta
var bara pínulítið,“ sagði Sveinn
Andri í samtali við DV.is
á fimmtudag.
Sigtryggur vildi ekki
tjá sig um félagið SAM 10
þegar DV hafði samband
við hann.
KALLAÐUR FYRIR
SKIPTASTJÓRA
n Seldi vini sínum gjaldþrota félag n Gefur skýrslu
hjá skiptastjóra þrotabús SAM 10 í næstu viku
n Tollstjórinn í Reykjavík gerir stærstu kröfuna
Hefur ekkert að fela Sveinn Andri
mætir óhræddur í skýrslutöku hjá
skiptastjóra í næstu viku.
„Ég man
ekki, eða
veit ekki, út á hvað
gjaldþrotaúrskurðurinn
gengur.