Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Qupperneq 16
16 | Erlent 9. febrúar 2011 Miðvikudagur
Herferð í Bretlandi til að vara við svæsnum myndskilaboðum:
Engin dónaskilaboð
Í Bretlandi er nú að fara af stað her-
ferð til þess að minna börn og ung-
linga á hætturnar sem fylgja svæsn-
um myndskilaboðum sem senda
má með farsíma eða tölvupósti. Fyr-
irbærið, sem jafnan er kallað „sex-
ting,“ verður sífellt algengara með-
al barna og unglinga á Bretlandi.
Herferðin mun fara fram undir ein-
kunnarorðunum „hugsaðu áður en
þú sendir“ og nú þegar hefur ver-
ið framleidd áhrifamikil stuttmynd
sem verður sýnd í breskum skólum.
Í stuttmyndinni er söguhetjan
táningsstúlka sem hefur sent kær-
asta sínum nektarmyndir af sér
með myndskilaboðum. Skömmu
seinna kemst hún að því að kærast-
inn hefur brugðist henni, hann hlóð
myndunum á veraldarvefinn – að-
gerð sem ekki er hægt að draga til
baka. Söguhetjan gerir áhorfendum
ljóst að með því að senda vafasam-
ar myndir, eigi þeir alltaf á hættu að
myndirnar rati á vefinn. Geti slíkur
leki jafnvel haft áhrif á atvinnuhorf-
ur í framtíðinni auk þess að valda
ómældum skaða á sálarlífi þeirra
sem verða fyrir slíkum trúnaðar-
bresti og berskjöldun.
Það eru barnaverndarsamtökin
CEOP (Child Exploitation and On-
line Protection) sem standa fyrir
herferðinni. Peter Davies er formað-
ur samtakanna. „Við vitum að börn
og unglingar nota nýja samskipta-
tækni í æ meira mæli, en á sama
tíma eru þau að uppgötva sig sem
kynverur innan nýju tækninnar. Því
eru bæði strákar og stelpur að senda
hvort öðru svæsnar myndir án þess
að gera sér grein fyrir afleiðingun-
um.“ bjorn@dv.is
Unglingar senda skilaboð Átta sig ekki alltaf á hættum nýrrar samskiptatækni.
Internetrisinn AOL hefur fest kaup á
vefmiðlinum Huffington Post. Þetta
var tilkynnt aðfaranótt mánudags.
Kaupverðið er 315 milljónir dollara,
sem samsvarar tæplega 37 milljörð-
um íslenskra króna. Huffington Post,
sem var upprunalega vettvangur
fyrir bloggsíður frjálslyndra Banda-
ríkjamanna, var stofnaður árið 2005
af Ariönnu Huffington, Kenneth
Lerer og Jonah Peretti. Vefurinn tók
fljótlega að vinda upp á sig og er nú
ein öflugasta fréttaveitan á netinu. Í
Bandaríkjunum fær vefurinn um 25
milljónir heimsókna á dag og stefnt
er að því að hækka þá tölu umtals-
vert. AOL hefur stofnað nýtt eignar-
haldsfélag utan um fjárfestinguna,
Huffington Post Media Group, en
þar mun Arianna Huffington halda
áfram starfi sínu sem ritstjóri og
stjórnarformaður.
Öskubuskuævintýri
Salan á Huffington Post, eða Huff-
post eins og síðan er gjarnan kölluð,
er talin mikill sigur fyrir ritstjórann
og stofnandann Ariönnu Huffington.
Vefurinn var stofnaður fyrir sáralít-
ið fé sem hefur nú margfaldast og
ljóst er að fjárfestar sem hafa lagt síð-
unni til fé undanfarin ár hafa ekki
orðið fyrir vonbrigðum. Huffpost er
þekktur sem miðill þar sem umfjöll-
unarefnin eru frjálslyndum Banda-
ríkjamönnum mjög að skapi, og líta
margir svo á að Huffpost sé nokkurs
konar málgagn vinstrivængs stjórn-
mála í Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir að Huffpost sé nú þegar
einn vinsælasti vefmiðillinn í Banda-
ríkjunum ætlar AOL honum enn
stærra hlutverk í framtíðinni. Stefnt
er á að fjórfalda fjölda heimsókna
inn á síðuna innan Bandaríkjanna
á næsta ári og stefnt að því að hún
nái 100 milljónum í hverjum mán-
uði. Þá mun verða farið í herferð til
að fjölga lesendum utan Bandaríkj-
anna, en gangi allt eftir gæti Huffpost
fært AOL ómældar auglýsingatekjur
á næstu árum.
Draumasíða demókrata
Lesendur Huffpost eru mikið til þeir
sömu og eru líklegir til að kjósa demó-
krataflokkinn en meðal þess sem er í
brennidepli hjá Huffpost eru frétt-
ir og pistlar um umhverfismál, heil-
brigðis- og menntamál sem og fréttir
af tísku, tónlist og kvikmyndabrans-
anum. Af þessum sökum á síðan fjöl-
marga aðdáendur meðal stjarnanna
í Hollywood, sem og þekktra stjórn-
málamanna, sem bjóða iðulega fram
krafta sína til að blogga um hin ýmsu
málefni á síðunni. Meðal þekktra
bloggara á Huffpost má nefna stjórn-
málamennina Barack Obama, Hillary
Clinton, Nancy Pelosi og John Kerry,
ásamt skemmtikröftum á borð við
Larry David, Madonnu, John Cusack
og Robert Redford.
Öskubuskuævintýri
Huffington Post
n Bandaríski vefmiðillinn Huffington Post var seldur til AOL fyrir 37
milljarða króna n Var stofnaður fyrir sáralítið fé n Hluthafar fá væna
fúlgu n Hefur verið vettvangur óháðrar fjölmiðlunar, nú gæti það breyst
Arianna Huffington Verður áfram
ritstjóri og fær væna greiðslu.
Vilja afsögn
Alliot-Marie
Stjórnarandstæðingar í Frakklandi
krefjast þess að utanríkisráðherrann
Michèle Alliot-Marie segi af sér hið
snarasta. Ástæðan er óviðeigandi
flugferðir sem hún þáði með einka-
þotum í lok desember síðastliðins,
en þoturnar voru í eigu vildarvina
Zine el-Abidine Ben Ali, fyrrverandi
forseta Túnis. Ben Ali hrökklaðist
frá völdum í Túnis eins og kunnugt
er og flúði því næst til Sádi-Arabíu.
Frönsk stjórnvöld gáfu þá út yfirlýs-
ingu þess efnis, að hvorki Ben Ali né
skjólstæðingar hans eða viðskiptafé-
lagar væru velkomnir til Frakklands.
Alliot-Marie lét hafa eftir sér: „Þegar
ég er í fríi, þá er ég ekki utanríkisráð-
herra Frakklands.“
Drepinn af hana
José Luis Ochoa, 35 ára maður frá
Kaliforníu í Bandaríkjunum, var úr-
skurðaður látinn við komu á sjúkra-
hús í Tulare-sýslu fyrir rúmri viku.
Dánarorsök Ochoa var í skrýtnari
kantinum, svo ekki sé meira sagt.
Var Ochoa viðstaddur ólöglegan
hanaslag, þar sem hanar voru látnir
berjast til síðasta blóðdropa og við-
staddir veðjuðu um úrslitin. Í einum
slagnum höfðu eigendur hananna
límt hnífsblöð framan á gogg þeirra,
til að auka enn meir á ofbeldið. Í
hamaganginum varð Ochoa fyrir
snarpri árás frá öðrum hananum,
með þeim afleiðingum að hann fékk
djúpan skurð á kálfa sem bæddi
mikið úr. Þegar á sjúkrahús var kom-
ið hafði maðurinn misst það mikið
blóð að ekki reyndist unnt að bjarga
honum.
Vísindakirkjan
í vanda
Meðlimir Vísindakirkjunnar eru frá-
vita af reiði vegna ummæla óskars-
verðlaunahafans Pauls Haggis um
yfirmann kirkjunnar, David Misca-
vige – sem var meðal annars svara-
maður í brúðkaupi Toms Cruise og
Katie Holmes. Haggis sagði sig úr
Vísindakirkjunni árið 2009 eftir að
hafa verið meðlimur í 34 ár. Hafði
hann verið þögull sem gröfin um
reynslu sína af kirkjunni, allt þang-
að til nú fyrir skömmu. Í tímaritinu
New Yorker birtist á mánudag löng
grein þar sem Haggis, sem fékk ósk-
arsverðlaun fyrir myndina Crash,
sakar meðal annars Miscavige um
að beita ofbeldisfullri hegðun í garð
trúbræðra sinna og -systra, til að fá
sínu framgengt.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is