Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Side 17
Erlent | 17Miðvikudagur 9. febrúar 2011
Árleg íshöggmyndahátíð hófst í Sapporo í Japan á mánudag:
Íshöggmyndir í öndvegi
Á mánudaginn hófst árleg íshögg-
myndahátíð í Sapporo á Hokkaído-
eyju í Japan. Hátíðin er sú stærsta
sinnar tegundar og hefur verið hald-
in árlega síðan árið 1950 og stendur
yfir í eina viku.
Yfir 250 íshöggmyndir eru sýndar
á hátíðinni og búast heimamenn við
að gestir á hátíðinni verði rúmega
2,5 milljónir. Hátíðin í Sapporo kost-
ar borgaryfirvöld talsverða fyrir-
höfn, en í þetta sinn þurfti að flytja
hundruð tonna af snjó með vöru-
flutningabifreiðum svo hátíðin gæti
farið fram.
Verkin sem eru til sýnis eru af
ýmsum toga, þó asísk þemu séu
mjög áberandi í þetta sinn. Al-
gengt er að högglistamenn búi til
nákvæmar eftirlíkingar af frægum
byggingum, en eitt slíkt verk sem
vakti hvað mesta eftirtekt var ná-
kvæm eftirlíking af Himnahofinu í
Peking, höfuðborg Kína.
Heiðursgestur hátíðarinnar er
heimamaðurinn Akira Suzuki, próf-
essor við Hokkaído-háskóla, sem
fékk Nóbelsverðlaun í efnafræði
árið 2010. Þess má til gamans geta
að Suzuki á sjálfur eitt listaverkanna
á hátíðinni. Þá eiga hermenn úr jap-
anska hernum einnig nokkur verk á
sýningunni.
Hátíðin í Sapporo hefur not-
ið sívaxandi vinsælda undanfar-
in ár. Árið 2006 voru þeir rétt inn-
an við tvær milljónir en það ár var
hún fyrst haldin í Sapporo. Sem
fyrr segir er búist við að 2,5 milljón-
ir manna leggi leið sína á hátíðina
í ár. Skipuleggjendur hátíðarinnar
vonast til þess að enn fleiri muni
leggja leið sína til Sapporo á kom-
andi árum. Nákvæmnisvinna Hér má sjá nákvæma eftirlíkingu af borginni Daejon í Suður-Kóreu.
Hosni Mubarak, forseti Egyptalands
síðan árið 1981, gæti verið á förum
frá Egyptalandi á næstu dögum og
um leið látið af stjórnartaumun-
um í landinu. Orðrómur hefur ver-
ið uppi um leynilegar viðræður milli
bandarískra stjórnarerindreka og
egypskra stjórnvalda, um hvernig
megi tryggja að Mubarak hverfi frá
völdum án þess að tapa allri reisn.
Líklegasta niðurstaðan gæti verið sú
að Mubarak flytji sig á einkasjúkra-
hús utan Egyptalands til að gang-
ast undir ítarlega læknisskoðun og
fái þar sömuleiðis læknismeðferð
ef þurfa þykir. Samkvæmt fréttum
New York Times um helgina munu
þessar leynilegu viðræður vera langt
komnar og fullyrðir blaðið að orðr-
ómurinn um viðræðurnar hafi verið
á rökum reistur.
Orðrómur um krabbamein
Það var tillaga Bandaríkjamanna að
Mubarak skráði sig á einkasjúkra-
hús. Munu þeir hafa fengið hug-
myndina þar sem heilsa Mubaraks
hefur lengi verið milli tannanna á
stjórnarerindrekum í Egyptalandi,
ekki síst eftir að forsetinn gekkst
undir erfiða skurðaðgerð í fyrra-
vor. Þá var Muba rak lagður inn á
háskólasjúkrahúsið í Heidelberg
í Þýskalandi, þar sem skurðlækn-
ar fjarlægðu bæði gallblöðru hans,
sem og æxli sem var að finna í þörm-
um forsetans.
Síðan aðgerðin fór fram hafa
gengið sögur um að Mubarak væri
tæpur til heilsunnar og reyndu fjöl-
miðlar að grennslast fyrir um málið í
fyrra. Þá sögðu læknarnir við sjúkra-
húsið í Heidelberg hins vegar að að-
gerðin hefði heppnast fullkomlega.
Sögðu þeir að Mubarak væri heilsu-
hraustur sem aldrei fyrr.
Lúxussjúkrahús í Þýskalandi
líklegast
Samkvæmt heimildum þýska frétta-
tímaritsins Der Spiegel er talið lík-
legast að Mubarak leggist inn á Max-
Grundig-einkasjúkrahúsið í bænum
Bühl í suðvesturhluta Þýskalands,
skammt frá bænum Baden-Baden.
Á vefsíðu sjúkrahússins segir að það
bjóði „fyrsta flokks læknisþjónustu“
en jafnframt „þægindi og þjónustu
á við bestu hótel“. Ekki myndi væsa
um Mubarak, yrði af því að hann
flytti sig til Bühl, en þar er búið um
sjúklinga í 200 fermetra lúxussvítum
með herbergisþjónustu. Ef Mubarak
er í raun með krabbamein, eins og
margir telja, þá gæti hann ekki ver-
ið á betri stað til að fá meðferð við
sjúkdómnum því sjúkrahúsið í Bühl
er þekkt á heimsvísu fyrir góðan ár-
angur í barðáttunni við krabbamein.
Þýsk stjórnvöld jákvæð
Samkvæmt heimildum þýskra fjöl-
miðla er Angela Merkel meðvituð
um viðræðurnar sem fara nú fram
milli fulltrúa Bandaríkjanna og
Egyptalands. Á síðustu dögum hafa
meðlimir úr ríkisstjórn Merkel tjáð
sig um málið og ljóst er að hún er
opin fyrir því að taka við Mubarak.
„Við þurftum á friðsamlegum stjórn-
arskiptum að halda í Egyptalandi,“
sagði Andreas Schockenhoff, þing-
maður Kristilegra demókrata, flokks
Angelu Merkel. „Geti Þjóðverjar á
einhvern hátt hjálpað til við stjórn-
arskiptin, ættum við að taka við Mu-
barak – ef hann vill það.“
„Ekki myndi væsa
um Mubarak, yrði
af því að hann flytti sig til
Bühl, en þar er búið um
sjúklinga í 200 fermetra
lúxussvítum.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
MUBARAK
Á FÖRUM
n Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, gæti verið á förum
eftir allt saman n Leynilegar viðræður hafa farið fram
n Mun líklega leggjast inn á einkasjúkrahús í Þýskalandi
Hosni Mubarak Hér er
hann í sjónvarpsávarpi í
síðustu viku. Nú lítur út
fyrir að hann gæti verið á
förum eftir allt saman.Öskubuskuævintýri
Huffington Post
Silja Bára Ómarsdóttir aðjunkt
Hún skrifar reglulega á Huffington Post en
hefur áhyggjur af breyttu hlutverki í kjölfar
sölunnar til AOL.„Ég heyri á
róttækari vinum
mínum vestanhafs að
þeir hafa orðið fyrir
vonbrigðum með þetta
Fornminjar
skemmdust
Komið hefur í ljós að um 70 ómetan-
legir fornmunir á egypska þjóð-
minjasafninu hafa skemmst og þurfa
á viðgerð að halda. Zahi Hawass,
fornminjamálaráðherra í ríkisstjórn
Hosnis Mubaraks, hefur staðfest að
engin múmía hafi skemmst þegar
mótmælendur ruddust inn á safnið
en sagði jafnframt að aðrir munir
hefðu ekki sloppið jafn vel. Meðal
fornmuna sem skemmdust var stytta
af Tútankamon, faraó af Egypta-
landi, sem barni. Þó það hafi ekki
verið staðfest, leikur grunur á því að
þeir sem brutust inn á safnið hafi í
raun verið skjaldsveinar Omars Su-
leimans varaforseta og hafi unnið
skemmdir til að valda innbyrðis
deilum meðal mótmælenda.
Skógareldar
í Ástralíu
Enn og aftur þurfa Ástralir að glíma
við náttúruhamfarir. Nú geisa alvar-
legir skógareldar í vesturhluta Ástr-
alíu, á sama tíma og íbúar Queens-
land-fylkis í norðurhlutanum reyna
að koma lífi sínu í skorður eftir gíf-
urleg flóð og einn kraftmesta felli-
byl sögunnar sem reið yfir svæðið í
síðustu viku. Í skógareldunum, sem
umlykja að hluta til borgina Perth,
hafa að minnsta kosti 40 hús brunn-
ið til grunna auk þess sem 4.000
hektarar skóglendis hafa orðið eld-
unum að bráð. Ekki hefur tekist að
slökkva eldana en engin tíðindi hafa
borist af mannfalli.
Berlusconi
fyrir dóm
Saksóknaraembættið í Mílanó á
Ítalíu mun í dag, miðvikudag, skila
inn formlegri beiðni til dómsyfir-
valda um að Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu, svari til saka
fyrir rétti. Með beiðninni fylgdi um
660 síðna skjalabunki sem hef-
ur að geyma afrit af skýrslutökum
fjölmargra vitna sem styrkja grun-
semdir um sekt forsætisráðherrans.
Eftir að beiðninni hefur verið skilað
geta dómsyfirvöld í Mílanó tekið sér
fimm daga umhugsunarfrest áður
en þau taka afstöðu til beiðninnar.
Það ætti því að koma í ljós í síðasta
lagi í næstu viku hvort glaumgosinn
frá Sikiley þurfi að mæta fyrir rétt
fyrir að hafa keypt kynlífsþjónustu af
ófullveðja stúlku.
Tvíeggjað sverð
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjunkt í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, hefur skrifað reglulega á
Huffington Post um íslensk stjórn-
mál. Hún segir söluna á Huffpost
vera tvíeggjað sverð, sameiningin
við AOL gæti til að mynda haft nei-
kvæð áhrif á sjálfstæða fjölmiðla-
umfjöllun. „HuffPo var óháð rödd
í fjölmiðlaheiminum vestanhafs.
Með þessari yfirtöku breytist það og
vefurinn verður hluti af almennum
fjölmiðlamarkaði, þrátt fyrir að Ari-
anna Huffington hafi lagt áherslu á
það í pósti til bloggara vefsins í gær
að hún fengi ritstjórnarhlutverk.
Ég heyri á róttækari vinum mínum
vestanhafs að þeir hafa orðið fyrir
vonbrigðum með þetta og eru efins
um að þeir haldi áfram að senda efni
inn. Vefurinn hefur reyndar verið að
breytast frá því sem hann var upp-
haflega og hefur sífellt verið að þró-
ast í að verða meiri dægurmálavefur
á kostnað hlutverks síns sem óháður
fréttamiðill og vettvangur skoðana-
skipta. Þá gæti ef til vill opnast tæki-
færi fyrir aðra vefi til að fylla í tómið
sem HuffPo skilur eftir sig við þessa
sameiningu. Svo er auðvitað hinn
möguleikinn að þetta styrki vefinn,
sjálfstæða fjölmiðlun og samfélags-
umræðu á honum, en einhvern veg-
inn þykir mér það ólíklegt,“ sagði
Silja Bára í samtali við DV.