Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Page 29
Fólk | 29Miðvikudagur 9. febrúar 2011
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Simon Cowell dæmir í X-Factor:
Simon Cowell
aftur á skjáinn
Reese Witherspoon í verslunarleiðangri:
brúðarkjólnum
Reese leitar að
Á meðan landar hennar flykktust að sjónvarpskjánum til þess að horfa á Super Bowl á sunnudaginn fór
leikkonan Reese Witherspoon í verslun-
arleiðangur í leit að rétta brúðarkjólnum.
Eftir að hafa verið saman í um ár hafa
Reese og umboðsmaðurinn Jim Toth
ákveðið að ganga í það heilaga. Reese var
áður gift leikaranum Ryan Phillippe og á
með honum börn en hún átti einnig í ást-
arsambandi við stórstjörnuna Jake Gyl-
lenhaal um tíma.
Óskarsverðlaunaleikkonan kom við
í verslun Monique Lhuillier en Lhuiller
hannaði meðal annars brúðarkjól kán-
trísöngkonunnar Carrie Underwood.
Reese sást nýlega með trúlofunarhring
á fingri og ekki af verri endanum. Glæsi-
legan demantshring sem er áætlað að
kosti um 30 milljónir króna.
Jim Toth og Reese Witherspoon Hafa verið saman í rúmt
ár og trúlofuðu sig
nýlega.
Hvar er hann? Hinn
eini rétti brúðarkjóll.
Natasha „Tajah“ Burton gefur út ævisögu:
Átti Rihanna í sam-
bandi við þessa?
Lítt þekkt fyrirsæta, Natasha „Tajah“ Burton, er í þann mund að senda frá sér ævisöguna Low Down Dirty Shame. Þar kemur fram að Nata-
sha hafi átt í ástarsambandi við fræga poppsöng-
konu frá Barbados. Ekki eru margar sem koma til
greina og telja flestir að hún eigi við poppgyðj-
una Rihönnu. Natasha segir sambandið hafa átt
sér stað árið 2009 en þá var Rihanna ennþá í
sambandi við Chris Brown.
Brown gekk eins og frægt er orðið al-
varlega í skrokk á Rihönnu en á þeim tíma
gengu sögusagnir um að það hefði ver-
ið vegna SMS-skilaboða sem Brown á að
hafa lesið í síma Rihönnu. Þau skilaboð
hafi einmitt verið frá konu en ekki karli.
Það var þó aldrei
staðfest og er
mikið um get-
gátur í Holly-
wood um þessar mundir. Enn
ein kenningin segir að nektar-
myndir af Rihönnu sem láku
á netið fyrir um tveimur vik-
um hafi verið frá Natöshu og
hennar fólki til að vekja at-
hygli á bókinni.
Rihanna hefur ekkert tjáð
sig um málið og er ekki talið
líklegt að hún geri það.
Rihanna Er ekki nefnd á
nafn í bókinni.
Natasha „Tajah“
Burton Átti hún í
ástarsambandi við
Rihönnu?
Vefsíðan TMZ heldur því fram að Lindsay Lohan verði ákærð á næstu dögum fyr-
ir að stela hálsfesti en búðareigandi
kærði hana fyrir nokkru. Á móti hef-
ur E! News eftir talsmanni saksókn-
araskrifstofu Los Angeles að eng-
in ákæra verði gefin út á næstunni.
Hins vegar er saksóknarinn Danette
Meyers, sú sama og sótti ölvunar-
akstursmálið gegn Lindsay, að fara
yfir gögnin og mun taka endanlega
ákvörðun um það hvort hún verði
ákærð eða ekki.
Líkt og DV hefur áður greint frá
hóf lögreglan rannsókn á málinu eft-
ir að búðareigandi kærði leikkonuna
fyrir þjófnað. Lindsay er sökuð um
að hafa stolið hálsfestinni þann 22.
janúar en búðareigandinn lagði fram
upptökur úr öryggismyndavélum og
myndir sem sýna Lindsay með háls-
festina. Líkt og þá sem birtist hér
með fréttinni.
Lindsay hefur sjálf sagt að hún
hafi fengið festina lánaða eins og al-
gengt er með leikkonur og það hafi
svo verið í verkahring stílista henn-
ar að skila henni til baka. Stílist-
inn hafi hins vegar ekki staðið sig í
stykkinu.
Verði Lindsay fundin sek gæti
hún farið í allt að þriggja ára fang-
elsi enda er hún á skilorði fyrir ítrek-
uð brot. Enginn aðstandenda henn-
ar telur líklegt að hún verði dæmd en
það er ljóst að málið er grafalvarlegt
ef til þess kemur.
Gæti fengið
þriggja ára
fangelsisdóm
Verður Lindsay Lohan ákærð?
Konukvöld
Fimmtudagskvöldið 10. febrúar kl. 20:00
Allar
velkomnar,
meðan
húsrúm leyfir!
Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n S: 554 2166 n www.catalina.is
Mikið af flottum hönnunarvörum,
s.s.: ullarvörur, glervara, skartgripir, einnig
snyrtivörur, heilsuvörur, og margt fleira.
Lindsay Lohan
Hálsfestin gæti
reynst henni
dýrkeypt.