Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Blaðsíða 16
16 | Erlent 21. febrúar 2011 Mánudagur
Að minnsta kosti 140 manns hafa
fallið í blóðugum átökum mótmæl-
enda og hersins í Líbíu. Bylting-
araldan sem hefur farið um gjör-
vallan Arabaheim á síðustu vikum
hefur nú skollið af miklum þunga
á Líbíu, en þar situr Muammar al-
Gaddafi sem fastast – en hann hef-
ur verið leiðtogi Líbíu síðan 1969.
Gaddafi virðist staðráðinn í því að
fara ekki sömu leið og starfsbræð-
ur hans í Túnis og Egyptalandi,
þar sem þeir Zine El Abidine Ben
Ali og Hosni Mubarak hrökkluðust
frá völdum í kjölfar kröftugra mót-
mæla. Gaddafi hefur mætt mót-
mælendum með hörðu og ætlar
sér að berja byltinguna miskunnar-
laust niður.
Sérsveitir á vettvang
Gaddafi sendi meðal annars sér-
sveit úr hernum til hafnarborgar-
innar Bengasi, sem er jafnframt
næststærsta borg Líbíu. Notuðu
hermennirnir skriðdreka þegar þeir
brutu sér leið inn í borgina. Vef-
útgáfa þýska fréttatímaritsins Der
Spiegel náði tali af Abellah al-War-
fali, sem sá þegar sérsveitin kom til
borgarinnar. „Ég sá það með ber-
um augum þegar skriðdreki ók yfir
bifreið með tveimur í. Skriðdrekinn
kramdi bókstaflega bifreiðina.“
Fréttastofa BBC ræddi einnig
við mann sem sá herflokk ráðast að
mótmælendum, þar sem hermenn
voru vopnaðir vélbyssum. Upphófst
mikil skothríð þar sem tugir féllu og
enn fleiri særðust. Hermennirnir
höfðu einnig á sér hamra, sem þeir
notuðu til að lumbra á þeim sem
voru svo heppnir að verða ekki fyrir
skothríðinni. Öll sjúkrahús í Beng-
asi fylltust á örskotsstund og götur
borgarinnar eru svo gott sem þakt-
ar í blóðslettum.
Allt að 200 fallnir
Í höfuðborginni Tripólí var það
sama uppi á teningnum. Her-
menn notuðu vélbyssur og skrið-
dreka til að dreifa mannfjöldan-
um sem mótmælti hástöfum. Þá
notaðist herinn einnig við þyrlur
til að gera loftárás á mótmælend-
ur. Vitni á staðnum greindu frá
því í viðtali við fréttastofu Reuters
að þau hefðu séð konur og börn í
sjálfheldu á miðri umferðarbrú. Til
að komast hjá því að verða skotin
stukku þau fram af brúnni í opinn
dauðann. Gaddafi hafði einnig sig-
að óeinkennisklæddum hermönn-
um á mótmælendur, en þeir beittu
hömrum, steinum og hnífum.
Læknar í Tripólí telja að allt að 200
manns hafi fallið á síðustu dögum
vegna ofbeldis hermanna og stiga-
manna Gaddafis.
Enginn verið leiðtogi lengur
Það myndi teljast til tíðinda ef mót-
mælin í Líbíu hefðu svipaðar af-
leiðingar og mótmælin í Túnis og
Egyptalandi. Þeir Ben Ali og Mu-
barak voru þó engir aukvisar þegar
kom að því að hanga lengi á valda-
stóli. Ben Ali hafði verið forseti síð-
an árið 1987 og Mubarak síðan árið
1981, eða í þrjá áratugi. Gaddafi
hefur hins vegar verið leiðtogi Líbíu
síðan árið 1969, eða í 42 ár. Enginn
þjóðarleiðtogi í heiminum hefur
haldið lengur í stjórnartaumana en
Gaddafi, en hann afsalaði sér titli
forsætisráðherra árið 1972. Hann
vill heldur láta titla sig sem „bróð-
urlegan leiðtoga og leiðsögumann
byltingarinnar.“
n Muammar al-Gaddafi, leiðtogi Líbíu, ætlar sér að berja niður byltinguna í blóði
n Allt að 200 manns hafa fallið á síðustu dögum n Hermenn hafa skotið á konur og börn
5
2
31
4
1,000 km
1 2
4 5
Síðustu atburðir
HEIMILD: REUTERS
Ólga síðan í janúar Síðustu atburðir
Mahmoud Ahmadinejad
hefur skipað hermönnum
og öryggislögreglu á
mótmælendur. Hann
hefur einnig lokað fyrir öll
vefsamskipti.
Á síðustu dögum hafa allt
að 200 manns fallið í
átökum mótmælenda og
hersins í höfuðborginni
Trípólí sem og í
hafnarborginni Benghasi
Á laugardag hörfuðu lögreglumenn
undan tugum þúsunda mótmælenda í
höfuðborginni Manama. Mótmælendur
kreast afsagnar Khalifa prins.
Bahrein
Íran 3
Talið er að mótmælin í Írak
hafi enn ekki náð hámarki. Í
síðustu viku féllu að
minnsta kosti fimm eftir
átök við lögreglu.
Írak
Í kjölfar mótmæla háskólanema fyrir tíu
dögum í höfuðborginni Sana, sem
beinast Ali Abdullah Saleh, hafa verið
óeirðir á götum borgarinnar dag hvern.
Jemen
Líbía
Miðjarðarhaf
Óman
Jemen
Alsír
Túnis
Jórdanía
Líbía
Níger Tsjad Súdan
Sádi-Arabía
Egypta-
land
Íran
Ólga í Afríku og Mið-Austurlöndum
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Ég sá það með
berum augum
þegar skriðdreki ók yfir
bifreið með tveimur í.
Skriðdrekinn kramdi bók-
staflega bifreiðina.
Muammar al-Gaddafi
Enginn þjóðarleiðtogi
hefur verið við völd lengur
en Gaddafi. Hann ætlar sér
að stjórna áfram með því að
kæfa byltinguna í blóði.
BLÓÐBAÐ Í LÍBÍU
Fórnarlamb hersins Þessi mynd
er úr myndbandi sem sýnir líbíska her-
menn hefja skothríð á mótmælendur.
Mótmæli Líbíumenn hafa mótmælt
ákaft þrátt fyrir harkaleg viðbrögð
hers landsins.