Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Qupperneq 14
Lipur þjónusta n Starfsfólk bókaverslunar Ey- mundsson í Austurstræti fær lofið í þetta skiptið. „Þar fékk ég frábæra og lipra þjónustu. Ég þurfti að fara með skólatösku sem ég hafði keypt ný- lega og vildi skila henni. Hún hafði slitnað óvenjulega mik- ið frá því að hún var keypt í haust. Starfsmennirnir end- urgreiddu vöruna með bros á vör, án nokk- urra málalenginga,“ segir viðskiptavinurinn ánægði. Banna ætti þungmálma Þungmálmar hafa ekkert líffræðilegt gildi en aftur á móti mengandi áhrif bæði á heilsu og umhverfi. Þetta kemur fram á nattura.is. Þar segir að þungmálmar geti verið mjög skað- legir umhverfinu og heilsu manna. Auk þess séu þeir frumefni sem ekki sé hægt að eyða eða brjóta niður í náttúrunni. Fjölmörg efnasambönd af blýi, kadmíum og kvikasilfri eru á bannlista Umhverfisstofnunar. Á vef nattura.is segir einnig að hætta ætti allri notkun þungmálma og að neytendur eigi rétt á að vita ef vara sem keypt er, innihaldi þessa málma. Farið er fram á að seljendur geri grein fyrir því hvort vörur þeirra innihaldi þungmálma, í hvaða hlutum og í hvaða magni. Höfðu ekki áhuga á starfinu n Lastið fær Ellingsen að þessu sinni. Kona fór í verslunina um daginn og vildi skoða fellihýsi og fá upplýsing- ar um það sem væri í boði. „Þar var fullt af afgreiðslufólki sem sat bara og spjallaði. Ekkert þeirra virtist hafa áhuga á því að sinna okkur en á end- anum náðum við athygli þeirra. Okkur fannst þau ekki sýna starfinu mik- inn áhuga og svöruðu ekki vel þeim spurn- ingum sem við höfð- um,“ segir hún að lokum. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS LOF&LAST Grænn apríl Stofnuð hafa verið samtökin Grænn apríl með það það markmið að hvetja ríkisstjórnina, sveitarstjórnir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að vinna saman að því að gera apríl að grænum mánuði. Fólk er hvatt til að nýta mánuðinn til að hrinda í framkvæmd umhverfisvænum verkefnum, kynna þau sem eru í framkvæmd eða kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem snýr að grænni og sjálfbærri framtíð. Hægt er að lesa meira um átakið á graennapril.is. 14 | Neytendur Umsjón: Baldur Guðmundsson baldur@dv.is 2. mars 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Verð á lítra 226,9 kr. Verð á lítra 231,7 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 225,7 kr. Verð á lítra 230,6 kr. Verð á lítra 226,9 kr. Verð á lítra 231,8 kr. Verð á lítra 225,6 kr. Verð á lítra 230,5 kr. Verð á lítra 225,9 kr. Verð á lítra 230,8 kr. Verð á lítra 225,9 kr. Verð á lítra 230,8 kr. Algengt verð Almennt verð Algengt verð Akureyri Melabraut Algengt verð Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Verð á metani hækkaði í síðustu viku úr 114 krónum á rúmmetra í 120 krón- ur. Frá því fyrsta metanstöðin opnaði á Bíldshöfða árið 2007 hefur verðið hækkað um 32 krónur eða um rúm 36 prósent. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir að þeir sem hygg- ist breyta bílum sínum þannig að þeir gangi fyrir metani geti treyst því að metanið verði ekki skattlagt verulega næstu misseri. Stjórnvöld ætli sér ekki að stöðva metanvæðinguna heldur stuðla að útbreiðslu hennar áfram. Metanverð fylgir verðlagi Fram kemur á vef Metans hf., metan. is, sem er í eigu N1, Sorpu, Orkuveitu Reykjavíkur og REI, að verðhækkun- ina megi rekja til hækkunar vísitölu neysluverðs. Vísitalan hafi hækkað um 38 prósent frá því metanstöðin var opnuð árið 2007 en eldsneytið hafi hækkað um 36 prósent, eins og áður segir. „Ef unnt verður að að miða verð- þróun á metaneldsneyti á næstu árum við þróun neysluverðs í landinu þyk- ir ljóst að almenningur í landinu og þjóðarbúið muni ríkulega njóta þeirr- ar innlendu framleiðslu á metanelds- neyti sem verið er að skoða víða um land,“ segir þar enn fremur. Borgar sig upp á tveimur árum Eins og DV greindi frá í febrúar getur fjárhagslegur ávinningur þess að láta breyta bensínbíl þannig að hann gangi einnig fyirr metani verið gríðarlegur. Kostnaðurinn við breytinguna nemur yfirleitt um 400 þúsund krónum ef um fólksbíl er að ræða. Sá sem ekur um 20 þúsund kílómetra á ári á bíl sem eyðir 10 lítrum á hundraðið greiðir 440 þús- und krónur á ári í bensín, miðað við núverandi bensínverð. Ef hann skipt- ir yfir í metan greiðir hann 228 þúsund krónur á ári, sé miðað við sömu orku og í bensíni. Með öðrum orðum er sparnaðurinn á ári 212 þúsund krónur. Breytingin borgar sig upp á minna en tveimur árum. Lægri bifreiðagjöld og frítt í stæði En fleira kemur til. Ef bíllinn er yngri en 6 ára fást vörugjöld að hluta endur- greidd þegar búið er að breyta bílnum. Hámarksendurgreiðsla er 100 þúsund krónur. Til viðbótar kemur að bifreiða- gjöld geta lækkað verulega. Eigend- ur fólksbíla sem eyða 10 til 12 lítrum á hundraðið greiða nú oft á bilinu 28 til 36 þúsund krónur á ári í bifreiða- gjöld. Þessi gjöld lækka niður í 10 þús- und krónur eftir breytingu yfir í met- an. Þannig má spara allt að 26 þúsund krónur árlega – til viðbótar eldsneytis- sparnaði og endurgreiðslu vörugjalda þar sem það á við. Við allt þetta bætist að eigend- ur metanbíla njóta ókeypis bílastæða í miðborg Reykjavíkur. Þeir sem þar vinna geta því sparað enn meira. Ótal- in eru þau jákvæðu, umhverfisvænu áhrif sem akstur á metanbílum hef- ur í för með sér. Metan er gastegund, unnin úr sorpi, sem beinlínis þarf að brenna. Metanbílar menga því því sem næst ekkert. Metanstöðvar í öll pláss Þess má geta að metanstöðvar eru enn sem komið er aðeins tvær. Önnur er á Bíldshöfða í Reykjavík en hin við Tin- hellu í Hafnarfirði. Til stendur að opna stöð í Reykjanesbæ en á heimasíðu Metans kemur fram að vonir standi til að metaneldsneyti verði í boði í öllum helstu byggðarkjörnum lands- ins á komandi árum og að unnt verði að tryggja verulegan rekstrarávinning fyrir bíleigendur með notkun á meta- neldsneyti í stað annarra valkosta. Þess má einnig geta að lítill sem eng- inn munur er á því að aka bíl sem er knúinn metani í stað bensíns eða olíu. Kraftur bílsins minnkar reyndar um 5 til 15 prósent en að öðru leyti er mun- urinn enginn. Segjast ekki maka krókinn N1 hefur frá upphafi verið dreifingar- aðili metans en fram kemur á metan. is að Metan hf. hafi í upphafi leitað til allra olíufélaganna um samstarf um að bjóða almenningi að nýta meta- neldsneyti á bíla. N1 (þá ESSO) hafi eitt fyrirtækja verið tilbúið að greiða sjálft þann búnað sem til hafi þurft og hafi frá upphafi greitt með verkefn- inu. „Það væru því mikil öfugmæli að væna ESSO/N1 um að leitast við að mata krókinn af metanvæðingu í land- inu,“ segir þar, en bætt við að félagið hafi ekki gert kröfu um arðsemi af þessu verkefni, enda sé um samfélags- og umhverfislega ábyrgt verkefni að ræða. „Framtíð farsællar og stórauk- innar metanvæðingar getur hins vegar vart grundvallast á öðru en sjálfbæru fjármagnsflæði,“ segir að lokum. Óhjákvæmilegt að skattleggja síðar DV spurði Steingrím J. Sigfússon fjár- málaráðherra hver stefna stjórnvalda væri í metanmálum og hvort til stæði að skattleggja metan á komandi árum til jafns við bensín eða olíu. Steingrím- ur segir að ekkert hafi verið gefið af- dráttarlaust út um skattlagningu met- ans, rafmagns eða íblöndunarefna. Þó liggi fyrir að stjórnvöld vilji stuðla að þróun yfir í slíka umhverfisvæna og innlenda orkugjafa. Því séu þeir enn undanþegnir sköttum. Hann seg- ir hins vegar að þegar fram líði stund- ir og þegar umhverfisvænir orkugjaf- ar verði orðnir umtalsverður hluti af heildarnotkun þá verði óhjákvæmilegt að skattleggja þá, metanbílum sé ekið á vegum landsins eins og öðrum bíl- um. „Þess vegna verður fólk að reikna með að að því komi að einhverjir skatt- ar leggist smátt og smátt á þessar teg- undir orkugjafa,“ segir hann en bætir við að skattlagning á ökutæki fari eftir GPS-mældri umferð. Fólk greiði skatta í samræmi við notkun á vegakerf- inu. „En meðan við erum að ná þess- ari þróun í gang af krafti verður þetta skattfrjálst,“ segir hann. Vilja ekki stöðva þróunina Í athugasemdum með þeim laga- breytingum á skattlagningu ökutækja, sem tóku gildi um áramótin, segir að skynsamlegt sé að eigi síðar en að fimm árum liðnum verði endurskoðað hvernig til hafi tekist að ná fram um- hverfismarkmiðum með umhverfis- vænum orkugjöfum. Skattlagningin verði stillt af á nýjan leik miðað við sett markmið og breytta samsetningu bif- reiðaflotans. Spurður hvort bifreiðaeigend- ur sem hyggist nú breyta yfir í met- an geti treyst því að eldsneytið verði ekki skattlagt á næstu misserum seg- ir Steingrímur: „Það má treysta því að ekki verður komið í bakið á þeim sem breyta yfir í metan með verulegri skatt- lagningu á næstu misserum, því þá myndum við einfaldlega stöðva þessa þróun og það viljum við ekki.“ Hann lofar því eigendum metanbíla skjóli fyrir skattlagningu næstu misseri. Því má ljóst vera að þeir bifreiða- eigendur sem vilja breyta yfir í metan ættu ekki að sitja uppi með svartapétur – í þeim skilningi að metan verði skatt- lagt að ráði áður en breytingin borgi sig upp. Ef marka má orð Steinríms og fyrirheit Metans hf. má ljóst vera að metan verður áfram mun ódýrari val- kostur en bensín og dísilolía. Þess má geta að fjöldi metanknú- inna bíla í umferð jókst um meira en helming á milli áranna 2009 og 2010. Samkvæmt metan.is gera áætlanir ráð fyrir því að í árslok verði yfir 1.000 met- anknúin ökutæki á landinu. Engar álögur á metan í bráð n Metanverð hækkaði í síðustu viku n N1 segist ekki hagnast á metansölu n Breyting borgar sig upp á innan við tveimur árum n Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lofar því að skýla metannotendum fyrir sköttum næstu misseri„Kostnaðurinn við breytinguna nem- ur yfirleitt um 400 þús- und krónum ef um fólks- bíl er að ræða. Metankútar Ekkert kostar að leggja metanbíl í bílastæði í miðborg Reykjavíkur. MYND: RÓBERT REYNISSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.