Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Side 15
Það er nánast sama í hvaða kvik-
myndahús er farið, það kostar fimm
manna fjölskyldu 8.000– 9.000 krón-
ur að fara saman í bíó. Það getur ver-
ið hin besta skemmtun og afþreying
fyrir fjölskyldur að skella sér sam-
an á barnamyndir um helgar. Kvik-
myndahúsin eru iðin við að sýna góð-
ar barnamyndir sem jafnt ungir sem
aldnir hafa gaman að. Það er hins
vegar farið að verða ansi dýrt að fara
með alla fjölskylduna í bíó, sér í lagi
ef boðið er upp á veitingar í hléi. DV
gerði könnun á miðaverði í helstu
kvikmyndahúsum landsins.
Lítill verðmunur
Eins og sjá má í töflunni þá er ekki
mikill verðmunur á verði á millli ís-
lenskra kvikmyndahúsa. Einungis
munar 50 krónum á almennu verði á
barnamyndir og sama á við um verð
fyrir átta ára og yngri. Mestur er mun-
urinn 100 krónur á þrívíddarmynd
fyrir sama aldursflokk. Sama á við um
veitingar sem keyptar eru á staðnum
en helsti munurinn er á Nóakroppi/
Freyju-hrískúlum en verðið á því er
lægst í Borgarbíói á Akureyri. Há-
skólabíó er eina kvikmyndahúsið sem
leyfir ekki að þrívíddargleraugu séu
tekin með að heiman en gleraugun
eru innifalin í verðinu og ber að skila
þeim að sýningu lokinni. Ekki fengust
nein svör frá Sambíóunum við spurn-
ingum DV.
Má ekki koma með veitingar að
heiman
Öll kvikmyndahúsin, fyrir utan Borg-
arbíó, banna kvikmyndahúsagest-
um að koma með veitingar að heim-
an. Ástæður sem gefnar voru fyrir
því voru meðal annars að það yki á
óþrifnað í kvikmyndasölunum og
eins og forsvarsmaður eins sagði
„ekki er leyfilegt að koma með veit-
ingar í bíóið þar sem veitingar eru
seldar á staðnum, samanber að þú
kemur ekki með kaffi á kaffihús eða
tekur vín með þér á barinn.“ Þau svör
fengust hins vegar hjá Borgarbíói að
þar væru ekki gerðar athugsemdir ef
fólk kæmi með sínar eigin veiting-
ar, með tilliti til bágborins efnahags
margra fjölskyldna. Undantekning frá
þessu væri þó ef um sterkt lyktandi
matvæli væri að ræða.
Bíóferð kostar tæpar 9.000
krónur
Ef þetta er sett í samhengi getum við
tekið dæmi um fimm manna fjöl-
skyldu sem ákveður að nýta laugar-
dagseftirmiðdag til að fara á nýjustu
barnamyndina. Miðaverð fyrir full-
orðna er 1.250 krónur á þrívíddar-
mynd og 850 krónur fyrir börn 8 ára
og yngri. Segjum svo að tvö af börn-
unum séu undir 8 ára svo kaupa þarf
þrjá fullorðinsmiða og tvo barna-
miða. Miðakostnaður er því 5.450
krónur. Ef fjölskyldan á ekki gleraugu
bætast við 750 krónur. Ákveði for-
eldrarnir að kaupa popp og kók á lín-
una þá gera það 2.500 krónur. Sam-
tals kostar þessi bíóferð fjölskylduna
8.700 krónur.
Hagstæðast að kaupa DVD-disk
Ódýrasta ferðin væri þá líklega í Borg-
arbíó fyrir Akureyringa. Hagkvæmast
væri þá að senda ömmu eða afa með
börnin með heimapopp og sóda-
stream á flösku og þrívíddargleraugu
á nefninu. Sú bíóferð myndi kosta
4.850 krónur. Enn hagstæðara er að
bíða eftir að myndirnar komi út á
DVD-diski. Þá er annaðhvort hægt
að leigja hann á myndbandaleigu eða
kaupa hann. Sem dæmi má nefna að
í netverslun Hagkaups fást nýlegir
diskar á 2.499 krónur.
Til gamans má geta að verð bíó-
miða í nágrannalöndum okkar er
töluvert hærra en hér á landi. Í Dan-
mörku kostar miði á barnamynd
1.935 krónur fyrir börn og 2.150 krón-
ur fyrir fullorðna. Í Svíþjóð er barna-
verð fyrir 12 og yngri 1.835 krónur en
fullorðinsverðið er 2.291 krónur.
Engifer er meira en krydd Löngum hefur verið talið að
engiferrótin stuðli að bættri líðan og að hún hafi jafnvel lækningamátt. Á síðu
Leiðbeiningastöðvar heimilanna segir að rótin hafi verið notuð í meira en 4.000
ár sem krydd og bragðefni í matargerð. Ýmsar rannsóknir hafi verið gerðar á henni
og fundist hafi um 500 virk efni í henni sem stuðla að bættri heilsu. Á vefsíðunni
eru talin upp þau áhrif sem rótin hefur en þau eru; vatnslosandi, bólgueyðandi,
blóðþynnandi og blóðþrýstingslækkandi áhrif, auk þess sem rótin er talin hafa
bætt áhrif á meltinguna. Áhrifamest er að nota ferska rót, gott er að rífa hana eða
sneiða og hella sjóðandi vatni yfir.
Taupokar Hægt er að spara og verða örlítið umhverfisvænni með
því að kaupa ekki plastpoka við matarinnkaupin. Ráð þetta má finna á
matarkarfan.is en þar segir að tilvalið sé að kaupa margnota taupoka sem
fást í ýmsum verslunum. Þeir eru væntanlega fljótir að borga sig þar sem
plastpokar kosta allt að tuttugu krónum þessa dagana. Gott er að geyma
taupokann í forstofunni hjá skónum. Þannig man maður eftir honum þegar
haldið er í búðina. Eins skal maður afþakka fría poka í búðum en frekar
kaupa rúllu af pokum í rusladallinn. Með þessu má spara smápening á ári
hverju.
Neytendur | 15Miðvikudagur 2. mars 2011
Jóhannes Gunnarsson formaður neytendasamtakanna:
Forverðmerking liðin tíð
Munum eftir
smáfuglunum
Á þessum árstíma er mikilvægt að
muna eftir fuglunum en þessi tími
getur verið þeim erfiður. Margir
venja sig á að setja út fuglafóður eða
matvæli af borði sínu, svo sem epli,
fitu og aðra matarafganga. Fugla-
verndarféalg Íslands gefur ráð um
hvað sé best að gefa þeim en þar seg-
ir að í kuldum og frosthörkum þurfi
fuglarnir mikla orku til að halda á
sér hita og því sé fita ein besta fæðan
handa þeim. Gott sé að gefa fuglum
fitu sem fellur til á heimilinu eins og
tólg, flot, kjötsag og mör en sú fæða
er afar vinsæl hjá þeim. Eins sé hægt
að nota aðra kjötafganga og jafnvel
hægt að blanda fitu saman við brauð
og jafnvel korn. Slík fæða getur
haldið lífi í fuglunum sem reyna að
þreyja þorrann og góuna.
Styrkja ónæmis-
kerfi og bæta
meltingu
Fjallagrös hafa verið notuð um
aldir hér á landi og þá hefur helst
verið soðið af þeim seyði. Einnig
hafa grösin verið notuð sem krydd í
blóðmör, grauta og brauð. Þau hafa
löngum verið talin styrkja ónæmis-
kerfið og bæta meltinguna en auk
þess eru þau einkar næringarrík.
Á heimasíðu Leiðbeiningastöðvar
heimilanna segir að seinni tíma
rannsóknir bendi nú til að grösin
geti haft hemjandi áhrif á alnæm-
isveiruna. Grösin fást þurrkuð í
heilsubúðum en hægt er að tína þau
sjálfur á sumrin.
Fjölmörg
námskeið í boði
Holl næring og innihald matvöru
og bætiefna er heiti á einu hinna
fjölmörgu námskeiða sem hægt er
að finna á vefsíðunni namskeid.is.
Á síðunni eru upplýsingar um flest
námskeið sem haldin eru á Íslandi
en þar getur hver sem er skráð
námskeið sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru flokkuð niður í
fjölmarga flokka svo sem bíla og véla,
mannleg samskipti, skóla, listnám,
dansnámskeið, tölvur og hugbúnað
og tungumál.
Enginn verðmunur
í kvikmyndahúsum
Barnamyndir Borgarbíó Háskólabíó Smárabíó Laugarásbíó
Almennt verð 1.100 kr. 1.150 kr. 1.150 kr. 1.100 kr.
Börn 8 ára og yngri 600 kr. 650 kr. 650 kr. 650 kr.
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar 800 kr. - - -
Verð á þrívíddarmyndir 1.250 kr. 1.300 kr. 1.300 kr. 1.250 kr.
Börn 8 ára og yngri 900 kr. 800 kr. 800 kr. 850 kr.
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar 900 kr. - - -
Þrívíddargleraugu 150 kr. Innifalin 150 kr. 150 kr.
(má koma með að heiman) já nei já já
Kókglas 0,4l 250 kr. 280 kr. 280 kr. 280 kr.(500 ml)
Fylltar lakkrísreimar 300 kr. 300 kr. 300 kr. 250 kr.
Nóakropp/Freyju-hrískúlur 320 kr. 540 kr. 540 kr. 400 kr.
Risa Ópal 280 kr. 300 kr. 300 kr. 250 kr.
Lítill popppoki 230 kr. 250 kr. 250 kr. 220 kr.
(má koma með að heiman) já nei nei nei
Hvað kostar í bíó?
n Lítill sem enginn verðmunur er á miðaverði hjá kvikmyndahúsunum n Það kostar fimm
manna fjölskyldur tæplega 9.000 krónur að fara í bíó n Samt er ódýrara að kaupa bíómiða
hér á landi en í nágrannalöndunum n Borgarbíó leyfir fólki að taka mat með í bíó„Hagkvæmast
væri þá að senda
ömmu eða afa með
börnin með heimapopp
og sódastream á flösku
og þrívíddargleraugu á
nefninu.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Kvikmyndahús Það er ódýrara að fara í bíó á Íslandi en í
nágrannalöndunum. MYND: BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON
„Við höfum litið sem svo á það að
forverðmerking á vörum sé ekki í
takt við eðlilega samkeppni og við
bindum vonir við að þetta komi
til með að auka samkeppni og þar
með lækka verðið til neytenda,“ seg-
ir Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. Betra sé að
það sé ákvörðun hverrar verslunar
hvaða álagning sé sett á vörurnar.
Á þriðjudag tóku gildi breyt-
ingar á verðmerkingum á ýms-
um kjötvörum í matvöruverslun-
um. Nú mega kjötvinnslufyrirtæki
ekki lengur forverðmerkja vörurnar
en með forverðmerkingu er átt við
þegar kjötvinnslufyrirtæki eða aðr-
ir birgjar merkja vörur með smá-
söluverði sem verslun notast við
og verðið því hluti af þeim upplýs-
ingum sem koma fram á merkingu
birgjans.
Jóhannes segir það gífurlega
mikilvægt að verslanir komi verð-
merkingum í lag í samræmi við
reglur sem skylda verslanir til að
gefa upp kíló- eða lítraverð auk
þess sem farið er fram á að versl-
anir komi upp skönnum þar sem
viðskiptavinir geta fengið ná-
kvæmt verð á vöru. „Ég legg gíf-
urlega áherslu á að verslanir komi
verðmerkingum í lag þannig að
það fari ekki á milli mála fyrir neyt-
endur, hvað kílóverð vörunnar er
og að þeir geti skannað vöruna og
séð hvað einingin kostar. Neytend-
ur eiga rétt á að vita þetta til að geta
borið saman verð á mismunandi
vörumerkjum innan sömu vöru-
tegundar. Hann á ekki að þurfa að
sjá verðið fyrst á kassanum,“ segir
hann.
Hann segir þessar breytingar
hafa verið í bígerð lengi svo það sé
krafa samtakanna að ferlið sé langt
komið hjá verslunum.
gunnhildur@dv.is
Pakkaðar kjötvörur Mega ekki lengur
vera forverðmerktar. MYND: STEFÁN KARLSSON