Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Qupperneq 18
18 | Umræða 2. mars 2011 Miðvikudagur „Að Gunnar Rúnar skuli vera sýkn- aður af þessum glæp er í alla staði óásættanleg niðurstaða fyrir fjölskyldu og að- standendur Hannesar.“ n Fjölskyldu Hannesar Þórs Helgasonar fannst dómur yfir morðingja hans, Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, alltof vægur. – DV.is „Ég er að spá í að reyna, ef ég get, að mæta á mynd- ina og hugsanlega vera þá seinastur til að troða upp í kjallarnum.“ n Uppistandarinn Ari Eldjárn þarf að mæta á frumsýningu Okkar eigin Osló sama kvöld og hann er með uppistand ásamt Mið-Íslandi í Þjóðleikhúskjallaran- um. – Fréttablaðið „Við erum efstir og ég er að skora – það er ekki hægt að biðja um mikið meira.“ n Landsliðsframherjinn Heiðar Helguson hefur verið sjóðheitur með QPR í ensku Championship-deildinni að undanförnu en liðið er í efsta sæti. – Fréttablaðið „Mér fannst ekki erfitt að koma fram á nærfötun- um.“ n Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, nýkrýnd ungfrú Ísland, fór létt með að afklæðast og spranga um á nærfötunum. – DV „Ég hef lengi talið, að yfirmenn á skrifstofu Alþingis séu óhæfir til að gegna starfi sínu.“ n Ritstjórinn fyrrverandi Jónas Kristjánsson sendir starfsmannastjóra Alþingis, Karli M. Kristjánssyni, væna sneið. – Bloggsíða Jónasar á DV.is Björg er hetja B jörg Ásdísardóttir á að baki þá sáru lífsreynslu að hafa verið misnotuð með gróf- um hætti í æsku. Björg, sem er systir Thelmu Ásdísardótt- ur, lýsti hrikalegri lífsreynslu sinni í helgarblaði DV. Saga hennar er auðvitað af sama toga og Thelmu systur hennar sem var svo eftir- minnilega sögð í bókinni Mynd- inni af pabba sem Gerður Kristný skrásetti. Bókin vakti í senn mikla athygli og óhug hjá þjóðinni. En það er ekki endilega þessi hluti frá- sagnar Bjargar sem vekur mesta athygli. Hún lýsir því hvernig of- beldið í æsku mótaði hana og hafði áhrif á samskiptin við hennar eig- in börn sem hún beitti andlegu of- beldi. Þegar hún nú horfist í augu við mistök sín kemst hún að þeirri niðurstöðu að ástæðan sé sú að hún „fór vitlaust forrituð út í lífið“. Björg er hetja. Það þarf kjark til þess að stíga það skref sem Björg gerir og uppljóstra því sem flestir reyna að fela. Og í þessu felst styrk- leiki Bjargar sem hiklaust lýsir því hvernig henni sjálfri varð á í lífinu. „Svona manneskjur eins og ég eru hættulegar umhverfi sínu,“ sagði Björg í viðtalinu. Ef allir hugsuðu eins og hún er víst að samfélagið allt myndi breytast til hins betra. Vandinn er hins vegar sá að afneit- unin er til staðar. Stjórnmálamenn og útrásarvík- ingar sem áttu stærstan hlut í hrun- inu eru flestir sammála um eigið sakleysi. Ein af fáum undantekn- ingum er Pálmi Haraldsson í Fons sem sýndi vott af iðrun í viðtali við DV. Arkitektar hrunsins eru sak- lausir. Ekki vottur af iðrun. Sama er uppi á teningnum hjá eftirlitsaðil- um og fræðasamfélaginu sem hafna eigin ábyrgð. Og á meðan stend- ur allt í stað. Ekkert uppgjör. Engin fyrirgefning. En það er einmitt þessi fádæma einlægni sem gerir Björgu svo stóra. Í stað þess að einblína á eigin örlög horfist hún í augu við það sem á eftir kom. Það er örugglega erfitt að við- urkenna að hafa beitt börnin sín of- beldi. En sú hreinskilni er risastórt skref til þess að ná bata og sátt við sjálfan sig og aðra. Útrásarvíkingar og spilltir stjórnmálamenn ættu að taka Björgu sér til fyrirmyndar og viðurkenna að hafa brugðist þjóð sinni með skelfilegum og sýnilegum afleiðingum. Slíkt gæti orðið grunn- ur að sátt milli þjóðar og þeirra sem steyptu þjóðarbúinu í háska. Þessi leið gæti fært skúrkana nær því að öðlast fyrirgefningu þjóðarinnar. Leiðari Er 1. mars sérstakur dagur hjá vertum? Kormákur Geirharðsson er vert á Ölstofunni. Í gær, 1. mars, voru liðin 22 ár síðan sala á áfengum bjór varð heimil hér á landi. „Já, hann er það heldur betur. Hann er stóri sannleikurinn og minnir á þegar lífið hófst fyrir 22 árum í Reykjavík.“ Spurningin Bókstaflega Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Arkitektar hruns- ins eru saklausir. Gissur játar n Eins og sagt var frá í sandkorni á mánudaginn telur Gissur Sigurðsson sig hafa heimsótt hvert byggðarlag á Íslandi að einu undanskildu. Hefur þetta verið talsvert umrætt í Bítinu á Bylgj- unni þar sem fréttamaður- inn er fastagest- ur. Umsjónar- menn Bítisins hafa undanfarna mánuði hringt af handahófi í þorp og bæi og rætt við heimamenn. Hefur Gissur jafnan aðspurður lýst yfir heimsókn sinni þangað. En nú er komið á daginn að þótt umsjónarmenn hafi hringt á Vopnafjörð er það einmitt týnda bæjarfélagið. Það játar Gissur en staðhæfir að gleymst hafi að spyrja hann eftir það samtal. Vinur og VIP n Heldur var fátt um fræga á VIP- kvöldi sem haldið var á skemmti- staðnum Re-play um síðustu helgi. Sá þekktasti var líklega Ásgeir Davíðsson, súlukóngur og eigandi staðarins. Þétt við hlið hans var reyndar blaðamaður Fréttatímans, Þórarinn Þórarinsson, sem er stór- vinur Ásgeirs. Þórarinn myndaði samkvæmið í gríð og erg með far- síma sínum. Hann hefur verið dug- legur að koma vini sínum á fram- færi í fjölmiðlum. Hundasund Bjarna n Teitur Atlason, bloggari á DV.is, hefur verið duglegur að skúbba einu og öðru. Hann lagði leið sína til Oslóar á dög- unum og fann þar 300 milljóna króna hús Bjarna Ármannsson- ar, fyrrverandi bankastjóra, sem stendur við Hundasunds- veg. Bloggarinn myndaði í bak og fyrir og vakti at- hygli á því hve laust húsið væri við íburð. „Húsið er byggt í snarbrattri brekku og virkar látlaust. Ég átti amk von á meiri íburði en raun bar vitni,“ bloggaði Teitur um Hunda- sundsveginn. Hæðist að Heiðari n Fjárfestirinn Heiðar Már Guðjónsson, sem lagt hefur upp meiðyrðamál á hendur DV, þver- tekur fyrir að vilja stefna Bubba Morth ens tónlistarmanni. Bubbi skrifaði pistil á Pressu- blogg sitt þar sem hann kall- aði Heiðar full- um fetum krón- uníðing. En það er einmitt sama orð og var notað í leiðara DV og Heiðar stefnir fyrir. Það skondna er að í leiðaranum er sú niðurstaða fengin að Heiðar sé ekki endilega krónuníðingur, heldur aðrir. Heið- ar Már hefur lagt pistil Bubba fram fyrir dóm en segist nú ekki vilja stefna poppkónginum. Sandkorn TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson, johann@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Íslendingar eru meðal auðugustu þjóða heims – þrátt fyrir kreppu. Í angist okkar og depurð í kjölfar bankahruns og þrenginga megum við ekki horfa framhjá því að í mörg- um löndum heims býr fólk við miklu verri aðstæður en við höfum nokkru sinni kynnst. Okkur ber siðferðileg og pólitísk skylda til að leggja af mörk- um til að vinna gegn fátækt og hungri í heiminum. Við erum fullvalda ríki, og getum ekki skorast undan þeirri skyldu að taka þátt í alþjóðlegum aðgerðum annarra ríkja heims sem miða að efnahagslegum og félagsleg- um framförum fátækra þjóða. Þverpólitísk samstaða Nú sér fyrir endann á okkar eigin kreppu. Þá er við hæfi að Íslending- ar bæti niðurskurð kreppuáranna á framlögum til þróunarríkja með því að setja fram skýra stefnu um hvern- ig við náum því markmiði alþjóða- samfélagsins að láta 0,7 prósent af vergum þjóðartekjum renna til þró- unarmála. Þrjár frændþjóðir okkar á Norðurlöndum náðu því fyrir löngu: Svíar, Danir og Norðmenn. Ísland lét undan síga í efnahagsþrengingum síðustu ára eftir að hafa um skeið bætt drjúgum í framlög til þróunarmála á góðærisárunum. Við erum nú langt á eftir, með um fimmtung úr prósenti af þjóðartekjum miðað við fjárlög árs- ins. Á Alþingi hef ég fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar kynnt tíu ára áætlun um hvernig Ísland slæst í hóp 0,7 prósent ríkjanna. Að þeim tíma liðn- um er stefnt að því að Ísland standi við þær yfirlýsingar, sem margar fyrri ríkisstjórna landsins hafa gefið fyrir hönd þjóðarinnar. Áætlunin er vissu- lega metnaðarfull, og gerir ráð fyrir að efnahagur þjóðarinnar rétti hress- ilega úr kútnum þegar líður á áratug- inn. Á Alþingi spunnust eðlilegar um- ræður um hvort raunhæft væri að ná þessu marki á aðeins tíu árum. Niður- staðan varð sú, að um markmiðið var þverpólitísk samstaða sem skar á alla flokka. Sá ríki skilningur sem formað- ur Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Bene- diktsson, sýndi málinu, var mér sér- stakt ánægjuefni. Hann lýsti því sem yfirveguðu mati sínu að raunhæft væri að ná því marki að Íslendingar létu 0,7 prósent af vergum þjóðartekj- um renna til þróunarsamvinnu innan tíu ára. Árangursrík liðveisla Þau lönd sem Ísland hefur valið til tvíhliða þróunarsamvinnu gegnum Þróunarsamvinnustofnun Íslands, Malaví, Mósambík og Úganda, eiga það sammerkt að vera meðal fá- tækustu landa heims. Aðstoð okkar beinist að fátækustu héruðum þess- ara landa, þar sem þörfin er mest. Liðsinni Íslands beinist að brýnustu grunnþjónustu einsog menntun, heilsugæslu, hreinlætisaðstöðu, öfl- un hreins vatns og fráveitum. Öllum löndunum þremur er líka sameiginlegt að byggja lífsviðurværi sitt að stórum hluta á fiskveiðum. Í tveimur þeirra, Úganda og Mósamb- ík, er útflutningur á fiskafurðum mik- ilvæg tekjulind. Þróunaraðstoð Ís- lands beinist meðal annars að því að byggja upp fiskveiðar og –vinnslu í þessum löndum, þar sem sérþekking Íslendinga hefur skilað sér mjög vel inn í samfélögin. Ísland hefur jafnframt víða tekið þátt með ýmsum hætti í þróunarverk- efnum sem byggjast á ríkri reynslu Íslands á sviði jarðhitavinnslu og fiskveiða. Þau hafa skilað góðum ár- angri, sem nú er fyrst að koma í ljós. Það gildir ekki síst um jarðhita þar sem frumkvæði Íslendinga hefur víða opnað augu heimamanna fyrir mikl- um möguleikum á framleiðslu dýr- mætrar, ódýrrar orku. Skólarnir þrír, sem Ísland rekur hér heima undir hatti Háskóla Sam- einuðu þjóðanna, eru þó líklega það framlag Íslands, sem mestu hefur skipt á þeim ríflega 30 árum frá því sá fyrsti, Jarðhitaskólinn, var settur á stofn, og í kjölfar hans Sjávarútvegs- skólinn og Landgræðsluskólinn. Á sjöunda hundrað manns hafa farið um skólana og skilað sér í ómetan- legri færslu dýrmætrar þekkingar til heimalandanna. Innan tíðar vonum við að Jafnréttisskólinn verði kominn í hóp skóla Sameinuðu þjóðanna. Öflugur liðsmaður Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur verið merkisberi í tvíhliða þró- unaraðstoð og um langt skeið unnið frábær störf án þess að blása í her- lúðra. Björn Dagbjartsson og síðar Sighvatur Björgvinsson voru farsæl- ir leiðtogar stofnunarinnar. Í gær, 1. mars, tók nýr framkvæmdastjóri við kyndlinum, Engilbert Guðmunds- son, sem ég óska velfarnaðar í mik- ilvægu starfi. Hann nýtur í senn víð- tækrar reynslu og alþjóðlegrar þekkingar. Gæfa stofnunarinnar hef- ur ekki síst falist í því að hún nýtur starfskrafta öflugra og vel menntaðra Íslendinga, sem auk þekkingar og reynslu hafa sýnt í verki að þau bera eldmóð hugsjóna gagnvart viðfangs- efninu. Íslenskt átak í þróunarmálum Kjallari Össur Skraphéðinsson utanríkisráðherra skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.