Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Síða 23
Lífið | 23Miðvikudagur 2. mars 2011 S éra Þórhallur Heimisson hefur starfs síns vegna tek- ið á móti fjölda fólks sem vill ræða við hann um framhjá- hald eða mál því tengd. Eftir hrun- ið hefur þó talsvert dregið úr slíkum viðtölum en flestir leituðu til hans á árunum 2006, 2007 og 2008. Hans reynsla er sú að framhjáhald sé allt- af sárt, jafnvel svo sárt að það lík- ist því einna helst að missa ástvin. „Þetta er alltaf erfitt eins og annar missir. Sorgin er svipuð og ef fólk missir ástvin. Þú getur ímyndað þér það að þú kemst allt í einu að því að allt sem þú hélst er lygi, að þú lifir í blekkingu. Þú missir fótanna og missir allt. Margir upplifa þetta þannig. Framhjáhald er eitt af því versta sem getur hent í hjónabandi eða sambúð. Allt of margir leiðast út í það en gera sér enga grein fyrir af- leiðingunum.“ Grái fiðringurinn Margir lenda í erfiðleikum vegna framhjáhalds þegar þeir komast á miðjan aldur vegna gráa fiðringsins. „Erfitt getur verið að sætta sig við að hrukkunum fjölgi, hárunum á höfð- inu fækki og björgunarhringurinn safnist um miðjuna. Þá er stundum eins og það vakni einhver þörf fyrir staðfestingu á því að maður sé enn gjaldgengur. Margir leita eftir viður- kenningu annarra, þeir vilja finna fyrir því að þeir séu eftirsóknarverð- ir og spennandi. Ófáir freistast til að sanna sjálfan sig með því að taka hliðarspor í hjónabandinu. Oftast kemur hins vegar í ljós að það er erf- itt að lifa í sjálfsblekkingu og marg- ir hafa glatað bæði maka sínum og viðhaldinu þegar glansmyndin og nýjabrumið fer af. Þá kemur í ljós að aldur og útlit hefur ekki allt að segja og að makinn fyrrverandi og fjöl- skyldan var í raun og veru það sem gaf lífinu gildi. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“ En þetta gerist ekki bara á þessu tímabili. Samkvæmt Þórhalli teng- ist framhjáhald oft breytingum á heimilisaðstæðum, til dæmis því þegar börnin fara að heiman eða nýtt barn fæðist og fólki finnst allt ómögulegt heima hjá sér. Þrá eftir fjölbreytni og spennu Allir hafa ákveðnar væntingar til hjónabands og sambúðar, vænting- ar um tryggð, trúnað og fullnægj- andi kynlíf, segir Þórhallur. „En lífið stendur ekki alltaf undir vænting- um. Ástarbríminn hverfur í gráan hvunndaginn og spennan hverfur smám saman. Flestir hafa í nægu að snúast, þurfa að sinna börnum, vinnu, áhugamálum og heimilis- haldi, svo lítil orka verður eftir fyrir ástarsambandið. Allir upplifa til- breytingarsnauð tímabil í lífi sínu, þar sem kaffiþamb og sjónvarps- gláp tekur yfir kynlífið, sem er þá slappt og jafnvel ekkert. En vani hversdagsins veitir okkur öryggis- kennd og það er bæði okkur og börnunum mikilvægt.“ Síðan kemur að því að hvers- dagslífið nægir ekki og við viljum fjölbreytni, spennu og eftirvænt- ingu. Þá kvikna spurningar eins og: Er þetta allt og sumt sem lífið hefur upp á að bjóða? og: Hvað er ég eig- inlega að gera hér?“ Fyrirbyggjandi aðgerðir Þórhallur varar við tortryggni og ótta um eitthvað sem gæti orðið en mælir með fyrirbyggjandi aðgerð- um. „Í stað þess að leita að vísbend- ingum um að makinn gæti farið að halda framhjá er skynsamlegra að rækta sambandið. Halda spenn- unni og ástinni gangandi þannig að fólk líti ekki á maka sinn sem sjálfsagðan hlut. Til að það gerist þarf fólk að vera meðvitað um það og gefa sér tíma fyrir hvort annað. Þetta kostar vinnu. Með tímanum getur hjónaband- ið orðið svo hversdagslegt fyrirbæri að fólk nánast hættir að taka eftir maka sínum. Allir hafa þörf fyrir at- hygli, að vera metnir að verðleikum. Það getur því verið spennandi að hitta manneskju sem sýnir manni áhuga og hefur ef til vill sömu áhugamál og maður sjálfur. Þá get- ur maður líka talað um vandamál- in heima fyrir án skuldbindinga, orðað það sem maður leggur ekki í að segja við maka sinn. Ef úr verð- ur ástarsamband bætast enn fleiri lygar og enn meira samviskubit við vandamálin sem fyrir voru í sam- bandinu og að því getur komið að sá sem heldur framhjá upplifi maka sinn sem fyrirstöðu, hindrun á vegi hans að hamingjuríkara lífi. Eftir það er stutt í upplausn gömlu fjöl- skyldunnar.“ Ógn á vinnustað „Stundum er makanum kennt um með frösum eins og: Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með sambandið. Þess vegna tók ég þetta hliðarspor. Sumir kvarta undan tilbreytingar- leysi, einmanaleika, skilningsleysi og leita að öðrum félaga,“ segir Þór- hallur. „Þeir eru að takast á við sín venjulegu verkefni heima hjá sér þegar einhver á vinnustaðnum blikkar þá og þeir upplifa sig sæta og eftirsóknarverða og finna fyrir spenningi. Þannig hefur til dæmis samband við vinnufélaga af gagn- stæðu kyni orðið mörgum hjóna- böndum ógnun, sérstaklega þar sem haldin eru makalaus vinnu- staðapartí og veislur. Blekkingarnar eru margar. Vinnufélaginn er allt- af hress og spennandi og gerir eng- ar kröfur. Framhjáhald verður síðan að veruleika án þess að viðkomandi hafi beinlínis ætlað sér það.“ Tæki til að losna Sumir upplifa hjónabandið sem kvöð, óttast það að verða háðir maka sínum og þar með auðsæranlegir og ósjálfstæðir. Aðrir hafa ekki dug til að slíta sambandinu og nota fram- hjáhaldið sem tæki til að losna við maka, fjölskyldu og skuldbindingar. Það getur þó kostað það að viðkom- andi kvelst alla ævi af samviskubiti. Óhóflegar væntingar eins og sú trú að makinn eigi að uppfylla alla drauma og vonir eyðileggja mörg sambönd. Sumir eiga erfitt með að færa væntingar sínar í orð og loka sig inni í skel þegar þær eru ekki uppfylltar. „Þar með eru báðir aðilar orðnir fangar tilveru sem er báðum ófullnægjandi. Hvorugur aðilinn þorir að orða hugsanir sínar af ótta við upplausn og deilur. Í staðinn er leitað út fyrir sambandið í þeirri trú að grasið sé grænna hinum megin,“ segir Þórhallur og bætir því við að hamingjuleitin sé drifkraftur lífsins. Ekki hægt að lenda í framhjáhaldi Eins og hann segir eru þessi tilvik þó eins misjöfn og þau eru mörg. Sum standa yfir í langan tíma og sumir stunda skyndikynni á löngu tímabili á meðan aðrir misstíga sig bara einu sinni. „En ég hef ekki trú á því að fólk „lendi“ í framhjáhaldi. Þú tekur alltaf ákvörðun og þú berð alltaf ábyrgð á gjörðum þínum. Auðvitað hafa þær mismunandi afleiðingar og það fer líka eftir því hvort viðkomandi segir maka sín- um frá þessu og iðrast eða hvort maki hans fréttir af þessu úti í bæ en þú þvertekur fyrir það þar til allt kemst upp. Þá er kannski ekki mik- ið til að byggja á. En hvert einasta tilfelli er of mikið.“ ingibjorg@dv.is n Framhjáhald er eitt af því versta n Lenda í erfiðleikum þegar þeir fá gráa fiðringinn n Mikilvægt að viðhalda spennunni í sambandinu „Það er erfitt að lifa í sjálfsblekkingu“ Lögskilnaðir eftir lengd hjónabands 0–2 ár 3–5 ár 6–9 ár 10–14 ár 15–19 ár 20 ár eða fleiri Meðallengd hjónabands Tíðasta lengd hjónabands 71 98 125 68 57 128 13,3 ár 5 ár og bestu vini heldur hafa tengslin við börnin minnkað. Vanlíðan og vonleysi náði tök- um á honum. „Mér líður ekkert vel. Síðan þetta gerðist hef ég eigin- lega ekki fengið fullan svefn. Þetta fer svoleiðis í mig, ég er titrandi og skjálfandi. Ég prófaði að fá mér bjór til að slá á sársaukann en það dugði ekki til. Eftir að hún bað um skilnað fór ég til Kanaríeyja og var þar í tvær vik- ur. Ég ætlaði að gleyma mér þar. Það dugði ekki alveg. Mér leið jafn illa og íhugaði jafnvel að ljúka þessu. Þá vissi ég samt ekki að hún væri með þessum manni. Eftir að það kom upp var ég svo vit- laus að ljúga því að henni að ég hefði verið með öðrum konum úti en það var ekki satt. Ég vildi bara hefna mín. Leyfa henni að finna fyrir því líka. Því að þetta svíður. En það kom auðvitað í bakið á mér. Alls konar leiðindi hafa flogið í gegnum huga minn og stund- um veit ég ekki alveg hvað er að ger- ast eða hvað ég á að gera,“ segir hann. „Hvað á ég að gera? Það er allt of seint að byrja upp á nýtt núna.“ ingibjorg@dv.is M Y N D R Ó B ER T R EY N IS S O N „Allir hafa þörf fyrir athygli, að vera metnir að verðleik- um. Það getur því ver- ið spennandi að hitta manneskju sem sýnir manni áhuga og hefur ef til vill sömu áhugamál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.