Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 2. mars 2011 Miðvikudagur Tveir koma inn frá EM en Sigurbergur Sveinsson verður eftir heima: Valið fyrir Þjóðverjaleikina Guðmundur Þórður Guðmunds- son, landsliðsþjálfari í handbolta, valdi í gær átján leikmenn sem mæta Þýskalandi í tveimur leikjum í und- ankeppni EM 2012. Fyrri leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni á mið- vikudaginn í næstu viku en seinni leikurinn fer svo fram ytra fjórum dögum síðar. Fátt óvænt er í vali Guðmundar en hann skilur þó skyttuna Sigur- berg Sveinsson eftir heima. Sigur- bergur fékk mjög lítið að spila á EM, þrátt fyrir að vinstri vængurinn væri nánast ónothæfur lengi vel á mót- inu. Guðmundur kallar inn tvo aðra leikmenn sem ekki voru á HM. Skytt- una Ólaf Guðmundsson úr FH sem hefur verið að vakna til lífsins í N1- deildinni og markvörðinn Svein- björn Pétursson hjá Akureyri sem lék sína fyrstu landsleiki undir lok síð- asta árs. Leikirnir tveir eru Íslandi gríðar- lega mikilvægir í ljósi tapsins gegn Austurríki í riðlinum. Fari illa gegn Þjóðverjum eru allar líkur á að Ís- landi fái frí næsta janúar þegar EM í Serbíu fer fram. Auk leikjanna gegn Þýskalandi á Ísland eftir heimaleik gegn Austurríki og útileik gegn Lett- landi. Fékk treyjur nokkurra úrvalsdeildarleik- manna n Englendingurinn Mark Doninger sem leikur með ÍA í 1. deildinni í sumar er í áhugaverðu viðtali á knattspyrnuvef- síðunni fótbolti. net. Donin- ger lék upp alla yngri flokka Newcastle og fékk nokkr- um sinnum að verma tréverk- ið hjá liðinu auk þess sem hann hefur spilað fyrir liðið í efstu deild enska boltans. „Að standa við hliðina á mönnum eins og Rooney var ótrúlegt og ég náði að fá treyjur frá nokkrum leikmönn- um. Að leika minn fyrsta aðal- liðsleik gegn Hull var líka sérstakt augnablik,“ segir Doninger meðal annars í viðtalinu. Sverre og félagar til Frakklands n Í gær var dregið í átta liða úrslit Evrópukeppni félagsliða og Evrópu- keppni bikarhafa í handboltanum. Sverre Jakobsson og félagar í þýska liðinu Gross- wallstadt mæta franska liðinu Saint Raphael í fyrri keppninni. Tvö Íslendinga- lið eru enn í Evrópukeppni bikarhafa. Sænska liðið Drott með Gunnar Stein Jónsson innanborðs sem mætir franska liðinu Trembley og norska liðið Elverum sem Sigurð- ur Ari Stefánsson leikur með en það mætir þýska stórliðinu Gummers- bach. Endurtekið efni á Akureyri n Sextánda umferðin í N1-deild karla hefst á fimmtudagskvöldið með þremur leikjum. Á Akureyri fá heimamenn kærkomið tækifæri til að hefna ófaranna í bikarúrslita- leiknum en þeir taka þá á móti bik- armeisturum Vals. Botnlið Selfoss á erfiðan leik fyrir höndum í Kópa- vogi þar sem það heimsækir HK en liðið mættust fyrir aðeins tveimur vikum síðan og þá valtaði HK yfir nýliðana. Þá fær Afturelding Hauka í heimsókn en Haukar verða með nýjan spilandi þjálfara í brúnni, Gunnar Berg Viktorsson. Stórleikur í Vesturbænum n Þriðja síðasta umferðin í Iceland Express-deild karla verður leikin á fimmtudag og föstudag. Á föstudag- inn er boðið upp á endurtekningu á bikarúrslita- leiknum þar sem KR og Grindavík mætast í DHL- höllinni. Grind- víkingar náðu loksins að hrista af sér slenið og leggja Hamar í síðustu umferð eftir fjóra tapleiki í röð. KR-ingar virðast þó óstöðvandi og hafa ekki tapað leik eftir áramót. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Njarðvík í heimsókn hjá Haukum n Á fimmtudag tekur Keflavík á móti KFÍ, Fjölnir fær Tindastól í heimsókn og Hamar mætir ÍR. Allir leikirnir hefj- ast klukkan 19:15. Á föstudagskvöldið eru svo tveir aðrir stórleikir. Haukar mæta Njarðvík en sigurvegari þess leiks verður í bílstjórasætinu hvað varðar sjötta sætið í deildinni. Upp- risa Njarðvíkinga hefur verið mikil í undanförnum leikjum en ekki er langt síðan þetta stórveldi var í fallsæti. Þá fara Snæfellingar einnig í heimsókn í Garðabæinn en Snæfell hefur tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Molar Landsliðið MARKVERÐIR: Björgvin Páll Gústavsson, Kadetten Hreiðar Leví Guðmundsson, Emsdetten Sveinbjörn Pétursson, Akureyri AÐRIR LEIKMENN: Alexander Petersson, Fücshe Berlin Arnór Atlason, AG Köbenhavn Aron Pálmarsson, Kiel Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hannov.-Burgdorf Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Neckar Löw. Ingimundur Ingimundarson, AaB Kári Kristján Kristjánsson, Wetzlar Oddur Gretarsson, Akureyri Ólafur Guðmundsson, FH Ólafur Stefánsson, Rhein-Neckar Löwen Róbert Gunnarsson, Rhein-Neckar Löwen Snorri Steinn Guðjónsson, AG Köbenhavn Sverre Jakobsson, Groswallstadt Þórir Ólafsson, Lübbecke Vignir Svavarsson, Hannover-Burgdorf 2-1 Ísland vann tvo æfingaleiki gegn Þýskalandi í byrjun janúar en tapaði svo á HM. MYND RÓBERT REYNISSON Fyrir tuttugu árum, 2. mars 1991, lék sautján ára piltur, Ryan Joseph Giggs, sinn fyrsta leik fyrir Manchester Un- ited. Þó að pilturinn væri gríðarlega hæfileikaríkur óraði varla nokkurn mann, þá síst hann, hvernig færi fyr- ir honum. Margir ungir og efnilegir leikmenn hafa komið upp á sjónar- sviðið og horfir jafnfljótt. Þetta hefur gerst hjá Manchester United jafnoft og hjá öðrum liðum. Ein saga á Eng- landi er þó án nokkurrar hliðstæðu. Saga velska vængmannsins Ryans Giggs. Í dag, 2. mars, eru tuttugu ár liðin frá því hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Manchester United. Leik- irnir eru í dag orðnir 863 og verð- launin nær óteljandi. Giggs er hamp- að sem einum mesta atvinnumanni sem fyrirfinnst. Hann hugsar ótrú- lega vel um sjálfan sig og notar jóga óspart til að halda sér gangandi. Kom á réttum tíma Sögu Ryans Giggs þekkja flestir. Hann var á meðal efnilegustu leik- manna enskrar knattspyrnu og á að baki leiki fyrir ensku ungmenna- landsliðin þótt hann hafi valið Wales á endanum. Manchester City sá sér ekki fært að nota hann og nýtti Sir Alex Ferguson því tækifærið og tók hann upp á sína arma aðeins fjórtán ára gamlan. Ferguson vissi nákvæm- Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is n Ryan Giggs lék sinn fyrsta leik fyrir Manchester United fyrir tuttugu árum n Hefur unnið ellefu Englandsmeistaratitla auk fjölda annarra verðlauna n Heldur sér gang- andi með jóga og leiðindum n Verður enn pirraður þegar hann sér önnur lið vinna titla TUTTUGU ÁRA FERILL ÁN HLIÐSTÆÐU Sprækur Giggs lék sinn fyrsta leik árið 1991 fyrir tuttugu árum en það tímabil notaði United þessa hryllilegu varabúninga þegar þess þurfti. MYND REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.