Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Síða 12
12 | Fréttir 14. mars 2011 Mánudagur
Fjárfestingafélagið Horn, sem er í
eigu Landsbankans, vill kaupa 13,4
prósenta hlut bankans í Stoðum,
áður FL Group. Hluturinn er met-
inn á bilinu 6 til 11 milljarða króna
samkvæmt verðmati nokkurra að-
ila, sem DV hefur undir höndum.
Tilboð Horns í hlutinn hljóðar upp
á tæpa 6,4 milljarða króna en verð-
matið á Stoðum er tæpur 41 milljarð-
ur króna. Þessar upplýsingar koma
fram í fundargerð Horns frá því 25.
febrúar síðastliðinn sem DV hefur
undir höndum. Stærsta eign Horns
um þessar mundir er tæplega 14 pró-
senta hlutur í Marel en félagið seldi 7
prósenta hlut í lok síðasta árs.
Svo virðist sem hvatinn að hluta-
bréfasölunni til Horns sé kominn frá
Landsbankanum sjálfum en í fund-
argerðinni segir: „Fyrir liggur vilji
NBI hf. til að selja dótturfélagi sínu
Horni fjárfestingarfélagi ehf. (Horn)
eign sína í Stoðum.“ Aðrir helstu
eigendur Stoða eru Glitnir og Arion
banki.
Stoðir var eitt helsta fjárfest-
ingarfélagsins landsins á árunum
fyrir hrun. Félagið var meðal ann-
ars stærsti hluthafinn í Glitni þegar
bankinn féll um haustið 2008. Helstu
stjórnendur félagsins voru Jón Sig-
urðsson, sem var forstjóri þess, og
Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var
stjórnarformaður og stærsti hluthafi
Stoða. Félagið er þó einna þekkt-
ast vegna Hannesar Smárasonar en
hann var forstjóri félagsins þegar fé-
lagið var í hæstu hæðum og eins þeg-
ar hlutabréfaverð í félaginu byrjaði
að hrynja svo um munaði á seinni
hluta árs 2007. Hannesi var þá ýtt út
úr félaginu og Jón Sigurðsson tók við
forstjórastólnum.
Hyggjast skrá félagið
Af fundargerðinni að dæma ætl-
ar Horn sér stóra hluti á árinu 2011
því auk hugsanlegra kaupa á hlut
Landsbankans í Stoðum hyggst fé-
lagið fá skráningu í Kauphöll Íslands.
Starfsmenn Horns, þeir Hermann
Már Þórisson og Steinar Helgason,
hafa fundað um skráninguna með
Páli Harðarsyni, forstjóra Kauphall-
ar Íslands, og kemur fram að starfs-
menn kauphallarinnar hafi tekið vel
í erindið. Í fundargerðinni kemur
jafnframt fram að starfsmenn kaup-
hallarinnar hafi tekið vel í að leyfa
skráningu á 25 prósenta hlut í Horni
til að byrja með. Þetta þýðir að ein-
ungis fjórðungur af hlutabréfum
Horns verður boðinn til sölu á hluta-
bréfamarkaði; 75 prósent bréfanna
mun því væntanlega verða áfram í
eigu Landsbankans.
Einnig er sá möguleiki reifaður
í fundargerðinni að Horn kaupi 19
prósenta eignarhlut Landsbankans
í sjávarútvegsfyrirtækinu Icelandic
Group.
Stoðir sagt áhugavert félag
Í fundargerðinni kemur fram að
Horn telji Stoðir eiga mjög áhuga-
vert eignasafn. Þar segir meðal
annars: „Stoðir er með mjög áhuga-
vert eignasafn. Verðmætasta eign
félagsins er rúmlega 40% hlutur í
Refresco sem við metum á tæpa 27
ma.kr. TM er einnig mjög áhuga-
verð eign sem við metum upp á
7,5 ma.kr. Royal Unibrew er rúm-
lega 5% eignarhlutur sem ætti að
vera hægt að selja fljótlega metinn
á tæpar 4,2 ma.kr.“
FL Group keypti hlutinn í Re-
fresco, sem er hollenskur drykkj-
arvöruframleiðandi, árið 2006. Hjá
fyrirtækinu starfa 2.300 manns í
nítján verksmiðjum í átta Evrópu-
löndum. Velta fyrirtækisins var 1,4
milljarðar evra, meira en 200 millj-
arðar íslenskra króna, árið 2009.
Fjárfestingin í Refresco var ein af
fáum fjárfestingum FL Group sem
telja má hafa verið góða þegar lit-
ið er til baka. Önnur góð fjárfesting
FL Group var kaup á hlutabréfum
í Easy Jet en bréfin voru seld með
miklum hagnaði fyrir hrun. Af fjár-
festingum FL Group sem skiluðu
ekki hagnaði voru meðal annars
kaup á hlutabréfum í danska flugfé-
laginu Sterling, kaup á hlutabréfum
í Glitni, þýska bankanum Comm-
erzbank, bandaríska flugfélaginu
American Airlines og Trygginga-
miðstöðinni. Bréfin í Trygginga-
miðstöðinni voru keypt á marg-
földu yfirverði árið 2007 þegar litið
er til þess að verðmat hluta Stoða í
félaginu er einungis 7,5 milljarðar
króna um þessar mundir.
Til stendur að selja
Í fundargerðinni kemur fram að
til Stoðir ætli sér að selja hlutina í
Tryggingamiðstöðinni og Refresco
á næstu árum en jafnframt að
ákveðin skilyrði séu á sölu eigna hjá
félaginu. „Samkvæmt upplýsing-
um frá félaginu eru mörk og skilyrði
á eignasölum; líklega sala á TM er
árin 2012 eða 2013 og líklega tíma-
setning sölu á Refresco hlut er árin
2013 eða 2014.“
Fjárfesting Horns í Stoðum
byggir því væntanlega á því mati
að gott verð muni fást fyrir þessar
helstu eignir félagsins þegar þær
verða seldar innan nokkurra ára.
Horn Landsbankans
vill kaupa í Stoðum
n Fjárfestingafélagið Horn vill eignast hlut Landsbankans í Stoðum n Horn er
dótturfélag Landsbankans n Til stendur að skrá Horn á hlutabréfamarkað
n Félagið skoðar einnig kaup á 19 prósenta hlut í Icelandic Group„Stoðir er með
mjög áhugavert
eignasafn. Verðmætasta
eign félagsins er rúmlega
40% hlutur í Refresco
sem við metum á tæpa
27 ma.kr.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Horn vill inn í Stoðir Fjárfestingarfélagið
Horn vill kaupa 13,4 prósenta hlut Landsbankans í
Stoðum, áður FL Group. Myndin var tekin á aðalfundi
Stoða árið 2008. Í púlti má sjá Jón Sigurðsson, for-
stjóra Stoða, en til hliðar við hann eru meðal annars
þeir Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson.