Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Síða 15
Geislavarnir fylgjast með
Geislavarnir ríkisins fylgjast grannt
með gangi mála í Fukushima-
kjarnorkuverinu. Verði alvarlegt
kjarnorkuslys myndi það hafa
hörmulegar afleiðingar í för með
sér fyrir Japani, en einnig heims-
byggðina alla. Þar er Ísland ekki
undanskilið.
Geislavarnir ríkisins vinna náið
með systurstofnunum á Norður-
löndum við að leggja stöðugt mat
á ástandið í Japan. Samkvæmt síð-
asta hættumati Geislavarna kem-
ur þó fram að engar vísbendingar
séu um að stórt kjarnorkuslys sé á
næsta leiti, þó ætíð verði að hafa
varann á. „Þótt ástand í kjarnorku-
verinu sé greinilega enn alvarlegt,
þá eru samt engar vísbendingar
um það enn að geislavirk efni muni
berast til umhverfis í því magni að
það hafi marktækar heilsufarslegar
afleiðingar,“ sagði í fréttatilkynn-
ingu frá Geislavörnum ríkisins á
sunnudag.
Erlent | 15Mánudagur 14. mars 2011
Hillary Clinton finnur til með Bradley Manning:
Manning látinn sofa nakinn
Bradley Manning, óbreytti hermað-
urinn sem er sakaður um að hafa
lekið trúnaðargögnum bandaríska
utanríkisráðuneytisins til uppljóstr-
unarsíðunnar Wikileaks, þarf að þola
einstaklega erfiðar aðstæður þar sem
honum er haldið í fangelsi. Manning
hefur verið í einangrun í herfangelsi
í Quantico í Virginíu-ríki, og þar þarf
hann meðal annars að sofa nakinn,
því hann er flokkaður sem fangi sem
gæti unnið sjálfum sér skaða.
Manning tókst í fyrsta sinn að
tjá sig opinberlega í síðustu viku,
þegar lögfræðingur hans sendi 11
síðna bréf frá Manning til fjölmiðla.
Þar lýsir Manning furðulegri fram-
komu fangelsisyfirvalda í sinn garð,
þar sem hegðun hans í fangelsi
hafi ætíð verið til fyrirmyndar. Þá
hafi geðlæknir, sem Manning þarf
að hitta í viku hverri, einnig stað-
fest að Manning eigi ekki að flokka
sem einstakling sem líklegur sé til
að vinna sér skaða. Mannréttinda-
samtök á borð við Amnesty Int-
ernational hafa gagnrýnt yfirvöld
bandaríska hersins fyrir að virða
ekki grunnréttindi Mannings sem
fanga. Nú hefur utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna sjálft bæst í hóp
þeirra sem gagnrýna heryfirvöld
„Meðferðin á Manning er fá-
ránleg og vinnur gegn okkur og er
heimskuleg af hálfu varnarmála-
ráðuneytisins,“ sagði P.J. Crowley,
talsmaður utanríkisráðuneytisins.
Vonast lögfræðingur Mannings til
þess að þetta gefi til kynna að skjól-
stæðingur hans muni hljóta betri
meðferð á næstunni. Hingað til hef-
ur meira að segja Barack Obama,
forseti Bandaríkjanna, varið heryf-
irvöld þegar þau hafa verið gagn-
rýnd fyrir slæma meðferð á Mann-
ing. Obama sagði í síðustu viku að
hann gæti ekki mikið tjáð sig um
málið en að „meðferðin á honum
tengist því sem er honum sjálfum
fyrir bestu.“
Risaskjálftinn í japan
Skip úti í garði Þetta skip barst með flóðbylgunni alla leið í íbúðahverfi.
Allt á floti Þessum gervihnattamyndum af borginni Sendaí hefur verið skeytt saman til
sýna hvernig borgin varð úti eftir flóðbylgjuna. Í Sendaí býr rúmlega milljón manns.
Alger eyðilegging Lítið stendur eftir í Minamisanriku.
Bradley Manning Þarf að þola ömurlegar aðstæður í varðhaldi.
Fjórtán ára ók í
skólann
Fjórtán ára bandarískur drengur
var þreyttur á því að ganga í skól-
ann. Hann tók því upp á því að stela
sendibifreið kirkju og ók í skólann á
föstudag að sögn lögreglu. Lögreglu-
maður ók fyrir aftan drenginn en
sá ekkert athugavert við aksturslag
hans. „Ég hélt að það væri einhver
lágvaxinn að keyra bílinn,“ sagði lög-
reglumaðurinn. Starfsmaður skól-
ans sá drenginn hinsvegar aka bíln-
um og lét lögreglu vita. Móðir hans
telur að hann hafi stolið bíllyklun-
um á kóræfingu og þannig tekist að
komast á bílnum í skólann.
Skutu á
mótmælendur
Lögreglumenn staðsettir á húsþök-
um skutu byssukúlum og táragasi á
mótmælendur í Jemen um helgina.
Að minnsta kosti 100 manns ssærð-
ust fyrir utan Sanaa-háskólann eftir
að skothríðin hófst. Átök hafa staðið
yfir á milli mótmælenda og lögregl-
unnar í um það bil mánuð. Mót-
mælendur krefjast þess að forsetinn
Ali Abdullah Saleh fari frá völdum
eftir að hafa stjórnað landinu í um
32 ár. Forsetinn situr hins vegar sem
fastast og beitir vopnuðum lögreglu-
mönnum af krafti gegn mótmælend-
um. Um það bil 20 manns slösuðust
af völdum gassins og að minnsta
kosti einn mótmælandi er illa særð-
ur eftir að hafa verið skotinn. Fréttir
hafa verið sagðar af því að hópar á
vegum ríkisstjórnarinnar, sem lýst
hefur verið sem „ólátabelgjum í boði
stjórnarinnar“, hafi ráðist á mótmæl-
endur og barið þá með kylfum.
Baldwin brýnir
Sheen
Hollywood-leikarinn Alec Baldwin
hefur sent vandræðagemsanum
Charlie Sheen skýr skilaboð, eftir
að sá síðarnefndi var rekinn úr þátt-
unum Two and a Half Men. „Þegar
kemur að yfirmönnum upptökuvera,
þá ertu ekkert að fara að leggja þá
að velli. Það er bara þannig,“ skrifar
Baldwin í Huffington Post. Í ljósi
þeirrar staðreyndar ráðleggur Bald-
win Sheen: „Fáðu þér blund. Farðu
í sturtu. Hringdu í handritshöfund-
inn. Farðu til Davids Letterman þar
sem þú átt að biðjast afsökunnar.
Farðu svo og grátbiddu um starfið
þitt aftur.“
Baldwin bætti einnig við: „Hættu
að drekka og drífðu þig aftur í sjón-
varpið, ef það er ekki þegar orðið
of seint. Þetta er Ameríka. Ef þú vilt
ergja Warner Brothers og CBS skaltu
biðja þjóðina afsökunar. Þér verður
fyrirgefið. Þú ert frábær sjónvarps-
stjarna.“