Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 6. júní 2011 Mánudagur Hannes Þór Smárason er búsettur í Lúxemborg og mætti því ekki fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þegar aðal- meðferð í máli hans gegn fjármála- ráðuneytinu fór fram á föstudaginn. Hannes stefndi fjármálaráðuneyt- inu vegna kyrrsetningarbeiðni sem tollstjóri setti fram gegn honum fyr- ir hönd skattrannsóknarstjóra í apríl 2010. Tollstjóri ætlaði að kyrrsetja eignir fyrir allt að 150 milljónir en endaði á að kyrrsetja tvo bíla í eigu Hannesar auk bankainnistæðna upp á sjö og hálfa milljón eftir að sýslu- maður samþykkti kyrrsetninguna. Kyrrsetningin var að lokum felld úr gildi eftir að í ljós kom að engin laga- heimild væri fyrir kyrrsetningu vegna brota á lögum um virðisaukaskatt. Hannes fer fram á þrjár milljónir króna í skaðabætur vegna fjártjóns og miska í kjölfar kyrrsetningarinn- ar. Hannes gaf skýrslu fyrir dómi í gegnum síma á föstudaginn. Athygli vakti að Hannes neitaði því að eiga nokkurn þátt í hruninu en hann fékk milljarða króna í arðgreiðslur frá al- menningshlutafélaginu FL Group áður en félagið fór í þrot. Hannes svaraði ekki Aðalmeðferðin í málinu hófst á held- ur skrautlegan hátt þar sem byrja átti á að láta Hannes gefa skýrslu vegna málsins. Þegar Allan V. Magnússon héraðsdómari ætlaði að hringja í Hannes þá vildi ekki betur til en svo að talhólf Hannesar var það eina sem náðist samband við. Bæði dómarinn og Gísli Guðni Hall lögmaður Hann- esar reyndu að ná í hann en allt kom fyrir ekki. Ákveðið var að hlýða á tuttugu mínútna langt útvarpsviðtal við Steingrím J. Sigfússon sem er á meðal sönnunargagna í málinu en á meðan dómarinn og ritari hans voru að glíma við tæknilega örðugleika hringdi Hannes í lögmann sinn og virtist því tilbúinn til að veita dóm- inum skýrslu. Hannes var beðinn af lögmanni sínum að segja frá því hvaða afleið- ingar kyrrsetningin hefði haft í för með sér fyrir hann. „Ég er náttúru- lega búsettur erlendis og starfa sjálf- stætt við viðskiptatengd verkefni en möguleikar mínir eru ekki þeir sömu og þeir hefðu annars verið,“ sagði Hannes sem telur augljóslega kyrr- setninguna hafa skemmt fyrir sér í viðskiptum sínum. Hannes nefndi engin dæmi þess efnis að viðskipta- samningar eða viðskiptatækifæri hefðu runnið honum úr greipum vegna kyrrsetningarinnar. Hannes staðfesti í síma fyrir dómi að hann væri þessa dagana búsett- ur í Lúxemborg. Eftir bankahrunið bárust fregnir af því að Hannes hefði flutt til London en hann flutti til Lúx- emborgar um mitt ár 2010 og í lok sama árs til Barselóna en virðist nú aftur búsettur í Lúxemborg. Viðtal Harmageddon við Steingrím J. Fyrir dómi lagði lögmaður Hannesar fram 20 mínútna langt útvarpsviðtal sem Þorkell Máni Pétursson og Frosti Logason tóku við Steingrím J. Sigfús- son fjármálaráðherra þann 8. apríl 2011 í þættinum Harmageddon á X- inu. Viðtalið var tekið daginn áður en kosningin um Icesave fór fram og var því Icesave nánast það eina sem var rætt í þættinum. Hannes Þór Smára- son var aldrei nefndur á nafn en við- talið átti að sýna viðhorf fjármálaráð- herra til Hannesar og að ríkið hefði í raun verið að elta hann. Steingrímur var spurður hvort Ís- lendingar væru ekki að borga fyrir Elton John og veislur á Jamaíka með því að samþykkja Icesave og í raun að borga fyrir útrásarvíkinga. Stein- grímur neitaði því og sagði að verið væri að láta gamla bankann borga. Enn fremur sagði hann að nánast all- ir peningar sem eftir væru og hægt væri að ná til færu í Icesave. „Við reynum að hundelta þessa gaura. Saksóknarinn, skatturinn og Serious Fraud Office eru í því að reyna að ná í alla peninga sem hægt er að sækja. Jafnvel til Tortóla eða Lúxemborgar eða hvert það er, fá þá inn í búið og þá fara þeir í að borga Icesave,“ sagði Steingrímur og við þetta gerði lög- maður Hannesar athugasemd. Þarna væri sýnt fram á að ríkið væri í elting- arleik við ákveðna menn, þar á með- al Hannes. Lögmaður Hannesar tók fram að skattrannsóknarstjóri heyrði undir fjármálaráðuneytið og virtist telja að um samantekin ráð væri að ræða af hálfu ríkisvaldsins. Kyrrsetningarbeiðni upp á 150 milljónir Tollstjóri setti fram kyrrsetningar- beiðni hjá sýslumanni upp á 150 milljónir fyrir hönd skattrann- sóknarstjóra en Hannes var talinn hafa sýnt af sér vítaverða háttsemi vegna brota á lögum um virðisauka- skatt. Umrædd brot eiga að hafa átt sér stað í rekstri FL Group. Eft- ir að beiðni skattrannsóknarstjóra var lögð fram kyrrsetti tollstjóri þær eignir sem hann náði til. Þar var um að ræða tvær bifreiðar í eigu Hann- esar, Lincoln Navigator og Range Ro- ver, sem hvor um sig var metinn á fjórar milljónir, og bankainnistæð- ur fyrir sjö og hálfa milljón. Á sama tíma voru einnig eigur þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Skarphéðins Bergs Steinarssonar og Jóns Sigurðs- sonar kyrrsettar vegna sama máls. Rekstrarkostnaður FL Group þótti grunsamlega hár og var grunur uppi um að í raun væri að ræða hlunnindi stjórnenda en ekki rekstrarkostnað fyrirtækisins. Hannes fór með kyrr- setninguna fyrir héraðsdóm en toll- stjóri dró hana til baka áður en úr- skurður var kveðinn upp og var málið því látið niður falla. Þetta var eftir að Skarphéðinn Berg Steinarsson hafði fengið það staðfest í Héraðsdómi Reykjavíkur og síðar Hæstarétti Ís- lands að ekki væri lagaheimild fyrir hendi vegna kyrrsetningarinnar sem var farið fram á yfir honum. Dóm- stóllinn komst að þeirri niðurstöðu að í lögum um tekjuskatt væri ekki að finna heimild til kyrrsetningar vegna brota á lögum um virðisaukaskatt. Í framhaldinu bað tollstjóri sýslu- manninn í Reykjavík um að fella kyrrsetningu eigna Hannesar, Jóns Ásgeirs og Jóns Sigurðssonar úr gildi. Ósáttur við aðferðir yfirvalda „Yfirvöld fóru ekki leynt með að- gerðina,“ sagði Hannes ósáttur og tók lögmaður hans fram að Hannes hefði frétt af kyrrsetningarbeiðninni í gegnum fjölmiðla. Samkvæmt lög- manninum var það komið í fjölmiðla að farið yrði fram á kyrrsetningu áður en beiðnin var lögð fram. Í máli lög- mannsins kom fram að um væri að ræða geðþóttaákvörðun stjórnvalda og hann sagði málið allt vanreifað af hálfu yfirvalda. Það hafi til að mynda aldrei komið fram hvers vegna var farið fram á kyrrsetningu eigna upp á 150 milljónir. Að hans mati hefði tollstjóri alveg eins getað farið fram á kyrrsetningu eigna upp á 50, 500 eða 5.000 milljónir. Þeir hafi aldrei gert sér grein fyrir því á hverju kyrr- setningarbeiðnin hafi verið byggð og hvað það væri sem væri grundvöllur fyrir umrædda upphæð. Hefur ekkert með bankahrunið að gera „Ég hef ekkert með þetta blessaða bankahrun að gera,“ sagði Hannes í síma fyrir dóminum. Hann telur sig vera ranglega sakaðan um að vera aðila að bankahruninu sem átti sér stað í október 2008. Hannes var á sínum tíma for- stjóri FL Group og stjórnarmaður í Glitni. Hannes sagði sig úr stjórn Glitnis í júlí 2006. Hannes var litinn öðrum augum í íslensku viðskipta- lífi á árum útrásarinnar en nú. Á tímum útrásarinnar höfðu Hannes og félög hans nánast óendanleg- an aðgang að lánsfé. Hannes sjálfur var fjórði stærsti skuldari íslenska bankakerfisins samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þar var Hannes sagður skulda 51,8 milljarða íslenskra króna en einungis Robert Tchenguiz, Jón Ásgeir Jóhannesson og Ólafur Ólafsson voru skuldsettari. Hannes var nátengdur öðrum helstu aðilum útrásarinnar sem endur- speglaðist vel í eftirminnilegri för til Kína árið 2005. Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, og flestir helstu aðalleikarar útrásarinnar, til dæm- is Björgólfur Thor Björgólfsson, Jón Ásgeir Jóhannesson ásamt banka- stjórunum Hreiðari Má Sigurðssyni og Sigurjóni Árnasyni fóru þá ásamt Hannesi í ferðina til Kína. Árið 2006 hlotnaðist Hannesi sá heiður að vera valinn maður ársins í íslensku viðskiptalífi eftir að hafa stjórnað FL Group. Hannes hafði leitt umbreytingu Flugleiða þar sem fjár- festingarstarfsemi varð aðalverkefni félagsins og ferðaþjónusta og flug- rekstur var sett inn í dótturfélög eins og kemur fram í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis. Félagið dró sig svo alfarið út úr flugrekstri þegar dótt- urfélagið Icelandair Group var selt árið 2006. FL Group breyttist svo síð- ar í Stoðir. Ekki var alltaf lognmolla í kringum FL Group og stjórnun Hannesar en frægt varð þegar þrír stjórnarmenn sögðu sig úr stjórninni fjórum mánuðum eftir aðalfundinn í mars 2005 vegna óánægju með fjár- festingarstefnu Hannesar og hvernig staðið væri að fjárfestingarákvörð- unum. Ragnhildur Geirsdóttir hætti einnig sem forstjóri FL Group og tók Hannes við sem forstjóri félags- ins. Það var í kjölfarið á kaupum FL Group á flugfélaginu Sterling af Fons, eignarhaldsfélagi Pálma Haralds- sonar. Umrædd kaup eru einhver umdeildustu viðskipti íslenskrar við- skiptasögu. Árið 2007 fór svo að halla undan fæti hjá félaginu en þá var rekstrar- kostnaður FL Group 6,2 milljarðar króna og skilaði félagið 67 milljarða króna tapi. Í lok árs 2007 var tilkynnt um að Hannes hygðist láta af störf- „Ég hef ekkert með þetta blessaða bankahrun að gera“ Hannes Smárason stefnir fjármálaráðuneytinu n Fer fram á þrjár milljónir í skaðabætur n Telur kyrrsetningu eigna hafa valdið sér fjárhagslegu tjóni og miska n Neitar aðild að hruninu en hafði áður viðurkennt ýmislegt Hannes Smárason og Skarphéðinn Berg Steinarsson Eignir þeirra voru kyrrsettar en Skarphéðinn fékk það staðfest fyrir dómi að lagaheimild fyrir því væri ekki fyrir hendi. Leifar útrásarinnar í bílakjallara í Faxafeni Þarna má meðal annars sjá Range Rover og Lincoln Navigator bifreiðar sem voru kyrrsettar af tollstjóra. Guðni Rúnar Gíslason blaðamaður skrifar gudni@dv.is „Fyrir dómi lagði lögmaður Hann- esar fram 20 mínútna langt útvarpsviðtal sem Þorkell Máni Pétursson og Frosti Logason tóku við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra þann 8. apríl 2011 í þættinum Harmageddon á X-inu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.