Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 6. júní 2011 Mánudagur
Karl Rúnar Ólafsson, kartöflubóndi
í Þykkvabæ, segist hafa orðið fyrir
milljónatjóni þegar hópur manna
veittist að honum þar sem hann var
að setja niður kartöflur. „Þarna var
kominn stór hópur fólks, á annan
tug manna. Konur, menn og krakk
ar og sumir hverjir með járnstikur,“
segir Karl um hópinn sem safnað
ist saman við jörðina Háf, þar sem
Karl var að störfum. Þar voru á ferð
tveir aðrir kartöflubændur í Þykkva
bæ, feðgarnir Birkir Ármannsson og
Ármann Ólafsson. En feðgarnir hafa
aðra sögu að segja og telja Karl sjálf
an hafa valdið sér tjóni með harka
legum viðbrögðum. Atburðurinn á
kartöfluakrinum kemur í kjölfar ára
langra deilna sem Karl hefur staðið í
við feðgana.
Króuðu af og skelfdu
Á miðvikudaginn í þarsíðustu viku
var Karl staddur á jörðinni Háfi og
var að ljúka við að setja niður kart
öflur. Að sögn Karls komu skyndilega
tveir menn akandi að jörðinni. „Bíll
inn beið við norðurenda garðsins. Ég
var í suðurenda hans. Þegar ég ætlaði
að fara akandi heim á leið kom trakt
or akandi eftir veginum og í veg fyr
ir mig,“ segir Karl. Hann kveðst hafa
ekið framhjá traktornum, enda taldi
hann mennina ekkert eiga vantalað
við sig. En stuttu seinna bættist annar
traktor við og króuðu farartækin Karl
af þar sem hann var á traktor sínum.
„Ég stoppaði, enda umkringdur, og
þá keyrði annar traktorinn beint með
skófluna í vélina hjá mér,“ segir Karl.
„Ég ók aftur af stað.“
Lögreglan kölluð til
„Á þessum tímapunkti var ég bú
inn að taka upp símann og hringja í
neyðarlínuna. Ég tilkynnti lögreglu
að hér væri eitthvað alvarlegt að ger
ast og bað um aðstoð með forgangi.
Það eru skóflur á traktornum og ég
rétt slapp við að fá þær á mig.“
Stuttu síðar höfðu mennirnir kró
að hann aftur af og ráku traktors
skóflurnar í niðursetningarvél Karls.
„Þá stoppaði ég, enda var þetta
búið mál, vélin var orðin beygluð,
snúin og götótt. Á einni felgu var tætt
dekk og önnur felga var ónýt.“ Á þess
um tímapunkti var að sögn Karls stór
hópur kominn á svæðið og saman
stóð hann af vinum og skyldmenn
um feðganna sem keyrðu traktorana
tvo. Þá fullyrðir Karl að annar feðg
anna hafi stokkið út úr traktor sínum
og reynt að rífa Karl út úr traktorn
um. „Sá sem mest bar á stóð á hlið
arlínunni og hrópaði að það þyrfti að
jafna um mig: „Komið með manninn
út, það þarf að jafna um hann!“ hróp
aði hann. Ég var farinn að óttast um
líf mitt.“
Höfðu ókvæðisorð uppi
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst
manninum, samkvæmt lýsingu
Karls, ekki að ná honum úr traktorn
um. „Ég hélt mér í traktorinn og mað
urinn reyndist nú ekki svo sterkur að
hann næði að rífa mig út úr honum,“
segir Karl. „Átökin stóðu í smátíma,
með hléum að vísu því maðurinn
þurfti náttúrulega að ná andanum.“
Þegar ljóst varð að Karl kæmi ekki út
úr traktornum hóf maðurinn að sögn
Karls að ausa yfir hann fúkyrðum.
„Hann reyndi að svívirða mig á allan
hátt, hann lýsti því þannig að ég væri
núll í þjóðfélaginu og sagði að það
hlustaði ekki nokkur maður á mig.
Hann sagði að sýslumannsfulltrúinn
myndi ekki hlusta á mig, ekki frekar
en lögreglan og að enginn lögfræð
ingur myndi vinna fyrir mig.“
En Karl kveðst ekki hafa svarað
manninum. „Þegar maður svarar
svona hlutum þá æsist leikurinn bara
upp og versnar. Það gerir illt verra
að svara. Ég er starfandi björgunar
sveitarmaður og þekki svona æsings
mál. Það á bara að halda ró sinni og
þegja.“ Stuttu eftir þetta mætti lög
reglan á svæðið og þá róaðist leikur
inn.
„Milljónatjón“
Karl segir tjónið hlaupa á milljónum.
„Þeir ráku skóflurnar í fokdýra niður
setningarvélina. Þeir rifu tvö dekk og
skemmdu eina felgu, ásamt því að
tölvan í vélinni er ónýt,“ segir Karl
um atvikið. Hann segist einnig sjálf
ur vera skelfdur eftir árásina: „Þetta
var ógnarleikur, alveg algjör and
styggð.“ Lögreglan bað Karl að halda
heim á leið þegar hún mætti á svæð
ið. Karl segist hafa kært árásina, enda
sé fásinna að ráðast að mönnum á
þennan hátt. Lögreglan á Hvolsvelli
staðfesti við blaðamann að eitthvert
mál á milli ofangreindra aðila væri
á borði lögreglunnar, en ekki feng
ust nánari upplýsingar um málið hjá
lögreglu.
Ásakanir á báða bóga
„Það var náttúrulega bara rangt hjá
Karli. Við fórum til að stöðva hann til
að hann ynni ekki meira tjón. Hann
keyrði fyrst framan á mig og síðan
framan á föður minn,“ segir Birkir
Ármannsson, sonur Ármanns Ólafs
sonar, um atburðinn sem varð á mið
vikudaginn í þarsíðustu viku. „Hann
vildi ekki stoppa. Hann brást svona
við og olli sjálfum sér milljónatjóni,“
segir Birkir. Hann þvertekur fyrir að
hafa gert hróp að Karli og segir hann
sjálfan hafa valdið tjóninu. Sam
kvæmt feðgunum reyndu þeir ekki
að rífa Karl úr traktornum og höfðu
ekki uppi orð um að það þyrfti að
jafna um hann.
Birkir segir enn fremur að Karl
hafi valdið tjóni í mörgum görðum á
jörðinni í Þykkvabæ með því að gróð
ursetja þar. Hann segir Karl ekki vera
eiganda jarðarinnar og að hann sé að
gróðursetja í óleyfi. Ljóst er að ásak
anir eru á báða bóga í deilumálinu.
„Aumingja maðurinn!“
Þegar DV náði tali af Ármanni sagði
hann ásakanir Karls vera rógburð,
hann vildi ekki tjá sig nánar um mál
ið heldur benti á lögfræðing sinn.
„Ég hef bara eitt að segja, það er öm
urlegt hvernig aumingja maðurinn
er,“ sagði hann. Ármann sagði þó
í samtali við blaðamann að ekkert
væri hæft í ásökununum og neitaði
því að hafa veist að Karli ásamt öðr
um. Hann véfengdi einnig að Karl
væri eigandi jarðarinnar Háfs, sem
deilan snýst um, en benti á lögfræð
ing sinn þegar hann var beðinn um
að skýra mál sitt.
Áralöng deila
Atvikið er sem fyrr segir hluti af ára
langri kartöfludeilu í Þykkvabæ.
Feðgarnir ræktuðu áður á landinu
sem nú tilheyrir Karli en foreldrar
hans keyptu jörðina þegar ljóst var
að feðgarnir höfðu ekkert afsal að
jörðinni og þar með ekkert tilkall til
hennar. Það virðist hafa reitt feðgana
mjög, en að sögn Karls hafa þeir áður
eyðilagt uppskeru fyrir honum á
jörðinni. Undir lok níunda áratugar
ins fengu feðgarnir lögbann á ræktun
Karls á landinu og kærði Karl það til
héraðsdóms. Árið 2003 sigraði Karl í
því máli og fékk lögbanninu hnekkt.
Dómari sagði feðgana ekki hafa lög
varða hagsmuni á jörðinni, með öðr
um orðum ekkert tilkall til hennar í
lagalegum skilningi.
En deilan snýst um klausu í sölu
samningi á jörðinni. Þar kemur fram
að ónafngreindir menn hafi spildu af
jörðinni til garðafnota. Deilan snýst
því um það hvaða spilda það er ná
kvæmlega og hvaða garðafnot, en
óljóst er af hverju feðgarnir ættu að
hafa veist að Karli með þessum hætti.
„Ef þetta heldur áfram svona þá verð
ég bara að fá spilduna afmarkaða og
skilgreinda,“ segir Karl og telur óná
kvæmni í klausunni valda nokkrum
vandkvæðum.
Kartöflustríð í hámarki
Karl Rúnar segir þó að deilan um Háf
sé ekki eina ástæðan fyrir því að feðg
arnir hafi brugðist svona við. „Sam
keppnin hér er mjög hörð og þetta
er náttúrulega mjög flókið og viða
mikið mál,“ segir hann um tildrög
málsins. „Ég er nokkuð stór í kart
öfluræktinni og það fer fyrir brjóstið
á sumum.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem skemmdir hafa verið unnar á
tækjum Karls. „Fyrir nokkrum árum
kom annar kartöflubóndi á svæðinu
í skjóli nætur og fyllti olíutankinn á
vélunum mínum af sandi. Dekkin
voru skorin og gluttakerfið í vélunum
var líka fyllt af sandi. En það fékkst
ekki fyllilega sannað að þar hafi um
ræddur bóndi verið að verki. Hann
viðurkenndi að hafa verið á svæð
inu, hafa farið úr bílnum sínum og
labbað framhjá stöðunum þar sem
skemmdir voru unnar. En hann neit
aði sök samt sem áður.“
Traktorar skullu saman og hróp og köll voru gerð að bónda í kartöflugarði í Þykkvabæ n „Milljónatjón“ segir kart-
öflubóndi n Ásakanir á báða bóga n Áralangar deilur um jarðarskika n „Ég var farinn að óttast um líf mitt“ „Ég var farinn að
óttast um líf mitt.Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Árekstur Traktorarnir skullu saman og milljónatjón varð á einum þeirra.
Skakkaði leikinn Lögreglan var kölluð til
og þá róuðust menn.
Kartöflustríð Karl Rúnar Ólafsson segir að hann hafi verið að ljúka við að setja niður
kartöflur þegar hópur manna hafi veist að honum.
Kartöflustríð
á suðupunKti