Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 14
Annað 1% Mengun 2% Eiturlyf 2% Útfjólubláir geislar 2% Offita, hreyfingarleysi 5% Alkóhól 3% Eitrun eða geislun á vinnustað 5% Sýkingar 5% Slæmt mataræði 30% Reykingar 30% Erfðaþættir 15% 14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 6. júní 2011 Mánudagur Þrif á gönguskóm Að kaupa gönguskó getur verið góð fjárfesting ef þú stundar útivist að staðaldri. Til að viðhalda skónum er mikilvægt að fara vel með þá og bera á þá feiti en einnig er mikilvægt að hreinsa þá. Á alparnir.is segir að best sé að fjarlægja reimar og aðra lausa hluti af skónum. Best sé að skrapa alla fasta mold af og leysa upp önnur laus óhreinindi. Við þrifin sé gott að nota tusku og volgt vatn. Að þessu loknu skal bursta þá með mjúkum bursta en til að ná burt öllum óhrein- indum skal að lokum skola þá með köldu vatni. Mælt er með að skórnir séu síðan loftþurrkaðir við stofuhita en varast skal að þurrka þá ofan á ofni eða við opinn eld. Innri hlið þeirra skal þvegin með tusku og volgu sápu- vatni til að ná burt saltkristöllum sem hafa safnast þar fyrir. Að lokum er gott er að setja áburð eða þunnt lag af feiti á leðrið innan í skón- um. Veit hvað viðskipta­ vinurinn vill n Lofið að þessu sinni fær Fataleiga Garðabæjar en ánægður viðskipta- vinur vill hrósa þjónustunni þar. „Fataleiguna rekur kona að nafni Lovísa en þar er hægt að leigja „Allt frá hatti oní skó“ eins og sagði í frægri auglýsingu. Hluturinn sem ég leitaði að var þó ekki til hjá henni en það var ekki mikið mál. Lovísa reddaði hlutnum fyrir mig á augabragði. Þessi kona veit um hvað þjónusta snýst, það er að segja að viðskiptavinurinn fari ánægður út!“ Vond súpa n Lastið fær Súpubarinn í Hafnar- húsinu fyrir leiðinlega og dónalega þjónustu eins og viðskiptavinur lýsir því. „Ég fékk mér súpu og salat sem mér fannst frekar dýrt en lét þó vaða. Þegar ég smakkaði á súpunni fannst mér hún einfaldlega ekki góð og lét stúlkuna sem afgreiddi mig vita. Hún brást illa við og var dónaleg og sagði að ég hefði sjálf valið þessa súpu. Ég hefði að sjálfsögðu ekki pantað mér súpu sem mér finnst vond ef ég hefði vitað það en eftir mikið tuð fékk ég aðra sem var ágæt. Ekki góð þjónusta, finnst mér.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 237,40 kr. 236,50 kr. Algengt verð 232,20 kr. 231,10 kr. Höfuðborgarsv. 232,10 kr. 231,00 kr. Algengt verð 232,30 kr. 231,20 kr. Algengt verð 238,40 kr. 236,50 kr. Melabraut 232,20 kr. 231,10 kr. Um 30% af orsökum krabbameins má rekja til slæmra matarvenja en það er jafnhátt hlutfall og má rekja til reykinga. Rannsóknir á orsökum þessa erfiða sjúkdóms benda því til að það sem þú setur á diskinn þinn hafi mikil áhrif á það hvort þú fáir krabbamein eða ekki og þar eru unn- ar kjötvörur taldar vera aðalskað- valdurinn. World Cancer Research Fund hefur tekið saman bækling um það af hvaða matvælum við ættum að borða mest og hvaða matarteg- undir við ættum að forðast, viljum við viðhalda heilbrigði og komast hjá því að fá krabbamein. Sneiðum hjá unnum kjötvörum Það sem WCRF leggur mesta áherslu á er að takmarka neyslu á rauðu kjöti og sneiða nær algjörlega hjá unnum kjötvörum. Þetta þýðir þó ekki að við eigum að hætta að borða dýraafurðir því eins og alkunna er þá er fiskur eitt af því hollara sem við getum borðað. Auk þess er fuglakjöt hollur kostur og neysla á því hefur ekki verið tengd hættu á krabbameini. Aðra sögu er að segja um rautt kjöt og mikið unnin matvæli. Til að minnka hættu á krabbameini er ráðlagt að borða ekki meira en sem nemur 500 grömmum af elduðu rauðu kjöti, svínakjöti eða lamba- kjöti á viku. Einnig erum við hvött til að sleppa öllum unnum kjötvörum. Minna af næringarefnum í unnum matvælum Nær allur matur sem við borðum hefur verið unninn á einhvern hátt. Það er gert til að hann sé tilbúnari til matreiðslu eða til að láta hann líta betur út. Þegar talað er um að halda sig frá unnum matvælum er því átt við mat sem er verksmiðju- framleiddur eða mikið unninn, eins og snakk, kex, kökur og skyndibita- matur svo sem hamborgarar, fransk- ar kartöflur og djúpsteiktur kjúkling- ur. Eins er átt við þau matvæli sem hafa verið unnin á sérstakan hátt til að auka geymsluþol þeirra. Slíkar aðferðir eru til dæmis reyking, söltun eða viðbætt rotvarnarefni. Matvörur sem tilheyra þessum flokki eru með- al annarra skinka, beikon, spægi- pylsa, pylsur og bjúgu. Þegar slík matvæli eru unnin missa þau mikið af vökva, trefjum og næringarefnum og í stað þeirra eru aukafita, sykur og salt sett í þau. Þetta veldur því að matvælin verða orku- ríkari og næringarefnasnauðari. Þar af leiðandi getur lítið magn af þeim verið hitaeiningaríkt án þess að vera mettandi. Hollasti maturinn er því sá sem minnst hefur verið átt við og er minnst unninn. Rannsóknir sýna að það er teng- ing á milli þessara matvæla og krabbameins í þörmum og því er fólk hvatt til að taka þessar vörur nær al- gerlega út úr daglegu mataræði. Í bæklingnum segir þó að góðu frétt- irnar séu þær að með því að sneiða hjá þessum matvælum minnkum við verulega hættu á krabbameini. Setjum matvæli úr jurtaríkinu í fyrsta sæti Sérfræðingar segja að matur úr jurta- ríkinu geti spilað stóran þátt í því að viðhalda heilbrigði og sé góð vörn gegn krabbameini. Það er úr mörgu að velja og í raun ætti sá flokkur að vera uppistaða þess sem við borðum. Mörgum þykir erfitt að auka græn- metisneyslu á kostnað kjötsins en gott er að byrja á því að skoða disk- inn sinn vel. Ef kjöt þekur meirihluta hans þarf að endurhugsa matar- venjurnar. Markmiðið er að á tveim- ur þriðju af diskinum sé grænmeti, korn og ávextir en kjöt og fiskur ætti að fylla upp í afganginn. Við ættum því að byrja á því að líta á kjötið sem meðlæti með hollari vörum. Hvað með aðrar dýraafurðir? Fiskur er hollur kostur í baráttu gegn krabbameinsmyndun. Við ættum að borða meira af honum en fiskneysla hefur dregist saman á Íslandi síðustu ár. Sumar rannsóknir sýna að fiskur vinni gegn krabbameini í þörmum. Egg eru próteinrík og eru hluti af hollu mataræði ef fólk neytir þeirra í hófi. Ekki hefur verið sýnt fram á að neysla þeirra eigi sök á aukinni tíðni krabbameins. Fuglakjöt, svo sem kjúklingur og kalkúnn, er næringarrík viðbót fyr- ir mataræði okkar. Til að halda fitu í Rétt mataræði Við ættum að láta matvæli úr jurtaríkinu vera á tveimur þriðju af matar- disknum. MYND: PHOTOS.cOM Slæmt mataræði er orsök 30 prósenta krabbameinstilfella n Unnar kjötvörur eru taldar vera mesti skaðvaldurinn n Matvæli úr jurtaríkinu ættu að vera meginuppistaðan í mataræði okkar Borðaðu þig frá krabba eini Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is „Þegar slík matvæli eru unnin missa þau mikið af vökva, trefj- um og næringarefnum. Þess í stað eru aukafita, sykur og salt sett í þau.“ Með því að borða meira af mat- vælum úr jurtaríkinu stuðlum við að heilbrigði á ýmsan hátt: Borðaðu úr jurtaríkinu n Vörur úr jurtaríkinu eru oftast lágar í orku sem þýðir að þær eru hitaeiningasnauðar og fitusnauðar og því frábær kostur til að halda niðri þyngdinni. Hægt er að tengja offitu við nokkrar tegundir krabbameins, svo sem brjóstakrabbamein, krabbamein í þörmum, gallblöðru, nýrum, vélinda og briskirtli. n Með því að borða fjölbreytta fæðu úr jurtaríkinu fáum við fjölmörg vítamín og næringarefni sem geta hjálpað líkamanum að verja frumur sínar gegn krabbameins- myndun. n Úr fæðu úr jurtaríkinu fáum við trefjar sem halda meltingarveginum góðum og heilbrigðum og minnka þar með hættu á krabbameini í þörmum. Matvæli úr jurtaríkinu eru: n Grænmeti og ávextir, góð fyrir heilsuna og við ættum að borða að minnsta kosti fimm skammta á dag. n Mjölvaríkur matur, í þessum flokki eru korn, belgjurtir og rætur og hnýði. Hér ætti að reyna að sneiða sem mest hjá unnum vörum. – Korn: hrísgrjón, hafrar, pasta, brauð, kúskús og morgunkorn. – Heilkorn: heilhveitihrísgrjón og heil- hveitipasta. Matvæli úr heilhveiti eru hollari kostur þar sem þau innihalda yfirleitt fleiri trefjar og önnur mikilvæg næringarefni en þau sem unnin eru úr hvítu hveiti. – Belgjurtir: linsubaunir, kjúklingabaunir og baunir. –Rætur og hnýði: kartöflur og sætar kartöflur. Ráð WcRF um hvernig lífsstíll og hollt mataræði geta hjálpað til við að koma í veg fyrir krabbamein: n Vertu grannur og í góðu formi án þess að vera of léttur. n Stundaðu einhvers konar hreyfingu í að minnsta kosti 30 mínútur á dag. n Forðastu sykraða drykki. Minnkaðu neyslu á orkumiklum mat. n Borðaðu meira úrval af grænmeti, ávöxtum, heilkornavörum og belgjurtum, svo sem baunum. n Takmarkaðu neyslu á rauðu kjöti (svo sem nauta-, svína- og lambakjöti) og reyndu að sneiða hjá unnum matvælum. n Áfengi ætti að vera takmarkað við einn drykk á dag fyrir konur og tvo fyrir karl- menn. n Takmarkaðu neyslu á söltum mat og mat- vælum sem unnin eru með salti. n Fæðubótarefni hjálpa ekki í baráttunni við krabbamein. lágmarki erum við hvött til að velja skinnlaust kjöt. Villibráð svo sem kanínur, dádýr og hreindýr eru hollari kostur en kjöt af dýrum sem eru ræktuð til neyslu. Ekkert hefur verið sannað varðandi það að villibráð auki líkur á krabba- meini. Sumar rannsóknir sýna fram á einhverja tengingu á milli kalkmik- illa matvæla, svo sem mjólkur, og krabbameins á meðan aðrar sýna að slík matvæli séu góð vörn gegn krabbameini. WCRF gefur því engar ráðleggingar hvað varðar mjólkur- vörur. Það er þó mikilvægt að nefna að mjólkurvörur eru góð uppspretta ýmissa næringarefna sem hjálpa til við að halda líkamanum heilbrigð- um og þá sérstaklega beinunum. Þegar kemur að því að kaupa mjólk- urvörur ætti að velja fitulitlar vörur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.