Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 3
Fréttir | 3 Mánudagur 6. júní 2011 „Ég hef ekkert með þetta blessaða bankahrun að gera“ um sem forstjóri FL Group og Jón Sigurðsson myndi taka við.  Í apríl 2009 var félaginu, sem þá hét Stoðir, veitt heimild til nauðasamninga við lánadrottna félagsins. Hefur áður talað um aðild sína Afstaða Hannesar hefur ekki alltaf verið eindregið sú að hann hafi ekki komið nálægt hruninu á Íslandi. „Það væri í raun fáránlegt að skor- ast undan því að horfa í eigin barm og líta á þá hluti sem betur mættu fara,“ sagði Hannes í viðtali hjá Birni Inga Hrafnssyni í Markaðnum á Stöð 2 í nóvember 2008. Þar viðurkenndi hann einnig að menn hefðu átt að ganga rólegar til leiks heldur en gert var. Hann sagðist sjá eftir mjög mörgum ákvörðunum. Hann myndi óska þess að FL Group hefði stækk- að hægar á sínum tíma og að menn hefðu minnkað félagið hraðar þegar illa fór að ganga. Hannes var á meðal þeirra sem slitastjórn Glitnis stefndi fyrir rétt í New York fyrir að hafa rænt bank- ann innan frá. Málinu gegn Hann- esi og þeim Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni, Pálma Haraldssyni, Ingibjörgu Pálmadóttur, Lárusi Welding, Þor- steini M. Jónssyni, Jóni Sigurðssyni og PriceWaterhouseCoopers var að lokum vísað frá dómi í desember 2010 með þeim skilyrðum að þessir aðilar viðurkenndu lögsögu íslensks dómstóls í málinu. Einnig þurftu þeir að lýsa því yfir að því yrði ekki mót- mælt að dómur, sem kynni að falla í sambærilegu máli á Íslandi, yrði að- fararhæfur í New York. Slitastjórnin hafði farið fram á að sjömenning- arnir ásamt endurskoðunarskrifstof- unni myndu greiða 250 milljarða í skaðabætur. Slitastjórnin taldi gögn sem hún hafði undir höndum sýna fram á að Hannes hefði haft bein áhrif á lánveitingar Glitnis. Vænta má að slitastjórnin muni láta reyna á málið fyrir íslenskum dómstólum. Kyrrsetningin olli óþægindum „Þetta hefur haft ýmis konar óþæg- indi í för með sér fyrir mig. Þetta kallar á útskýringar bæði innan fjöl- skyldu minnar og utan hennar. Þar á meðal til aðila sem maður stundar viðskipti með,“ sagði Hannes í Hér- aðsdómi Reykjavíkur. Honum þykir kyrrsetningin hafa haft áhrif á líf sitt, bæði persónulega og í viðskiptum. Hannes sagði erfitt fyrir sig að sanna að kyrrsetningin hefði ekki átt rétt á sér. Hann telur líklegt að þetta líti öðruvísi út erlendis og þar taki menn slík mál alvarlega: „Erlendis er litið öðruvísi á svona aðgerðir.“ Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra rannsakaði viðskipti með danska flugfélagið Sterling á árun- um 2005 til 2006, en félagið gekk kaupum og sölum á milli FL Group og Fons. Heimildir DV herma að Hannes Smárason, sem var stjórn- arformaður FL Group árið 2005 hafi beðið undirmann sinn að stofna reikning hjá Kaupþingi í Lúxem- borg örfáum dögum áður en þrír milljarðar króna voru millifærðir af reikningi FL Group í Landsbank- anum til Lúxemborgar í apríl 2005. Millifærslan átti sér stað án vitn- eskju forstjóra félagsins. Það sem efnahagsbrotadeildin rannsakaði var hvort milljarða millifærslan hefði runnið úr FL Group til Fons til að fjármagna fimm milljarða kaup á Sterling. Á seinni hluta árs 2005 keypti FL Group Sterling hins vegar aftur af Fons fyrir 14,6 milljarða króna. Í desember 2008 keypti félagið Northern Travel Holding, sem FL Group og Fons áttu að stærstum hluta, Sterling aftur fyrir 20 millj- arða króna. Talið er að tilgangur Sterling-viðskiptanna hafi verið að búa til gríðarlegan hagnað á papp- írunum þrátt fyrir að verðmæti Sterling hafi ekki endurspeglast í kaupverðinu. Hugsanlegt er að eig- endur FL Group og Fons hafi inn- leyst mikinn hagnað persónulega af viðskiptunum. Það vakti töluverða athygli að þrátt fyrir að FL Group hafi sett Ís- landsmet í tapi upp á 67 millj- arða króna árið 2007, fékk Hannes Smárason 90 milljóna króna starfs- lokasamning þegar hann hætti sem forstjóri félagsins, að viðbættum 50 milljónum króna sem hann hafði hlotið í laun og árangurstengdar greiðslur á árinu. Hannes hætti í desember 2007. Skömmu fyrir þann tíma, eða í nóvember sama ár, sagði Hannes í viðtali á Stöð 2 að mikilla útrás- arverkefna væri að vænta hjá FL Group sem síðar fékk nafnið Stoð- ir. Hann var því mjög bjartsýnn á framtíð félagsins en Stoðir óskuðu eftir greiðslustöðvun í byrjun októ- ber árið 2008. -GRG Sterling-fléttan Hannes Smárason Var forstjóri FL Group. Hannes Smárason Er búsettur þessa dagana í Lúxemborg. „Þetta hefur haft ýmis konar óþæg- indi í för með sér fyrir mig. Þetta kallar á útskýring- ar bæði innan fjölskyldu minnar og utan hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.