Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Síða 8
8 | Fréttir 6. júní 2011 Mánudagur
Björgunarsveitarmenn gleymdust í sjónum fyrir utan Hvammstanga á sjómannadaginn:
Hélt að ég myndi deyja í sjónum
„Fyrst ætlaði ég bara að fara að synda
og var voðalega rólegur yfir þessu en
svo allt í einu kom upp panikkast og
ég vissi ekkert hvað ég átti að gera og
beið eftir að deyja,“ segir Ævar Smári
Marteinsson, meðlimur í björgunar-
sveitinni Húnum á Hvammstanga.
„Svo slakaði ég á og áttaði mig á hlut-
unum. Ég vissi það nú svo sem alveg
að þeir myndu á endanum koma aft-
ur.“
Ævar og félagi hans höfðu verið
að sýna björgunaræfingar úti á sjó
í tilefni sjómannadagsins en vegna
mistaka urðu þeir eftir í sjónum þeg-
ar bátarnir fóru í land. Þeir máttu því
gjöra svo vel að svamla í sjónum í
flotgöllum þangað til forsvarsmenn
björgunarsýningarinnar áttuðu sig á
því að þeir höfðu ekki komið með í
land aftur. Ævar og félagi hans voru
líklega í sjónum í um 40 mínútur.
Þeir voru staddir nokkrar mílur frá
landi, kalt var í veðri, töluvert rok og
sjávarhiti var um 4 til 5 gráður. Ævar
var mjög feginn þegar hann áttaði
sig á því að hann rak í átt að landi og
gat nýtt öldurnar til að auðvelda sér
sundtökin.
Það var honum einnig til happs
að hann var vel klæddur innan und-
ir flotgallanum og blotnaði mjög lít-
ið. „Ég náði að hita upp þann raka
sem kom inn í gallann jafnóðum.“
Það komst hins vegar meira vatn inn
í gallann hjá félaga hans og hann
kólnaði því mjög fljótt. „Hann var
of máttlaus til að hreyfa sig,“ segir
Ævar sem telur félaga sinn ekki hafa
átt langt eftir. „Hann hefði ekki enst
annan hálftíma.“
Ævar segir þetta þó allt hafa far-
ið vel að lokum. Félagi hans þurfti
aðhlynningu vegna kælingarinnar
en hann var allur að koma til þegar
blaðamaður ræddi við Ævar.
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
Góðir skór
Gott verð
St. 36-41
kr. 6.595
St. 36-41
kr. 5.895
St. 24-35
kr. .395
St. 41-46
kr. 6.795
Seðlabankinn sendi tryggingafélög-
unum Allianz, Sparnaði og Trygg-
ingamiðlun Íslands bréf á þriðju-
daginn þar sem óskað var eftir
upplýsingum um starfsemi þeirra
sem snýr að lífeyris- og trygginga-
sparnaði í gegnum erlend trygginga-
félög. Var bréfið sent í kjölfar þess
að Landssamtök lífeyrissjóða (LL)
höfðu sent fyrirspurn til Seðlabank-
ans þann 16. mars þar sem samtökin
kröfðust svara við því hvort Allianz,
Sparnaður og hugsanlega önnur fé-
lög hér á landi starfi samkvæmt und-
anþágu frá gjaldeyrishöftunum.
Staðfesta allir að hafa fengið
bréf
Þeir Eyjólfur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Allianz, Ingólfur H.
Ingólfsson, stjórnarformaður Sparn-
aðar og Friðbert Elí Friðbertsson,
framkvæmdastjóri Tryggingamiðl-
unar Íslands staðfestu allir í samtali
við DV að hafa borist bréf frá Seðla-
bankanum á þriðjudaginn. Félög
þeirra myndu í framhaldinu óska eft-
ir því að ræða málið við Seðlabank-
ann. Þremenningarnir ítrekuðu það
allir í samtali við DV að félög þeirra
hefðu verið í samskiptum við Seðla-
bankann eftir að gjaldeyrishöft-
in voru tekin upp. Bankinn hefði til
þessa ekki séð ástæðu til að setja út á
starfsemi þeirra.
Kvartað undan seinagangi
Seðlabankans
Landssamtök lífeyrissjóða sendu,
sem fyrr segir, Seðlabankanum fyrir-
spurn þann 16. mars þar sem sam-
tökin kröfðust þess að fá að vita hvort
að Allianz og Sparnaður hefðu fengið
undanþágu frá gjaldeyrishöftunum.
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna
kvartaði undan seinagangi Seðla-
bankans við að svara fyrirspurn sam-
takanna í samtali við RÚV í byrjun
maí. Þegar DV spurði Hrafn um mál-
ið sagðist hann ekki hafa heyrt af
því að Seðlabankinn væri búinn að
senda félögunum bréf. Hann sagðist
þó fagna því að Seðlabankinn væri
loks að verða við fyrirspurn samtak-
anna.
Margir flutt sparnað til þeirra
LL telja að ef tryggingafélögin Allianz
og Sparnaður hafi fengið undanþágu
frá gjaldeyrishöftunum sé það brot
á jafnræðis og samkeppnislögum.
Aðrir íslenskir lífeyrissjóðir og bank-
ar sem bjóða upp á lífeyrissparnað
hafa sem kunnugt er ekki getað fjár-
fest erlendis eftir að gjaldeyrishöftin
voru sett á. Þeim hefur einungis ver-
ið heimilt að eiga viðskipti með þær
eignir og fjármuni sem fjárfest var
í erlendis áður en gjaldeyrishöftin
voru sett á.
DV hefur heimildir fyrir því að ís-
lenskir lífeyrissjóðir og bankar sem
bjóða upp á viðbótarlífeyrissparnað
hafi verið mjög ósáttir við þau félög
sem hafi getað boðið viðskiptavinum
sínum upp á sparnað í erlendri mynt.
Talið er að þó nokkur fjöldi fólks hafi
flutt viðbótarlífeyrissparnað til Alli-
anz og Sparnaðar eftir bankahrun-
ið. Í frétt RÚV um málið í byrjun maí
kemur fram að samkvæmt bréfi sem
Hrafn Magnússon sendi til Seðla-
bankans komi fram að Allianz og
Sparnaður hafi gert sérstakt söluátak
um viðbótarlífeyrissparnað. Hafi sú
herferð leitt til þess að töluvert marg-
ir hafi fært viðbótarlífeyrissparnað
sinn frá íslenskum lífeyrissjóðum og
bönkum til Allianz og Sparnaðar.
Allianz býður upp á lífeyris-,
sjúkra-, líf- og barnatryggingar í
gegnum þýska félagið Allianz og
er stór hluti þeirra trygginga með
tryggða ákveðna lágmarksávöxtun í
evrum. Sparnaður býður upp á sér-
eignatryggingu í formi viðbótarlíf-
eyrissparnaðar í samstarfi við þýska
félagið Bayern-Versicherung með
ávöxtun í evrum. Tryggingamiðl-
un Íslands (TMI) býður upp á líf- og
söfnunartryggingar í gegnum breska
tryggingafélagið Friends Life. Einnig
býður TMI upp á ýmsar aðrar trygg-
ingar í samstarfi við innlend og er-
lend félög.
„DV hefur heimildir fyrir því að íslenskir lífeyris-
sjóðir og bankar sem bjóða upp á viðbótarlíf-
eyrissparnað hafi verið mjög ósáttir við þau félög sem
hafi getað boðið viðskiptavinum sínum upp á sparnað
í erlendri mynt.
n Bjóða viðbótarlífeyrissparnað í gegnum þýsk og bresk tryggingafélög n Íslenskir lífeyrissjóðir
og bankar ósáttir við að félögin komist framhjá gjaldeyrishöftunum nSeðlabankinn í málið
Fengu bréf Ingólfur H. Ingólfsson,
stjórnarformaður Sparnaðar, sagðist í sam-
tali við DV hafa fengið bréf frá Seðlabank-
anum þar sem óskað væri eftir upplýsingum
um starfsemina.
Sendu Seðlabankanum kvörtun
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri
Landssamtaka lífeyrissjóðanna, sendi Seðl-
bankanum fyrirspurn í mars þar sem óskað
var eftir upplýsingum um það hvort Allianz
og Sparnaður hefðu fengið undanþágu frá
gjaldeyrishöftunum.
Már Guðmundsson Seðlabankinn vill
fá svör um starfsemi þriggja trygginga-
félaga í gegnum erlend tryggingafélög.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Ólafur Ragnar Grímsson:
Leggst gegn
kvótakerfinu
„Skilyrði náttúrunnar og eiginleikar
mannlífsins eru vestra á þann veg að
blómlegur og arðbær sjávarútvegur á
að geta þrifist hér
betur en víðast
annars staðar.
Stjórnkerfi veiða
er vel sniðið þegar
það skapar arð og
umsvif í byggðum
sem liggja vel að
miðum og búa
ríkulega að kunn-
áttu í þessum
greinum,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, í ræðu sinni á
Patreksfirði á sunnudag. Ekki verður
annað skilið af ræðu forsetans en
hann sé beinlínis að tala gegn núver-
andi kvótakerfi á stað sem misst hefur
gríðarlegar veiðiheimildir til annarra.
Fjöldi útgerða hefur horfið af staðnum
og er það aðeins fiskiðjan Oddi sem
eitthvað kveður að. Íbúum Patreks-
fjarðar hefur fækkað á undanförnum
árum úr tæplega 1.200 í um 500. Það
var sá hópur sem forsetinn ávarpaði
á sunnudag og lýsti þá skoðun sinni
með afgerandi hætti.
„Vestfirðir eru prýðilegur próf-
steinn á kosti og galla sérhvers kerfis
fiskveiðistjórnunar. Sú skipan ein mun
reynast farsæl til lengdar sem stuðlar
að öflugum sjávarútvegi hér fyrir
vestan, vexti og viðgangi byggðanna,
styrkir búsetu og mannlíf í bæjarfélög-
um sem liggja vel við miðum og eru
rík að verkkunnáttu og fagmennsku
í sjávarútvegi, sjómennsku og fisk-
verkun. Því er málið í rauninni einfalt,
umræðan þarf hvorki að vera löng né
flókin. Hvernig mun Vestfjörðum og
öðrum sjávarbyggðum vegna í nýrri
skipan? Bendi svarið til verri stöðu
hefur smíði kerfisins líklega brugðist.
Slíkur er í raun kjarni málsins og vert
að árétta hann á sjómannadaginn,“
sagði Ólafur Ragnar á Patreksfirði.
SEÐLABANKINN
VILL FÁ SVÖR
Hætt kominn Ævar og félagi hans
gleymdust úti á sjó eftir björgunarsýningu á
Hvammstanga í tilefni sjómannadagsins.