Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Page 13
Fréttir | 13Mánudagur 6. júní 2011
Notar tóbak í
sjónvarpi þótt
KSÍ berjist
gegn því
Þrátt fyrir að Knattspyrnusam-
band Íslands hafi staðið í áberandi
ímyndarherferð gegn notkun nef-
og munntóbaks undanfarin misseri
létu Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-
landsliðsins í knattspyrnu, og Pét-
ur Pétursson, aðstoðarmaður hans,
það ekki stöðva sig í því að fá sér í
nefið á varamannabekknum í upp-
hafi landsleiks Íslands og Danmerk-
ur á laugardaginn. Svo óheppilega
vildi til fyrir þjálfarana að þeir voru
í beinni útsendingu á RÚV þegar
tóbakshornið gekk á milli þeirra.
Þórir Hákonarson sem stýrir aðild
KSÍ að tóbaksvarnaátakinu vildi ekk-
ert tjá sig um málið á þeim forsend-
um að hann væri ekki í vinnunni á
sunnudegi. Það vakti einnig athygli
að einn af þeim knattspyrnumönn-
um sem hefur tekið þátt í átakinu, Al-
freð Finnbogason, sat á varamanna-
bekknum við hlið þjálfaranna. Það
er því óhætt að segja að KSÍ sendi
út býsna misvísandi skilaboð um
tóbaksnotkun.
KSÍ þarf að berjast gegn
tóbaksnotkun
Svandís Svavarsdóttir, starfandi
menntamálaráðherra og þar með
ráðherra íþróttamála, segir aðspurð
um tóbaksnotkun landsliðsþjálfar-
anna fyrir framan alþjóð að hún sé
áminning um að ekki dugi að hafa
stefnu í orði heldur þurfi að fylgja
henni eftir í verki. „Það er verkefni
KSÍ að horfast í augu við það með
hvaða hætti sambandið ætlar að
sinna sinni baráttu gegn tóbaksnotk-
un, en þetta minnir okkur á hversu
mikilvægt það er að vera með stefnu-
mótun og sýna áherslurnar í verki. Í
þessum geira þarf góðar fyrirmyndir
og það er verkefni íþróttaforystunnar
að ákveða hvernig hún vinnur gegn
þessu,“ segir Svandís.
„Hringdu bara í mig á morgun“
Átaksverkefnið gegn munn- og nef-
tóbaksnotkun sem KSÍ er aðili að
ber yfirskriftina „Bagg er bögg“. Að
verkefninu koma einnig Jafningja-
fræðsla Hins hússins og Lýðheilsu-
stöð. Auk Alfreðs Finnbogasonar er
Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðs-
kona í fótbolta andlit átaksins. Meðal
þeirra sem stýra verkefninu er Þórir
Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ.
Hann var einn þeirra sem kom fram
á blaðamannafundi þegar átakinu
var hrint af stað og tjáði sig þá um
forvarnaátakið. Þegar DV hafði sam-
band við Þóri og bað hann um álit á
neftóbaksnotkun þjálfarans og sam-
starfsmanns hans, vildi hann ekkert
um hana segja: „Hringdu bara í mig
á morgun þegar ég er í vinnunni,“
sagði Þórir og var þá spurður hvort
hann vildi ekkert segja núna: „Nei,
ég tala ekkert um þetta núna, ég er
ekki í vinnunni, ég verð í vinnunni á
morgun.“
n Landsliðsþjálfari notar neftóbak í sjónvarpi á meðan KSÍ er í her-
ferð gegn því n Menntamálaráðherra segir ekki nóg að hafa stefnu
n Framkvæmdastjóri KSÍ tjáir sig ekki af því að það er sunnudagur
„Nei, ég tala ekkert um þetta núna, ég er ekki í
vinnunni, ég verð í vinnunni á morgun.
Ekki bara
í orði Íþrótta-
málaráðherr-
ann Svandís
Svavarsdóttir
segir ekki
nóg að hafa
stefnu heldur
þurfi líka að
framfylgja
henni.
Bagg er bögg Einn af landsliðsmönnum
Íslands í knattspyrnu tekur þátt í átaki KSÍ.
Þvert á stefnuna Ólafur landsliðsþjálfari er
greinilega ekki aðili að tóbaksvarnaátaki KSÍ.
VH ehf · Njarðarbraut 11 · 260 Reykjanesbæ · Sími 864-2400 · Sími í verslun 527-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
AF GÆÐUNUM
ÞEKKIÐ ÞIÐ PALLAEFNIÐ
FRÁ VÖLUNDARHÚSUM
VH
/
11
-0
5
Pallaefni, panill, girðinga-
efni, undirstöður, skrúfur
og festingar á frábæru
vor-tilboðsverði.
Sjá nánar á heimasíðu
www.volundarhus.is
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
Tilboð Gestahús 25 m²
kr. 1.689.000,- án fylgihluta
kr. 1.989.000,- með fylgihlutum
og byggingarnefndar teiknisetti.
31.5 m² kr. 2.149.000,- án fylgihluta
36.0 m² kr. 2.229.000,- án fylgihluta
39.0 m² kr. 2.499.000,- án fylgihluta
Sjá nánar á heimasíðu www.volundarhus.is
Garðhús og gestahús
í úrvali á frábæru verði
Sjá nánar á heimasíðu
www.volundarhus.is
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is