Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Page 17
Erlent | 17 Mánudagur 6. júní 2011
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Reykjanesbæ
Húsavík
Vestmannaeyjum
Stigar og tröppur
til allra verka
Áltrappa 5 þrep
5.990
Ath. margar stærðir
Áltrappa 4 þrep
4.990
Ath. margar stærðir
Álstigi 12 þrep 3.67 m
6.990
Álstigi 3x8 þrep
2.27-5.05 m
16.990 Álstigi/trappa 2x11 þrep
3.11-5.34 m
15.990
Multi-Function trappa
11.990
„Ef við verðum fyrir vefárás þarf það
ekki að þýða að við svörum með vef-
árás. Þegar kemur að gagnárás verða
allir möguleikar uppi á borðinu.“
Þetta sagði Dave Lapan, talsmað-
ur Pentagon, varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna. Starfsmenn Penta-
gon leggja nú nótt við dag til að klára
nýja viðbúnaðar- og aðgerðaáætl-
un við vefárásum (e. cyber-attacks).
Hernaðarsérfræðingar í Bandaríkj-
unum skilgreina nú vefárásir sem
eina mestu hernaðarógn sem fyrir-
finnst, þar sem samgöngukerfi, fjár-
málakerfi, orkukerfi, stjórnsýslan
– svo fátt eitt sé nefnt – er meira og
minna allt á vefnum. Bandaríkin
ætla sér því að áskilja sér rétt til að
beita öllum úrræðum til að koma í
veg fyrir vefárásir, eða refsa fyrir þær.
Í samræmi við fyrri yfirlýsingar
Sérfræðingar Pentagon hafa ályktað
að til séu um 100 starfandi leynisam-
tök sem hafa burði til að gera vefárás
á tölvukerfi innan Bandaríkjanna.
Einn sérfræðinganna sagði í við-
tali við tímaritið Wall Street Journ-
al á dögunum að ætli einhverjir að
gera vefárás á Bandaríkin, ættu hin-
ir sömu að vara sig. „Ykkur tekst ef til
vill að loka á orkukerfið okkar, en þá
sendum við ef til vill eldflaug niður
reykháfinn hjá ykkur.“ Er þessi yfir-
lýsing í samræmi fyrri yfirlýsingar
Bandaríkjastjórnar, en í síðasta mán-
uði var gefin út stefnuyfirlýsing af
Hvíta húsinu um veföryggi. Þar kom
fram að „Bandaríkin líta á vefárásir
sem hernaðarlega árás, rétt eins og
allar aðrar ógnir frá erlendum þjóð-
um. Við áskiljum okkur rétt til að
bregðast við með öllum úrræðum,
diplómatískum, óformlegum, hern-
aðarlegum eða efnahagslegum.“
Vefárásir hafa verið gerðar
Þessi mikla áhersla á veföryggi kem-
ur líklega í kjölfar tveggja árása sem
hafa verið gerðar á bandarísk fyrir-
tæki á undanförnum mánuðum. Þar
ber fyrst að telja árás sem gerð var
á samskiptanet PlayStation 3, hinar
vefvæddu leikjatölvur frá Sony. Um
70 milljónir voru tengdar við netið og
talið er að tölvuþrjótar hafi þar með
getað orðið sér út um mikið af pers-
ónulegum upplýsingum um notend-
ur, þar á meðal krítarkortanúmer.
Sony þurfti að loka fyrir samskipta-
netið um tíma.
Önnur árásin var af skondnari
toga. Tölvuþrjótar brutust þá inn á
heimasíðu sjónvarpsstöðvarinnar
PBS, sem skilgreinir sig sem óháðan
fréttamiðil í Bandaríkjunum. Þrjót-
arnir birtu þar frétt um að rapparinn
Tupac Shakur væri enn á lífi og hefði
það gott á Nýja-Sjálandi. Shakur var
sem kunnugt er myrtur árið 1996.
Hægara sagt en gert
Bandaríkin eru sannarlega ekki eina
ríkið í heiminum sem vinnur nú að
aðgerðaáætlun vegna vefógna. Jafn-
vel Ísland reynir nú að koma sér upp
slíkri áætlun. En þrátt fyrir að Banda-
ríkjamenn hóti mögulegum spell-
virkjum öllu illu, er það hægara sagt
en gert. Þegar kemur að vefárásum
er nefnilega næstum ómögulegt að
bera kennsl á óvininn. „Að rekja vef-
árás til einhvers sérstaks lands eða
samtaka er mjög erfitt og næstum
ógerlegt,“ segir Jón Kristinn Ragn-
arsson stjórnmálafræðingur sem
gerði meistaraverkefni í alþjóðasam-
skiptum um vefógnir og vefárásir.
„Tölvuþrjótar geta alltaf leynt upp-
runa árásarinnar, til dæmis með því
að nota vefþjóna sem geta komið allt
annars staðar frá. Í raun er hægt að
smita tölvur úti um allan heim af vír-
us, sem gerir síðan árás á einhvern
aðila – ríki eða samtök til dæmis –
frá öllum heimsálfum í einu. Ég held
að þetta sé ákveðin tilraun Banda-
ríkjanna til að fæla tölvuþrjóta frá
árásum en í raun aðeins orðin tóm.
Í stærstu vefárásum sem hafa verið
gerðar til þessa, eins og á Eistland
árið 2007 og Georgíu árið 2008, hefur
óvinurinn til að mynda aldrei fund-
ist.“
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, Pentagon, vinnur að viðbragðsáætlun vegna vefárása n Hóta
sprengjuárásum á tölvuþrjóta n Stjórnmálafræðingur segir nær ómögulegt að bera kennsl á óvininn
Vefárásum Verður sVarað af hörku
Jón Kristinn
Ragnarsson
Gerði meistara-
verkefni í
alþjóðasam-
skiptum um
vefógnir.
„Að rekja vefárás
til einhvers sér-
staks lands eða samtaka
er mjög erfitt og næstum
ógerlegt.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Ætla sér að svara af hörku Hernaðarsérfræðingar Pentagon hóta tölvuþrjótum öllu illu.
Sílemenn fá nú sinn skerf af ösku-
regni, ekki ólíku því sem Íslendingar
hafa þurft að upplifa undanfarin tvö
ár, fyrst eftir gosið í Eyjafjallajökli og
nú síðast í Grímsvötnum. Eldfjallið
Puyehue-Cordon Colle tók að gjósa
á laugardag, en það er í fyrsta sinn
sem eldfjallið gýs í 50 ár. Risavax-
ið öskuský myndaðist eftir gosið og
náði það rúmlega 10 kílómetra upp
í loftið. Askan úr gosinu var mikil og
þykk, svo mikil reyndar að stjórnvöld
sáu sig knúin til að skipa þúsundum
íbúa í nágrenni við eldfjallið að hypja
sig á brott. Ekki er ljóst hvenær þeir
geta snúið aftur til síns heima. Ask-
an úr Puyehue var þegar farin að
dreifast um stóran hluta landsins og
hafði einnig borist til nágrannaríkis-
ins Argentínu. Meðal helstu atvinnu-
greina í bæði Síle og Argentínu er
landbúnaður, þá sérstaklega vínrækt.
Vonast er til að askan muni hafa tak-
mörkuð áhrif á starfsemina.
Það er ekki bara öskuregn á Íslandi:
Eldgos í Síle
Þrumur og eldingar Það var mikið sjónarspil þegar Puyehue tók að gjósa.