Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 19
Umræða | 19 Mánudagur 6. júní 2011
Ætlar að
vinna HM
Annie Mist Þórisdóttir varð
Evrópumeistari í crossfit um helgina en
mótið fór fram í Bolton á Englandi:
Hver er konan?
„Annie Mist Þórisdóttir.“
Hvaðan ert þú?
„Ég er frá Vík í Mýrdal en bjó síðan lengi í
Kópavogi.“
Hvaða bók lastu síðast?
„Talent is overrated.“
Hvað er crossfit?
„Crossfit er íþrótt sem snýst um að maður
sé tilbúinn fyrir hvað sem er hvenær sem er.
Hún snýst um að verða alhliða íþróttamað-
ur, góður í lengri og styttri hlaupum, róðri,
sippi, fimi, tæknigreinum og ólympískum
lyftingum. Maður verður góður í bæði
stuttum og löngum æfingum.“
Hvers vegna valdir þú crossfit?
„Ég tók að gamni þátt í einu móti og vann
það svo ég fékk sæti á heimsmeistara-
mótinu þar sem ég lenti í öðru sæti. Ég hef
verið föst í crossfit síðan og féll strax fyrir
íþróttinni.“
Hvenær byrjaðir þú að æfa?
„Ég byrjaði fyrir tveimur árum. Ég var áður
í fimleikum, dansi, bootcamp og stangar-
stökki.“
Hvað æfir þú oft í viku?
„Ég æfi svona ellefu sinnum í viku en tek
einn aktívan hvíldardag þar sem ég kannski
skokka aðeins og teygi. Ég hef alltaf æft
mikið, æfði sex sinnum í viku, í fjóra tíma
í senn þegar ég var í fimleikum. Þegar ég
hætti þar fór ég að leita að einhverju til að
koma í staðinn. Bootcamp hjálpaði mér
mikið en crossfit var fullkomið fyrir mig. Mér
líður alltaf vel þegar ég æfi á fullu.“
Hvaða æfing finnst þér erfiðust?
„Hún heitir muscle up og hefur verið minn
akkilesarhæll lengi.“
Stefndir þú að sigri á þessu móti?
„Já, ég ætlaði að vinna það. Næst á dagskrá
er svo að vinna HM í sumar, það er mark-
miðið.“
Fékkstu mikla samkeppni?
„Það voru á bilinu 30 til 35 keppendur í
kvennaflokki. Þetta voru sex keppnir, þrír
dagar og tvær keppnir á dag, og ég vann
fimm þeirra. Í einni varð ég í öðru sæti. Þetta
var mjög öruggt.“
„Nei, ég ætla ekki, ég hef ekki efni á því.“
Tinna Sverrisdóttir
23 ára nemi í leiklist
„Nei, hvað er eiginlega Eagles?“
Ásrún Magnúsdóttir
22 ára dansari
„Nei, vegna þess að ég hef engan áhuga á
því.“
Anna Margrét Ólafsdóttir
19 ára nemandi í MR
„Nei, ég hef ekki efni á því – það er of dýrt.“
Kamilla María Gnarr Jónsdóttir
19 ára starfsmaður Hins hússins
„Nei, en mig langar mjög mikið en ég verð í
Bandaríkjunum á sama tíma.“
Salka Valsdóttir
16 ára nemandi
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Ætlar þú á tónleika Eagles?
Uggandi á svip Þeim fannst hann heldur ófrýnilegur beinhákarlinn, sem var til sýnis á sjómannadaginn
við Reykjavíkurhöfn. Fjölmargir lögðu leið sín niður á höfn til að fagna sjómannadeginum. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Myndin
Dómstóll götunnar
É
g stend úti á svölum í Montr
eal, reyki Gauloises og velti
því fyrir mér um hvað næsti
pistill í DV eigi að fjalla. Áður
en ég kemst að niðurstöðu leiði ég
hugann að sígarettunni á milli var
anna. Hvers vegna reyki ég enn? Ég
er orðinn 34 ára gamall. Varla þykir
mér þetta töff?
Hvers vegna byrjaði ég eiginlega
að reykja? Líklega einmitt vegna
þess að það var töff. Eldri krakkarn
ir í Austurbæjarskóla reyktu og vafa
laust var það gott fyrir félagslífið að
sjást standa með þeim úti í porti. Ég
er þó varla svo áhrifagjarn að ég hafi
gert eitthvað bara vegna þess að eldri
krakkarnir gerðu það? Eitthvað ann
að hlýtur að hafa komið til?
Halldór Laxness og hetjurnar
Og það gerði það líka. Allar rokk
stjörnur reyktu. Varla er tekin mynd
af rokkstjörnu öðruvísi en svo að
hetjan kveiki sér í sígarettu fyrst svo
hún sjáist örugglega á milli varanna.
Og þó að það sé ef til vill ómeðvit
að er boðskapurinn skýr: Ef maður
reykir verður maður eins og hetjurn
ar.
Þegar maður svo loksins vex upp
úr rokkstjörnudraumum og upp í rit
höfundardrauma er staðan sú sama,
allir helstu rithöfundar 20. aldar voru
sjaldnast myndaðir nema með sígar
ettu á milli vara eða fingra. Halldór
Laxness var lengi vel eini maðurinn
sem fékk að reykja pípu sína í sjón
varpssal. Ekki er staðan skárri ef við
færum okkur enn um set og yfir í
heimspekina. Frönsku heimspeking
arnir reyktu, hinir þýsku tóku í nefið
einni öld fyrr. Eða það hlýtur að vera.
Erfitt er að íhuga hinstu rök tilver
unnar tóbakslaus.
Tóbakið og snilligáfan
Verða menn snillingar við það eitt að
reykja? Og hvað er þá best að reykja?
Jim Morrison, John Lennon, George
Orwell og tilvistarheimspekingarn
ir Camus og Sartre reyktu Gaulois
es. Það hljóta að vera góð meðmæli,
þótt ég verði að viðurkenna að mér
finnst ég ekki vera átakanlega mik
ið greindari eftir að ég flutti til lands
sem selur þessa tilteknu tegund.
Töffararnir Humphrey Bogart og
James Dean reyktu Chesterfield. Það
hlýtur þá að gera mann töff. Ronald
Reagan reykti líka Chesterfield. Var
hann þá töff? Ótal minni spámenn
reykja Marlboro, sem er pínu töff en
setur menn varla í fremstu röð mik
ilmenna. Hvað á maður þá helst að
reykja? Ef aðeins James Bond hefði
getað ákveðið sig. Stundum reykir
hann Gauloises, stundum Chester
field, en helst af öllu lætur hann
sérpanta fyrir sig Morland Special
Blend. Hvar fær maður slíkt?
Bond er hættur að reykja í bíó,
þótt hann reyki enn sextíu á dag í
bókunum. Er nóg að nútímahetjur
hætti að reykja ef þær gömlu gera
það enn, eða er kannski nauðsynlegt
að fjarlægja reykingakaflana úr bók
unum?
Hvað myndi Bond gera?
Vafalaust hafa ótal unglingar byrjað
að reykja einmitt vegna þess að fyrir
myndir úr kvikmyndum, tónlist eða
jafnvel bókmenntum sjást helst ekki
öðruvísi en reykjandi. Fæstir þeirra
verða líkari hetjunum fyrir vikið og
sitja uppi með fíkn sem tekur áratugi
að losa sig við ef það tekst nokkurn
tímann, því fyrir flesta aðra en James
Bond er lítið töff að reykja eftir þrí
tugt. Margir merkir listamenn reykja,
en það er enginn sem verður merk
ur listamaður af því einu að reykja.
Ef svo væri myndi þessi pistill líklega
vera mun betur ortur en hann er.
Eigi að síður eru reykingar stað
reynd. Í raunveruleikanum reykja
milljónir manna víða um heim. Ef
við bönnum listunum að fjalla um
raunveruleikann erum við í vanda
stödd, því raunveruleikinn hagar sér
eins og hann vill. Bann gegn því að
sýna reykingar í kvikmyndum er því
ekki aðeins siðferðilega rangt, heldur
einnig líklegt til þess að snúast gegn
ætlun sinni. Því fleiri sem bönnin
eru, því meira töff er að virða þau að
vettugi. Og til hvers að reykja ef það
er ekki töff?
Baráttan við reykinn
Kjallari
Valur
Gunnarsson
1 Sigmar saklausForstjóri MasterCard kærði umfjöllun
Kastljóss en siðanefnd blaðmanna
komst að því að Sigmar væri saklaus.
2 Landsliðsþjálfararnir með nef-tóbak á bekknum í gær
Pétur og Ólafur réttu neftóbakshorn
á milli sín.
3 Guðbergur: Veit hvað skortur erSegist ekkert hafa við flugvöll að
gera.
4 Bogi eignast alnafnaSjónvarpsmaðurinn geðþekki Bogi
Ágústsson eignaðist á dögunum
alnafna.
5 Siv um reykingar: „Ég fiktaði áður fyrr“
Þingmaðurinn í yfirheyrslu um
tóbaksfrumvarpið.
6 Dólgar réðust inn á veitingastað í miðborginni
Voru vopnaðir að sögn lögreglu.
7 Eldgos hafið í ChileÞúsundir manna hafa þurft að yfir-
gefa heimili sín.
„Er nóg að nútíma-
hetjur hætti að
reykja ef þær gömlu gera
það enn eða er kannski
nauðsynlegt að fjarlægja
reykingakaflana úr bók-
unum?