Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 6. júní 2011 Mánudagur Fegurðarkóngurinn og hótelstjórinn Arnar Laufdal söðlar um: „Ég byrjaði hér 1. júní og líkar bara mjög vel. Ég er svona rétt að átta mig á umhverfinu ég er svo nýbyrj- aður en þetta lofar bara góðu,“ segir fegurðarkóngurinn og hótelstjór- inn Arnar Laufdal sem hefur marga fjöruna sopið í veitingabransanum. Hann hefur undanfarin ár verið kenndur við Broadway en hefur núna vent kvæði sínu í kross og er tekinn við stjórninni á Grand Hótel. Hvernig kom það til? „Húseigendur keyptu reksturinn á Broadway í lok febrúar. Ég var búinn að vera rúm- lega 10 ár á Broadway,“ segir hann óhræddur við breytingar og bætir við: „Ég hef alist upp í veitinga- bransanum, ég var í Hollywood og á Hótel Borg lengi. Ég lærði þjóninn á Hótel Borg. Þar steig ég fyrstu skref- in í bransanum. Eins og flestir vita hefur Arnar staðið fyrir keppninni um Ungfrú Ís- land í fjöldamörg ár. Mörgum finnst keppnin vera samofin Broadway og því forvitnilegt að vita hvort hún verði áfram haldin þar. Hann segir keppnina fylgja sér áfram en það séu engin plön komin um hvar hún verði haldin. „Ég verð áfram með Ungfrú Ísland. Keppnin getur verið hvar sem er, það er ekkert ákveðið með það. Það getur þess vegna verið á Broad- way eða Grand, það verður bara að koma í ljós,“ segir hinn nýi hótelstjóri Grand Hótel að lokum. Sá þykki Líkamsræktarfrömuðurinn Egill „Gillzen­ egger“ Einarsson hefur vakið athygli fyrir að setja sjálfan sig beran að ofan á forsíðu símaskrárinnar, sem nýlega kom út. Áhöld hafa verið um hvort myndin af þeim „Þykka“ sé ósvikin eða hvort myndvinnsluforrit hafi komið við sögu. Birgir R. Baldursson er grafískur hönnuður og söngvari. Hann þykir afar laginn við að setja hlutina í skoplegt samhengi og það gerði hann í þetta sinn. „Símaskráin 2011 með THYKKA er komin.. Ósóttar pantanir óskast SÓTTAR... :­)“ skrifaði hann á Facebook­síðu sína og birti meðfylgjandi mynd með. Þótt Alþingi hafi lent í öðru sæti í Hjólað í vinnuna í ár þá voru fáir þingmenn sem tóku þátt í átakinu en þeim mun fleiri starfsmenn Alþingis. Síðastliðin átta ár hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stað- ið að því að efla hreyfingu og starfs- anda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu Hjólað í vinnuna. Meginmarkmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsu- samlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngu- máta. Það vakti athygli að Alþingi lenti í öðru sæti í ár en þegar rýnt er í þátt- tökuna kemur í ljós að það eru ekki þingmenn og ráðherrar sem eiga hlut í árangrinum heldur aðrir starfsmenn Al- þingis. Aldrei hjólað í vinnuna Þing- maður Hreyf- ingar- innar Þór Saari er einn þeirra sem hefur aldrei hjól- að í vinnuna. „Ég bý úti á Álftanesi, það tekur meira en klukku- tíma að hjóla þessa leið,“ sagði þing- maðurinn og sagðist einfaldlega ekki hafa tíma eða orku í slíkt. Árni Johnsen sagðist heldur ekki hafa tíma til þess að hjóla. „Maður er eins og þeytispjald á milli funda, það væri nú frísk- andi að hjóla en ég sé ekki að ég hafi tíma til þess.“ Hefðum lent í fyrsta sæti Mörður Árnason fer alltaf á hjóli í vinnuna og segir þing- menn ekki eiga hlut í velgengni Alþingis í keppn- inni í ár. „Þetta er minn feill, ef ég hefði tek- ið þátt hefðum við lent í fyrsta sæti,“ segir hann og skellir upp úr. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokks, seg- ist hafa tekið þátt í keppninni í ár. „Ég hjólaði og var öflugur í þessu, en ég á svo gamalt hjól, keðjan slitnaði og svona. Ég þarf eiginlega að fá mér nýtt hjól.“ Fer aldrei á mótorhjólinu Siv Friðleifsdóttir er vanur mótor- hjólakappi og fer oft á hjóli í vinnuna. Hún var þó ekki með í átak- inu í ár. „Það var nú bara vegna þess að ég var erlendis, ég fer oft á hjól- inu í vinn- una. Aldrei á mótorhjól- inu,“ segir hún og hlær enda telst það ekki með. „Það er búið að vera í geymslu í svolítinn tíma.“ Katrín Júlíusdóttir tók ekki held- ur þátt. „Ég veit ekki um neinn sem tók þátt, nema þá helst Mörð. Hann er alger hetja og er á hjóli allt árið um kring. Ég var ekki skráð í keppnina í ár en er mjög oft á hjóli. Það er hins vegar ekki hægt að stóla á mig hvað keppnina varð- ar, ég hefði ekki gert nein- um greiða með því að taka þátt.“ n Alþingi lenti í 2. sæti í Hjólað í vinnuna en það er ekki þingmönnum og ráðherrum að þakka n Dræm þátttaka þingmanna n Mörður Árnason heldur orðspori þingmanna uppi og hjólar alla daga í vinnuna. „Þetta er minn feill, ef ég hefði tekið þátt hefðum við lent í fyrsta sæti. „Ég fer oft á hjólinu í vinnuna en aldrei á mótorhjólinu. Þingmenn nenna ekki að hjóla Fer ekki á mótor- hjólinu en oft á hjóli Siv Friðleifsdóttir stundar heilbrigðan lífsstíl og er dugleg að hjóla. Að bíða eftir strætó? Þór Saari segist ekki geta hjólað í vinnuna. Vegalengdin sé slík að það sé einfaldlega ekki mögulegt, en Þór á heima á Álftanesi. Enginn tími til að hjóla Árni Johnsen segist ekki hafa tíma til þess að hjóla, hann sé eins og þeytispjald á milli funda. Sjaldséð sjón Mörður er hér myndaður í bíl en það er víst sjaldséð sjón. Mörður er einn fárra þing­ manna sem er duglegur að hjóla í vinnuna. Ungfrú ÍSland á faraldSfæti? Eiginkona á Facebook „Glæpamenn og glæpaflokkar vaða uppi. Við höfum gert hrikaleg mis- tök með því að opna landið svona fyrir allskonar fólk að koma hingað inn og ekki verður aftur snúið [...] Ég vil saklausa Ísland aftur,“ stóð á Facebook-síðu útvarpsmannsins góðkunna Heimis Karlssonar í gær. Við stöðuuppfærsluna spannst mikil og hreinskiptin umræða um innflytj- endur og fordóma. Þegar umræðan stóð sem hæst birtist eftirfarandi leiðrétting frá eiginkonu Heimis. „Sorrý, það var ég Rúna Hjaltested Guðmundsdóttir sem skrifaði þetta og það fór óvart inn á síðuna hans Heimis. :) :):)“ Skömmu síðar var staðan og öll umræðan horfin. Mun- ið að logga ykkur alltaf út þegar þið hættið í tölvunni!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.