Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 13
Fréttir | 13Helgarblað 10.–14. júní 2011 Þegar heilsan er annars vegar þá skipta gæði tækisins mestu máli. Omron blóðþrýstingsmælar fá hæstu einkunn í klínískum rannsóknum og eru viðkenndir af ESH, BHS og WHO. Omron blóðþrýstingismælar fást í estum apótekum. Þjónustuaðili Omron á Íslandi s:512 2800 Blóðþrýstingsmælar „Ég á 176 krónur sænskar inni á bankabók,“ segir Teitur Atla­ son, bloggari og íslenskukenn­ ari í hlutastarfi í Svíþjóð, en þingmaðurinn fyrrverandi og at­ hafnamaðurinn Gunnlaugur M. Sigmundsson hefur stefnt honum fyrir meiðyrði. Teitur fór mikinn í bloggfærslu sinni á DV.is í febrúar og í mars barst honum bréf frá lög­ manni Gunnlaugs og eiginkonu Gunnlaugs, Sigríði Sigurbjörns­ dóttur. Gunnlaugur hafði ýmis­ legt við færslu Atla að athuga og urðu lyktir þær að hann höfðaði mál á hendur Teiti. Hjónin telja að færslan sé í heild sinni „stórkost­ lega móðgandi og meiðandi“ auk þess sem hún feli í sér brot gegn friðhelgi einkalífs þeirra. Þá sé hún uppfull af rangfærslum. Krefjast hjónin margra milljóna í skaða­ bætur. Teitur heldur fram sakleysi sínu og hefur heitið því að berjast með kjafti og klóm gegn kröfum hjónanna. Fjárhagslega gæti málið þó reynst honum dýrt, sérstaklega ef svo færi að hann biði lægri hlut í dómsal. Teitur hefur því brugðið á það ráð að hefja söfnun meðal lesenda sinna sem tekið hafa vel í hjálparbeiðni hans. Auðmaður gegn bloggara Sem fyrr segir er Teitur búsettur í Sví­ þjóð þar sem hann er í 70 prósent starfi sem íslenskukennari í Gauta­ borg þar sem hann býr ásamt fjöl­ skyldu sinni. Gunnlaugur og Sigríð­ ur krefja hann um 3 milljónir króna í miskabætur vegna hinna meintu meiðyrða. Þá krefjast þau að hann greiði 650 þúsund krónur til að standa straum af kostnaði á opin­ berri birtingu dóms í málinu tvívegis í tveimur dagblöðum og allan máls­ kostnað. Verði Teitur dæmdur sekur í þessu máli gæti hann þurft að reiða af hendi hátt í fimm milljónir króna. Þessi upphæð nemur rúmlega árs­ launum kennarans í Svíþjóð sem við­ urkennir fúslega að eiga sem nemur rétt rúmlega þrjú þúsund krónum á bankareikningi sínum. Auðveldlega má gefa sér að Gunnlaugi muni síður um kostnaðinn við málaferlin. Við­ skiptablaðið greindi frá því í ágúst í fyrra að hrein eign Gunnlaugs, það er eignir umfram skuldir, væri 370 milljónir samkvæmt útreikningum út frá greiddum auðlegðarskatti. Þá var hann með tæpar 2,7 milljónir í mánaðarlaun árið 2007 og tæplega 1,9 milljónir árið 2008 samkvæmt tekjublöðum Mannlífs. Gunnlaugur er því auðmaður. Tímamótastefna Þess eru dæmi að útrásarvíkingar og umsvifamiklir athafnamenn frá góð­ æristímanum hafi herjað á blaða­ menn með málsóknum fyrir að flytja fréttir af misjöfnum viðskiptagjörn­ ingum þeirra á árum áður. Ekki er þó vitað til þess að sterkefnaðir menn með langa sögu úr íslensku viðskipta­ lífi með viðkomu á þingi höfði mál á hendur óbreyttum borgara vegna bloggskrifa. Um tímamótamálshöfð­ un er því að ræða eftir því sem DV kemst næst. Teitur hefur lýst því yfir að skrif hans hafi að mestu ver­ ið byggð á grein Agnesar Braga­ dóttur í Morgun­ blaðinu frá maí 1998 sem vakti upphaflega at­ hygli á umdeild­ um viðskiptum í kringum Þróun­ arfélag Íslands og Kögun og að­ ild Gunnlaugs að þeim. Agnes hef­ ur að sögn Teits staðfest að eng­ ar athugasemdir hafi verið gerðar við greinina á þeim þrettán árum sem liðin eru frá birt­ ingu. Lögmaður hjónanna telur hins vegar að þó að annar fjölmiðill hafi áður fjallað um sömu málefni leysi það Teit ekki undan ábyrgð. Teitur fjarlægði færsluna um leið og honum barst upphafleg kvörtun frá Gunn­ laugi en skildi eftir brot úr umræddri grein Agnesar Bragadóttur. Ummæl­ in sem krafist er að dæmd verði dauð og ómerk voru að sögn Teits aðeins aðgengileg í nokkrar klukkustund­ ir og aðeins rúmlega 400 notendur smelltu á færsluna. Krafa hjónanna er hins vegar að miklu leyti byggð á því að DV.is sé þriðja stærsta vefsíða landsins og dreifing hinna meintu meiðyrða mikil. Krefst árslauna n Fátækum bloggara stefnt fyrir meiðyrði n Auðmaður krefst árslauna í skaða- bætur n Tímamótamál þar sem athafnamaður höfðar mál gegn bloggara„Hrein eign Gunnlaugs, það er eignir umfram skuldir, væri 370 milljónir. Um tímamótamálshöfðun er því að ræða. Ummælin sem stefnt er vegna: „Höfum í huga að fjölskylda hans á allan sinn auð undir pólitískum tengslum. Faðir Sigmundar var þingmaður í nokkra mánuði og kom sér þannig fyrir að hann hafði aðgang að innherjaupplýsingum sem vörðuðu fyrirtækið Kögun sem var ríkisfyrirtæki sem verið var að einkavæða. Sá lét konuna sína bjóða í fyrirtækið og vitandi að risa-samningur var fyrirliggjandi við Nató, var fjár- mögnun auðveld. Leikar fóru þannig að Gunnlaugur Sigmundsson (faðir Sigmundar Davíðs) eignaðist stóran hlut í Kögun og smám saman sölsaði hann undir sig allt fyrirtækið. Gunnlaugur varð millj- arðamæringur á nokkrum árum vegna þessa. Hann tapaði reyndar megninu af eigum sínum í braski með hlutabréf í Flugleiðum...“ ummælinSigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Allt undir Teitur Atlason ætlar að berjast í meiðyrðamálinu og verjast með kjafti og klóm. Misboðið Gunn- laugur M. Sigmunds- son krefur Teit um þrjár milljónir í skaðabætur vegna „stórkostlega móðg- andi og meiðandi“ bloggfærslu. Mynd: AlTHingi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.