Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 33
Viðtal | 33Helgarblað 10.–14. júní 2011 „Andstyggilegur heimur“ við erum að gera þá fyrir hönd okk‑ ar beggja. Það er meira stolt í því að ganga ekki í gildrur og fara að rífast við fólk sem á það ekki skilið að þú sért að tala við það eða eitthvað svo‑ leiðis því þú ert hérna fyrir hönd ykk‑ ar beggja. Þú hugsar aðeins öðruvísi um hlutina þegar þú gengur í lið með einhverjum sem þú berð svona ofsa‑ lega ást til og virðingu fyrir. Mér finnst stundum auðveldara að standa með sjálfri mér þegar ég stend eiginlega með okkur báðum. Vilja fá fleiri líf saman Aníta segir þetta þó ekki hafa verið ást við fyrstu sýn. Þau Dean kynnt‑ ust fyrir um þremur árum: „Þegar við horfum til baka þá er þetta svo sjálfsagt. Þá auðvitað var það ást við fyrstu sýn, þegar við kynntumst fyrst þá átti hvorugt okkar von á því. Vor‑ um ekki á leið í samband eða neitt þannig,“ segir hún dreymin og lýsir því svo hvernig hún hafi orðið ást‑ fangin: „Ég gat ekki hætt að horfa á hann og ég gat ekki hætt að vera ná‑ lægt honum. Eftir einhverja sex mán‑ uði þá áttaði ég mig á því að við vor‑ um búin að eyða rosalega miklum tíma saman.“ Upp frá því hófu þau ástarsamband sem stendur enn og Aníta er ástfangin upp fyrir haus. „Við erum bara svo sorgmædd yfir því að við fáum bara eitt líf. Við erum að reyna að fá það í gegn að fá fleiri. Við erum að tala við stóra manninn þarna uppi og biðja um fleiri líf,“ seg‑ ir hún og hlær. Þrá börn Þau Dean eiga sér háleit markmið í lífinu og stefna að því að fjölga í fjöl‑ skyldunni. „Um leið og við getum gert það einhvern veginn öðruvísi en í al‑ gjöru ábyrgðarleysi þá gerum við það. Við erum að reyna að gera þetta á eins ábyrgan hátt og við getum mið‑ að við þann heim sem við búum í. Við erum að reyna að byggja eins traustan grunn að því lífi áður en við förum að bæta fleirum við. Og bara njóta þess að vera tvö saman. Við erum ekk‑ ert smá ánægð með að vera gift og það er rosalega gaman hjá okkur. Við erum bara að byggja grunn fyrir fjöl‑ skyldu okkar og þetta verkefni sem ég er í núna er mjög stór hluti af því og markar kaflaskipti fyrir okkur,“ segir hún og er að tala um myndina sem þau Dean eru að vinna að saman. Vill meira frelsi Eins og áður sagði vill Aníta lítið gefa upp um verkefnið, segir að það sé enn hernaðarleyndarmál. Hún hef‑ ur samt mikla trú á verkefninu og er viss um að það muni breyta miklu fyrir þau. „Við vorum á Íslandi fyrir tveimur vikum síðan og vorum svo ‑heppin að rekast á Valdísi Óskars‑ dóttur sem er algjör snillingur og klippari á heimsmælikvarða og hún er komin í lið með okkur. Þetta er rosalega spennandi. Ég get sagt það í algjörri einlægni að þetta mark‑ ar ákveðin kaflaskil í lífi mínu,“ seg‑ ir Aníta en hún hefur lengt stefnt á þann stað sem hún er á í dag. „Manni þykir svo vænt um þessar litlu stund‑ ir þegar maður er búinn að sá sínum fræjum og síðan fer uppskeran loks‑ ins að koma í ljós.“ Hún stefnir á að geta ráðið tíma sínum meira sjálf og hafa meira ákvörðunarvald yfir þeim verkefnum sem hún tekur að sér. „Við höfum ákveðin markmið sem við viljum ná í lífinu. Málið er að ég er að reyna að byggja upp frelsi. Ég er að byggja upp lífið eins og brjálæðingur þannig að ég geti fengið meira frelsi. Þannig að ég geti ráðið meira sjálf. Til dæmis ef mér dytti í hug að gera mynd á Íslandi, þá gæti ég sagt „Ég ætla að koma til Íslands í fimm mán‑ uði eða við ætlum að taka upp mynd á grísku eyjunum í fimm mánuði,“ og gæti þá gert það,“ segir hún ákveðin. Verkefnin koma á annan hátt Hún segir þó margt hafa breyst frá því hún kom fyrst til kvikmyndaborgar‑ innar fyrir nokkrum árum síðan. „Á þessum tímapunkti er þetta miklu meira þannig að ég hitti leikstjóra eða leikara og ákveð að ég vilji vinna með þeim. Síðan kemur allt í einu verkefni og ég fæ símtal um að ég væri fullkom‑ in í þetta hlutverk. Þetta er miklu meiri samvinna og miklu skemmtilegra. Stundum er mjög sérstök tenging við ákveðið fólk en engin við annað. Þú sérð það í augunum á fólki ef það er einhver sérstök tenging. Síðan er al‑ veg stórkostleg tilfinning þegar rétta verkefnið kemur upp. Þetta er eins og þegar þú hefur verið skotin í einhverj‑ um strák lengi og ert búin að horfa á hann lengi og ímynda þér hvernig sé að kyssa hann og svo allt í einu er tím‑ inn kominn og þú færð fyrsta koss‑ inn,“ segir hún og skellir prakkaralega upp úr. „Þannig er þetta fyrir mér að fá að vinna með fólki sem kveikir í ein‑ hverju. Sem kveikir í ímyndunaraflinu, sem kveikir í einhverju sérstöku.“ Sárt að velja röng verkefni Hún tekur þó ekki hverju sem er og reynir að vanda valið þegar kemur að verkefnum. „Maður er alltaf að hafna einhverju. Stundum er það þannig að þetta snýst svo mikið um tilfinninguna, það er eitthvað við þetta. Stundum veit maður ekki alveg. Ef maður fer í vitlaust verk‑ efni – og ég hef svo sem alveg gert mín mistök í því að velja verkefni – þá er það svo ofsalega sárt þeg‑ ar maður velur ekki rétt verkefni. Þetta er svolítið eins og að vera í sambandi sem ætti aldrei að vera. Þegar tveir einstaklingar eru í sam‑ bandi en eiga engan veginn að vera saman, það er svoleiðis og maður fær svolítið illt í hjartað,“ segir Aníta og er ekki hrædd við að hafna ein‑ hverju sem eigi eftir að slá í gegn þegar hún velur sér verkefni. „Ef þetta eru verkefni með fólki sem mig dreymir um að vinna með eða fólki sem ég veit að ég hef tengingu við þá er mitt innsæi alltaf að láta reyna á það. Það er svo flókið ferli að búa til heila kvikmynd. Það eru svo margir sem koma að verkinu, það er svo ótrúlega margt sem þarf að gera til að það virki. Það þarf að vera frábært handrit, það þarf að vera leikstjóri sem hefur virkilega góða sýn á það sem hann vill gera. Sem er mjög sjaldgæft. Góðir leik‑ stjórar eru vandfundnir,“ segir hún alvörugefin. Hefur gert mistök Hún telur mikilvægt að ná góðu sam‑ bandi við fólkið sem hún vinnur með. „Það þarf að vera tenging á milli leik‑ aranna. Maður þarf vissulega að taka áhættu og taka sénsa. Að leyfa sér að verða ástfangin af fólki þegar maður er að gera kvikmyndir og leyfa sér að vera opin til að detta inn í eitthvað fallegt. Það er oft þannig að ef það eru nógu margir þættir sem eru sterkir þá trúir maður því að þetta geti verið eitthvað rétt. En þangað til þá lærir maður af öllum mistökum. Ég sé ekki eftir neinu því ég læri svo ótrúlega mikið af því að taka vitlausar ákvarðanir og fara ekki alltaf réttu brautirnar af því að þá veit ég það næst. Þá finn ég það bara í sál‑ inni. Maður þróar sína eðlishvöt, auð‑ vitað er þetta erfiðast fyrst því þú hefur ekki hugmynd um hvað þú ert að gera, þú þarft að læra þetta og þróa þessa til‑ finningu innra með þér en þegar til‑ finningin er orðin sterk þá veistu það. Það er svo mikið af fólki sem segir manni hvað maður á að gera sem er auðvitað verðmætt en maður lærir að hlusta á innsæi sitt þegar maður finn‑ ur eitthvað sérstakt með öðrum lista‑ manni. Á endanum er það það eina sem skiptir máli. Oft er það þannig að fallegustu hlutirnir í lífinu koma frá stöðum þar sem þú áttir aldrei von á þeim. Saknar fjölskyldunnar Aníta á líka fjölskyldu á Íslandi. Hún saknar ættingjanna sem hún er þó í góðu sambandi við. „Ég sakna fjöl‑ skyldunnar minnar alveg hræði‑ lega mikið. Að fá ekki að eiga þetta daglega líf með fjölskyldunni. Ég er ótrúlega heppin, ég á svo magnaða fjölskyldu. Ég á ömmur og afa sem eru alveg stórkostleg. Og mér finnst ótrúlega erfitt að hugsa til þess hvað það líður mikill tími án þess að ég sé hjá þeim. Mig langar til að vera meira hjá fólkinu sem mér þykir svo vænt um. Mig langar að gera það. Þau koma stundum, þau reyna að koma svona árlega. En svo reyni ég að fara eins mikið heim og ég mögulega get. Það er rosalega gott að komast aðeins, þótt það sé ekki nema vika í Mývatnssveit‑ inni þá er það algjör paradís,“ segir hún og leggur áherslu á það að um‑ fram allt sé hún Íslendingur. „Mín reynsla er sú að sama hvar ég er í heiminum og sama hversu mikið ég aðlagast öðrum samfélögum þá er ég alltaf Íslendingur í húð og hár. Rætur mínar eru á Íslandi og það að vera Íslendingur er rosalega stór hluti af því sem gerir mig að þeirri manneskju sem ég er. Ég er Íslend‑ ingur.“ viktoria@dv.is Óvænt ást Ástin er svo sterk að þau eru sorgmædd yfir að hafa bara eitt líf saman. Fyrir tilviljun í Hollywood Anita Briem lærði leiklist í London þar sem hún ætlaði að vera. Síðan fékk hún símtal sem breytti öllu. „Ég verð að trúa því eftir að hafa gengið í gegnum alla þessa hluti að það sé tilgangur með þessu og að ég eigi að gera eitthvað. Ég stend á mínu og tel að ég eigi heima hérna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.