Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 55
„LitLu“ strákarnir kLárir í sLaginn Sport | 55Helgarblað 10.–14. júní 2011 1 Hvaða skýringar hefur þú á tapinu gegn Danmörku? „Mér fannst leikurinn vera í ágætis jafn- vægi fram að marki Dananna. Mörk breyta leikjum og það gerði það svo sannarlega í þessum leik. Mér fannst við ekki líklegir eft- ir að við fengum á okkur fyrra markið, enda Danir meistarar í að halda boltanum innan liðsins.“ 2 Varstu ánægður með eitthvað í leik liðsins? „Já, mjög ánægður með hugarfar leik- manna og baráttu. Við vissum að fyrstu tíu mínúturnar myndu Danir pressa okkur hátt en við brugðumst vel við því og unn- um okkur inn í leikinn , sérstaklega seinni hluta fyrri hálfleiks. Einnig komu fínir kaflar í seinni hálfleik.“ 3 Varstu ósáttur við eitthvað í leik liðs-ins? „Mér fannst við ekki skapa nóg af færum. Ekki nógu kaldir að spila boltanum á milli okkar. Svo hefðum við átt að verjast betur í báðum mörkunum.“ 4 Eitt stig eftir fimm leiki – hverju er um að kenna? „Það er erfitt að finna eina ástæðu. Fyrst og fremst erum við með mjög sterkum þjóð- um í riðli, þjóðum sem eru betri en við. Við erum með marga unga leikmenn sem hafa ekki mikla reynslu með A- landsliði. Einnig verð ég að segja að hlutirnir hafa ekki fallið með okkur, t.d. gegn Dönum á Parken eða Norðmönnum hér heima. Svo er það nú þannig að í okkar riðli eru einungis 5 lið, venjulega eru þau sex og þess vegna ekkert lið sem er neðar en við á styrkleikalistanum, sem annars hefði verið.“ 5 Lýgur stigataflan?„Nei, hún lýgur ekki.“ 6 Hvaða markmið settir þú liðinu fyrir mótið? „Við settum okkur það markmið að hækka okkur um styrkleikaflokk og einn- ig settum við okkur langtímamarkmið. Svo setja menn sér markmið fyrir hvern ein- stakan leik. Langtímamarkmiðið er að eiga lið sem ætti raunverulegan möguleika á að komast í úrslitakeppni EM þegar fjölgað verður úr 16 liðum í 24, árið 2016.“ 7 FH-liðið undir þinni stjórn var þekkt fyrir góðan sóknarleik og að láta boltann ganga á milli manna. Ef marka má síðasta leik landsliðsins virtist leik- skipulagið ganga út á langa bolta úr vörn á fremsta mann. Hver er ástæðan fyrir þessu? „Ég er nú ekki sammála því og þeir sem þekkja mínar áherslur í fótbolta, vita að þannig legg ég leiki ekki upp.“ 8 Hvort þarf að breyta um taktík eða skipta út leikmönnum? „Ég tel leikaðferð liðsins góða og ég vel þá leikmenn sem ég tel besta og henta lið- inu á hverjum tíma.“ 9 Þú kaust að velja ekki Eið Smára í nokkrum leikjum vegna slæms leik- forms en valdir á sama tíma leikmenn úr efstu deild hér heima, sem komin var í frí. Hvernig skýrirðu það? „Ég veit ekki nákvæmlega hvaða leiki þú ert að tala um. Ég hef aldrei valið leikmann sem ég taldi ekki tilbúinn að spila.“ 10 Á Ísland nógu góða leikmenn til að valda usla í svona riðli? „Já, tvímælalaust.“ 11 Finnst þér gagnrýnin gegn þér og liðinu réttmæt? „Já og nei, menn hafa talað um vonbrigði með úrslit, en kannski ekki með spila- mennsku liðsins, jafnvel talað um framfarir.“ 12 Tekurðu hana nærri þér?„Já, hún skiptir mig máli.“ 13 Hefur þú trú á að þú náir að snúa við genginu? „Já, ég geri það.“ 14 Hefur þú íhugað að segja þig frá verkefninu? „Nei, ég mun klára minn samning.“ 15 Í beinni útsendingu frá síðasta leik sást þú fá þér í nefið. Er það ásætt- anlegt í ljósi stöðu þinnar og átaks KSÍ gegn tóbaksnotkun? „Nei, það er óásættanlegt og ég harma að það hafi gerst. Það mun ekki koma fyrir aftur.“ 16 Hvers vegna gekkst þú út af blaða-mannafundi þegar þú varst spurð- ur um stöðu þína sem landsliðsþjálfari, eftir leikinn um helgina? „Ég var að sjálfsögðu fúll og pirraður yfir að hafa tapað leiknum og brást rangt við. En ég var nú fljótur að jafna mig og veitti öllum fjölmiðlum viðtal, líka þeim dönsku.“ 17 Ertu bjartsýnn á framhaldið í riðl-inum? „Já, ég er það.“ 18 Munt þú sækjast eftir því að stýra liðinu áfram, eftir þessa undan- keppni? „Það kemur bara í ljós.“ 19 Kemur það niður á landsliðinu að eiga ekki betri heimavöll, með til- liti til stemningar og þess að stór hlaupa- braut umlykur völlinn? „Góð stemning skilar sér alltaf inn á völl- inn, því nær sem áhorfendur eru, því betra.“ 20 Kæmi til greina af þinni hálfu að spila mótsleiki t.d. í Kaplakrika eða á minni velli? „Það er bara þannig að Laugardalsvöll- urinn er sá eini hér á landi sem uppfyllir skilyrði UEFA fyrir mótsleiki landsliða.“ n Landsliðsþjálfarinn telur leikaðferð íslenska liðsins góða n Hann segir að gagnrýnin skipti sig máli n Stefnuna ætti að taka á EM 2016 n Harmar að hafa neytt tóbaks í beinni útsendingu Yfirheyrsla Sport Ól fur i r st Bjartsýnn á fram- haldið Ólafur telur að hann geti snúið gengi liðsins við. Ísland leikur úrslitaleik við Austurríki á sunnudaginn: Lykillinn að stoppa Szilagyi „Við erum nokkuð góðir. Það meiddist enginn og menn eru nokk- uð brattir,“ segir Óskar Bjarni Ósk- arsson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik. Á sunnudaginn leikur Ísland úrslitaleik við harðsnúið lið Austurríkis í Laug- ardalshöll um það hvort liðið fylgir Þýskalandi á EM í handbolta í Serbíu á næsta ári. Íslendingar og Austurríkismenn hafa eldað grátt silfur saman á und- anförnum árum. Af síðustu fjórum leikjum hafa Austurríkismenn unnið tvo, einum leik lauk með jafntefli en Ísland vann þann síðasta, sem var á HM í janúar. Leikstjórnendur liðs- ins, Snorri Steinn Guðjónsson og Aron Pálmarsson, gátu ekki tekið þátt í sigurleikn- um gegn Lettum á miðvikudaginn vegna meiðsla í baki. Óskar Bjarni segir óvíst um þátttöku þeirra í leiknum á sunnudag. Hann seg- ir hins vegar að leik- stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar og Arnórs Atla- sonar hafi gef- ist ágætlega í leiknum við Letta og þar hafi ýmsir mögu- leikar opnast. Spurður hvað þurfi til að leggja Austurríki að velli segir Óskar Bjarni að íslenska vörnin þurfi að vera jafngóð og hún var í fyrri hálfleik gegn Lettum. „Lykillinn að vörninni er að stoppa Viktor Szilagyi, sem er þeirra besti leikmað- ur. Við þurfum svo að keyra vel í bak- ið á þeim. Þeir eru ann- ars orðnir mjög framsæknir í vörninni og við þurfum að finna glufur á vörn þeirra.“ Vinna við að klippa leik Aust- urríkis og Þýskalands, sem fór fram á miðvikudaginn, hófst strax eftir leik- inn. Óskar Bjarni segir að áherslurn- ar í sókninni verði aðrar en í leikn- um gegn Lettum, en að íslenska liðið muni að mestu halda sig við skipu- lagið í vörninni. Hann segir tilhlökkun í hópnum fyrir leiknum. „Þetta er auðvitað úr- slitaleikur og það er góð stemning.“ Enginn meiddur Óskar Bjarni segir tilhlökkun í íslenska hópnum. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Lék vel í Lettlandi Guðjón Valur Sigurðsson stýrði íslensku sókninni vel í síðasta leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.