Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 29
Erlent | 29Helgarblað 10.–14. júní 2011
Cafe Catalina n Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is
Um helgina
Dansleikir með
Hljómsveitinni
SÍN
dv
e
h
f.
Rauðspretta með kartöflum og
rækjusmjöri
Orlý-steikt ýsa með frönskum o
g salati
BBQ svínarif með frönskum og
salati
Auk sívinsælu hamborgaranna
Boltinn er
alltaf í Beinni
hljómsveitin Sín
Spilar föstudags-
og laugardagskvöld
„Við höfum fengið upplýsingar sem
benda til þess að Gaddafi hafi sjálfur
skipað mönnum sínum að nauðga,
og þær upplýsingar eru nýjar af
nálinni.“ Þetta segir Luis Moreno-
Ocampo, saksóknari hjá Alþjóða-
glæpadómstólnum í Haag. Moreno-
Ocampo iðar greinilega í skinninu
af löngun til að sækja Muammar
al-Gaddafi, leiðtoga Líbíu, til saka
– og skal engan undra, reynist þess-
ar ásakanir á rökum reistar. Mo-
reno-Ocampo fullyrðir að Gaddafi
hafi látið útdeila stinningarlyfjum í
ætt við Viagra, til að auðvelda her-
mönnum sínum að fremja þessa
grimmdarlegu stríðsglæpi. „Þeir létu
senda gáma, fulla af lyfjum sem var
útdeilt til hermanna,“ segir Moreno-
Ocampo. „Við höfðum efasemdir um
réttmæti þessara upplýsinga í fyrstu,
en nú erum við algerlega viss í okkar
sök.“
Talið er að nefnd dómara í Haag
muni taka ákvörðun um það á allra
næstu dögum hvort heimild verði
veitt til þess að sækja Gaddafi til
saka fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn
mannkyni.
Iman al-Obeidi
Mörgum er enn í fersku minni þegar
myndir voru birtar af líbískri konu,
Iman al-Obeidi, sem ruddist inn á
hótel blaða- og fréttamanna í Trí-
pólí þar sem hún var augljóslega í
miklu tilfinningalegu áfalli. Obeidi
sakaði hermenn Gaddafis um að
hafa nauðgað sér og náðust ásakanir
hennar á myndband og var um leið
sjónvarpað um allan heim. Skömmu
síðar komu útsendarar Gaddafis og
tóku Obeidi föstum tökum og leiddu
hana á brott. Þetta gerðist þann 26.
mars síðastliðinn en eftir að hún var
leidd á brott heyrðist lítið sem ekkert
um afdrif hennar um nokkurra daga
skeið.
Það var svo þann 4. apríl sem
Anderson Cooper, hinn víðfrægi
fréttamaður CNN, fékk símtal frá
konu sem kynnti sig sem Iman al-
Obeidi. Sagði hún í símtalinu að
hún hefði hlotið vægast sagt slæma
meðferð frá útsendurum Gaddafis –
hendur hennar hefðu verið bundnar
saman með reipi og jafnframt fætur
hennar. Hún hefði verið lamin ítrek-
að, þar af einu sinni úti á miðri götu.
Hreinum vínanda hefði verið hellt
í augu hennar svo hún gæti ekkert
séð, og ekki borið kennsl á ofbeldis-
mennina.
Henni var síðan sleppt, en kvaðst
finna til ótta allar götur síðan.
Neydd til að draga vitnisburð
til baka
Fyrst um sinn sögðu talsmenn rík-
isstjórnar Gaddafis að Obeidi hefði
verið ölvuð og væri mögulega veik á
geði. Síðar var það dregið til baka og
var gefin út yfirlýsing þess efnis, að
Obeidi hefði einfaldlega þegið lög-
fræði- og læknisaðstoð. Þetta stang-
aðist á við frásögn Obeidi og systur
hennar. Sögðu þær báðar að Obeidi
hefði vissulega verið beitt ofbeldi,
með það að markmiði að hún drægi
vitnisburð sinn til baka. Obeidi var
ekki fús til þess.
Clinton setti sig í málið
Obeidi tókst loks að flýja frá Líbíu,
fyrst til Túnis þann 8. maí síðastlið-
inn. Henni var síðan boðið pólitískt
hæli í Katar, en var síðan send það-
an aftur til Líbíu – til borgarinnar
Bengazi, þar sem helsta vígi upp-
reisnarmanna er. Obeidi vildi hins
vegar flýja og gat ekki hugsað sér
að búa áfram í Líbíu. Mál hennar
barst loks Hillary Clinton, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, til eyrna
og beitti hún sér sérstaklega fyrir
því að Obeidi fengi pólitískt hæli í
Bandaríkjunum – sem hún og fékk,
5. júní síðastliðinn.
Gaddafi fyrirskipaði
nauðGanir
n Yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag
segist vera viss um sök Gaddafis n Lét flytja inn heilu
gámana af stinningarlyfjum til að auðvelda her-
mönnum nauðgun n Iman al-Obeidi, vakti heimsat-
hygli í lok mars, fékk pólitískt hæli í Bandaríkjunum
Luis Moreno-Ocampo Yfirsaksóknari
Alþjóðaglæpadómstólsins vill sækja
Gaddafi til saka.
Iman al-Obeidi Vakti heimsat-
hygli þegar hún sakaði hermenn
Gaddafis um nauðgun.