Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 20
20 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað 103 ára sögu Sparisjóðs Keflavíkur lauk endanlega í mars á þessu ári þegar SpKef var rennt inn í Lands- banka Íslands. SpKef hafði verið stofnaður tíu mánuðum fyrr utan um starfsemi sparisjóðsins. Á und- anförnum mánuðum hefur ýmis- legt komið í ljós sem hefur varp- að betra ljósi á starfsemi sjóðsins. Í skýrslu frá Fjármálaeftirlitinu um starfsemi sparisjóðsins á árunum fyrir hrunið 2008 er sett fram marg- vísleg gagnrýni á starfsemi sjóðsins, meðal annars má þar nefna fráleitt verðmat sjóðsins á eignum sínum, lán til venslaðra aðila, vafasamar af- skriftir og sérkennilega útlánastefnu. DV hefur skýrsluna, sem er frá því í september 2008, undir höndum og er hún ekkert annað en áfellisdómur yfir rekstri sparisjóðsins. Þegar kröfuhafar sjóðsins náðu samkomulagi við slitastjórnina í nóvember 2010 kom í ljós að kröfu- hafar myndu fá greiddar 300 milljón- ir í fullnaðaruppgjöri vegna yfirtöku sjóðsins. Sparisjóðurinn hafði í lok árs 2008 metið eignir sínar á 98 millj- arða á meðan innstæður voru um 55 milljarðar. Í drögum að ársreikningi fyrir 2009 voru eignirnar metnar á 89 milljarða á meðan innstæðurnar námu um 63 milljörðum. Innstæð- urnar voru að fullu tryggðar af ís- lenska ríkinu og því ljóst að á innan við tveimur árum voru kröfuhafar tilbúnir að gefa nánast allt sitt eftir gegn því að innstæðurnar yrðu tekn- ar yfir. Ekki var vilji á meðal kröfu- hafa til að endurfjármagna sjóðinn enda ljóst að sú endurfjármögnun myndi hlaupa á tugum milljarða. Verðmat kröfuhafa sýndi að útlán sparisjóðsins hefðu verið sérstaklega slæm og að eignir hefðu verið metn- ar langt yfir raunvirði. Síðar kom í ljós að kröfuhafar samþykktu ekki fullnaðaruppgjörið og því yrði spari- sjóðurinn tekinn til gjaldþrotaskipta á næstunni. Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Keflavíkur töpuðu bæði upphaflegu stofnfé og því fé sem þeir höfðu lagt inn eða fengið lánað fyrir í stofnfjár- aukningu sjóðsins í lok árs 2007. Eftir hrun sjóðsins stofnuðu stofnfjáreig- endur samtök til að vinna að hags- munum sínum í málinu en þeir telja að ljóst að stofnfjáreigendur hefðu verið blekktir þegar stofnfjáraukn- ingin átti sér stað. Ljóst er að nokkr- ir lykilmenn áttu stóran þátt í falli Sparisjóðs Keflavíkur, bæði í ákvörð- unartöku sjóðsins en einnig vegna þeirra lánafyrirgreiðslna sem þeir nutu af hálfu sjóðsins. Samkvæmt heimildum DV er óhætt að fullyrða að innan sparisjóðsins var farið ansi frjálslega með það fé sem hann hafði til ráðstöfunar. Sinnti ekki skyldum sínum Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur og fyrrverandi formaður bankaráðs Icebank, síðar Sparisjóðabankans, hóf störf hjá Sparisjóð Keflavíkur árið 1965. Geirmundur vann sig upp í sparisjóðnum og varð aðstoðar- sparisjóðsstjóri árið 1974 þegar þeir Tómas Tómasson og Páll Jónsson voru ráðnir í stöður sparisjóðsstjóra. Þegar Tómas lét af störfum árið 1993 færðist Geirmundur upp stigann og tók við stöðu sparisjóðsstjóra við hlið Páls. Þegar Páll lét af störfum árið 1998 sá Geirmundur einn um stjórn sjóðsins. „Sparisjóðurinn í Keflavík heldur sjó í því ölduróti sem íslenska banka- kerfið er í og engar meiriháttar breyt- ingar eru fyrirhugaðar á starfsem- inni,“ sagði Geirmundur í október 2008 við Víkurfréttir. Mánuði áður hafði Fjármálaeftirlitið gert alvarleg- ar athugasemdir við stjórn og starf- semi sjóðsins. Eftirlitið gerði 58 at- hugasemdir við stjórn sjóðsins og þar af voru 54 sem sjóðurinn þurfti að bregðast við þegar í stað að mati eft- irlitsins. Stefna, lánareglur og skipu- lag voru „ófullnægjandi“ samkvæmt Fjármálaeftirlitinu en það var lægsta mögulega einkunn sem eftirlitið gat gefið þessum þáttum í stjórn spari- sjóðsins. Samkvæmt því var eftirlit og skýrslugjöf innan sparisjóðsins einn- ig ófullnægjandi. Útlánastefna hans var undarleg að mörgu leyti enda gerði Fjármálaeftirlitið margvíslegar athugasemdir við hana. Geirmundur var með stjórn sjóðsins að mestu í sínum höndum að mati Fjármálaeftirlitsins í sept- ember 2008. Geirmundur hafði völd til að veita lán fyrir hönd bankans en engin sérstök mörk höfðu verið sett vegna heimilda hans til útlána í reglum sjóðsins. Eftir því sem fram kom í skýrslu eftirlitsins um sjóðinn í september 2008 skilaði Geirmundur ekki tölulegu yfirliti yfir fyrirgreiðslur, skuldbindingar og tryggingar til stjórnar sjóðsins eins og hann átti að gera. Hann sinnti heldur ekki þeirri skyldu að gefa stjórninni yfirlit yfir heildarvanskil tvisvar á ári. Afskriftir sonarins Sverrir H. Geirmundarson, son- ur sparisjóðsstjórans fyrrverandi í Keflavík, var í forsvari fyrir og eigandi einkahlutafélagsins Fossvogshyljar ehf. RÚV greindi frá því í febrúar á þessu ári að tæplega 700 milljóna króna skuld félagsins hefði verið af- skrifuð skömmu áður en sparisjóð- urinn var tekinn yfir af ríkinu. Þá hafði sparisjóðurinn verið búinn að taka félagið yfir og Sverrir búinn að tilkynna úrsögn sína úr félaginu. For- saga málsins er sú að sparisjóðurinn lánaði Fossvogshyl fjármunina til að kaupa stofnfjárbréf í sparisjóðnum í Keflavík, í Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfjarða. Þetta á að hafa verið gert til að koma í veg fyrir að bréfin þynntust út í sam- runa sjóðanna og til að forða spari- sjóðnum frá því að fara undir lög- bundið eiginfjárhlutfall. Sverrir var í persónulegri skuld upp á 57 milljónir við Sparisjóð Keflavíkur í september 2008 sam- kvæmt skýrslu Fjármálaeftirlitsins. Lánið var með veði í íbúð í Reykjavík að andvirði 16,75 milljóna. Eftir því sem fram kom í frétt RÚV afskrifaði faðir Sverris skuld hans upp á um 50 milljónir rétt áður en ríkið tók sjóð- inn yfir. Líklega er um sama lán að ræða. Stjórnarformaður í skuldum Þorsteinn Erlingsson, fyrrverandi stjórnarformaður Sparisjóðs Kefla- víkur og bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, er eigandi útgerðarfyrirtækisins Salt- vers í Keflavík. Í gegnum Saltver á Þorsteinn einnig 15 prósenta hlut í Fiskmarkaði Suðurnesja, þar sem Þorsteinn er varaformaður stjórnar. Fiskmarkaðurinn skuldaði Sparisjóði Keflavíkur 881 milljón og er það lán á lista yfir vafasamar lánveitingar sem Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við í eignasafni sparisjóðsins í sept- ember 2008. Tryggingar vegna láns- ins voru stofnfjárbréf í sparisjóðnum og fyrirtækið Umbúðamiðlun. Sam- kvæmt upplýsingum sem DV hefur undir höndum taldi Fjármálaeftirlit- ið tryggingar vegna lánsins einungis duga fyrir 77 prósentum af láninu. Veðin voru talin vera virði tæpra 675 milljóna króna. Saltver var einnig hluthafi í fé- laginu Suðurnesjamönnum. Fé- lagið var tekið til gjaldþrotaskipta í mars 2009. Kröfur upp á 2,1 milljarð voru gerðar í búið af hálfu Spari- sjóðabankans en sáralitlar eign- ir voru í búinu þegar það var gert upp og hljóðaði því gjaldþrotið upp á rúma tvo milljarða. Suðurnesja- menn, ásamt tengdum félögum, skuldaði rúmlega fimm milljarða í íslenska bankakerfinu samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþing- is. SM 1 ehf. var í eigu Suðurnesja- manna en það skuldaði sparisjóðn- um tæpa 371 milljón í september 2008. Lánið var með 2. veðrétt í bréf- um í Icebank sem Fjármálaeftirlitið taldi á þeim tíma verðlaus. Í rann- sóknarskýrslu Alþingis kom fram að SM 1 ehf. skuldaði einnig Spron og Icebank rúma tvo milljarða króna. Skuldsetti Bláa lónið Grímur Sæmundsen, sem er vara- formaður Samtaka atvinnulífsins, hefur rekið Bláa lónið um árabil og er forstjóri og einn af eigendum fyr- irtækisins. Félög tengd Grími skuld- uðu sparisjóðnum í Keflavík á ann- an milljarð króna í september 2008. Lítil eða engin veð voru að baki lánunum samkvæmt skýrslu Fjár- málaeftirlitsins um sparisjóðinn. Í skýrslunni kom fram að félög tengd Bláa lóninu voru ein helsta áhættu- skuldbinding sjóðsins. Samtals var um að ræða fyrirgreiðslu fyrir rúm- an 2,1 milljarð til Bláa lónsins hf. og Hvatningar hf. en fyrirgreiðslan nam 14,24 prósentum af eiginfjárgrunni sparisjóðsins. Félagið Hvatning hf., sem Grímur var stærsti eigandinn í, skuldaði sparisjóðnum 821 milljón og lágu hlutabréf í Bláa lóninu fyrir 397 milljónir þar að baki. Tvö önnur félög þar sem Grímur var stærsti eig- andinn í fengu lánað út á veð í Bláa lóninu en það voru félögin Bakvörð- ur ehf. og Kólfur ehf. Kólfur fékk 63 milljónir að láni með hlutabréf að veði sem voru andvirði 41 milljón og Bakvörður 69 milljónir með veð að andvirði 50 milljóna í lóninu. „Þessi lán hafa alltaf verið í skilum og greitt af þeim. Það eru meiri tryggingar að baki þessu lánum heldur en hluta- bréf í Bláa lóninu. Það hefur ekki verið afskrifuð króna af þessum lán- um,“ sagði Grímur í samtali við DV um þau lán sem eru í skýrslu FME og gerðar eru athugasemdir við vegna lítilla veða. Á hann þar við lán til félaganna Hvatningar hf., Bakvarðar ehf. og Kólfs ehf. Samkvæmt Grími stendur rekstur Bláa lónsins und- ir lánunum og er ekki að vænta af- skrifta vegna þeirra. Félagið Hvatning var einn af eig- endum SM 1 ehf. í gegnum Suður- nesjamenn en SM 1 ehf. skuldaði sparisjóðnum 370 milljónir króna með veðum sem voru talin verð- laus í september 2008. Um var að ræða 2. veðrétt í hlutabréfum í Ice- bank. Félagið Útnesjamenn hélt Mennirnir seM tæMdu sparisjóðinn n Sparisjóður Keflavíkur ofmat eignir n Útlánastefna í molum n Undarlegar afskriftir n Milljarðatap vegna gjaldþrota einkahlutafélaga Ber mikla ábyrgð Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri í Keflavík, ber stóra ábyrgð á falli sjóðsins. Guðni Rúnar Gíslason blaðamaður skrifar gudni@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.