Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 46
Sólbruni getur verið afar óþægi-legur og sársaukafullur svo ekki sé talað um heilsufarslega
hættu sem honum fylgir. Því ættu all-
ir að gera hvað þeir geta til að koma
í veg fyrir að húðin brenni í sólinni.
Óhöppin geta þó gerst og ef við höf-
um verið of lengi í sólinni eða höf-
um ekki borið nægilega mikla vörn á
okkur þá eru til nokkur góð ráð til að
lina bæði roðann og óþægindin sem
brunanum fylgja.
1. Matarsódi
Ef þú hefur fengið stærri brunasár
á baki og fótleggjum er gott að setja
hálfan bolla af matarsódanum út í
baðvatnið og liggja í því í að minnsta
kosti 10 mínútur. Ef bruninn er á
minna svæði er hægt að blanda mat-
arsódanum í ískalt vatn. Þvottapoka
er dýft í vatnið og hann síðan lagð-
ur á svæðið. Basískur sódinn hefur
einnig eiginleika til að vinna gegn
sýkingum.
2. Tómatar
Ef þú átt það til
að brenna auð-
veldlega er gott
að eiga alltaf
nokkra tóm-
ata í frystinum.
Í hvert skipti
sem þú þarft á kælingu að halda tek-
ur þú einn og hakkar en þá ertu kom-
in með þetta góða tómatakrem til að
bera á rauða húðina. Andoxunar-
efnið í tómötunum hjálpar til við að
halda sýkingum frá.
3. Jógúrt
Einfaldasta leið-
in til að minnka
roða í andliti
er að blanda
hálfum bolla af
haframjöli sam-
an við bolla af kaldri jógúrt. Blandan
er borin á andlitið og látin vera á í 15
mínútur.
4. Agúrkur
Agúrkur eru ekki einungis góðar til
að minnka bólgur í þreyttum augum.
Þær eru einnig góðar til að lina sól-
bruna en þær auka blóðrás og end-
urheimta raka húðarinnar á náttúru-
legan hátt. Setjið sneið af agúrku á
brunna svæðið.
5. Kamillute
Teið er ekki
einungis gott
fyrir svefn-
inn heldur
hjálpar það
til við bruna-
sár. Settu te-
pokann í
heitt vatn og
mögulega
nokkra dropa
af lavender-
olíu út í. Því
næst er pok-
inn undinn og settur í frystinn í 30
mínútur. Kældur tepokinn er svo
lagður á brunasárið í um það bil 5
mínútur.
6. Aloe Vera
Aloe Vera-plantan hefur löngum ver-
ið notuð á bruna en gott ráð er að
klippa eitt lauf af og setja í frysti. Ysta
lag þess er svo tekið af og laufið lagt á
brunasárið.
7. Apríkósur
Þegar roðinn er farinn þá hefst tíma-
bil kláðans og húðin fer að flagna.
Þá koma apríkósur sterkar inn en
bland af þeim og hunangi virkar á
bæði kláða
og flögnun.
Settu 3 til 5
apríkósur
í bleyti í heitt vatn til að mýkja þær
upp. Eftir það er hægt að stappa þær
saman við matskeið af hunangi og þá
ert þú komin með góða næringu á
húðina sem stoppar kláðann.
8. Verkjalyf
Ef bruninn er það sársaukafullur að
þú getur vart setið, staðið eða legið
þá er eina ráðið að kíkja í lyfjaskáp-
inn. Verkjalyf eins og íbúfen dreg-
ur úr bólgum og minnkar þar með
verki og óþægindi af völdum brun-
ans. Mikilvægt er þó að muna eftir
að bera á sig sólarvörn og mikið af
henni.
46 | Lífsstíll 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Mjúk og fersk og skemmtileg á kaffiborðið í sumar:
Ljúffeng og vinsæl kókos og límónukaka
Auður Hafstað Ármannsdótt-ir matráður gefur uppskrift að kókos og límónuköku sem er
mjúk og fersk og skemmtileg á kaffi-
borðið í sumar.
Auður eldar fyrir starfsfólk Tækni-
garðs í Háskóla Íslands og kakan er
vinsæl þegar hún er á boðstólum.
Kakan verður mjúk og ljúffeng
þegar búið er að hella yfir hana
kókosmjólkinni.
Þetta þurfið þið í kökuna sjálfa:
100 gr mjúkt smjör
160 gr sykur
180 gr hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 egg
2 dl kókósmjólk
Börkur af tveimur límónum
Þeytið smjör og sykur létt saman,
blandið eggjum við. Blandið sam-
an þurrefnum og bætið í blönduna.
Blandið að síðustu kókosmjólkinni
og límónuberkinum saman við. Setj-
ið í jólakökuform og smyrjið vel og
setjið bökunarpappír í botninn (ekki
sleppa því).
Bakið við 175°C í um það bil 40
til 45 mínútur. Athugið hvort kakan
er vel bökuð með því að stinga prjóni
í hana. Hann á að koma hreinn upp.
Rífið niður límónu og blandið
saman við sykur.
Þessu hellið þið yfir kökuna:
1 dl kókósmjólk
80 gr sykur
Hita að suðu og bæta út í safa úr
tveimur límónum.
Hellið yfir kökuna um leið og hún
kemur úr ofninum og látið standa
þar til hún er búin að drekka í sig saf-
ann.
Hvolfið kökunni varlega.
Að síðustu:
Raspið börk af tveimur límón-
um, blandið við 40 grömm sykurs og
makið á kökuna.
Njótið!
Átta húsrÁð við sólbruna
n Mikilvægt er að muna eftir því að bera á sig sólarvörn og mikið af henni n Óhöppin geta þó gerst og Aloe
Vera-plantan er góð við bruna n Einnig er hægt að nota jógúrt og haframjöl, apríkósur og agúrkur
Gunnhildur steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Brunnin húð Mikilvægt er að verja sig vel gegn sólargeislum og nota mikið af öflugri sólarvörn. Mynd: PHoTos.coM
Límónur eru ferskar í kökugerðina Rífið ögn af berki, blandið sykri og dreifið yfir
kökuna. Mjúk kaka fyrir sumarið Fersk með
límónu og kókos.