Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Qupperneq 54
„LitLu“ strákarnir
kLárir í sLaginn
54 | Sport 10.–14. júní 2011 Helgarblað
„Samkvæmt öllu því sem maður les
þá erum við með betra lið en Hvíta-
Rússland og leikurinn við Sviss er
50/50. Danir eiga hins vegar að vera
með betra lið en við,“ segir Hjörvar
Hafliðason sparkspekingur um leik-
ina þrjá sem framundan eru hjá ís-
lenska U21 árs landsliði Íslands í
knattspyrnu. Á morgun, laugardag,
hefja „litlu strákarnir okkar“ leik.
Um sögulegan viðburð er að ræða
því þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt
karlalandslið kemst í lokakeppni
stórmóts í knattspyrnu.
Fyrsti leikurinn er við Hvít-Rússa.
Stefnt á Ólympíusæti
Hjörvar Hafliðason, sem þekkir leik-
menn íslenska liðsins betur en flest-
ir aðrir, bindur vonir við að Ísland
vinni Hvíta-Rússland og Sviss, jafnvel
þó Svisslendingar séu taldir sterkari.
„Fyrir mér er aðalmarkmiðið að kom-
ast í undanúrslit og á Ólympíuleikana.
Það væri mikill sigur,“ segir hann. Þrjú
efstu sætin á mótinu gefa sæti á Ól-
ympíuleikunum í London 2012. Kom-
ist Englendingar í undanúrslit þá kom-
ast fjögur efstu liðin til London, þar
sem England fær sjálfkrafa þátttöku-
rétt á mótinu sem gestgjafi. Ísland gæti
því verið tveimur leikjum frá sæti á Ól-
ympíuleikum.
Eins og áður segir er fyrsti leikurinn
við Hvíta-Rússland. Því næst leikur Ís-
land við Sviss á þriðjudaginn og loks
heimamenn, Dani, á laugardaginn eft-
ir viku. Danir eru af flestum taldir með
sterkasta liðið í riðlinum.
Í hinum riðlinum leika Tékkar,
Spánverjar, Englendingar og Úkraínu-
menn en sá riðill er almennt talinn
sterkari en sá sem Íslendingar leika í.
Tröllatrú á Haraldi
Spurður um styrkleika íslenska liðsins
segir Hjörvar að hann liggi í sókninni.
„Það sem gerir þetta lið að því sem
það er eru árgangarnir 88 til 90. Þeir
eru þeir allra bestu sem við höfum átt.
Breiddin fram á við er ótrúleg. Sú stað-
reynd að jafn góðir leikmenn og Björn
Bergmann, Alfreð Finnbogason og
Birkir Bjarnason eru ekki í byrjunar-
liðinu segir allt sem segja þarf. Það eru
frábærir leikmenn. Til viðbótar kemst
besti maður Íslandsmótsins, Kristinn
Steindórs, ekki einu sinni í hópinn.
Það undirstrikar hvað við eigum gott
lið.“
Sparkspekingar hafa talað um að
varnarleikurinn kunni vera veikur hjá
íslenska liðinu. Hjörvar hefur hins veg-
ar ekki áhyggjur af markvörslunni. „Ég
hef tröllatrú á Haraldi og er vongóður
um að hann blási á allar áhyggjur og
reki þær ofan í menn. Hann er mjög
efnilegur markvörður,“ segir hann en
bætir við að markvarðarstaðan gæti
þrátt fyrir það verið veikasti hlekkur-
inn hjá liðinu.
DV fékk Hjörvar til að stilla upp lík-
legu byrjunarliði Íslands í fyrsta leik og
gera grein fyrir styrkleikum og veik-
leikum þeirra leikmanna.
Þessir byrja inni á
– Líklegt byrjunarlið að mati Hjörv-
ars Hafliðasonar:
Markvörður: Haraldur Björnsson
(Valur)
„Hann er sterkur á milli stanganna
og með mikla reynslu miðað við
aldur. Hans Akkilesarhæll er líklega
að hann er slakur í úthlaupum og
ekkert sérstaklega flinkur að spila
boltanum. Hann sparkar ekki vel.“
Hægri bakvörður: Skúli Jón Frið-
geirsson (KR)
„Skúli hefur tekið gífurlega miklum
framförum síðustu ár. Hans helsti
kostur er hvað hann er vel spilandi.
Hann er með ágætis fyrirgjafir og
styður við sóknarleikinn. Helsti
ókostur hans er að hann er gjarn á
að gera mistök og þau eru stundum
dýr. Annar ókostur er að hann spilar
sem miðvörður hjá KR en ekki bak-
vörður.“
Miðvörður: Hólmar Örn Eyjólfs-
son (West Ham)
„Harður varnarmaður sem lætur vel
finna fyrir sér. Hann er sterkur í loft-
inu og hættulegur í föstum leikatrið-
um. Hann er ekki best spilandi mið-
vörður í heiminum og fékk ekkert
að spreyta sig hjá West Ham í vetur.
Spilaði eiginlega bara landsleiki og
skortir því leikform.“
Miðvörður: Eggert Gunnþór Jóns-
son (Hearts)
„Glerharður og góður miðvörður.
Hann er eitilharður og fær mikið
af spjöldum. Hann er kannski ekki
sá sterkasti að spila úr vörninni. Ég
myndi þó vilja sjá Jón Guðna Fjólu-
son sem miðvörð með annaðhvort
Hólmari eða Eggerti.“
Vinstri bakvörður: Hjörtur Logi
Valgarðsson (IFK Gautaborg)
„Sóknarsinnaður bakvörður með
góðan vinstri fót. Hann er klárlega
okkar besti vinstri bakvörður og ætti
að vera í A-landsliðinu. Hans löstur
er kannski að hann er ekki fljótur.“
Miðjumaður: Aron Einar Gunn-
arsson (Coventry)
„Ótrúlega leikreyndur leikmaður
með mikla reynslu. Ég hef aldrei vit-
að um leikmann í ungmennalands-
liði sem hefur jafn marga leiki með
A-landsliðinu á bakinu. Hann er
sterkur, harðfylginn og vinnur mik-
ið af boltum. Hann skortir kannski
sendingagetu eins og íslenska miðju-
menn almennt.“
Miðjumaður: Bjarni Þór Viðars-
son (Mechelen)
„Hann er líklega hæfileikaríkasti
Viðars-bróðirinn. Hann hefur mikla
yfirsýn og er rólegur með bolt-
ann. Spilar alltaf vel fyrir U-21. Ekk-
ert sérstaklega fljótur og hefur lítið
sem ekkert spilað með sínu félags-
liði í vetur. Átti erfiða leiktíð í Belgíu.“
Miðjumaður: Gylfi Þór Sigurðs-
son (Hoffenheim)
„Býr yfir undraverðri spyrnutækni
og gríðarlegum leikskilningi. Án efa
okkar helsta stjarna. Það er stundum
talað um að hann sé ekki fljótur en
hann er fljótur að hugsa.“
Hægri kantmaður: Rúrik Gísla-
son (OB)
„Rúrik er fljótur vængmaður sem
er góður að gefa boltann fyrir. Hann
er líkamlega hraustur og stútfullur
af sjálfstrausti. Mjög flinkur en hans
helsti löstur er að hann skorar ekki
jafn mikið og hann ætti að gera.“
Vinstri kantmaður: Jóhann Berg
Guðmundsson (AZ Alkmaar)
„Leikinn og mjög fljótur vængmaður.
Hann er góður að spyrna með vinstri
en hans veikleiki er kannski að hann
á það til að týnast í leikjum. Hann
er vængmaður af gamla skólanum
og líður best úti við hliðarlínu. Mjög
góður leikmaður.“
Framherji: Kolbeinn Sigþórsson
(AZ Alkmaar)
„Frábær framherji. Hann er yfir-
burðamaður í loftinu og með eitrað-
ar staðsetningar. Hann getur skotið
með báðum fótum og hann er perl-
an í þessu liði ásamt Gylfa. Það mun
mikið mæða á þeim tveimur. Hann
hefur eiginlega enga veikleika nema
ef vera skyldi að hann er svolítið
gjarn á að meiðast. Þessi strákur mun
fara mjög langt.“
n Hjörvar Hafliðason stillir upp líklegu byrjunarliði í Danmörku n Litlu strákarnir okkar hefja
leik á morgun, laugardag n Ótrúleg breidd í sókninni n Spáir liðinu í undanúrslit
Haraldur
Hólmar Örn
Skúli Jón
Bjarni Þór
Gylfi ÞórRúrik
Hjörtur Logi
Jóhann Berg
Eggert Gunnþór
Aron Einar
Kolbeinn
Líklegt byrjunarlið að mati Hjörvars
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Markverðir:
Arnar Darri Pétursson, SønderjyskE
Óskar Pétursson, Grindavík
varnarMenn:
Elfar Freyr Helgason, Breiðablik
Jón Guðni Fjóluson, Fram
Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV
MiðjuMenn:
Birkir Bjarnason, Viking
Andrés Már Jóhannesson, Fylkir
Guðmundur Kristjánsson, Breiðablik
Almarr Ormarsson, Fram
FraMherjar:
Alfreð Finnbogason, Lokeren
Björn Bergmann Sigurðarson,
Lilleström
Arnór Smárason, Esbjerg
Aðrir leikmenn
Laugardagur 11. júní
Hvíta Rússland - Ísland
Þriðjudagur 14. júní
Sviss - Ísland
Laugardagur 18. júní
Ísland - Danmörk
Leikir Íslands
klárir í slaginn Byrjunarliðið í síðari umspilsleiknum við Skota. Fyrsti leikur liðsins er á morgun, laugardag. MynD: FÓTBoLTi.nET - HÖRðuR SnævAR JÓnSSon