Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Side 8
E f eldgos verður á Reykjanes- hryggnum getur svo farið að hluti byggðar í Hafnarfirði fari undir hraun. Jarðfræðing- urinn Haraldur Sigurðsson gagnrýnir að í nýlegri úttekt Almanna- varna hafi ekki verið gert áhættumat vegna eldgoss í grennd við höfuð- borgarsvæðið. Vaxandi óróleiki hefur gert vart sig í Krísuvíkureldstöðvar- kerfinu. Sprungukerfið nær alla leið að Heiðmörk, vinsælu útivistarsvæði í næsta nágrenni Reykjavíkur. Stöð 2 greindi um helgina frá gagnrýni Haraldar vegna úttektar Almannavarna en í samtali við DV bendir hann á að í 65 síðna skýrslu, sem ber heitið Áhættumat fyrir höf- uðborgarsvæðið, sé aðeins fjallað um hættuna af eldgosum á þriðjungi úr síðu, „eða hálfri síðu, ef maður á að vera örlátur.“ Hann bendir á að til séu upplýsingar til að vinna slíkt mat og að hættusvæðin hafi verið kort- lögð, eins og sjáist í skýrslunni. Á kortinu, sem unnið er upp úr korti sem birtist í skýrslunni, má sjá hvar ungt hraun á höfuðborgarsvæðinu er að finna. Haraldur segir að þar sem sé ungt hraun muni einn daginn aft- ur renna hraun. „Ungu hraunin kort- leggja áhættusvæðin að nokkru leyti,“ segir hann. Haraldur bendir á að hvorki jarð- fræðingur né jarðeðlisfræðingur sé á meðal skýrsluhöfunda, sem séu 28 talsins. Þar séu hins vegar leik- skólakennarar, rithöfundar, skipu- lagsfræðingar og bæjarverkfræðing- ar. „Ég held að þeir hefðu vel getað fengið sérfræðinga sem gætu frætt þá meira um áhættumat varðandi eldvirknina,“ segir hann. Stutt frá nýjasta gosi Eins og sjá má á kortinu hefur nýlega, í jarðsöguleg samhengi, runnið hraun í Hafnarfirði. Mikil byggð hefur síðan þá risið á þeim svæðum, meðal ann- ars heilt álver í Straumsvík. Haraldur segist spyrja sig hvort forsvarsmenn fyrirtækisins geri ráð fyrir að til dæmis 50 ár nægi til að borga upp verksmiðj- una og þeim sé sama hvað gerist eftir það. „Byggja þeir þá bara nýja?“ spyr hann. „Það er kannski í lagi fyrir þá að taka þessa áhættu en ég held að þú vildir ekki hafa það þannig með ein- býlishúsið þitt.“ Hann tekur þó skýrt fram að hann sé ekki að spá eldgosi. Það geti enginn. Hins vegar sé stutt síðan gos, sem kom úr Búrfelli sunn- an Heiðmerkur, rann yfir svæðið. „Síðasta gosið varð 1151, jarðfræði- lega er mjög stutt síðan.“ Ekki hægt að stýra stóru gosi Hér til hliðar má sjá að í skýrslunni kemur fram að hverfandi líkur séu á að hraun geti runnið að Reykjavík, þó eldgos í nágrenni svæðisins geti valdið margs konar hættu. Spurður hvort hægt sé að hemja hraunrennsli með einhverju móti bendir Harald- ur á að reynt hafi verið að sprauta vatni á hraunið sem rann þegar síð- ast gaus í Vestmannaeyjum. Þar hafi menn verið sannfærðir um að þeim hafi tekist að breyta rennslinu og jafnvel bjarga því að höfnin fylltist af hrauni. „Það er hægt að hafa áhrif á það í litlum gosum, eins og í Vest- mannaeyjum, en litlar líkur eru á að það sé hægt í meiriháttar gosum. Allt séu þetta atriði sem þurfi að ræða og leggja mat á. Til þess séu menn fær- ir. Gera verði þá kröfu að áhættumat á borð við þetta sé vel unnið. Í þessu tilviki sé það umdeilt, „vægast sagt.“ 8 Fréttir 4. júní 2012 Mánudagur Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Hvaleyrarholt Elliðavatn Vífilsstaðavatn Suðurlandsvegur Reykjanesbraut Kapelluhraun Búrfell Hvaleyrarvatn Valahnúkar Hraunrennsli á sögulegum tíma n Á þessu korti, sem unnið er upp úr korti í skýrslu Almannavarna, má sjá hvar hraun hefur runnið á sögulegum tíma. Um 900 ár eru frá síðasta gosi sem rann þar sem Vallarhverfið í Hafnarfirði er nú. Þá gaus í Búrfelli. Byggðin undir hraun n Ef gýs í grennd við höfuðborgarsvæðið gæti hraun runnið yfir byggð Eldgos valda margs konar hættu - Skýrslan um hættuna af eldgosum við höfuðborgarsvæðið n Höfuðborgarsvæðinu stafar helst hætta af þremur eldstöðvakerfum á Reykjanesskaga, Trölladyngjukerfi, Brennisteinsfjallakerfi (með Bláfjöllum) og Hengilskerfi. n Trölladyngjukerfi liggur að hluta til innan höfuðborgarsvæðisins og eru sprungur og misgengi víða í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík og Mosfellsbæ. Stutt er að hraunum inni á rek- og gosreinum Reykjanesskagans frá höfuðborgarsvæðinu. Hverfandi líkur eru þó á því að hraun nái að renna að borginni. Eldgos í nágrenni við svæðið geta þó valdið margs konar hættu fyrir íbúa þess svo sem vegna öskufalls og annarrar loftmengunar. Gos- mökkur getur ógnað og haft mikil áhrif á flugumferð. Óbein hætta getur einnig stafað af eldsumbrotum við aðfærslu- æðar til og frá svæðinu. Afleiðingar eldsumbrota í nágrenni höfuðborgar- svæðisins eru háðar staðsetningu og eðli umbrotanna, veðurfari á umbrota- tímanum og árstíma. Svona mátu sveitarfélögin áhættuna Hættuatvik Álftan. Garðab. Hafnarfj. Kópav. Mosfellsb. Reykjav. Seltjarnarn. Hraunstraumur n n n n n n n Öskufall/mökkur n n n n n n n Loftmengun/eiturgufur n n n n n n n n Gífurleg áhætta - aðgerðir strax n Möguleg áhætta - skoða nánar n Lítil áhætta - venjubundið eftirlit n Ekki skoðað „Síðasta gosið varð 1151, jarðfræðilega er mjög stutt síðan Í mestri hættu Tiltölulega stutt er síðan hraun rann yfir þetta svæði í Hafnarfirði . Þar er nú verið að koma upp mikilli íbúðabyggð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.