Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Side 16
Sandkorn A lþingi logaði á föstudag- inn. Ástæðan var að banki, sem er með of marga starfs- menn í landi í kreppu með bankageira sem er alltof stór, ákvað að skera niður kostnað. „Til skammar!“ heyrðist á þinginu. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, vildi að stjórnmála- mennirnir gripu inn í. „Landsbank- inn ber ríka samfélagsskyldu, ekki síst vegna þess að hann er í meiri- hlutaeigu ríkisins og við gerum kröfu til hans,“ sagði hann. Eygló Harðar- dóttir, þingkona Framsóknarflokks- ins, spurði hvort ríkisstjórnin ætl- aði að sitja aðgerðarlaus hjá meðan ósköpin gengju yfir. Það er skiljanlegt að fólk í þorpum úti á landi vilji hafa þar bankaútibú, svo það séu fleiri störf í heimabyggð, og svo það sé styttra að fara í bankaútibúið. Það eru þeirra hagsmunir. Stjórnmála- menn eiga hins vegar að hugsa um hag heildarinnar út frá markvissri stefnu. Staðreyndin er sú að íslenska bankakerfið er alltof stórt, starfs- menn of margir og útibúin of mörg. Þeir sem borga fyrir það er almenn- ingur á Íslandi. Miðað við höfðatölu eru tvisvar sinnum fleiri bankaútibú á Íslandi en í Svíþjóð. Við erum líka með miklu fleiri útibú en Norð- menn, Finnar og Danir miðað við höfðatölu. Eftir að internetið var fundið upp og heimabankar þróaðir varð óþarfi fyrir fólk að fara í bankaútibú- in, nema í undantekningartilvikum. Bankaþjónusta er ekki eins og heil- brigðisþjónusta. Það er ekki lífs- nauðsynlegt að búa stutt frá banka- útibúi. Það eru ekki mannréttindi að láta bankagjaldkera afgreiða sig, frekar en að nota heimabanka. Ef við leyfum stjórnmálamönn- um að stjórna bönkum bjóðum við hættunni heim. Þeir fara að nota bankann til að komast til áhrifa og verða vinsælir, gegn hagsmunum al- mennings. Næst fara þeir að skipta sér af því hvaða fyrirtæki fái lán, því þau séu svo mikilvæg. Grikkir og Spánverjar eru á barmi hruns vegna þess að hagkerfi þeirra eru ekki samkeppnishæf. Þeir eyða meiru en þeir skapa. Þeir vita að þeir eyða of miklu, en þeir ná ekki sam- komulagi um hvar eigi að spara, því allir vilja spara annars staðar. Og þegar fólk byrjar að kvarta yfir aðhaldi eru fáir sem vilja setja sig í skotlínuna með því að styðja hann, en þess fleiri sem vilja afla sér vinsælda með því að mótmæla því sem er í eðli sínu óvinsælt. Það eru ekki bankakreppur eða lausafjárskort- ur sem setja þjóðir endanlega á haus- inn, heldur óhagræði og ósjálfbærni, sem stefna Jóns Bjarnasonar leiðir okk- ur rakleitt í. Björgólfur flengir Jóa n Björgólfur Thor Björgólfsson veltir Jóhannesi í Iceland, áður Jóa í Bónus, upp úr tjöru og fiðri eftir Mannlífsvið- tal Jóhann- esar, þar sem hann kvartar yfir því að allt hafi verið „hirt af“ hon- um og Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni. Björgólfur, sem var einn af aðaleigendum Lands- bankans, talar um „vitleysu“ í Jóa og rifjar upp að feðg- arnir hefðu einfaldlega veð- sett eignir sínar hjá Lands- bankanum til að fá lán, sem þeir gátu síðan ekki borgað. Í millitíðinni hafi þeir „skafið allt fé“ út úr fyrirtækinu sínu og meðal annars selt Iceland á uppsprengdu verði til sjálfs sín fyrir lánsfé, sem þeir gátu síðan ekki borgað. Björgólf- ur kallar Jóa „hin kvartsára kaupmann“ og segist sjálfur telja óeðlilegt að „menn geti gengið frá viðskiptum án nokkurra persónulegra eftir- mála þegar allt fer á versta veg.“ Íslenska þjóðin kann að vera sammála því, en hún var í ábyrgðum fyrir Icesave- ævintýri Landsbankans sem fór á versta veg. Forsetadætur styðja Þóru n Tvær dætur fyrrverandi forseta virðast veita Þóru Arn- órsdóttur stuðning í forseta- framboði hennar. Sigrún Eldjárn, dóttir Kristjáns Eld- járns, sem var forseti frá 1968 til 1980, mætti á opn- un kosningaskrifstofu Þóru. Ástríður Magnúsdóttir, dóttir Vigdísar Finnbogadóttur, sem var forseti frá 1980 til 1996, hefur stutt hana leynt og ljóst í ummælum á Facebook. Þetta þykir endurspegla að Þóra mælir fyrir hefðbundn- ara hlutverki forseta en Ólafur Ragnar Grímsson, sem leggur meiri áherslu á þátttöku for- setans í lýðræðinu. Það sem felldi Ástþór n Ástþór Magnússon heltist úr lestinni í forsetakosning- unum þegar í ljós kom að nokkur fjöldi undirskrifta á stuðnings- mannalistum hans var fals- aður. Undir frétt um málið á DV.is út- skýrði Ástþór þá lýðræðislegu hættu sem skapast af því að synja mönnum um framboð vegna falsaðra undirskrifta. „Þarna afhjúpast gat sem ger- ir skemmdarvörgum kleift að planta flugumönnum innan sjálfboðaliða og starfsmanna til að ógilda nánast hvaða pólitíska framboð sem er.“ Aðrir líta svo á að hvatakerfi Ástþórs hafi orðið honum að falli, en hann bauð fría utan- landsferð til Marbella á Spáni fyrir þann sem framleiddi flestar undirskriftir. Það sem ekki má segja„Miðað við höfðatölu eru tvisvar sinn­ um fleiri banka­ útibú á Íslandi en í Svíþjóð F rumvarp stjórnlagaráðs til nýrr- ar stjórnarskrár hefur nú leg- ið frammi í tíu mánuði. Sumir eru andvígir frumvarpinu. Það er eðlilegt. Góðar stjórnarskrár mæta ævinlega andstöðu vegna þess, að þær kveða á um réttindi og skyldur. Réttur eins leggur skyldu á herðar annarra. Sumum er óljúft að axla ábyrgð. Hin- ir eru fleiri, sem skilja og virða, að rétt- indum fylgja skyldur. Upplýsingafrelsi Frumvarp stjórnlagaráðs kveður á um greiðan aðgang almennings að upp- lýsingum. Ýmsar upplýsingar, sem stjórnvöld hafa í fórum sínum og hafa hingað til kosið að halda leyndum fyrir almenningi, verða aðgengilegar skv. nýrri stjórnarskrá. Þeir, sem þrífast bezt í skjóli leyndar, leggjast gegn upplýs- ingafrelsi, þótt þeir beri öðru við. Upp- lýsingaákvæðinu í frumvarpi stjórn- lagaráðs er ætlað að hafa hagnýtt gildi. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins synjaði stjórnlagaráði um upplýsingar um hæstu lífeyrisgreiðslur úr sjóðn- um. Vitað er, að stjórnmálamenn hafa skammtað sjálfum sér eftirlaun um- fram aðra hópa skv. sérstökum reglum. Reglurnar liggja fyrir, en ekki greiðsl- urnar sem af þeim leiða. Ný upplýs- ingalög munu knýja á um, að ekki verði lengur hægt að leyna uppsöfnuðum eftirlaunaréttindum opinberra starfs- manna. Slíkar upplýsingar þurfa að liggja frammi. Ný upplýsingalög í sam- ræmi við nýja stjórnarskrá munu einn- ig draga úr misnotkun bankaleyndar. Þannig verður Seðlabankanum varla lengur stætt á að neita að afhenda upp- tökur af símtölum bankastjórnarinnar og ráðherra dagana fyrir hrun. Gegnsæi er beitt vopn gegn spillingu. Fyrri spjöll skulu bætt eftir föngum Umhverfisákvæðið í frumvarpi stjórn- lagaráðs skilgreinir rétt manna til óspilltrar náttúru í samhengi við mannréttindi. Réttur eins til óspilltr- ar náttúru leggur þá skyldu á aðra, að þeir gangi vel um náttúruna. Frum- varpið kveður einnig á um, að fyrri spjöll skuli bætt eftir föngum. Í því felst viðurkenning á þeim skemmd- um, sem t.d. lausaganga búfjár og hrossa hefur valdið á löngum tíma. Þeim, sem vilja halda áfram að spilla náttúrunni óáreittir, er skiljanlega í nöp við nútímaleg ákvæði um um- hverfisvernd í stjórnarskrá, þótt þeir beri öðru við. Auðlindir í þjóðareigu Ákvæði frumvarpsins um auðlindir í þjóðareigu tekur mið af tillögum allra þingflokka um málið sl. 30 ár, bæði efni þeirra og orðfæri. Þingmenn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks, sem fetta nú fingur út í ákvæðið í frum- varpi stjórnlagaráðs um auðlindir í þjóðareigu, eru í reyndinni að hlaup- ast undan eigin merkjum. Þeir tala eins og þeir hafi ætlazt til, að þeirra eigin tillögur um málið væru að engu hafðar. Stjórnlagaráð tók þá á orðinu. Auðlindagrein frumvarpsins er grein allra flokka og einnig fólksins í landinu eins og þjóðfundurinn 2010 lýsti vilja þjóðarinnar í málinu. Óspilltar embættaveitingar Ákvæðin um skipun dómara undir eftirliti forseta Íslands og Alþing- is og um skipun í önnur mikilvæg embætti á grundvelli hæfnissjónar- miða undir eftirliti sérstakrar nefnd- ar, sem forseti Íslands skipar for- mann í, geta varla lagzt vel í alla. Dæmi eru um, að hæfir umsækj- endur um embætti á vegum ríkis- ins hafi verið hvattir til að draga umsóknir sínar til baka eða hætta við að sækja um til að skyggja ekki á flokksmann, sem þurfti að komast í skjól. Dæmum sem þessum verður vonandi komið haganlega fyrir í því spillingarsögusafni, sem Þjóðminja- safnið hefur lagt drög að eftir hrun. Spilltar embættaveitingar eru snar þáttur þjóðarsögunnar. En auðvitað geta menn ekki lagzt gegn frumvarpi stjórnlagaráðs með þeim rökum, að þeir vilji halda uppteknum hætti við skipan í embætti. Undir fölsku flaggi Andstæðingar frumvarps stjórnlaga- ráðs tilfæra önnur óskyld rök eins og þau, að Hæstiréttur hafi ógilt kosn- inguna til stjórnlagaþings. Hitt er þó sönnu nær, að ógilding Hæstaréttar átti sér enga stoð í lögum eins og Guð- björn Jónsson lýsti vel í opnu bréfi til Hæstaréttar og einnig til forseta laga- deildar Háskóla Íslands. Þeir hamra einnig á því, að kjörsókn í kosning- unni til stjórnlagaþings hafi ekki verið nema 37% eins og það skipti máli. Ekki datt Trampe greifa í hug að gera lít- ið úr þjóðfundinum 1851 vegna þess, að kjörsóknin væri um 30%. Kjörsókn skiptir aldrei máli fyrir úrslit kosninga, nema ákvæði séu í lögum þess efnis, að kjörsókn þurfi að ná ákveðnu marki til að kosningin sé gild. Rök andstæðinganna „Umhverfis­ ákvæðið […] skilgreinir rétt manna til óspilltrar náttúru Leiðari Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 16 4. júní 2012 Mánudagur Kjallari Þorvaldur Gylfason Hann lét elta mig Anna Mjöll Ólafsdóttir um Cal Worthington, fyrrverandi eiginmann sinn. – DV Vel klæddur og glæsilegur Natalia Wium um eiginmanninn Ástþór Magnússon. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.