Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Síða 17
Spurningin
Það er stóra
vesenið
Hjörvar Hafliðason segir slaka vörn íslenska landsliðsins ekki þjálfurum að kenna. – DV
Góðmennska veiðimanna
„Hún er snilld.“
Daníel Arnór Snorrason
19 ára vinnur hjá SS-pylsum
„Mér finnst hún æðisleg.“
Sólbjört Vera Ómarsdóttir
19 ára vinnur á Sjávargrillinu
„Mér finnst hún bara frábær.“
Ásdís Nína Magnúsdóttir
19 ára vinnur á Caruso
„Mjög góð, en ég er alltof
brunninn.“
Björn Loki Björnsson
20 ára þjónn á Marina
„Hún er bara súper svít, en ég
vildi að ég væri ekki að vinna.“
Helgi Snær Jónasson
17 ára grillmeistari á Búllunni
Hvað finnst þér
um veðurblíðuna?
S
umum finnst ógeðslegt að
menn skuli fara upp á fjall og
hreinlega murka lífið úr sætum
fuglum og krúttlegum hrein-
dýrum. Það þótti Svarthöfða líka, þar
til hann hitti veiðimann, sem leiddi
hann í allan sannleika um siðsemi
skotveiði.
Veiðimenn sem drepa dýr uppi á
fjöllum rökstyðja sinn málstað mjög
vel. Þeim þykir mannúðlegra og nátt-
úrulegra að veiða dýrin í náttúrunni
en að slátra þeim kerfisbundið í slát-
urhúsum. Hitt er bara hluti af firringu
og hræsni nútímamannsins.
Að mati veiðimannsins er hans að-
ferð til að útvega mat mun siðlegri en
háttur hins venjulega neytanda sem
kaupir kjötið úti í búð. Búðarfólkið er
firrt, að mati veiðimannsins. Það lætur
aðra drepa dýrin og lætur eins og það
beri enga ábyrgð. En dýr eru hamingju-
samari úti í náttúrunni en þau sem eru
ræktuð upp til slátrunar í afmörkuðu
umhverfi.
Sjónvarpsþáttur frá Jamie Oliver,
nakta kokkinum, var sýndur í Sjón-
varpinu á dögunum. Þar var sýnt
hvernig grísir eru ræktaðir upp til slátr-
unar, þeir geldir á ómannúðlegan hátt
og síðan kerfisbundið skornir á háls.
Þetta er ekkert líf fyrir grísina. En fuglar
og hreindýr sem lifa villt úti í íslenskri
náttúru hafa sannarlega fengið að lifa
lífinu. Kjöt veiðimannsins er eins kon-
ar hamingjukjöt; kjöt með lífsfyllingu.
Dýrið hefur fengið að leita hamingj-
unnar, eins og er talað um í banda-
rísku stjórnarskránni, og lifa frjálst og
deyja frjálst.
Það að veiðimaðurinn drepi sjálf-
ur kjötið er ekki illska af hans hálfu
heldur bara heiðarleiki. Búðarfólkið
lætur aðra drepa fyrir sig og það læt-
ur drepa dýr sem hafa ekki raunveru-
lega fengið að lifa. Það er hræsni að
drepa ekki dýrið sjálfur. Og eiginlega
siðleysi að styðja við ræktun á dýrum
sem hafa ekki fengið að lifa, með því
að kaupa búðarkjötið, að mati veiði-
mannsins.
Rök veiðimanna eru sterk og þau
virðast afhjúpa víðtækan vanda. Öll
þessi slátrun á sauðfé í sláturhúsum er
grimmileg. Það ætti að gefa kindun-
um þá lífsfyllingu að enda líf sitt í nátt-
úrunni. Skotveiðar á sauðfé eru góðar
fyrir alla.
Eða er þetta einhver misskilningur?
Sveifla á sjómannadag Sól og blíða á sjómannadaginn létti lund landans. Á Lækjartorgi var stiginn dans. Mynd Eyþór Árnason Myndin
Svarthöfði
Umræða 17Mánudagur 4. júní 2012
Þetta er hluti af ára-
mótaheitinu mínu
María Birta, leikkona og fyrirsæta, var að fá skotvopnaleyfi. – DV
Vel klæddur
og glæsilegur
Þetta er auðvitað
helber dónaskapur
Einar Guðfinnsson um að vinna atvinnuveganefndar hafi verið leikrit af hálfu stjórnvalda. – ekg.blog.is
Skuldbinding Mánaðarverð
Engin binding 3.091 kr.
3 mánuðir 2.944 kr.
6 mánuðir 2.688 kr.
12 mánuðir 2.473 kr.
DV sent heim þrisvar í viku, á mánudögum, miðviku dögum
og föstudögum. Netáskrift fylgir frítt með!
Komdu í áskrift
Það er ódýrara en þig grunar!