Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Blaðsíða 18
Í
slendingur sem fékk lán fyrir hús
inu sínu borgar tvö og hálft til þrjú
hús til baka á meðan fólk erlend
is greiðir einungis eitt og hálft hús
til baka. Þetta er alveg óumdeilan
legt,“ segir Benedikt Jóhannesson,
tryggingastærðfræðingur og stjórn
armaður hjá Já Ísland. Á heimasíðu
samtakanna má finna reiknivél sem
sýnir mun á íslenskum húsnæðis
lánum og þeim lánum sem bjóðast í
evru löndum.
Tölurnar eru sláandi
Benedikt segir að reiknivélin sýni
í raun og veru hver munurinn sé á
því að vera með lægri vexti og að
menn hafi verið að skoða þetta til
lengri tíma. „Það mun taka Íslend
inga nokkur ár að taka upp evruna
ef við göngum í ESB og þetta er því
ekki eitthvað sem gerist á einni nóttu.
Lántakar munu þó væntanlega skuld
breyta lánum sínum eins og fólk gerði
hér um árið því tölurnar sem fást úr
reiknivélinni eru sláandi. Ég var mjög
skeptískur á þetta fyrst en þau próf
sem ég gerðir stóðust öll,“ segir hann
og bendir á að vextir í Danmörku í dag
séu 2 prósent með 15 ára binditíma
og hægt er að fá húsnæðislán með
0,87 prósenta breytilegum vöxtum.
Aðspurður hvort Íslendingar geti
verið fullkomlega vissir um að með
því að taka upp evru verði lánakerfið
hér eins hliðhollt neytendum og það
er í evrulöndunum núna segir hann
að erfitt sé fullyrða um slíkt. „Lang
tímaspár segja að það yrði okkur hag
stæðara en það er augljóst að það
hefði breytt miklu á því tímabili sem
liðið er.“
Á Já Ísland segir að það fylgi því
gífurlegur kostnaður og óvissa að
halda í krónuna en reiknivélin sýnir
hverjar eftirstöðvar lána eru í dag og
hverjar þær væru ef lánið hefði verið
tekið á meðaltalsvöxtum í evruríkj
unum.
Lánin langdýrust hér á landi
„Við gerðum könnun á húsnæðislán
um fyrir nokkrum árum í allmörgum
Evrópulöndum og þá var langdýr
ast að taka lán hér,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda
samtakanna, aðspurður hvort sam
tökin hafi borið saman íslensk hús
næðislán við erlend. Hann segir að
einnig hafi verið unnin skýrsla um
kosti og galla ESBaðildar og í ljós
hafi komið að lánakostnaður heim
ilanna mundi lækka við inngöngu.
Aðspurður hvaða áhrif það muni
hafa göngum við í ESB segir Jó
hannes að það muni líða ákveðinn
tími þar til við gætum tekið upp evr
una. Að þeim tíma liðnum muni fólk
væntanlega skuldbreyta lánum sín
um sem mundi breyta miklu varð
andi lán heimilanna.
Hann segir það vel raunhæft að
bera saman íslensk og erlend hús
næðislán eins og gert er á heima
síðu Já Ísland. „Ég held að það sé
borðleggjandi að kostirnir við þetta
verði þeir að þeir vextir sem heim
ilin greiða í dag muni lækka og það
sem er enn mikilvægara er að verð
tryggingin muni einfaldlega leggjast
af sjálfkrafa,“ segir Jóhannes.
Hann vill þó taka það skýrt fram
að það sé ekki hlutverk Neytenda
samtakanna að segja til um hvort
Ísland eigi að ganga í ESB eða ekki.
„Frekar, eins og í þessu tilviki, að
gera rannsókn á því hvaða kosti og
galla það hefur í för með sér. Eins
göngum við út frá því að endan
legur samningur fari fyrir þjóðarat
kvæðagreiðslu. Það er það eina eðli
lega í stöðunni því þjóðin á að ráða
þar sem um mjög stórt skref er að
ræða,“ segir hann að lokum.
Minni verðbólga og lægri vextir
Þess má geta að vextir eru misjafnir
eftir löndum innan ESB en á síð
unni segir að miðað sé við meðaltal
þeirra. Þar segir einnig að reiknivélin
sýni tvennt; annars vegar hina miklu
verðbólgu á Íslandi og hins vegar
háa vexti. Evruútreikningurinn sýni
hvernig lán sem tekið hefði verið í
íslenskum krónum með þeim kjör
um sem buðust á evrusvæðinu stæði
núna. Jafnframt að Íslendingar þurfi
bæði minni verðbólgu og lægri vexti
Hugsum vel um grillin
n Mikilvægt að umgangast þau vel og halda þeim hreinum
Þ
rif á grilli eru mikilvæg og þar
sem grilltímabilið er að ná
hámarki er vert að minna á
hvernig best er að umgang
ast það til að það endist sem best og
lengst.
Á heimasíðu Ellingsen er fjallað
um meðferð grillsins og þar segir að
grilleigendur ættu að umgangast það
eins og bakaraofninn, pottana og
pönnurnar á heimilinu. Eftir hverja
notkun þurfi að þrífa grindurnar og
mikilvægt sé að hreinsa reglulega
fitu úr botninum vegna þess að ann
ars kviknar eldur þegar verið er að
grilla. Þá sé gott að hafa grillið í gangi
í um það bil 10 mínútur eftir að mat
reiðslu er lokið til að brenna fituna.
Einnig þurfi að hreinsa eldunar
fletina og best sé að þrífa krómaða
fleti og keramikfleti með sápuvatni.
Þurrka skuli svo vandlega og geyma
grindina inni þangað til grillað er
næst. Best er að þrífa keramikfleti
með sápuvatni. Mælt er með að þvo
steypujárnið úr sápuvatni, þerra það
svo vandlega og bera dálítið af jurta
olíu á svæðið og best sé að gera þetta
eftir hverja notkun.
Að lokum er fjallað um hreinsun
á brennurum og segir að gott sé að
gera það á tveggja til þriggja mánaða
fresti. Stíflanir í blendipípunum geti
valdið íkveikju og ef eldur kviknar í
blendipípunum skuli slökkva tafar
laust á grillinu.
E
ld
sn
ey
ti
Algengt verð 250,8 kr. 248,7 kr.
Algengt verð 250,7 kr. 248,5 kr.
Algengt verð 250,6 kr. 248,4 kr.
Algengt verð 250,9 kr. 248,7 kr.
Algengt verð 252,8 kr. 248,7 kr.
Algengt verð 250,7 kr. 248,5 kr.
Þrifu bílinn
n Lofið fá starfsmenn á Olís við
Gullinbrú en viðskiptavinur hafði
eftirfarandi að segja: „Ég var að
taka bensín þar um daginn og vil fá
að þakka strákunum á dælunum.
Þeir sáu að það var fuglaskítur á
bílnum og voru svo sætir að
þeir tóku bara bílinn og þrifu
hann á meðan verið var að
dæla á hann. Mér fannst
þetta svo fallegt af
þeim og þeir rukkuðu
mig ekkert aukalega
fyrir það.“
Bragðlaus og
óspennandi
n Lastið að þessu sinni fær Kaffitár
en óánægður viðskiptavinur sendi
DV eftirfarandi: „Ég fór á Kaffitár
í hádeginu um daginn og keypti
mér kjúklingavefju. Það stóð að
hún væri með avókadó, chili og
fleira góðgæti sem hljómaði mjög
girnilega. Í fyrsta lagi beið ég mjög
lengi eftir að fá matinn og þegar
vefjan loksins kom var hún bragð
laus og óspennandi. Það má eigin
lega segja að þetta hafi verið kjúk
lingur í brauði og ekkert annað. Ég
sá að vísu glitta í örlítið guacamole
en það var ósköp lítið.“
Sólrún Guðmundsdóttir, rekstr
ar og markaðsstjóri sagði í sam
tali við DV að Kaffitár kunni vel
að meta að fá ábendingar frá við
skiptavinum, bæði lof og last, en
með því að hlusta á viðskiptavini
telur hún að fyrirtækið geti betur
uppfyllt þarfir þeirra. „Við rekum
átta kaffihús og við munum fara
yfir þessi mál með starfsfólki okk
ar, bæði hvað varðar afgreiðslu
tímann og eins hvort að þurfi að
betrumbæta kjúklingavefjuna,
sem hefur verið mjög vinsæl. Í
hádeginu er oft mikil ös og þar af
leiðandi hægist stundum aðeins á
afgreiðslunni. Við höfum reynt að
bregðast við með því að hafa fleira
starfsfólk á álagstímum. Okk
ur þykir mjög leitt að heyra um
þennan óánægða við
skiptavin. Ef að hann
hefur áhuga á má
hann hafa samband
við mig og ég myndi
bjóða honum í há
degisverð til okkar honum
að kostnaðarlausu.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Þrif á grillum
Best er að þrífa grillið eftir hverja notkun.
Mynd: DV
Ísland með dýrustu húsnæðislánin
n Samkvæmt Já Ísland borga Íslendingar nær þrjú hús með húsnæðislánum sínum n Evrópubúar borga ígildi eins og hálfs
18 Neytendur 4. júní 2012 Mánudagur
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is