Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Page 20
Njóttu sólar
skynsamlega
20 Lífstíll 4. júní 2012 Mánudagur
n Óhófleg sól veldur sortuæxlum n Tíðnin margfaldast hér á landi
U
m leið og sólin lætur sjá sig
flykkjast Íslendingar út úr
öllum skúmaskotum til að
sleikja hana í bak og fyrir.
Við erum þekkt fyrir að nýta
þessa örfáu daga á ári, sem sú gula
lætur sjá sig, til hins ýtrasta. Marg-
ir vilja þó gleyma sólaráburðinum
og sumir telja jafnvel að það taki því
ekki að bera hann á sig vegna þess að
sólin á Íslandi sé ekki svo sterk. Það
er hins vegar mikill misskilningur því
sólin á Íslandi getur verið mjög sterk
og ljós húð Íslendinga brennur auð-
veldlega, jafnvel þó ekki sé sól.
Óhófleg sól er einn helsti orsaka-
valdur sortuæxla og sólbruni eyk-
ur hættuna verulega, sérstaklega ef
börn og unglingar brenna. Sortuæxli
er alvarlegasta tegund húðkrabba-
meins og tíðni þess á Íslandi hefur
margfaldast á síðustu tuttugu árum.
Talið er að aukin sólardýrkun skipti
þar höfuðmáli. Sortuæxli er sjöunda
algengasta tegund krabbameina hjá
konum og tólfta hjá körlum. Þá er
sortuæxli algengasta krabbamein
sem konur á aldrinum 20 til 35 ára fá,
en árlega greinast um þrjátíu tilfelli
af sortuæxli á Íslandi og þrjátíu for-
stigs sortuæxli.
Vert er að hafa í huga að allir geta
fengið sortuæxli en þeir sem eru með
ljósa húð eru í mestri hættu. Það er
þó óþarfi að fara að hræðast sólina,
heldur frekar að læra að njóta henn-
ar á skynsamlegan hátt.
Hér eru nokkur atriði sem gott er
að hafa í huga á sólríkum sumardög-
um.
A Forðumst sólina um miðjan daginn, en geislar sólarinn-
ar eru sterkastir frá klukkan 11.00
til 15.00. Þrátt fyrir að himinninn
sé skýjaður er ekki þar með sagt að
geislar sólarinnar séu ekki skaðleg-
ir. Um hádegi á skýjuðum degi nær
meiri geislun til jarðar en á heið-
björtum degi um klukkan 16.00.
B Sitjum í skugganum, en það er góð og einföld leið til að verjast
útfjólubláum geislum sólarinnar.
C Klæðumst fötum. Að klæðast víð-um langerma skyrtum og síðbux-
um er þægileg og árangursrík aðferð
til að verjast geislum sólarinnar þeg-
ar maður þarf að vera utanhúss um
miðjan dag. Barðastórir hattar veita
augum, eyrum, andliti og aftanverð-
um hálsi góða vörn en á þessum stöð-
um hættir okkur sérstaklega til að sól-
brenna.
D Notum sólaráburð. Nauðsyn-legt er að bera nægilegt magn
af sólaráburði á þau svæði húðar-
innar sem sólin skín á. Áburðurinn
verður að veita vernd gegn bæði A-
og B-geislum og vera með stuðulinn
15 eða hærri. Bera á áburðinn á hálf-
tíma áður en farið er í sólina og end-
urtaka á tveggja klukkutíma fresti.
Munum að jafnvel vatnsþolinn sól-
aráburður máist af við það að þurrka
sér með handklæði og þegar maður
svitnar eða er lengi í vatni.
E Verum með sólgleraugu sem veita algjöra vernd fyrir útfjólu-
blárri geislun. Sólgleraugu með vörn
gegn bæði A- og B-geislum draga
stórlega úr áreiti sólargeislunarinn-
ar á augun, en slíkt getur orsakað ský
á auga (e. cataract) og aðra augnsjúk-
dóma.
F Forðumst ljósabekki. Geislunin frá sólarlömpum getur skaðað
húðina og augun. Og sú brúnka sem
fæst frá sólarlömpum ver húðina
ekki fyrir geislun frá sólinni. Það er
því er ekki hægt að undirbúa húðina
fyrir ferð til sólarlanda með því að
fara í sólarlampa á sólbaðstofu.
Upplýsingar af heimasíðum Lýðheilsu-
stöðvar og Landlæknisembættisins
solrun@dv.is
6 heitustu borgirnar
fyrir einhleypa
yfir fertugt
n Ertu búin/n að vera lengi á
markaðnum? Ertu orðin/n þreytt/
ur á að skemmta þér innan um sömu
einhleypu Íslendingana og sjá sömu
ástföngnu pörin helgi eftir helgi?
Prófaðu eitthvað nýtt og skelltu þér
til heitustu borga Bandaríkjanna sem
hafa upp á fjölbreytta afþreyingu að
bjóða fyrir fertuga og eldri.
1 Tampa Sólrík borg í Flórída, sjóðheit fyrir einhleypt full-
orðið fólk. Í Tampa eru fleiri ógiftir ein-
staklingar sem eru komnir yfir fertugt
en í nokkurri annarri bandarískri borg.
Veðrið er alltaf gott svo að möguleik-
arnir til stefnumóta eru endalausir.
2 Seattle Bátar, gallerí og ferskir sjávarréttir. Það er nóg
að gera í Seattle. Borgin varð nýlega í
öðru sæti á lista yfir borgir sem bjóða
upp á frambærileg einstæða feður
en samkvæmt sömu vefsíðu eru ein-
stæðir feður mun virkari á stefnu-
mótamarkaðnum en barnlausir
kynbræður þeirra.
3 San Francisco Íbúar San Francisco gifta sig seinna en
aðrir Ameríkanar sem þýðir að það
er fjöldinn allur af einhleypu fólki
búsettur í borginni.
4 Baltimore Djassklúbbar, hafnarbolti og náttúrufegurð.
Möguleikarnir í afþreyingu eru
endalausir fyrir fertuga og eldri.
5 Atlanta Þekkt fyrir sjóðheitt næturlíf sem er ekki aðeins
fyrir þrítuga og yngri. Notendur
stefnumótasíðunnar howaboutwe.
com sem eru komnir yfir fertugt eru
flestir búsettir í Atlanta.
6 St. Louis Óteljandi barir og skemmtistaðir sem eru ekki
aðeins ætlaðir þeim allra yngstu.
Meðhöndlun
sólbruna
n Eftir að hafa verið lengi í sólinni
þarf húðin á raka að halda og því er
nauðsynlegt að bera þar til gerð krem
á líkamann eftir sólböð og útiveru á
góðviðrisdögum. Á það við hvort sem
húðin hefur brunnið eða ekki. Best er að
nota „after sun“-krem eða gel unnið úr
Aloe vera-plöntunni. Það er sérstaklega
græðandi og kælandi, sérstaklega ef
það er geymt inni í ískáp.
n Sólbruni kemur yfirleitt ekki í ljós
fyrr en nokkrum klukkutímum eftir að
húðin brennur. Bruninn lýsir sér með
brennandi tilfinningu, kláða og öðrum
óþægindum í húðinni. Í mjög slæmum
tilfellum geta myndast vökvafylltar
blöðrur á brunasvæðunum. Þeir sem
eru mjög viðkvæmir fyrir sól geta einnig
fengið sólarexem með tilheyrandi kláða.
„After sun“-krem og Aloe vera-gel geta
slegið á óþægindin, en sólbruna og
sólarexem má einnig meðhöndla með
vægu sterakremi, til dæmis Mildison.
Sterakrem má þó ekki bera á augnlok
eða í kringum augu.
(Upplýsingar af lyfja.is, Jóna Valdís
Ólafsdóttir lyfjafræðingur)
Sólin er sterk
Íslenska sólin
getur orðið mjög
sterk og því er
nauðsynlegt
að verjast
útfjólubláum
geislum hennar á
réttan hátt.
Heim með bóndabrúnku
og brunnið nef
n Rithöfundurinn Þorbjörg Marinósdóttir,
eða Tobba Marinós eins og hún er alltaf
kölluð, er vön að gæta sín í sólinni en tókst
þó að sólbrenna ansi illa á dögunum.
„Ég fór út að borða í hádeginu á mánudag-
inn var á Vegamótum og sat þar í portinu í
nokkra klukkutíma. Íslenska sólin er mjög
sterk og fólk áttar sig oft ekki á henni, ég fór
heim með bóndabrúnku og brunnið nef og
nóttin fór í að maka á sig aloe vera. Hvorki
skynsamlegt né smart – ég hvet íslensk
veitingahús með útiborð til að vera með
sólarvörn á borðunum – ódýrt en skemmti-
legt og kúnnarnir kunna að meta það.“
Hún segist sjaldan brenna enda passi hún
vel upp á húðina, noti bæði sólaráburð og
dagkrem með vörn. Hún gleymir sér þó ein-
staka sinnum með óþægilegum afleiðingum
líkt og sést á myndinni.
Tobba á sér engan uppáhaldssólaráburð og
notar yfirleitt Hawaian Tropic vegna þess
hve hann lyktar vel. Hún gerir einfaldlega
þær kröfur að áburðurinn virki vel og sé
frekar náttúrulegur.
n Á hún einhver góð ráð handa lesendum
DV? „Alltaf kaupa dagkrem með spf 15 það
er að segja með vörn í – sérstaklega fyrir
karlmenn sem nota ekki meik eða púður
og eru því alveg berskjaldaðir. Það er hinn
mesti misskilningur að fólk verði minna
brúnt með vörn – það verður brúnt en fer
betur með húðina og losnar við roðann! Eins
má fólk slaka á sólgleraugunum – risa hvít
för í kringum augun eru undarleg!“
Brann illa Tobba
gleymdi sér í
sólinni og þetta urðu
afleiðingarnar.