Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Qupperneq 26
26 Fólk 4. júní 2012 Mánudagur
Dauðhræddar sjónvarpsstjörnur
n Steindi Jr. og Auðunn Blöndal í Evrópska drauminum
É
g bað hann um að telja upp
að þremur fyrst. Hann leit
á mig, sagði „yes“ og henti
mér svo út,“ segir Steinþór
H. Steinþórsson, betur þekktur
sem Steindi Jr., um það þegar
hann fór í fallhlífarstökk við tök-
ur á þættinum Evrópska draum-
inum sem sýndur verður á Stöð
2 innan skamms. Þátturinn er
framhald af Ameríska draumn-
um sem sló í gegn á síðasta
ári en í þeim evrópska keppa
Steindi og Auðunn Blöndal á
móti Sverri Þór Sverrissyni og
Pétri Jóhanni Sigfússyni.
„Þetta var án djóks hræði-
legt,“ segir hann og hlær þegar
hann rifjar upp hræðsluna sem
greip um sig í hópnum en ásamt
Steinda voru í flugvélinni Auð-
unn Blöndal, liðsfélagi hans,
og kvikmyndatökumaðurinn
og Rottweiler-hundurinn Lúð-
vík Páll Lúðvíksson. „Við hitt-
um þessa menn úti á túni ein-
hvers staðar og þeir töluðu ekki
stakt orð í ensku. Svo var okkur
troðið í pínulitla flugvél og sát-
um þarna í klofinu hver á öðr-
um. Þegar við vorum komnir í
loftið áttaði Lúlli sig á því að það
var ekkert til þess að halda sér í.
Bara ekki neitt og hurðin var að
fara að opnast eftir nokkrar mín-
útur og hann ekki með neina
fallhlíf.“ Auðunn og Steindi fóru
um austurhluta Evrópu á meðan
Sveppi og Pétur Jóhann fór um
þann syðri. Steindi segir áhætt-
una við stigasöfnunina hafa
aukist jafnt og þétt eftir því sem
austar dró í álfunni. „Þetta var á
köflum eins og eitthvert atriði úr
Hostel,“ segir Steindi en á með-
al þess sem þeir lögðu á sig til að
hala inn stig var að fara í snáka-
bað. „Þegar ég spurði þá hvort
þessir snákar væru eitraðir vissu
þeir ekki neitt. Þeir fengu þetta
bara hjá einhverjum öðrum
gaur sögðu þeir. Síðan ég spurði
þá hvort þeir hefðu gert ein-
hverjar ráðstafanir ef við yrðum
bitnir. Þá bentu þeir á unglings-
strák í alltof stórri svuntu sem
hélt á risastórri sprautu. Þessi
náungi var aldrei læknir.“ Steindi
segir ferðalagið hafa verið mikið
ævintýri þó hann hafi óttast um
líf sitt oftar en góðu hófi gegndi
en þættirnir hefjast föstudaginn
29. júní. asgeir@dv.is
Nýir umsjónar
menn Hlaupa
nótunnar
„Nýjustu umsjónarmenn
Hlaupanótunnar á Rás 1!“
segir Helgi Seljan í gamni
sínu og skellir mynd af
blaðamannapössum þeirra
karlmanna sem eru álitsgjaf-
ar á EM á Facebook-síðu
sína.
Á dögunum birti femín-
íska síðan knúz.is opið bréf
þar sem Ríkisútvarpið var
minnt á að gæta jafnvægis á
milli kynjanna í umfjöllun
um Evrópumeistarakeppn-
ina í knattspyrnu 2012. Í
bréfinu er sagt frá því að á
undanförnum árum hafi oft
orðið misbrestur á því að
konum sé boðið í sjónvarps-
sal til þess að ræða um leik-
ina, stöðuna og annað sem
máli kann að skipta og má
ætla að Helgi Seljan skjóti
þarna nokkrum föstum skot-
um í gamni sínu á yfirmenn
sína sem eiga bágt með að
aðlaga sig jafnréttislögum.
M
akar forsetafram-
bjóðendanna voru
í viðtali í síðasta
helgarblaði DV og
voru myndaðir fyrir
utan Bessastaði. Ástþór Magn-
ússon fylgdi eiginkonu sinni
Nataliu Wium í myndatök-
una og var andrúmsloftið milli
hans og Svavars Halldórsson-
ar, eiginmanns Þóru Arnórs-
dóttur, í meira lagi þungt.
„Hann líkti eiginkonu
minni við vaggandi gæs, ég tek
ekki í höndina á svona manni,“
sagði Svavar um Ástþór en
ljósmyndari DV veitti snörp-
um orðaskiptum þeirra eftir-
tekt þegar Svavar neitaði að
taka í framrétta hönd Ástþórs
fyrir utan Bessastaði.
Sýndi Þóru óvirðingu
„Hann sýndi Þóru mikla óvirð-
ingu,“ sagði Svavar enn fremur
sem var afar ósáttur við Ástþór.
Áður höfðu Ástþór Magn-
ússon forseta fram bjóðandi
og stuðnings menn hans sent
frá sér myndband þar sem
Þóru Arnórsdóttur var líkt við
strengjabrúðu. Það myndband
hefur nú verið fjarlægt af vefn-
um.
Svavar og Ástþór eiga ekki
á hættu að mætast frekar
vegna kosningabaráttunnar
því nú er komið í ljós að fram-
boð Ástþórs er ekki metið gilt,
hann hafði ekki safnað nægum
fjölda meðmælenda til fram-
boðsins.
„Tek ekki í höndina
á svona manni“
Ekki lengur í framboði Engin hætta er á því að það komi til deilna á milli
Ástþórs og Svavars. Ástþór er ekki lengur í framboði.
Svavar fyrir utan
Bessastaði Átti snörp
orðaskipti við Ástþór
Magnússon .
n Reiddist Ástþóri í myndatöku n Segir Ástþór hafa líkt Þóru við vaggandi gæs„Hann
sýndi
Þóru mikla
óvirðingu
Á biðstofum
í blíðunni
Almannatengillinn Andrés
Jónsson þurfti af eyða
lunganum úr síðastliðn-
um föstudegi á biðstofum
í opinberum byggingum.
Dagurinn var með ein-
dæmum sólríkur og fannst
Andrési það heldur slæmt
hlutskipti að þurfa að hanga
inni í góða veðrinu. Hann
greindi frá þjáningunni á
Twitter-síðu sinni. „Það sem
maður ætti ekki að vera að
gera á svona sólríkum degi:
sitja á biðstofu tollstjórans í
Reykjavík.“
Harpa rakaði
af sér hárið
Harpa Einarsdóttir fata-
hönnuður skartar nú snoð-
uðum kolli en áður var hún
með langa lokka. Harpa
sýndi kollinn í viðtali við Líf-
ið í Fréttablaðinu á fimmtu-
daginn og sagði í gríni að lík-
lega hafi hún fylgt fordæmi
Britney Spears.
Harpa gekk í gegnum erfið-
leika fyrr á árinu þegar hún
komst að því að fjarlægja
þurfti P-púða úr líkama
hennar og segist koma sterk-
ari úr þeim raunum. Hún
þykir bera kollinn með af-
brigðum vel enda hin falleg-
asta kona.
Steindi Jr. Óttaðist um líf sitt oftar en einu sinni og oftar en tvisvar við
tökur á Evrópska drauminum.