Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Síða 12
É
g segi alveg eins og er, ég er mjög
ósáttur við niðurstöðuna og er
búinn að áfrýja málinu,“ seg-
ir Haukur Már Haraldsson fyrr-
um framkvæmdastjóri hjá Lands-
bankanum. Hann var á mánudaginn
dæmdur í átján mánaða fangelsi í
Héraðsdómi fyrir fjárdrátt. Hauki
er gert að sök að hafa millifært 118
milljónir króna af reikningi NBI
Holdings Ltd. þann 8. október 2008,
inn á eigin reikning.
Þetta er í þriðja sinn sem Héraðs-
dómur dæmir í málinu en tvisvar
áður hefur Hæstiréttur ógilt dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur og vísað
aftur í hérað. Fyrst var Haukur sýkn-
aður en svo dæmdur í tveggja ára
fangelsi. Nú var hann dæmdur í 18
mánaða fangelsi. Haukur er afar
ósáttur við dóminn og hefur lýst yfir
sakleysi sínu frá upphafi. „Ég er sér-
staklega ósáttur núna því í dómnum
er fallist á að ég hafi haft allar heim-
ildir til að gera þetta en það er gefið
í skyn að af því að ég hafi ekki verið
búinn að leiðrétta þetta þá hafi ver-
ið einhvers konar ásetningur falinn í
því. En það er ekkert efast um að ég
hafi haft allar heimildirnar.“
Haukur neitaði því fyrir dómi að
hafa ætlað að hagnast með því að
ná fénu til sín. Það hafi verið gert
sem öryggisráðstöfun til þess að
féð myndi ekki glatast þegar Lands-
banki Íslands féll og hann hafi því
ekki ætlað að hagnast á kostnað NBI
Holdings Ltd.
Hann hafi í raun setið í stjórn
fyrir tækisins til ársins 2010. „Ég
sat í stjórn í fyrirtækisins til ársins
2010 og stjórnarmennirnir gerðu
engar athugasemdir við setu mína
þar,“ segir Haukur og segist sjálfur
hafa beðið um úrlausn úr stjórn-
inni.
Haukur segir málið hafa tekið á
sig og fjölskyldu sína. „Auðvitað er
það mjög hvimleitt að hafa búið við
þetta á fjórða ár, það verður ekki af
því skafið.“
Hann ætlar alla leið með málið og
hefur áfrýjað því til Hæstaréttar Ís-
lands. Hann vonast til að niðurstað-
an verði honum í hag. „Að sjálfsögðu
vona ég það. Ég verð að hafa smá trú
á réttarkerfinu þrátt fyrir þetta allt.“
Ósáttur og ætlar að áfrýja
n Haukur Már dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt
Dæmdur í þriðja sinn Haukur
var dæmdur í 18 mánaða fangelsi
fyrir fjárdrátt. Hann er ósáttur við
dóminn og ætlar að áfrýja.
Jón Ásgeir færði kyrr-
settan Hummer til 365
J
ón Ásgeir Jóhannesson fjárfest-
ir færði Hummer-bifreið sína
yfir á eignarhaldsfélag í eigu
365 miðla, fjölmiðlasamsteypu í
eigu eiginkonu hans, Ingibjargar
Stefaníu Pálmadóttur, í ágúst árið
2011. Á bifreiðinni hvílir tæplega 200
milljóna króna kyrrsetningargerð frá
Glitni banka. Bifreiðin er í eigu sama
félags og á glænýja, svarta Range Rover
Evoque-bifreið sem DV greindi frá í
síðustu viku að Jón Ásgeir hefði afnot
af. Félagið sem um ræðir, Hverfiseignir
ehf, hefur verið rekið með tapi undan-
farin ár en það á þessa tvo bíla auk
fasteigna.
Báðir bílarnir tengjast
Jóni Ásgeiri
Hummer-bifreiðin hefur aðeins verið í
eigu Jóns Ásgeirs og Hverfiseigna síð-
an hún var fyrst skráð hér á landi árið
2003. Kyrrsetningargerðin sem hvílir á
bílnum var gerð í maí árið 2010 en það
þýðir að rúmt ár leið frá því að bifreiðin
var kyrrsett þangað til hún var færð yfir
í dótturfélag 365 miðla. Eins og fram
kom í svari Jóns Ásgeirs í síðustu viku
við fyrirspurn DV vegna Range Rover-
bifreiðarinnar þá eiga 365 miðlar
nokkurn fjölda annarra bíla. Athyglis-
vert er þó að aðeins tvær bifreiðar eru
skráðar á dótturfélagið og virðast báð-
ar bifreiðarnar tengjast Jóni Ásgeiri
með einum eða öðrum hætti.
„Ég hef bara ekki heimild til að
tjá mig um þetta mál. Ég get því mið-
ur ekki skýrt það út. Það eru ýms-
ar ástæður sem liggja að baki,“ sagði
Stefán Hilmar Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, aðspurður um
ástæður þess að Hverfiseignir keyptu
bílinn af Jóni Ásgeiri. Stefán svaraði
því þó að bifreiðin hafi ekki verið not-
uð sem hlutafé í fyrirtækinu líkt og
flestar aðrar eignir félagsins sem Ingi-
björg hefur fært inn í félagið. Hann
vísaði frekari spurningum um málið
á Jón Ásgeir sjálfan, sem þó er hvorki
eigandi né einn af stjórnendum félags-
ins. Jón Ásgeir svaraði ekki fyrirspurn-
um DV um málið.
Ingibjörg vildi heldur lítið tjá sig um
málið og vísaði á forstjóra 365 miðla,
Ara Edwald. „Já, bíllinn var keyptur,“
segir Ingibjörg aðspurð um málið en
hún vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um
af hverju þessi tiltekni bíll var keyptur
né hver hefði afnot af bílnum. „Ef þú
þarft fleiri upplýsingar um þetta eða
skilur þetta ekki er forstjóri í félaginu
sem þú getur haft samband við. Það er
forstjórinn í félaginu sem rekur félag-
ið.“ Ekki náðist í Ara vegna málsins.
Fasteignir fyrir 300 milljónir
Einkahlutafélagið Hverfiseignir er að
öllu leyti í eigu 365 miðla, sem er sam-
kvæmt skráningu Fjölmiðlanefndar að
langstærstum hluta í eigu Ingibjargar.
Félagið skilaði tapi upp á 2,6 milljón-
ir króna samkvæmt ársreikningi þess
fyrir rekstrarárið 2010 og var eigið fé
neikvætt um 2,2 milljónir í lok sama
árs. Tilgangur félagsins er umsýsla
og rekstur fasteigna, lánastarfsemi og
skyldur rekstur. Jón Ásgeir er hvergi
skráður eigandi.
Samkvæmt ársreikningnum eru
fasteignir í eigu félagsins metnar á
rúmar 204 milljónir króna samkvæmt
vátryggingarmati en fasteignamatið er
um það bil 70 milljónum króna lægra.
Samkvæmt ársreikningi er virði eign-
anna hins vegar skráð 315 milljónir
króna, en það var verðið sem þær voru
keyptar á út úr öðru félagi í eigu Ingi-
bjargar.
Eignir frá Baugi og Jóni Ásgeiri
Þegar rýnt er í eignasafn Hverfiseigna
kemur í ljós að félagið er eins konar
kista fyrir eignir sem áður voru í eigu
Jóns Ásgeirs eða félaga tengdum hon-
um. Til að mynda er ein af fjórum fast-
eignum félagsins flugskýli á Reykja-
víkurflugvelli. Flugskýlið var í eigu
Baugs á árunum fyrir hrun en það
var keypt af einkahlutafélaginu Sigk-
ari í júlí árið 2007 þó að ekki hafi verð
greitt fyrir það. 16. október 2008, ör-
fáum dögum eftir bankahrunið, var
það svo fært úr Baugi og yfir til Síðustu
mílunnar ehf. með samþykki stjórnar
Baugs. Það félag er í eigu Guðmundar
Inga Hjartarsonar og eiginkonu hans,
Sigríðar Sigmarsdóttur, en Guðmund-
ur er æskuvinur Jóns Ásgeirs. Ekki var
greitt fyrir flugskýlið við þá tilfærslu
frekar en þegar félagið komst í eigu
Baugs. Nú hefur flugskýlið hins vegar
ratað í hendurnar á Hverfiseignum.
Þrjár aðrar fasteignir eru skráð-
ar á félagið en um er að ræða vöru-
geymslu að Laugavegi 1B þar sem
meðal annars IP Studium, félag í eigu
Ingibjargar, hefur verið skráð til húsa,
Hverfisgata 18, þar sem meðal annars
myndagallerí í eigu Ingibjargar hef-
ur verið til húsa auk kaffihússins Bar
11 og lóð við Traðarkotssund 6. Í um-
fjöllun DV um fasteignirnar árið 2010
sagði Ingibjörg að fasteignirnar hefðu
verið nýttar til hlutafjáraukningar í 365
miðlum.
n 200 milljóna kyrrsetningargerð hvílir á bílnum n Færður í dótturfélag 365 miðla í fyrra
Losaði sig við bílinn Jón Ásgeir Jóhann-
esson losaði sig við bílinn rúmu ári eftir að
slitastjórn Glitnis fékk bílinn kyrrsettan
gegn 200 milljóna króna tryggingu. Bílinn
færði hann yfir á félag í eigu eiginkonu
sinnar, Ingibjargar Pálmadóttur.
Má ekkert segja Stefán Hilmar Hilm-
arsson, framkvæmdastjóri Hverfiseigna,
vísaði öllum spurningum um málið á Jón
Ásgeir, sem er þó hvergi skráður eigandi eða
stjórnandi félagsins.
MynD Hörður svEinsson
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
sams konar bíll Bíllinn sem um ræðir er af gerðinni Hummer H2 sem er eins konar lúxus-
útgáfa af herbílnum Hummer H1.
12 Fréttir 27. júní 2012 Miðvikudagur