Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Page 14
Bílasali talinn eiturlyfjabarón n Vandræðaleg uppákoma fyrir lögregluna í Mexíkó L ögregluyfirvöld í Mexíkó hafa viðurkennt stórkostleg mistök þegar þau handtóku mann sem þau töldu vera son Joaquin Guzmán, stærsta eiturlyfjabaróns heims. Guzmán þessi gengur iðulega undir nafninu „Sá stutti.“ Lögreglan í Mexíkóborg fagnaði handtökunni og taldi hana stóran áfanga í barátt- unni við Sinaloa eiturlyfjahringinn sem Guzmán stýrir. Blóðug styrjöld eiturlyfjagengja í Mexíkó hefur kostað tugi þúsunda lífið og er talið að son- ur Guzmáns, Jesus Alfredo „Sá feiti“ Guzmán, hafi verið í lykilhlutverki í hr- ingnum. Í tilefni af handtökunni var hinn meinti Guzmán yngri klædd- ur upp í skothelt vesti og sýndur fjöl- miðlum á blaðamannafundi. Hann var mjög niðurlútur að sjá, virtist mjög skelkaður og horfði stjarfur í gólfið án þess að svara nokkrum spurningum fréttamanna um hvar faðir hans væri niðurkominn. Allir stærstu fjölmiðlar heims fjöll- uðu um handtökuna fyrir helgi, sem þótti mjög jákvæð fyrir kosningabar- áttu Felipe Calderon, forseta Mexíkó. Ríkisstjórn hans hefur stórhert bar- áttuna við glæpagengin og því þótti handtakan til vitnis um góðan árang- ur í stríðinu. Fljótlega eftir blaðamannafundinn fóru hins vegar að renna tvær grímur á lögregluyfirvöld. Eftir að hafa rannsak- að málið enn ítarlegar, staðfesti tals- maður lögreglunnar að maðurinn sem var í haldi, væri ekki sonur Guzmán heldur ungur bílasali í borginni Gu- adalajara. Lögmaður Guzmán fjöl- skyldunnar sendi síðan frá sér yfirlýs- ingu skömmu eftir fundinn þar sem því var lýst yfir að umræddur mað- ur væri sannarlega ekki hluti af fjöl- skyldunni. Málið þykir allt hið vandræðaleg- asta fyrir bæði ríkisstjórn Mexíkó og bandarísku eitulyfjalögregluna, DEA, sem tók þátt í lögregluaðgerðinni þegar maðurinn var handtekinn. Georg ein- mana dauður Risaskjaldbaka, sem fékk nafnið Georg einmana, er dauð, 100 ára að aldri. Georg þessi bjó alla sína ævi í þjóðgarðinum á Galapa- gos og er talinn hafa verið síðasta skjaldbaka sinnar tegundir. Georg einmana fannst árið 1972 og hef- ur síðan verið tákn fyrir eyjarnar sem gegndu lykilhlutverki þegar Charles Darwin setti saman þró- unarkenninguna. Þó að Georg hafi verið hundrað ára, þá þótti það ekki sérlega hár aldur og höfðu vísindamenn búist við því að hann myndi lifa í nokkra áratugi í við- bót. Einu sinni voru milljónir slíkra skjaldbaka á jörðinni, á tímum risaeðla voru þær um alla Ame- ríku, Evrópu og Asíu. Þær dóu hins vegar út á flestum stöðum í heim- inum en náðu að lifa á Galapagos- eyjum. Charles Darwin heimsótti eyjarnar árið 1835 og rannsakaði skjaldbökur á nokkrum eyjum. Hann tók eftir því að skjald- bökurnar á hverri eyju voru ólíkar en að þær áttu augljóslega sömu forfeður. Sú uppgötvun styrkti kenningu Darwins um að skjald- bökurnar hefðu þróast. Konur mega keppa Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa ákveðið að heimila konum að keppa á ólympíuleikunum í London í sumar. Ákvörðunin er talin hafa verið tekin í skugga þess að Alþjóða Ólympíunefndin hafði hótað að banna Sádi-Arabíu að taka þátt í leikunum vegna kynja- mismununar. Ein kona frá Sádi- Arabíu mun keppa á ólympíuleik- unum í London, en það er Dalma Rushdi Malhas sem keppir í hesta- íþróttum. Fleiri konur gætu þó keppt fyrir hönd landsins, en þær munu samkvæmt opinberum upplýsingum „verða klæddar til þess að viðhalda virðingu sinni.“ Þessi yfirlýsing er talin þýða að konurnar muni verða klæddar í víða galla og með slæðu um höf- uðið, sem hylur hár þeirra en þó ekki andlit. Þetta er talið risastórt skref í átt að kynjajafnrétti en hefur valdið mótmælum meðal trúarhópa í landinu. Abdullah konungur hef- ur hins vegar stutt að konur fái að taka þátt í ólympíuleikunum. Sýrland á Suðupunkti L iðhlaupum í sýrlenska stjórnar hernum fjölgar með hverjum deginum. Á mánu- daginn lögðu sex foringjar og 33 hermenn niður vopn og flúðu yfir landamærin til Tyrklands, samkvæmt bandaríska blaðinu New York Times. Heimildum ber þó ekki saman um hvort að í þeim hópi sé háttsettur hershöfðingi. Samkvæmt fregnum hafa sjö aðrir, þar af þrír orrustuflugmenn, hlaupist undan merkjum og flúið til nágrannaland- anna. Viðkvæmt ástand Ástandið á svæðinu verður sífellt við- kvæmara. Fregnir um að að sýrlenski herinn hafi skotið niður tyrkneska herþotu hefur valdið miklum titringi. Evrópusambandið vill að Tyrkland bregðist varlega við árásinni. Sýr- lensk yfirvöld segjast þó ekki vera fjandsamleg í garð Tyrkja, flugvélin hafi farið inn fyrir lofthelgi landsins. „Við urðum að bregðast strax við,“ segir talsmaður yfirvalda. „Jafnvel þó flugvélin hefði verið frá Sýrlandi, þá hefðum við skotið hana niður.“ Tyrk- ir segja hins vegar að vélin hafi verið á flugi yfir alþjóðlegu hafsvæði þegar hún var skotin niður, eftir að hafa farið stutta stund inn í lofthelgi Sýr- lands. Tyrkir eru aðilar að NATO og segir Ahmet Davutoglu, utan- ríkisráðherra Tyrklands, á Twitt- er að Tyrkir muni styðjast við 4. grein sáttmála NATO, en í henni er kveðið á um að aðrar þjóðir banda- lagsins verði að bregðast við ef ráð- ist er á eina þeirra eða henni hót- að. Hann vísaði hins vegar ekki í 5. grein sáttmálans þar sem kveðið er á um að árás á eina NATO þjóð sé árás á þær allar og að þær séu því skyldugar að svara með viðeigandi hætti. Evrópuríki styðja ekki hernað Leiðtogar NATO-ríkjanna munu halda neyðarfund í Brussel í vikunni um ástandið í Sýrlandi, en utanríkisráð- herra Hollands hefur stigið fram fyrir skjöldu og sagt útilokað að Evrópuríki muni styðja hernaðar íhlutun í Sýr- landi. Ástandið í borginni Homs fer þó sífellt versnandi. Sýrlenski frelsisher- inn, sem berst gegn stjórnarhernum, segir að hermenn Bashar al-Assad, forseta landsins, ætli að „fremja mestu fjöldamorð sögunnar.“ Talsmaður frelsishersins segir að stjórnarherinn sé að senda meira en 100 skriðdreka til Homs og kallar eftir því að alþjóðasamfélagið stoppi her- menn Assads áður en þeim tekst ætl- unarverk sitt. „Við köllum eftir því að umheimurinn svari kalli okkar og geri eitthvað fyrir borgina okkar og alla þá óvopnuðu, óbreyttu borgara sem eru fastir innan hennar. Samt fáum við engin svör,“ segir talsmaðurinn, sem telur víst að þjóðarmorð séu nú fram- in í Homs. n Spennan í Sýrlandi vex með hverjum deginum n Neyðarfundur hjá NATO Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Allt í rúst Homs er eins helvíti á jörðu eftir stöðug átök stjórnarhers og uppreisnarhers þar í landi.„Fremja mestu fjöldamorð sögunnar. Rangur maður Þessi ungi bílasali var opinberaður á blaðamannafundi fyrir heimspress- una. Hann var sagður lykilmaður í stærsta fíkniefnaveldi heims. Seinna kom í ljós að það var rangt. 14 Fréttir 27. júní 2012 Miðvikudagur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.