Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Page 22
22 Menning 27. júní 2012 Miðvikudagur „MöMMukláM“ selst eins og heitar luMMur M amma þín er að lesa þessar bækur, kannski amma þín líka. Um beinstífa karlmannslimi og sadómasókískt kynlíf. Markaðstöfrar Harry Potter duga skammt þegar kemur að klámi markaðssettu fyrir „þroskaðar“ konur. Bókaröðin Fifty Shades of Grey eftir E.L James selst eins og heitar lummur í Bandaríkjunum. Nánar tiltekið hafa selst 10 milljónir eintaka um heim allan og höfundarrétturinn seldur til 37 landa. Fifty Shades of Grey  er nokkurs konar endursögn, spunasaga, á annarri frægri og vinsælli bókaröð, Twilight eftir Stephanie Meyer. Nöfnum sögupersóna og sögusviði hefur verið breytt. Engar vampírur og í stað meló- dramans kemur sjóðheitt kyn- líf. Aðalsöguhetjan er ung kona með brotna sjálfs- mynd sem á í sambandi við sadómasó kískan milljarða- mæring. Anastasia Steele og Christian Grey stunda kynlíf í „herbergi sársaukans“. Vilja konur ekki vald í kynlífi En það eru ekki spursmál um höfundarrétt sem vekja mesta umræðu. Bókmenntirnar hafa mest verið gagnrýndar af femínistum fyrir ofnotkun á sadómasókísku kynlífi. Katie Roiphe, blaðakona á Newsweek, spyr hvort það sé til of mikils mælst að söguhetj- ur bókanna búi yfir frjálsum vilja og veltir vöngum yfir því hvort konum finnist tilhugsun- in um vald óþægileg. „Jafnvel okkur sem ólumst upp í því að fara með völd?“ Katie spyr einnig hvort það sé svo að konur vilji jafnrétti aðeins á afmörkuðum sviðum en kæri sig ekki um það á öðr- um. „Vald og allt það sem því fylgir gæti okkur fundist leiðin- legt,“ veltir hún fyrir sér. Andrea Reiher, bókmennta- gagnrýnandi og ritstjóri, mót- mælti ummælum Roiphe og sagði undirgefnina ekki merki um að konur vilji gefa frá sér vald eða jafnrétti og seg- ir frá því að henni hafi fundist sagan snúast um nokkuð ann- að. „Mér finnst sagan vera um drottnun og misnotkun, konu sem örvæntingarfull vill þókn- ast karlmanni.“ Karlar sækja í undirgefni Áhugavert í þessari heitu um- ræðu er að í hana hafa bland- að sér konur sem drottna í kynlífi. Ein þeirra er Melissa Febos sem segir misskilning að konur séu almennt undir- gefnar í kynlífi. Hún segir karla sækja í undirgefni í kyn- lífi í miklum mæli. Það þyki þeim eftirsóknarvert frelsi. Hún hefur einnig sagt að vinsældir bókanna endur- spegli kvíða kvenna yfir breyttum tímum jafnréttis, það þýði hins vegar ekki að þær séu ófrjálsar, óhamingju- samar eða ófemínískar. „Það þýðir hins vegar að milljónir kvenna hungrar í kynferðislegar fantasíur af öðrum toga en þær sem karlar framleiða fyrir karla og hing- að til hefur verið mest eftir- spurn eftir.“ Þannig tekur hún undir að konur séu að gang- ast klámvæðingunni á hönd og að eftirspurn eftir klámi sé fjölbreytt og sé einnig að breytast meðal karla. Gömul þemu í nýjum búningi Soraya Chemaly tekur ekki í sama streng. Hún sagði í The Huffington Post að áhuginn á bókunum væri ekki bundinn við einhvers konar nýlundu. Hann væri ekki byltingarkenndur eða til marks um aukna klám- væðingu. Hann væri raunar afar hefðbundinn. Bækurn- ar væru á engan hátt frum- legar og byggt væri á göml- um mýtum gömlu bókanna úr rauðu seríunum þar sem þemun eru hreinar meyjar, skemmdir karlar, undirgefni og yfirráð. Hins vegar væri opin um- ræða um kynlíf ákveðinn femínískur sigur. Dr. Drew segir bækurnar truflandi og spyr sig um mörkin á milli kynfrelsis og klámvæðingar. „Þau eru á gráu svæði,“ segir hún og vís- ar glettilega í heiti bókanna. Hún segir það þó gilda einu. „Ef bókin verður til þess að auka ánægju kvenna og tilf- inningu þeirra um nánd, þá það!“ kristjana@dv.is Klámvæðing kvenna Mamma þín er að lesa Fifty Shades of Grey, kannski amma þín líka. Karlar vilja vera undirgefnir Melissa Febos segir misskilning að konur séu almennt undirgefnar í kynlífi. Hún segir karla sækja í undirgefni í kynlífi í miklum mæli. Það þyki þeim eftirsóknarvert frelsi. n Matthew Curry, eigandi einnar stærstu vefverslunar með hjálp- artæki ástarlífsins, Lovehoney. co.uk, segir vinsældir bókanna hafa aukið sölu á hjálpartækjum kynlífsins í verslun sinni um 400 prósent. „Ég rek söluna beint til vinsælda bókanna, ég hef tekið eftir aukinni sölu á rafbókum um kynlíf og ýmsum tækjum sem notuð eru í sadómasókísku kynlífi, svo sem handjárnum og öðru.“ n Nú liggur fyrir að framleidd verður kvikmynd eftir bókunum og því eru miklar vangaveltur tengdar því hverjir muni fara með aðal- hlutverkin og hver muni leikstýra myndinni. Í mánuðinum bárust fréttir af því að Angelina Jolie sýndi því mikinn áhuga og væri sest að samningaborðinu. Angelina hefur sjálf ítrekað lýst yfir áhuga sínum á sadómasókísku kynlífi. Bret Easton Ellis, höfundur Amer- ican Pshyco, vill aðlaga handritið að hvíta tjaldinu. „Ég býð mig fram til þess að skrifa handritið, og er mjög spenntur fyrir því,“ sagði hann nýverið. Bækurnar kvikmyndaðar Aukin sala hjálpartækja Skálmöld og Botnleðja á Eistnaflugi Það verður nóg í boði fyrir rokkþyrsta tjaldgesti á Eistnaflugi, árlegri tónlist- arhátíð, sem haldin verður í Neskaupstað 12. til 14. júlí. Yfir 40 hljómsveitir deila sviðinu og þar verður að finna allt frá indí- til black metal-tónlistar. Á meðal hljómsveita sem munu troða upp eru rokkvík- ingarnir í Skálmöld en þeir voru einmitt klappaðir upp í fyrra. Einnig munu Sólstaf- ir, Hellvar, Moldun, Ang- ist, Saktmóðigur, Dr. Spock, Dimma, Morðingjarnir og Botnleðja koma fram. Flagarinn Don Giovanni á Íslandi Kvennabósinn Don Giovanni ryðst grímuklædd- ur inn á heimili Donnu Önnu til þess að eiga með henni ástarfund. Hún hróp- ar á hjálp og þegar faðir hennar, Il Commendatore, kemur hlaupandi bregst Don Giovanni ókvæða við og rekur karlinn á hol. Þannig hefst meistaraverk Mozarts um flagarann Don Giovanni. Óperan verður flutt á tvennum tónleikum á íslensku í byrjun júlí, nán- ar tiltekið á Þjóðlagahátíð- inni á Siglufirði 8. júlí kl. 14 og í Eldborgarsal Hörpu 10. júlí kl. 20. Flytjendur eru átta íslenskir einsöngvarar sem flestir eru við nám erlend- is, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Háskólakórinn. Sögumaður og leikstjóri er Bjarni Thor Kristinsson óp- erusöngvari. Þýðandi og hljómsveitarstjóri er Gunn- steinn Ólafsson en meðleik á æfingum annast Guðríð- ur St. Sigurðardóttir píanó- leikari. Dúettar á Gljúfrasteini Næstkomandi sunnudag, þann 30. júní, munu Andr- és Þór Gunnlaugsson gítar- leikari og Sigurður Flosason saxó fónleikari leiða saman hesta sína á Gljúfrasteini og framkalla ljúfa tóna fyrir áheyrendur. Þeir munu leika vel valin lög úr eigin lagasöfn- um í notalegri dúettaupp- setningu. Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00 og eru öllum opnir. Aðgangsverð er 1.000 krónur. n Mömmur og ömmur lesa klám n Fifty Shades of Grey byggja á Twilight-bókunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.