Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Síða 24
Ógn stafar af
auðæfum Psg
24 Sport 18. júlí 2012 Miðvikudagur
Þ
etta er stórt vanda
mál sem knattspyrnu
heimurinn þarf að
glíma við,“ segir
Christian Gourcuff,
knattspyrnustjóri franska úr
valsdeildarfélagsins Lorient,
um stefnu forráðamanna hins
nýríka félags, Paris St. Germain
(PSG) í Frakklandi. Félagið
hefur farið mikinn á leik
mannamarkaðnum í sumar og
hefur ekkert félag í Evrópu eytt
jafn miklum fjármunum í leik
menn og Parísarliðið.
Ótakmarkaðir sjóðir eig
end anna, Qatar Investment
Authority, hafa gert félaginu
kleift að kaupa rándýra leik
menn. Nú síðast skrifaði brasil
íski varnarmaðurinn Thiago
Silva undir fimm ára samning
við félagið en hann var keypt
ur frá Milan á 46 milljónir evra,
eða 7,2 milljarða króna. Fyrr í
sumar kom Ezequiel Lavezzi
til félagsins frá Napoli fyrir 30
milljónir evra, eða 4,4 millj
arða króna. Þá verður Svíinn
Zlatan Ibrahimovic hjá Milan,
líklega kynntur sem leikmað
ur PSG í dag, miðvikudag, en
tilboði upp á 23 milljónir evra,
eða 3,4 milljarða króna, var
tekið á dögunum. Stjóri PSG er
Carlo Ancelotti sem tók við um
síðustu áramót.
Uggandi þróun
Forráðamenn annarra liða í
Frakklandi eru uggandi vegna
þessarar þróunar, ekki síst
vegna þeirrar staðreyndar að
ekkert félag í Frakklandi hef
ur yfir jafn miklum fjármunum
að ráða. Félagið er í eigu fjár
festingarsjóðs í eigu yfirvalda
í Katar. Sjóðurinn var stofnað
ur árið 2005 og rennur ágóði
yfirvalda af olíusölu og olíu
vinnslu í umræddan sjóð. Fé
lagið keypti 70 prósenta hlut í
PSG í maí í fyrra en rúmu ári
áður bárust fréttir af því að
fjárfestingarsjóðurinn hefði
borið víurnar í enska stórliðið
Manchester United.
Talið er að eignir Qatar In
vestment Authority nemi um
60 milljörðum Bandaríkjadala,
eða 7.500 milljörðum króna,
og því ekki óvarlegt að halda
því fram að PSG sé ríkasta fé
lagslið heims.
Kaupa allt sem þeir vilja
„Fótboltanum stafar hætta
af þessu,“ segir Christian
Gourcuff, en hann er faðir Yo
hanns Gourcuff leikmanns
franska landsliðsins og erkifj
enda Parísarliðsins, Olympique
Lyon. Hann bendir á að þó
Parísarliðið hafi yfir miklum
fjármunum að ráða skili þessir
peningar sér ekki inn í franska
boltann. Hann vill að meira
fjárhagslegt jafnræði verði á
milli liða og hefur áhyggjur af
því að PSG muni einoka Frakk
landsmeistaratitilinn á kom
andi árum.
Gourcuff er ekki einn um að
hafa áhyggjur af þessari þró
un. Vikash Dhorasoo, fyrrver
andi leikmaður PSG og franska
landsliðsins, fer ófögrum orð
um um eigendur félagsins í við
tali sem birtist í tímaritinu So
Foot á dögunum. „Katarar geta
keypt allt sem þeir vilja. Jafnvel
manneskjur. Skiptir ekki máli
hvort manneskjan heitir Zlat
an, Kaka eða Tevez. Þeir vilja
bara borga nógu mikið,“ segir
hann.
Sigur, ekkert annað
Augljóst er að forráðamenn
Parísarliðsins ætla sér stóra hluti
á komandi árum, ekki einung
is í frönsku deildinni heldur
einnig í Meistaradeild Evrópu.
Parísarliðið, sem er eitt sögufræg
asta félag Frakklands, endaði í
öðru sæti deildarinnar í vor. Það
er hins vegar morgunljóst að fá
félög munu standast þeim snún
ing í frönsku deildinni í vetur.
„Við viljum gera vel í Meistara
deildinni. Það er engin spurning.
Það var frábært að fá Thiago Silva.
Hann mun hjálpa okkur mikið í
vörninni og verður lykilleikmað
ur fyrir okkur. Lavezzi er leikmað
ur sem getur gert gæfumuninn
og það sama má segja um Zlat
an. Við erum nú þegar með mjög
gott lið en það verður enn betra
ef hann kemur,“ segir Argentínu
maðurinn Javier Pastore, sem
kom til félagsins í fyrrasumar frá
Palermo. Parísarliðið greiddi 40
milljónir evra fyrir hann, eða 6,2
milljarða króna. Fyrsti leikur PSG
í frönsku deildinni er einmitt gegn
lærisveinum Christians Gourcuff,
Lorient, á heimavelli þann 11.
ágúst næstkomandi.
Moldríkir Félagið er í eigu fjár
festingarsjóðsins Qatar Investment
Authority. Á þessari mynd sjást Bras
ilíumaðurinn Nene og Argentínu
maðurinn Javier Pastore.
n Yfirvöld í Katar eiga PSG n Ekkert félag eytt jafn miklu í leikmenn í sumar„Katarar geta
keypt allt sem
þeir vilja. Jafnvel
manneskjur.
Komnir Thiago Silva skrifaði undir samning við PSG á dögunum og Zlatan er einnig á leiðinni til félagsins.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Tilboði United
í Moura hafnað
Forráðamenn brasilíska
liðsins Sao Paulo hafa hafn
að 38 milljóna evra, eða
5,9 milljarða króna, tilboði
Manchester United í hinn
nítján ára Lucas Moura.
United hefur verið á höttun
um eftir Moura í allt sum
ar og samkvæmt fréttum
brasilískra fjölmiðla var 32
milljóna evra tilboði United
hafnað á dögunum. Moura
er í liði Brasilíu sem tekur
þátt í Ólympíu leikunum í
London sem hefjast eftir
rúma viku. Forsvarsmenn
United höfðu vonast til að
landa Moura áður en leik
arnir byrjuðu en sú von virð
ist dvína með hverjum deg
inum.
Ber ekki kala
til Mourinho
Tito Vilanova, nýráðinn
stjóri Barcelona, kveðst
ekki bera kala til Portúgal
ans José Mourinho, stjóra
erkifjendanna í Real Ma
drid. Vilanova og Mourin
ho hafa eldað grátt silfur
saman á hliðarlínunni en
eins og frægt er orðið potaði
Mourinho í auga Vilanova
þegar Barcelona mætti Real
Madrid í Ofurbikarnum á
Spáni á síðustu leiktíð. Þá
var Vilanova aðstoðarmaður
Josep Guardiola sem hætti
störfum í vor. „Það er þreyt
andi að það sé enn verið að
tala um þetta atvik. Hann
tók mjög vel á móti mér
þegar ég hitti hann aftur og
ég ber ekki kala til hans,“
segir Vilanova. Barcelona og
Real Madrid mætast aftur í
Ofurbikarnum í ágúst.
Litli Hazard
líka til Chelsea
Evrópumeistarar Chelsea
íhuga nú að reyna að fá
Thorgan Hazard, yngri bróð
ur Eden Hazard, til félagsins.
Eden gekk í raðir Chelsea
í sumar fyrir 32 milljónir
punda, eða rúma sex millj
arða króna, og vill yngri
bróðir hans fylgja honum til
Chelsea. Thorgan Hazard,
sem er 19 ára, er samnings
bundinn Lens í Frakklandi
en þar sem samningur hans
rennur út næsta sumar er
líklegt að forsvarsmenn Lens
séu reiðubúnir að selja leik
manninn fyrir tiltölulega
litla upphæð. Eden Hazard,
sem þykir afar leikinn með
boltann, segir að yngri bróð
ir sinn sé mun hæfileikarík
ari en hann.