Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2012, Side 4
„Stuðningsmaður“ í 20 ár
n Segist ekki hafa verið kosningastjóri bæjarstjórans
V
iggó E. Hilmarsson, sem DV
fjallaði um í síðustu viku í
tengslum við lóðaúthlutun í
Kópavogi til verktakafyrirtækis
sem hann stýrir, segist ekki hafa verið
kosningastjóri Ármanns Kr. Ólafsson-
ar bæjarstjóra, líkt og kom fram í frétt í
DV. Hann segir að ráðið hafi verið sér-
staklega í það starf og að annar maður
hafi gegnt því.
Viggó segir hins vegar að hann hafi
verið stuðningsmaður Ármanns um
árabil. „Ég er búinn að vera stuðnings-
maður Ármanns í bráðum tvo áratugi
samanber greinaskrif og fleira.“ Viggó
neitar því hvorki né játar að hafa kom-
ið að því, fyrir hönd Ármanns Kr., að
hafa myndað meirihluta í bænum
með Y-listanum og setið fundi þar
sem samstarf var rætt. Þá eru Viggó
og Ármann Kr. aldavinir. Viggó var
þó ekki kosningastjóri Ármanns Kr. –
sá sem var í reynd kosningastjóri hjá
Ármanni hefur staðfest það – og telst
það hér með leiðrétt.
Athugasemdir Viggós við frétt DV
fylgja hér á eftir:
1. Ég var ekki kosningastjóri Ár-
manns Kr. Ólafssonar og hef aldrei ver-
ið. Það var ráðið formlega í það starf.
2. Lóðinni að Þorrasölum 9–11 var
ekki pólitískt úthlutað heldur dró full-
trúi sýslumanns úr umsóknum.
3. Mótx hefur aldrei fengið afskrift-
ir, heldur var niðurfellingin vegna
ólög legra erlendra lána.
4. Umsóknarferlið var mjög gagn-
sætt og sem dæmi þá var sent bréf
þann 3. apríl til formanns fram-
kvæmdaráðs og það lagt fram á fundi,
um að stofnað yrði nýtt hlutafélag
um byggingu Þorrasala ef Mótx yrði
dregin (sem fékk svo nafnið Silfurhús
ehf. ). Því skýtur skökku við að nafna-
breyting hafi komið á óvart eða gerð
tortryggileg.
5. Mér finnst skrýtið að fréttin hafi
ekki verið borin undir mig og vona að
svona vinnubrögð séu undantekning
en ekki regla.“
4 Fréttir 10. september 2012 Mánudagur
Þrír fluttir
á slysadeild
Umferðarslys varð á mótum Vest-
urlandsvegar og Hvalfjarðarvegar
á laugardagskvöld. Ökumaður
jeppabifreiðar, sem var á leið suð-
ur Vesturlandsveg, beygði inn á
Hvalfjarðarveg og í veg fyrir fólks-
bifreið sem kom úr gagnstæðri átt.
Tveir voru í fólksbílnum en öku-
maður jeppabifreiðarinnar var
einn á ferð. Allir þrír voru fluttir á
slysadeild til aðhlynningar en ekki
er talið að fólkið sé alvarlega slas-
að. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá lögreglunni.
Sextán spor
eftir árás
Fimmtugur karlmaður þurfti
að leita á slysadeild eftir að
hafa fengið glas í höfuðið á
bar við Laugaveg í Reykjavík.
Sauma þurfti sextán spor í höf-
uð mannsins en hann var með
slagæðarblæðingu. Málið er til
rannsóknar hjá lögreglunni en
dyraverðir á barnum urðu vitni
að árásinni. Atvikið átti sér stað
í kringum miðnætti aðfaranótt
sunnudags.
Mikill erill var hjá lögreglu
þessa nótt og þurfti ítrekað að
stilla til friðar þegar átök og
pústrar voru á milli fólks. Sam-
kvæmt tilkynningu náðist að
koma í veg fyrir mikil vandræði
en ölvun var mikil.
Enginn fékk
þann stóra
Enginn var með allar tölur rétt-
ar í lottóútdrætti helgarinnar að
þessu sinni. Tveir reyndust hins-
vegar vera með fjórar tölur réttar
og bónustöluna. Fengu miða-
eigendurnir hvor um sig tæpar
385 þúsund krónur. Annar vinn-
ingshafanna keypti miðann sinn í
Vestmannaeyjum en hinn á bens-
ínstöð á Ártúnshöfða í Reykja-
vík. Enginn var heldur með allar
tölurnar réttar í Jókernum en tveir
voru með fjórar réttar tölur. Hinir
heppnu keyptu miða sína á Siglu-
firði og í Þverholti í Reykjavík.
Viggó svarar fyrir sig Viggó E. Hilmars-
son segist ekki hafa verið kosningastjóri
Ármanns Kr. Ólafssonar í Kópavogi.
H
inrik var mjög góður dreng-
ur. Hann vildi öllum vel,“
segir Þór Karlsson um son
sinn, Kristján Hinrik Þórs-
son, sem var myrtur að-
faranótt laugardags í borginni Tulsa
í Oklahomafylki í Bandaríkjunum.
Kristján Hinrik, sem var iðulega kall-
aður Hinrik, var aðeins 18 ára gam-
all. „Mér finnst þetta bara rosalega
óraunverulegt. Þetta er eitthvað
svo langt frá þeim veruleika sem
við búum við hérna. Menn fara út í
búð og koma ekkert aftur.“ Þór segir
sorgina gífurlega en reynir að vinna
úr henni með samveru við fjöl-
skylduna. „Það er bara með því að
vera saman og tala saman. Við erum
búin að vera saman í allan dag.“
Traustur vinur
Nokkrir vinir Hinriks héldu minn-
ingarathöfn um hann í heimahúsi
í Vesturbænum á sunnudaginn.
Þar deildu þeir minningum sínum
af Hinriki og voru allir á einu máli
um að hann hefði verið einstak-
lega traustur vinur. „Hann var eins
og bróðir manns. Hann var alltaf til
í að hjálpa manni,“ segir Sigurður Þór
Daníelsson sem var skólafélagi Hin-
riks um tíma í Hagaskóla. „Hann var
bara vinur. Mjög góður vinur. Hann
var alltaf til staðar.“
Hinrik átti fimm systkini. Hann
flutti til Tulsa ásamt móður sinni og
systur um það leyti sem hann var 10
ára gamall en áður var hann búsettur
hérlendis og gekk í skóla í Grafar-
vogi. Hann flutti svo aftur til Íslands
um tíma og gekk í 10. bekk í Haga-
skóla. Þar eignaðist hann góða vini
sem hann hélt áfram sambandi við
eftir að hann flutti aftur til Bandaríkj-
anna. Vinir Hinriks segja að hann hafi
meðal annars haft brennandi áhuga á
rapptónlist og sjálfur hafi hann fengist
við textasmíðar. „Hann var alltaf að
leika sér að skrifa texta og svoleiðis.
En hann var feiminn við að koma því
frá sér,“ segir vinur hans úr Hagaskóla.
Á Facebook-síðu Hinriks má finna
textabrot eftir hann sjálfan.
Skotárás á bílastæði
Hinrik var farþegi í bíl hjá 37 ára göml-
um Bandaríkjamanni að nafni John
White og átti árásin sér stað á bílastæði
fyrir utan QuikTrip-verslun í suður-
hluta Tulsa. Vitni að árásinni seg-
ir að þeir félagarnir hafi átt í útistöð-
um við þriðja mann sem skyndilega
dró upp skammbyssu og hóf skothríð.
Skaut hann níu skotum hið minnsta
áður en hann hljóp á brott. Þegar lög-
reglumann bar að garði var bíllinn við
nærliggjandi kirkju og White og Hinrik
báðir lífshættulega særðir. Hinrik lést
á sjúkrahúsi skömmu síðar en White
er enn í lífshættu.
Ekki er vitað um hvað mennirn-
ir deildu né heldur hvers vegna
árásarmaðurinn dró upp skot-
vopn. Talið er að White hafi þekkt til
morðingjans en ekki er ljóst hvort
það sama á við um Hinrik. Yfirmað-
ur morðdeildar lögreglunnar í Tulsa,
Dave Walker, sagði í samtali við RÚV
að ekkert benti til annars en að Hin-
rik „hafi verið saklaus strákur á röng-
um stað.“
Á fréttasíðunni TulsaWorld var
greint frá því á sunnudaginn að
þetta væri ekki fyrsta morðið sem
framið er á bílastæðinu þar sem Hin-
rik var myrtur. Í ágústmánuði á síð-
asta ári voru tvær manneskjur myrt-
ar á sama stað, 27 ára karl og 24 ára
kona. Par á þrítugsaldri var handtek-
ið fyrir morðin og situr það nú í fang-
elsi vegna þeirra. Talið var að tilefni
þeirrar árásar hefði verið ógreiddar
fíkniefnaskuldir.
Árásarmaðurinn laus
Lögreglan í Tulsa hefur lýst eftir karl-
manni á aldrinum 18–24 ára sem er
dökkur á hörund, meðalhár, grannur
og með hökutopp. Þegar ódæðið var
framið var maðurinn klæddur rauðri
skyrtu og með rauða derhúfu.
Þegar blaðamaður DV ræddi við
Dave Walker sagði hann rannsókn
málsins vera skammt á veg komna.
„Einmitt núna erum við að kynna
okkur forsögu mannanna, og þá
helst ökumannsins, því við teljum að
árásarmaðurinn hafi átt í útistöðum
við hann. Að auki erum við að horfa
á fjölmargar myndbandsupptökur
frá ýmsum stöðum í nágrenninu til
að reyna að auðkenna árásarmann-
inn. Okkur hafa ekki borist neinar
nýtilegar upplýsingar frá almennum
borgurum sem hjálpa okkur við það.“
Þó Dave Walker geri ekki ráð fyr-
ir að árásin tengist með einhverjum
hætti klíkudeilum vill hann ekki úti-
loka neitt í þeim efnum. Hann seg-
ir að árlega megi að meðaltali rekja
um 3–4 morð í borginni til slíkra
deilna.
n Harmleikur í Tulsa í Oklahoma n Hinrik skotinn til bana
„Hinrik var
mjög góður
drengur“
„Hann var bara
vinur. Mjög góður
vinur. Hann var alltaf til
staðar.
Á röngum stað Svo virðist sem Hinrik
hafi verið saklaus strákur á röngum stað
þetta örlagaríka kvöld.
Harmi slegnir vinir Vinir Hinriks héldu minningarathöfn á sunnudag þar sem þeir
minntust fallins félaga af hlýhug. Mynd: JG
Vildi öllum vel
Hinriks er minnst sem
góðs drengs og trausts
vinar. Mynd: Facebook